Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1984, Side 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR
258. TBL. — 74. og 10. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1984.
Leitarmenn við Bronco-jeppann við Rauðafell i nótt. Sporhundurinn er mættur á staðinn og hefur hafið
leit en lítið gekk vegna veðursins. DV-mynd GVA.
Mikil vonbrigði þegar leitarmenn komu að skálanum við Hlöðufell í nótt:
Frjálst,óháð daqblað
„Hér eru aðeins 2 menn
sem komu á vélsleðum”
Eftir 12 tíma baráttu viö krapaelg,
slæmt veöur og afleitt skyggni tókst
björgunarsveitarmönnum aö brjóta
sér leið úr byggö aö skálanum við
Hlööufell í nótt en þangað vonuöu
menn að ungmennin, sem saknaö er
á þessum slóðum, heföu náö.
Skilaboöin sem bárust í stjómstöö
leitarmanna í barnaskólanum á
Laugarvatni kl. 1.30ínóttvoru:
„HSR-l/Stjómstöö/skipti; Erum
komnir aö Hlööufelli. Hér eru
einungis tveir menn sem fóm hingað
ávélsleöum.”
Engar fregnir af ungmennunum en
staöfest aö vélsleöamennirnir
Sigurður og Theodór frá Efstadal
höfðu náö í skálann fyrr um daginn.
Ungmennin þrjú sem saknað er,
tveir piltar og ein stúlka á aldrinum
18—20 ára, ætluöu aö keyra á
Bronco-jeppa úr Þingvallasveit að
Hlöðufelli og þaðan á Laugarvatn á
sunnudaginn. Síðast sást til þeirra er
rjúpnaskyttur ''ittu þau á sunnu-
daginn, um þrjúleytiö, við Skriöu-
hnjúk en þá virtist rafmagnsbilun
vera í jeppanum. Er ekkert hafði
spurst til þeirra um tvöleytið aðfara-
nótt mánudagsins voru björgunar-
sveitir kallaöar út og tókst vélsleða-
mönnum úr Björgunarsveitinni Ing-
unni aö finna jeppann skömmu fyrir
kl. 11 í gærdag rétt við Rauðafell.
Tveir af vélsleðamönnunum héldu
strax aftur í áttina að skálanum við
Hlööufell og fjölmennt liö björgunar-
manna hóf skipulagöa leit en alls
tóku um 200 manns þátt í henni í gær-
kvöldi og nótt.
Svo virðist sem ungmennin hafi
orðið aö snúa við í brekkunum viö .
Miðdalsfjall og síöan fest jeppann
viö Rauðafell en tvær skóflur fundust
við hann.
Veörið aöfaranótt mánudagsins
var mjög gott fram til kl. 3 að br jálaö
veður skall á með skafrenningi.
Líklegt er talið aö ungmennin hafi
yfirgefiö jeppann áöur en veðriö
skall á og ætlaö annaöhvort í skálann
viö Hlööufeil eöa til byggöa í Miðdal
en í þá átt fór sporhundurinn Nonni í
Hafnarfirði eftir áö hann kom aö
jeppanum í gærkvöidi. Þjálfari
hundsins sagði að vegna krapans og
vatnselgsins sem flæddi um allt væri
erfitt fyrir hundinn að átta sig.
Ungmennin sem saknað er heita
Gunnar Hjartarson, Inga Björk
Gunnarsdóttir og Þröstur Guðnason.
— s já nánar bls. 2 -FRI.
Fjárlagaumræðan á Alþingi í dag:
TEKJUR HÆKKA
UM 3 MILUARÐA
Verðbólga á milli ára veröur 28% og
heildartekjur ríkissjóðs hafa hækkað
viö endurskoðun um þrjá milljaröa
króna. Áætlaður rekstrarhalli lækkar
um 160—170 milljónir króna og verður
1,5% af heildartekjum. Gjaldahliö fjár-
lagafrumvarpsins fyrir 1985 hefur
hækkaö viö endurmat um 2,2 milljaröa
króna.
Rekstrarhallinn er 365 milljónir
króna eöa 1,5% af heildartekjum.
Áætlaður rekstrarhalli lækkar því um
160—170 milljónir króna frá fjárlaga-
frumvarpinu.
Þetta er það helsta sem kom fram
við endurskoðun fjárlagafrumvarps-
ins 1985 sem Albert Guömundsson f jár-
málaráðherra leggur fram á Alþingi í
dag. -ÞG.
— sjá nánarábls.3
Samkomulag
við flugræningj-
anafsjónmáli
— sjá erlendar
fréttir bls. 9
Fróðleiksþorsti
oghagnýttnám
— sjá Tíðarandann
bls. 34-35
Svarfdælskir
bændurfá
mýsnar
íkaupbæti
- sjá bls. 19
Svíarhrifnir
afíslenskum
veitingastööum
— sjá bls. 5
Gottskipulag
Grikkjakemur
áóvart
— Jón L. skrifarfrá
ólympíuskákmótinu
— sjá bls. 18
Vesturbæingar
kljástvið
niðurföll
— sjá bls. 5