Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Qupperneq 20
20
DV. FIMMTUDAGUR 22. MARS1984.
r
W V Tímarit fyrir alla V
Urval
EUROCARD
PANTANIR
SÍMI13010
Stc írskotahríð
„Rauða Kersins”
r i Lissabon
GLÚÐARKERTI:
Höfum ávallt á lager
glóðarkerti í flestar
dísilvélar, olíu-
miðstöðvar og bensín-
miðstöðvar.
HAUKUR OG ÚLAFUR
RAFTÆKJAVERSLUN,
ÁRMÚLA 32 - SÍMI37700
- REYKJAVÍK.
AUGLÝSENDUR
VINSAMLEGAST ATHUGIÐ
Vegna síaukinnar eftirspurnar eftir aug/ýsingarými í DV verðum við að fara ákveðið
fram á það við ykkur að panta og ski/a ti/ okkar auglýsingum fyrr en nú er.
LOKASKÍL
FYRIR
STÆRRIA UGL ÝSÍNGAR:
Vegna mánudaga:
Vegna þriðjudaga:
FYRIR KL. 17 FÖSTUDAGA
Vegna miðvikudaga:
FYRIR KL. 17 MANUDAGA
Vegna fimmtudaga:
Vegna föstudaga:
Vegna Heigarbiaðs I:
FYRIR KL. 17 MIÐVIKUDAGA
FYRIR KL. 17 FIMMTUDAGA
Vegna Helgarblaðs H:
(SEM ER EINA FJORLITABLAÐIÐ)
FYRIR KL. 17 FÖSTUDAGA NÆSTU VIKU A UNDAN
AUKALITIR ERU DAGBUNDNIR
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.30.
A uglýsingadeild
Siðumú/a 33 sími27022.
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
— Liverpool vann stórsigur 4—1 yfir Benfica í Evrópukeppni
meistaraliða í gærkvöldi
Ian Rush — hefur skorað 35 mörk
fyrir Liverpool.
Evrópukeppni
meistaraiiða
URSLIT
Crslit urðu þessi í 8-liða úrslitum Evrópu-
keppni meistaraUða í gærkvöldi — samanlögð
úrslit úr tveimur leikjum liðanna eru innan
sviga:
Dinamo Bukarest — Minsk 1—0 (2—1)
Dynamo Berlín — Roina 2—1 (2—4)
Dundec Utd. — Kapid Vín 1—0 (2—2)
Dundee komst áfram á útimarkinu sem
félagið skoraði.
Benfica — Liverpool 1—4 (1—5)
• Dinamo Bukarest, Rúmeníu, Roma,
Italiu, Dundee United, Skotlandi og
Liverpool.
Hinn sterki varnarmúr Benfica átti í
miklum erfiðleikum með Kenny Dal-
glish, sem fór á kostum þegar Liver-
pool vann stórsigur 4—1 yfir Benfica í
Evrópukeppni meistaraUða í Lissabon
f gærkvöldi. DalgUsh var sá sem
stjómaði stórleik „Rauða hersins”
sem fékk óskabyrjun þegar Ronnie
Whelan skoraði eftir 9 min. eftir hom-
spyrau Sammy Lee.
Þar með var Whelan búinn að gefa
Liverpool tóninn en eins og menn muna
vann félagið Benfica 1—0 á Anfield
Road. Craig Johnston bætti síðan öðra
marki við (2—0) á 33. mín. eftir aö þeir
Dalglish og Ian Rush höfðu prjónaö sig
skemmtilega í gegnum vöm Benfica.
75 þús. áhorfendur áttu erfitt með aö
trúa sínum eigin augum. Portúgalski
landsUðsmaðurinn Nene svaraði fyrir
Benfica á 74. mín. en leikmenn Liver-
pool voru svo sannarlega ekki búnir að
segja sitt síðasta orð. Ian Rush skoraði
3—0 á 78. mín. og síöan gulltryggöi
Whelan stórsigur Liverpool 4—1 á 88.
mín. Otrúlegur sigur og það eru ár og
dagar síðan Bento, markvörður Ben-
fica, hefur mátt hirða knöttinn eins oft
úr netinu hjá sér í leik og í gærkvöldi.
Rúmenar í undanúrslit
Þaö var miðvallarspUarinn Ionel
Augustin sem var hetja Dinamo
Bukarest, þegar félagið lagði Dynamo
Minsk frá Rússlandi 1—0 í Búkarest. 70
þús. áhorfendur sáu hann skalla knött-
inn í stöngina á rússneska markinu á 8.
mín. og síöan skoraöi hann eina mark
leiksins á 10. mín. — við geysilegan
fögnuð 70 þús. áhorfenda. Dinamo
Bukarest vann samanlagt 2—1 óg er
þetta í fyrsta skipti sem félag frá
Rúmeníu kemst í undanúrslit í
Evrópukeppni.
Þrumuskot Dodds
Dundee United vann sigur 1—0 yfir
Rapid Vúi í Dundee og komst áfram á
marki skoruðu á útivelli, þar sem
samanlögö úrslit urðu 2—2. Það var
David Dodds sem var hetja Dundee —
hann skoraöi sigurmarkið á 23. mín.
með þrumuskoti eftir vel útfærða
aukaspyrnu. Það voru þeir Richard
Gough og Derek Stark sem rugluðu
Austurríkismennina í ríminu þegar
Alan Kennedy — bakvörðurinn snjalli, sést hér berjast um knöttinn við
Glenn Strömberg hjá Benfica.
aukaspyrnan var tekin. Stark átti
stangarskot í leiknum.
Roma tapaði í A-Berlín
Þrátt fyrir að ítalska félagið Roma
tapaði 1—2 í A-Berlin, fyrir Dynamo
Berlín, komst félagið áfram á saman-
lagðri markatölu 4—2. Varamaðurinn
Emilio Oddi skoraði fyrst fyrir Roma,
eftir sendingu frá Falcao, en þeir
Andreas Thom og Rainer Ernst
skoruðu mörk Dynamo Berlín. -SOS.
Verður þriðji
leikurinn?
— Valur mætir N jarðvík
íkvöld
Valsmenn fá Njarðvíkinga í heim-
sókn í kvöld í Seljaskóla og má búast
við fjörugum leik. Njarðvíkingar
verða að vinna til að tryggja sér
tslandsmeistaratitilinn. Ef Valsmenn
bera sigur út býtum fer fram þriöja
viöureign þeirra og Njarðvíkinga — í
Njarðvík á laugardaginn og verður sá
leikur hreinn úrslitaleikur. Lelkurinn í
kvöld hefst kl. 20.
, -sos.
Rætist draum-
ur
Keflvikingar mæta KR-ingum í
undanúrslitum bikarkeppninnar i
körfuknattleik í Keflavík og Valsmenn
leika gegn Haukum í hinum undan-
úrslitaleiknum. Draumur Eiuars
BoUasonar, þjálfara Hauka, að mæta
KR-ingum í úrslitaleik bikarkeppn-
innar, getur því orðið að veruleika.
-SOS.
FH til Eyja
Bikarleikur Þórara og FH í 16-liða
úrsUtum verður háður i Vestmanna-
eyjum þriðjudaginn 27. mars. Það ætti
að geta orðið skemmtUegur leikur en
Uðin voru efst í deUdakeppninni i 1. og
2. deUd.
25 þátttak-
endurílands-
flokkaglímu
Landsflokkaglíman — Islandsmót —
fer fram á laugardag í íþróttahúsi
Menntaskólans við Sund. Hefst hún kl.
17 og þátttakendur eru 25 í sex
flokkum.
1 yfirþyngd eru 3, milliþyngd 4, léttþyngd 5.
Þó eru 2 keppendur í unglingafiokki, 5 í
drengjaflokki og 6 í sveinafiokki. Tíu þátttak-
endur eru frá HSÞ, 10 frá KR, 3 frá Víkverja
og 2 frá Armanni.
Glímuþing verftur á sunnudag kl. 13 ai)
Hótel Loftleiðum.
íþróttir
íþróttir
íþróttir