Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Qupperneq 5
DV. FIMMTUDAGUR 22. MARS1984.
5
AiWA
•IKí-
AIWA
V-700 TÖLVUSTÝRÐA HLJÚMTÆKJASAMSTÆÐAN
FRÁ AIWA BÝÐUR UPP Á ÓTRÚLEGAR TÆKNINÝJUNGAR
Kostar aðeins kr. 48.880,- staðgr.
Það borgar sig örugglega að kynna sér AIWA.
Ármúla 38 (Selmúla megin) - 105 Reykjavík
Símar: 31133 83177 - Pósthólf 1366.
Tölvustýrð tæki á tölvuöld
„Hvað annað?"
Af hverju kaupa frá fortíðinni
þegar framtíðin er í boði?
Þrýsta á einn hnapp er allt sem þarf til fyrir
upptöku eða afspilun frá plötuspilara, útvarpi
eða öðru. Engar flóknar stillingar á segulbandi
eða magnara.
Bæði plötuspilarinn og segulbandið hafa auto-
matic „Intro-Play", það er með því að styðja á
einn hnapp spilar hvort tækið sem er 10 fyrstu
sek. af hverju lagi á plötunni eða kassettunni.
Beindrifinn plötuspilarann er hægt að stilla til
að hlusta á lögin á plötunni í þeirri röð sem þú
óskar (og endurtekur ákveðna röð allt að 10
sinnum). Sért þú að taka upp frá plötuspilara,
sér segulbandið um að alltaf sé jafnt bil á milli
laga á kassettunni. Segulbandið er með bæði B
og C dolby. Útvarpið er með LB, Mb og FM
stereobylgju og sjálfvirkan stöðvaleitara, einnig
12 stöðva minni. Magnarinn er 2x45 RMS
vött og tilbúinn fyrir Lazer plötuspilarann.
Allt þetta ásamt fleiru og sérstaklega
falllegu útliti.
Strandir hf. eina f iskim jölsverksmið jan í heiminum sem notar jarðguf u til f ramleiðslunnar:
Við framleiðum besta fískimjölið
„Hér á þessu svæði er líklega
mesta framtíð fyrir íslenskan iðnað.
Hér eródýrorka.”
Sá sem svo mælir er bjartsýnis-
maðurinn Friðþjófur Haraldsson,
einn af eigendum fiskimjölsverk-
smiðjunnar Stranda hf. sem tók til
starfa á Reykjanesi i lok febrúar.
Fiskimjölsverksmiðja þessi er sér-
stök fyrir þær sakir að hún er eina
verksmiðja sinnar tegundar í
heiminum sem nýtir jarðgufu til að
framleiöa fiskimjölið.
„Já, við lítum björtum augum til
framtíðarinnar. Við framleiðum hér
besta fáanlega fiskimjölið á
markaðnum og það er gufunni að
þakka. Með því aö nota hana losnum
við við öll þau aukaefni sem fylgja
olíunotkuninni,” segirFriðþjófur.
Og þaö er ekki bara mjölið sem
nýtur góðs af gufunotkuninni heldur
fæst með henni umtalsverður
sparnaður.
,,Á þeim tæpa mánuði, sem liðinn
er frá því við hófum rekstur, telst
okkur til að við höfum sparað sem
svarar einni milljón sem annars
hefði farið í olíukostnað. Þetta hefur
því umtalsverðan gjaldeyrissparnað
í för með sér,” segir Friðþjófur.
Auðn í september
Það hljómar nokkuð ótrúlega í eyr-
um þess sem kemur í Strandir hf. að
þarna var auðnin ein fram í miöjan
september síðastliöinn. Þá hófust
framkvæmdir við verksmiöju-
bygginguna og þeim miðaöi svo vel
áfram aö verksmiðjan gat hafið
starfsemi í lok febrúar eins og getur
að framan.
„Það er ekki lánastofnunum að
þakka að þetta gekk svo vel sem
raun ber vitni. Þar höfum við mætt
algjöru skilningsleysi á því sem við
erum að gera. Þess vegna höfum við
fimm, sem að þessu stöndum, þurft
að leggja allt okkar fé í þetta. Mér
finnst það í rauninni afskaplega
undarleg pólitík að lána endalaust fé
i smiöi og kaup á fiskiskipum en
— segirFriðþjófurHaraldsson verksmiðjustjóri
Þetta er besta fiskimjölið á
markaðnum, segir Friðþjófur
Haraldsson.
hugsa svo ekkert um áframhaldiö
þegar fiskurinn er kominn á land,”
segirFriðþjófur.
Vélakostur verksmiðjunnar var
keyptur notaöur frá Þýskalandi en
Friðþjófur segir að hann megi bæta
til muna ef fjármagn fengist til þess.
Gufan, sem verksmiðjan notar, er
Kampakátir fiskimjölsframleiðendur. Frá vinstri: Franklín Brynjólfsson,
Jón Helgason, Guðjón Haraldsson, Brynjar Viggósson, Haraldur Guðjónsson,
Friðþjófur Haraldsson og Kristinn Kristinsson.
keypt frá Sjóefnavinnslunni sem er
þarna í næsta nágrenni.
Aætluð afköst verksmiðjunnar eru
250 tonn á sólarhring en fullum af-
köstum hef ur enn ekki verið náð.
Hráefnið, sem verksmiðjan vinnur
úr, er aðallega alls konar fiskúr-
gangur, fenginn á hinum ýmsu
verstöðvum á Suðurnesjum. Upp á
síðkastiö hefur þó bræösla á loönu
verið aðalverkefnið.
„Viö erum búnir að taka við um
fjögur þúsund tonnum af loðnu það
sem af er. Og til þess að geyma loðn-
una byggðum við þró hér utan við
verksmiðjuna, þró sem við köllum
Jbt mm*. " ’Wfc.
Fyrsta húsið á tunglinu? Nei, Fiski-
mjölsverksmiðjan Strandir hf. á
Reykjanesi, reist á rúmum fjórum
mánuðum. DV-myndir Bj. Bj.
sjálfsbjargarviðleitni,” segir Frið-
þjófur og hlær.
Ætlum að græða á þessu
Enn sem komið er hefur ekkert af
framleiðslunni verið selt, beðið er
eftir því að viðsk ipta ráðuneytið
ákveöi verð á mjölinu. Engu að síöur
hafa forráðamenn Stranda hf.
kannað ýmsa sölumöguleika erlend-
is.
„Við höfum helst verið að kanna
möguleikana á því að selja mjölið
okkar tii fiskeldis erlendis þvi aö
okkar mjöl er eina mjölið hérlendis
sem er nýtanlegt til þess. Þetta
venjulega eldþurrkaða mjöl er ekki
nýtanlegt til fiskeldis. Og ég hef
engar áhyggjur af því að þetta seljist
ekki þetta er það góð vara og við
ætlum okkur að græða á þessu, þaö
er ekkert launungarmál,” segir
Friðþjófur Haraldsson, verksmiðju-
stjóri og einn af eigendum Stranda
hf. -SþS
; 'A; aíwa