Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1984, Side 21
mt fVTA.M .•:S£ULaí.!UTÍ«MI->
DV. FIMMTUDAGUR 22. MARS1984.
Teitur kominn
á skotskóna
Frá Arna Sn®varr — fréttamanni
DVíFrakklandi:
— Teitur Þórðarson hefur tekið
fram skotskóna að nýju og hefur
hann skorað tvö mörk í þremur
siðustu leikjum Cannes. Teitur
skoraði jöfnunarmark Cannes 1—1
gegn 1. deildarliðinu Sochaux i 16-
liða úrslitum frönsku bikar-
keppninnar í gærkvöldi en þá fóru
fram seinni leikir liðanna. Cannes,
sem vann fyrri leikinn 3—0 á heima- m
velli, er komið í 8-liða úrslitin. I
Karl Þórðarson og félagar hans B
hjá Laval eru einnig komnir í 8-liða ■
úrslitin — unnu Rouen 3—1. Hin sex B
liðin, sem leika í 8-liöa úrslitunum, "
eru Mulhouse, Nantes, Lens, 0
Monaco, Toulon og Metz. Þess má _
geta að Dieter Six skoraði bæði mörk |
Mulhouse, sem gerði jafntefli 2—2 ■
við Bordeaux. -ÁS/-SOS. ■
Pétur Guðmundsson.
„Hef sett stefn-
una á Ítalíu”
— segir Pétur Guðmundsson
„Eg er á förum til Bandarikjanna
og hef sett stefnuna á að komast.að
hjá einhverju liði á ítalíu,” sagði
körfuknattleiksmaöurinn Pétur Guð-
mundsson í samtall við DV í gær-
kvöldi.
„Eg ætla að byrja á þvi að setjast á
skólabekk, halda áfram námi og
samfara því ætla ég aö koma mér í
góða æfingu og í framhaldi af því
mun ég gera allt sem í mínu valdi
stendur til að komast að hjá ein-
hverjuliðiáltalíu.”
Og Pétur bætti við: „Eg er hættur
að hugsa um NBA-deildina. En ef
mér tekst vel upp í sumar og fæ tæki-
færi er aldrei að vita nema að maður
slái til. Eg myndi ekki segja nei viö
tilboði frá einhverju liði í NBA-deild-
inni. Hún er toppurinn í körfuboltan-
umídag.”
' -SK.
Teitur Þórðarðarson.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Colin Walsh
gaf Brian
Clough góða
afmælisgjöf
— þegar hann tryggði Forest farseðilinn í
undanúrslit UEFA-bikarkeppninnar. Tottenham
komst einnigáfram
Colin Walsh gaf Brian Clough, fram-
kvæmdastjóra Nottingham Forest,
bestu afmælisgjöflna sem Clough gat
hugsað sér — þegar Walsh skoraði
jöfnunarmark Forest 1—1 úr víta-
spyrnu gegn Strum Graz í UEFA-
bikarkeppninni, þegar aðelns sex min.
voru eftir af framlengingu leiksins.
Clough var 49 ára í gær.
Forest vann því samanlagt 2—1. Það
voru 25 þús. áhorfendur sem sáu Walsh
sveifla vinstri fætinum og knötturinn
þandi út netamöskvana hjá austur-
ríska liöinu. Staphen Hodge fiskaði
vítaspyrnuna. Bozo Bakota skoraöi
mark Strum Graz úr vítaspyrnu, sem
var dæmd á Viv Anderson á 44. mín.
leiksins.
Briau Glough — hélt upp á afmælið
sitt í Austurríki.
Góður leikur Tottenham
Tottenham tryggði sér einnig far-
seöilinn í undanúrslitin í Austurríki
eins og Forest. Tottenham og Austría
Vín geröu jafntefli 2—2 og komst
Tottenham áfram á samanlagðri
markatölu — 4—2. Tony Galvin og
Gary Mabbutt léku að nýju með
Tottenham og styrktu þeir liðið mikið.
Glenn Hoddle lék ekki með — var
meiddur. Steve Perryman var færður
aftur sem bakvörður en hinn hávaxni
Gary Stevens fór fram á miöjuna.
Hann ásamt Mabbutt og Osvaldo
Ardiles áttu snilldarleik á miðjunni og
Tottenham lék vel.
Alan Brazil skoraði fyrst fyrir
Tottenham 1—0 á 13. mín. eftir góöan
undirbúning Ardiles og Stevens en það
var landsliðsmaðurinn Herbert Proh-
bikarkeppnin
ÚRSLIT
Orslit urðu þessi i 8-Iiða úrslitum UEFA-
bikarkeppninnar í gærkvöldi — samanlögð
úrsUt innan svlga:
Hajduk SpUt—Sparta Prag 2—0(2—1)
Spartak—Anderlecht 1—0(3—4)
Austria Vín—Tottenham 2—2(2—4)
Strum Graz—Nott. For. 1—1( 1—2)
• Hajduk Spiit, Júgóslavíu, Anderlecht,
Belgíu, Tottenham og Nottingham Forest
leika í undanúrsUtum.
aska sem náði að jafna fyrir Austur-
ríkismenn á 62. mín. — 1—1. Ardiles
skoraði 2—1 fyrir Tottenham á 83. mín.
— hans fyrsta mark á keppnistímabil-
inu. Ungverjinn Tibor Nyilasi skoraði
síðan 2—2 á 87. mín. 21 þús. áhorfendur
sáu leikinn sem var vel leikinn.
• Gary Stevens var bókaöur í leikn-
um og leikur hann því ekki fyrri leik
Tottenham í undanúrslitunum.
• Spartak Moskva vann sigur 1—0
yfir Anderlecht í Tbilisi en það dugði
ekki því að UEFA-meistarar Ander-
lecht unnu 4—2 í Brussel.
• Hajduk Split tryggði sér farseðil-
inn í undanúrslitin þegar júgóslavn-
eska félagið vann Sparta Prag 2—0,
eftir framlengdan leik. 50 þús. áhorf-
endur sáu Ivan Gudelj (18. mín.) og
Blaz Sliskovic (119. mín.) skora mörk-
in. Hajduk Split vann samanlagt 2—1.
-SOS
JafntefliíBlackbum
Orsllt urðu þessl í ensku knattspyrnunni i
gærkvöldi:
2. DEILD:
Blackburn — Charlton 1—1
SKOTLAND:
St. Mirren — Hibernian 3—1
Rushfékk
ekki samning
Það er ekki nóg að heita Rush — Steve
Rush, 25 ára, eldri bróðir markaskorarans
mikla, Ian Rush hjá Liverpool, hefur verið
látinn hætta hjá Leeds eftir mánaðar reynslu-
tíma. Hann mun halda áfram að leika með
Colwyn Bay en hann hefur skoraö 24 mörk
fyrir liðið á þessu leiktímabili. Steve er þar
„part-timer” eins og Bretarnir segja. Það er
að hann stundar vinnu með knattspyrnu sinni.
-hsim.1
íþróttir
íþrótt
VW GOLF og VWJETTA á sérstöku helgartilboði:
Tveir sóiarhringar (föstudagskvöid tii
sunnudagskvölds) gegn einu daggjaidi
auk venjulegs km.gjalds.
Hvað ertu að gera um helgina?
FLUGLEIDIR BÍLALEIGA
Sími: 21188-21190