Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Síða 15
DV. FIMMTUDAGUR 22. MARS1984.
15
Menning Menning
Háskólakórinn
Tónleikar Háskólakórsins í Félagsstofnun
stúdenta 18. mars.
Stjórnandi: Árni Harðarson.
Efnisskrá: Íslensk þjóðlög f útsetningum
Jónasar Tómassonar eldra og Róberts
Abrahams Ottóssonar; Gunnar Reynir
Sveinsson: Hjá lygnri móðu, Haldiöún Gróa;
Johann Sebastian Bach: Tveir kóralar, Lob sei
Gott úr Kantötu nr. 62 og Auf mein Hertz úr
kantötu nr. 145; Hjálmar Helgi Ragnarsson:
Gamalt vers; Tveir söngvar um ástina; John
Speight: Missa Brevis; Ámi Haröarson: Is
there?; Jónas Tómasson, yngri; Fimm man-
söngvar úr kantötu IV.
Einn ánægjulegasti vottur um líf í
Háskóla Islands er aö þar skuli
þrífast kór. Meira aö segja kór meö
töluveröan metnað í músíkölskum
sökum. Nú í vetur sendi kórinn frá
sér hljómplötu eina góöa, sem vitnar
um blómlegt starf hans á undanföm-
um misserum. En nú hafa orðið
stjómendaskipti hjá kórnum og viö
er tekinn ungur kappsfullur stjóri,
Ami Harðarson. Er skemmst frá því
aö segja aö ekki viröist ætla aö ríkja
síöri blómtíð undir hans stjórn en
fyrri stjórnenda.
Eins og endranær settu islensk
nútímaverk svip sinn á efnisskrá Há-
skólakórsins. Fyrst þjóölögin í
einföldum og skýrum útsetningum
Jónasar Tómassonar og Róberts
Abrahams, prýöilega sungin. Síöan
komu tvö lög úr Kiljanskviðu
Gunnars Reynis Sveinssonar. A
margan hátt vel sungin en erfiöustu
þættir, eins og synkópumar í
Haldiö’ún Gróa... gengu ekki
alveg upp. Yfir kórölum Bachs var
viss birta en betur hefði mátt huga
aö jafnvægi raddanna og dýptina
fannst mér skorta.
Perla alþýðlegs
trúarskáldskapar
Bænaversið, Marísonur, mér er
kalt, er perla í alþýölegum trúar-
skáldskap og lag Hjálmars Helga
klæöi sem því hæfa. Kórinn söng þaö
beint frá hjartanu. Enn er þaö
nánast hans einkaeign, en verður
þaö tæplega lengi. Á seinni hluta
efnisskrárinnar söng kórinn einnig
tvo af Söngvunum um ástina, eftir
fyrrverandi stjórnanda sinn.
Flutningursemhitti (semfyrr) beint
í mark.
Stutt predikun,
en kjarnyrt
Missa brevis var samin handa
ónefndum kór sem kom saman af
einlægri söngþörf i Skálholti. I
Reykjavík var hún svo flutt fyrir rétt
rúmu ári á portretttónleikum John
Speight á Myrkum músíkdögum.
Þar hamrar John Speight á and-
stæöum. Annars vegar undurblítt
stefið, fengiö að láni hjá Guillaume
Dufay og hins vegar innantómur
skarkalinn, yfirgnæfandi og
meiningarlaus þótt oröin séu kyrie
og Christe eleison. En bjartsýnin
tekur völdin í Gloríunni. Stutt
predikun, en kjarnyrt.
Að vita hvað
kórnum má bjóða
Eftir stjórnanda sinn, Arna
Haröarson, söng kórinn Nýtt stykki,
Tónlist
EyjólfurMelsted
Is there...? Arni tvinnar saman
effektana, en byggir upp meö þeim
hæga og þunga stígandi. Hann veit
vel hvaö má bjóöa kómum og nýtir
sér þaö til hins ýtrasta. Rétt þegar
manni finnst biðin eftir ljóðinu aö
veröa of löng stígur stúlka fram úr
sópraninum, hér Margrét Pálsdóttir,
og mælir kvæöiö skínandi vel fram.
Frumlega fram sett efni og næsta at-
hyglisvert.
A fimm af mansöngvunum úr
Kantötu IV (hjá Jónasi þýöir kantata
einfaldlega sungiö verk) enduöu
tónleikarnir. Söngurinn var góður,
en heildarsvipur verksins veröur
ekki nema svipur hjá sjón þegar
píanó eitt er með haft í spilinu í stað
kvartettsins, þótt Dagný Björgvins-
dóttir skilaði píanóröddinni hér
prýðilega í alla staði.
Rétt finnst mér aö segja eins og
er aö þaö þarf kjarkmann til aö taka
viö af Hjálmari Helga Ragnarssyni
sem náði undraverðum árangri.
Kjarkur dugir þó skammt, fylgi ekki
hæfni líka. Arni Haröarson hefur
hvort tveggja. Honum og kórnum
óska ég til hamingju meö góöa tón-
leika.
EM
Jóhannes Helgi er frjálslyndur
ihaldsmaöur, umfram allt
einstaklíngshyggjumaöur, og það er
aö vonum, aö slikum manni geöjist
ekki að samlífsháttum í Svíþjóö.
„Þessi ófreskja er eilíf eins og djöf-
ullinn, enda skilgetiö afkvaani hans.
Hún lifir góðu lífi í skriffinnskubákni
ríkisvalds, bæjar- og sveitarstjóma,
hún er í öllum stofnunum og félögum
og sumum nefndum, einkum þeim
sem fjalla um málefni listamanna.
Hver sá sem þorir að blóömarka
hana innir af höndum þjóðþrifa-
verk.”
Hann skoöar allt frá sjónarmiöi
heilbrigörar, jaröbundinnar skyn-
semi, segir um minn ágæta vin,
Jónas Haralz, eftir sjónvarpsþátt:
„Jónas kemur manni stundum alveg
í opna skjöldu þegar hann fer aö fíló-
sófera eins og um áriö þegar hann
sagöi öll góö ár vond ár og öll vond ár
jafnframt góð ár, sem er raunar rétt
út frá einhverju almættissjónarmiöi,
en okkur sem stöndum á jörðinni
þykja hlutföll góðs og ills nokkuð
breytileg, og þar er handfestuna aö
hafa.”
Jóhannes Helgi víkur stundum aö
skáldbræðrum sínum, Jóni úr Vör,
Jóni Oskari, Thor Vilhjálmssyni og
öðrum, stundum napurlega, alltaf
skemmtilega. Lýsing hans á
Parísarferö meö Jóni Oskari er
óborganleg og til marks um hina
miklu frásagnargáfu hans. En þessi
kostur bókarinnar dregur einnig
fram í dagsljósiö galla hennar — höf-
undurinn er of reiöur, óánægöur,
bitur, velur sér ekki alltaf viöfangs-
efni, sem honum eru samboöin,
gleymir sér í einhverjum hversdags-
legum þrætum. En alltaf er gaman
aö því, sem jafnritfær maður og
skynsamur og Jóhannes Helgi lætur
frá sér.
Hannes H. Gissurarson.
SPARIÐ - SAUMIÐ SJALF
MEÐ HUSQVARNA
VERÐ FRÁ KR. 9.529,00 ,
Nýkomin vorlínan af Baby-Kit tilsniðnum
barnafatnaði frá Husqvarna.
Vekjum eórstaka athygli á hinum vinsælu lánskjörum okkar viö
saumavólakaup, sem er ca helmingur út, eftirstöflvar lánum viö
vaxtalaust í tvo mánuöi.
GunnarÁsgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 91 35200
Husqvarna - mest selda saumavélin á íslandi
Hannprbaberólunín €rla
Snorrabraut 44 — pósthólf 5249 Sími 14290.
HÚRPULEIKUR
Stærð 50 x 50,
saumað með
dökkryðrauðu
Verð kr. 330.
ÁSTARENGLARNIR
Stærð 20 x 20, saumað með brúnu, 2 saman í
pakkningu. Verð kr. 220.
ENGLABÚRN í GLEÐI 0G S0RG
Stærð 40 x 40 cm, saumað með brúnu, 2 sam-
an í pakkningu. Verð kr. 420,-
Tilbúnir rammar og mikið úrval af rammalistum. Sérhœf-
um okkur i innrömmun á handavinnu. Vönduö vinna.
ALEIGAN
Stærð 50 x 70, saumað
með brúnu. Verð kr. 420,-
^ ^ IMYKOMIÐ
^ HLlFDARPÚNNUR
UNDIR
\BBU3B Uno!
Pantið tíma hjá verkstjóra ísíma
77756og 77200
1929 ALLT Á SAMA STAÐ 1984
SÍFELLD ÞJÓNUSTA
EGILL
YFIR HÁLFA ÖLD
VILHJALMSSON HF
Smiðjuvegi 4c — Kópavogi