Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1984, Blaðsíða 40
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið í
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FIMMTUDAGUR 29. NOVEMBER 1984.
Folaldið komið á sinn stað.
DV-mynd S.
Folald finn-
ur móður
Klyfjahryssan í Sogamýrinni hefur
loksins kastað og eignast folald þaö
sem lengi hefur verið beðiö eftir.
Höggmynd Sigurjóns Olafssonar af
klyfjahestinum, sem sett var upp í
Sogamýrinni, milli Suöurlandsbrautar
og Miklubrautar 1966, hefur síðan
verið ófrágengin því frummynd
Sigurjóns sýndi einnig folald sem gekk
laust meö móðurinni.
Vegna kostnaðar viö gerð bronsaf-
steypu hefur dregist í átján ár að
setja myndina aö fullu upp og var þaö
ekki fyrr en stuttu fyrir dauöa
Sigurjóns að lokiö var viö gerð
afsteypunnar af folaldinu. Var myndin
þá í vörslu listamannsins, og síðan
ekkju hans, þar til nú aö hún var loks
sett á sinn stað.
Gissur hvíti:
„Smábrotsjór”
Línubáturinn Gissur hvíti SF-55 frá
Hornafirði lenti í brotsjó þegar hann
var á leið heim úr róðri í ýrrinótt.
Megnið af tækjum skipsins v; ið þegar
<P»óvirkt og neistaflugið stóö úr þeim. Ibúð
skipsljórans fylltist af sjó þrátt fyrir
að gluggar væru lokaöir.
Báturinn fór aftur á veiöar síðdegis í
gær. I samtali við DV sagði Jón
Sveinsson, sem gerir út bátinn ásamt
tveiinur öðrum, að þetta atvik þætti
þeim lítið merkilegt þarna á Horna-
firöi. Menn kipptu sér ekki upp við að
bátur fengi smábrotsjó á rassgatið,
eins og hann orðaöi það.
-EH.
Mlkið fyrir lítið
•••
AUKLIG4RDUR
LOKI
Það er nóg að vera
slíppur þótt maður sé
ekki snauður líka!
Vaxtagreiðslur íslendinga á næsta ári:
U In n 51 n il Hj iai rða r
i ti útl le n id in iga
hálf skuldasúpan út af orkumálum
Næstum fimm milljarðar króna
fara á næsta ári til þess að borga er-
lendum aðilum vexti af 55 milljarða
lánum. Þetta eru langtímalán sem
hið opinbera, lánastofnanir og einka-
aðilar skulda. Rétt rúmur helming-
urinn er eingöngu til orðinn vegna
orkumála.
I þessum gríðarlegu orkuskuldum
eru talsverðar upphæðir vegna
Kröfluvirkjunar, sem öll er í skuld
ennþá, og vegna „félagslegra fram-
kvæmda”. Þar má nefna byggðalín-
urnar. Að öðru leyti eru meöal
annars gefnar þær skýringar að líf-
timi orkuframkvæmdanna sé
langur. A móti kemur að orku-
skuldirnar vaxa stöðugt ár frá ári.
Hinn helmingur erlendra lang-
tímalána skiptist í grófum dráttum
þannig, að ríkissjóöur er meö um
12%, sveitarfélög um 1%, sjávarút-
vegur um 16%, iðnaður rúm 8%,
samgöngur rúm 10%, lánasjóðir
rúmlega 0,5% og ýmsir aöilar með
2%.
-HERB.
Banaslys
í Ölf usi
Tveggja ára drengur
lést í árekstri
Banaslys varð á mótum Þrengsla-
vegar og Þorlákshafnarvegar í ölfusi í
gærmorgun um kl. 11.00. Þar ók fólks-
bifreið í veg fyrir langferðabifreið með
þeún afleiðingum að bifreiðamar
skullu saman með miklum krafti.
I fólksbifreiðinni var ung kona meö
tvö börn sín, tveggja og þriggja ára
gömul. Er talið aö hún hafi blindast af
sólinni sem var lágt á lofti og ekki séð
langferðabílinn fyrr en of seint.
Sjúkrabifreiöar og læknir frá
Selfossi komu fljótlega á slysstaðinn
og síöan neyðarbifreið frá Borgarspít-
alanum sem kom á móti bílunum
austur. Var yngra barnið flutt yfir í
hana en það mun þá hafa verið látið.
Eldra barniö slapp ómeitt en móðir-
in, sem er liölega tvítug, var flutt á
slysadeildina þar sem gert var að
sjáanlegum meiðslum hennar. Enginn
sem í langferðabifreiðinni var mun
hafa meiðst.
-klp.
Siglinga-
tæki
brotnuðu
„Það brotnaði rúöa bakborðsmegin í
stýrishúsinu og nokkur siglingatæki
eyðilögöust,” sagði Hreiðar Valtýsson,
útgerðarmaður á Akureyri, í morgun.
Loðnuskipiö Þóröur Jónasson EA, er
útgerðarfélagið Valtýr Þorsteinsson
hf. á Akureyri gerir út, varð fyrir brot-
sjó austur af Glettingi í gærmorgun.
Sagði Hreiðar að búið væri að hreinsa
upp í stýrishúsinu og ný tæki væru
væntanleg að sunnan í dag, en skipið er
á Neskaupstað. Skipverja um borö í
Þórði Jónassyni sakaði ekki er brot-
sjór gekk yfir skipið.
-ÞG.
Báturinn Simon Gíslason sem
hefur verið / slipp i tíu ár.
DV-mynd Heiðar
Baldursson, Keflavík.
Bátur, sem verið hefur í slipp í tíu ár, fékk loðnukvóta:
Seldu kvótann og fóru
í ferð til sólarlanda
Báturinn Símon Gíslason, sem
hefur verið í slipp sl. tíu ár, fékk út-
hlutað 70 tonna þorskkvóta í haust.
Eigendur bátsins seldu kvótann fyrir
nokkur hundruð þúsund og brugöu
sér í sólarlandaferð fyrir glaðning-
inn. Báturinn var áður í eigu Skipa-
smíðastöðvar Njarðvíkur en var í
sumar seldur Helga Geirmundssyni
og fleiri aðilum á Isafirði. Gert var
ráð fyrir aö búið yrði aö standsetja
bátinn í haust. Þaö hefur dregist á
langinn og verður báturinn ekki
tilbúinn til að fara á veiðar fyrr en í
byrjun janúar.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem fengust frá Sjávarútvegsráðu-
neytinu fengu nokkrir bátar sem
ekki stunduðu veiðar úthlutaö kvóta.
Þessi mistök uröu vegna nýrra
aðferöa við stjórn fiskveiða. Eftir er
aö sníða af ýmsa vankanta sem
komið hafa í ljós með nýjum kvóta-
reglum. Nú er búið að afturkalla
kvóta nokkurra þeirra skipa sem
ekki fara á veiðar. Það hafa hins
vegar verið nokkur brögð að því að
menn hafi notaö kvótann sem
verslunarvöru eins og í ofangreindu
tilfelli. Þar hafi átt sér staö kvótatil-
færslur á röngum forsendum.
-EH.
|
í
4
4
4
4
4
í