Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Page 16
TTl
16
Spurningin
Hlustarðu á jass?
Sævar Skaftason. Lítiö, en ekki nú-
tímajass.
Ingibjörg Gisladóttir. Eg hlusta yfir-
leitt ekki á jass þrátt fyrir aö hann geti
verið góöur meö ööru.
Helgi Helgason. Eg hlusta ekki á nú-
tímajass, heldur á þann gamla. En
þaö verður aö vera s veifla í honum.
Bubbi Enoks. Já, já, já, nútíma- og
gamlan jass.
Haukur Sighvatsson. Já, talsvert, en
þó f rekar á eldri jass.
Sæmundur Sigurðsson. Eg hlusta ekki
ájassenallt annaö.
AD, GG, KS í starfskynningu.
DV. FIMMTUDAGUR 22. MARS1984.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Bjórmálið:
Samanburöur við
Svía stenst ekki
Eskfirðingur hringdi:
Mig langar til aö leggja orö í belg
varöandi sjónvarpsþáttinn um bjór-
máliö sem var á dagskrá á þriðjudag-
innl3. mars.
Þar talaði Páll V. Daníelsson og var
á móti bjórnum. Talaði hann máli sínu
til stuðnings um reynslu Svía í þessum
efnum. Sagöi hann Svía hafa hætt viö
sölu á bjór vegna slæmrar reynslu.
Þetta er ekki rétt nema að litlu leyti.
Sannleikurinn er sá aö Svíar seldu
þennan bjór á frjálsum markaði, þ.e.
þaö var hægt aö kaupa hann hvar sem
var en það er alls ekki þaö sem viö Is-
lendingar erum að velta fyrir okkur.
Svo er annaö að þessi bjór sem um
ræöir var 3,5% en sá sem hingað kem-
ur4,6%.
Hin slæma reynsla Svia skapaöist
vegna þess aö þaö gekk erfiðlega aö
losna viö bjórinn og því var hægt aö fá
hann á hálfvirði.
Þaö sér hver maður aö svona sam-
anburður stenst ekki og ég er hissa á
Jóni Ottari aö sjá ekki í gegnum þessa
lélegu útúrsnúninga Páls.
Lítið dæmi um „ábyrgan” fréttaflutningDV
Þorvaldur Kristinsson skrifar:
I forsíðufrétt DV 2. mars sl. var frá
því sagt að piltur nokkur hefði ekki
viljað kæra aö sér heföi veriö nauðgað.
I því sambandi sendu Samtökin ’78, fé-
lag lesbía og homma á Islandi, frá sér
fréttatilkynningu þar sem eftirfarandi
athugasemdum var komið á f ramfæri:
„1) A þaö verður að benda, sökum
þess hvernig „fréttin” er skrifuö og
ályktanir í henni dregnar, aö þeir sem
nauðga karlmanni eru yfirleitt aldrei
hommar, frekar en þeir sem nauðga
kvenmanni eru það sem kalla má
hneigðir til kvenna. Á sama hátt og sá
sem nauögar kvenmanni hefur óheil-
brigöa afstöðu til kvenna, þá vakir þaö
fyrst og fremst fyrir þeim sem nauðg-
ar karlmanni aö niðurlægja hann og
svíviröa. I svo til öllum tilvikum, þeg-
ar slíkt hefur komiö fyrir, er um þaö að
ræða, aö homma er nauðgað af manni
sem telur sig gagnkynhneigöan.
2) Skemmtistaöurinn Safari hefur
um tæplega eins árs skeið aflaö sér við-
skiptamanna með því aö höföa sterkar
til hommahaturs en þekkst hefur áöur
hér á landi. Hommar hafa oröiö aö
sæta ofsóknum af hálfu staöarins, átt
von á grófu misrétti af starfsmönnum
og tugum saman orðið að sæta líkam-
legu ofbeldi af hálfu þeirra. „Frétt”
sú, sem DV birti 2. mars, ber meö sér,
aö enn skal hert á þessari fyrirlitlegu
viðskiptastefnu.
3) Félagiö hefur til meðferöar
fjölda tilvika, þar sem hommar hafa
verið beittir misrétti af hálfu staöarins
og sætt líkamlegu ofbeldi, og vinnur
lögfræöingur nú aö undirbúningi lög-
sóknar. Þess vegna er mikilvægt, aö
allir er oröiö hafa fyrir baröinu á við-
skiptaháttum staöarins sökum þess aö
þeir eru hommar og gangast við því,
veiti félaginu upplýsingar um þaö, svo
aö fyllri yfirsýn fáist og mál þeirra
megi fá réttarmeöferð eftir því sem viö
á. Upplýsingum má koma á framfæri í
síma félagsins, 91—28539, mánudaga
og fimmtudaga klukkan 21—23, eöa
skriflega í pósthólf 4166, 124 Reykja-
vík. Fariö er með allar upplýsingar
sem trúnaöarmál.”
Gróflegur útúrsnúningur
Svo mörg voru þau orð. Tilkynning
þessi var undirrituð af stjórn Samtak-
anna ’78 og afhenti formaöur félagsins
hana fréttastjóra DV. Fréttastjórinn
lét þess getið aö líklega yröi hún lítil-
lega stytt en lofaöi að öll meginatriði
hennar kæmust til skila. Utkoman
varð síöan sá bastaröur sem birtist í
DV fimmtudaginn 8. mars og hér má
sjá á síðunni. Sú „frétt” á ekkert skylt
viö styttingu á málflutningi Samtak-
anna ’78 heldur er hún gróflegur útúr-
snúningur á f réttatilkynningu okkar.
Málsmeöferö af þessu tagi er síður
en svo neitt einsdæmi þegar við homm-
ar og lesbíur eigum í hlut. Um árabil
hafa samtök okkar átt í haröri baráttu
viö f jölmiöla hér á landi um þann sjálf-
sagöa rétt aö miöla upplýsingum um
málefni okkar og svara fyrir fordóma-
fullar árásir sem gjaman eru dulbún-
ar sem „fréttir”. Sú meðferð sem
fréttatilkynning Samtakanna ’78 hlýt-
ur á DV sýnir vel aö þeirri baráttu er
ekki lokið.
Að kitla fordóma fólks
Ábyrgur fréttaflutningur, sem-
standa vill undir nafni, felst í því aö
allra sjónarmiöa sé gætt og aö allir
aðiljar fái tækifæri til aö gera grein
fyrir skoöunum sínum. Þetta er ein-
faldur sannleikur sem þó þarf oft aö
minna á. 011 æsiblaöamennska miðar
hins vegar fyrst og fremst aö því aö
selja vöru og helsta aöferð þeirrar
sölumennsku er að kitla fordóma fólks.
Öll meðul helgast af þeim tilgangi.
Forsíðu,,frétt” DV ber þess líka glögg
merki og er þess eðlis að viö hommar
getum ekki látiö hana fljóta hjá at-
hugasemdalaust. Þaö frelsi sem DV
státar af á haus blaðsins er greinilega
ekki búið öllum Islendingum heldur
miöast viö þann fréttaflutning sem
ætla má aö kitlað geti fordóma og lág-
kúrulegan hugsunarhátt manna i
þeirri trú aö blaöiö seljist betur. Þaö
frelsi sem þar ríkir er bersýnilega
frelsi gróðahyggjunnar.
Samtökin '78:
Hommar nauðga
ekki karlmönnum
Vegna fréttar í DV 2.mars sl. um aö
’karlmanni hafi verið nauðgaö af
öörum karlmanni á skemmtistaönum
Safari benda Samtökin ’78 á það að
þeir sem nauðga karlmanni séu yfir-
leitt aldrei hommar. Þaö sem vaki
' fyrir þeim sem nauögar karlmanni sé
fyrst og fremst að niðurlægja hann og á
svívirða.
I nafni Samtakanna ’78 vil ég minna
alla homma og lesbíur á þá sjálfsögöu
kröfu okkar að njóta sama réttar og
aðrir þjóðfélagsþegnar, hvort sem um
er að ræöa réttinn til frjálsra skoöana-
skipta eöa þann sjálfsagða rétt aö
mega skemmta sér meö öðru fólki án
þess að viö eigum yfir höföi okkar hat-
ursárásir. Hins vegar munum viö ekki
sjá kröfur okkar rætast nema viö
stöndum saman og lærum aö svara
fyrir okkur. Það sannast þessa dag-
ana aö sá gamli sannleikur er enn í
fullu gildi.
OUt®0
Duran. Duran. Sjö ára gömul sveit og ekkert tiskufyrirbrigði segir bréfritari.
Ekki tískufyrirbrigði
Á.K. skrifar:
Eg get ekki setið á mér aö svara les-
endabréfi K.B. sem birt var í lesenda-
dálkiDVþann 13. mars sl.
I bréfi sínu fer K.B. vægast sagt ill-
um orðum um bresku hljómsveitina
DURAN DURAN og lætur þar fjúka
ýmis hallmæli um hljómsveitina, svo
sem aö DURAN DURAN sé ekki annaö
en tískufyrirbæri og hann biður um aö
engin fleiri Classic Nouveaux ævintýri
eigi sér stað. En ég skal segja þér, væni
minn (ég segi væni því ég er viss um aö
þú ert karlkyns), aö í fyrsta lagi er
DURAN DURAN ekki tískufyrirbæri,
hljómsveitin er um 7 ára gömul og hef-
ur smám saman unnið upp vinsældir
sínar gegnum árin, hún hefur gefiö út 3
stórar plötur og fjöldann aiian af smá-
skífum, sem ég efast um að þú hafir
nokkurn tímann hlustaðá. Eghefekk-
ert út á tónlist DIRE STRAITS aö
setja, en það er því miður ekki minn
smekkur af tónlist, en ég er ekki að
niðurlægja viökomandi hljómsveit,
eins og þú gerir við DURAN DURAN,
þó ég fíli hana ekki, smekkur manna er
. misjafn. Þaö eru greinilega fleiri ,,að-
dáendur” DURAN DURAN á Islandi
en DIRE STRAITS, og er ekki veriö aö
hugsa um peningahliðina lika í sam-
bandi við listahátíö? Flestir sem fíla
DIRE STRAITS eru um 18 ára og eldri
og ég efast um aö þessi aldurshópur
myndi sækja tónleika í Laugardals-
höll. En aftur á móti mundu „ungar
glanspíur”, eins og þú nefnir þær,
sækja tónleikana hjá DURAN DURAN
auk annarra unglinga.
DURAN DURAN er ein besta og vin-
sælasta hljómsveitin í heiminum (og á
þaö líka viö um Island) í dag og ekki
spillirútlitiðogklæðnaðurinnfyrir. Ef
möguleiki er á aö fá þessa frábæru
hljómsveit á Listahátíð 1984 mæli ég
svo sannarlega með henni bæöi vegna
frábærrar tónlistar og sviðsframkomu
og listahátíöarinnar vegna, ef fást á
upp í kostnað. Aö lokum vil ég hvetja
alla DURAN DURAN aödáendur og
aðra sem vilja fá góöa hljómsveit, sem
er þess viröi að sjá og heyra, á Listahá-
tíö ’84 til aö láta heyra í sér.