Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1984, Page 4
4
DV. LAUGARDAGUR15. DESEMBER1984.
Fólk er sáróánægt með
afgreiðslutímann
— segir
bankastjóri
íBreiðholti
.Staöreyndin er sú að fólk er
sáróánægt og kvartar mikið yfir
þessum afgreiöslutíma. Það líður
varla dagur án þess að viðskipta-
vinir spyrji hvort eöa hvenær viö
ætlum að breyta afgreiðslutímanum
aftur,” sagði Guðrún Svafarsdóttir,
útibússtjóri Utvegsbanka Islands í
verslunarmiðstöðinni Hólagarði í
Breiðholti.
I júnímánuöi sl. opnaöi Utvegs-
bankinn nýtt útibú þarna og var
afgreiðslutíminn frábrugðinn
samræmdum afgreiðslutíma ann-
arra banka. Nýi bankinn var opnað-
ur klukkan tólf á hádegi og var opinn
til klukkan átján á kvöldin. I septem-
ber var þessu breytt að tilmælum
Starfsmannafélags Utvegsbankans
og Sambands ísl. bankamanna.
Samræmdur afgreiöslutími banka
var tekinn upp fyrú- einum þremur
árum og síðan hafa af og til heyrst
háværar mótmælaraddir viðskipta-
vina gegn samræmingunni.
Þegar afgreiðslutíma Utvegsbank-
ans í Hólagarði var breytt í septem-
ber undirrituöu 154 einstaklingar
mótmælabréf sem afhent var Sam-
bandi ísl. bankamanna.
Gunnar Snorrason, kaupmaður í
Hólagarði, einn þeirra sem undirrit-
aði bréfið og kom því til skila, segir
að sífellt berist fyrirspumir um
stöðu málsins f rá hverf isbúum.
Túlkunaratriði
Utibússtjórinn, Guðrún Svafars-
dóttir, sagði að fullt samkomulag
hefði verið gert við starfsfólkið um
fyrri afgreiðslutímann. Kjara-
samningana, sagöi hún, aö mætti
túlka þannig að afgreiðslutími banka
væri samkomulagsatriöi á milli
starfsmanna og bankans.
„f hverfisbönkum eins og hér
nýtist þjónustan betur eins og fyrir-
komulagið var,” sagði Guðrún og
lýsti sig mjög áhugasama um að fá
þessu breytt.
„Það er sjálfsagt að ræða breyt-
ingar og athuga allar röksemdir,”
sagði Helgi Hólm, framkvæmda-
stjóri Sambands íslenskra banka-
manna, er máliö var boriö undir
hann. „Við höfum lýst okkur fúsa til
viðræðna um málið.” Bætti hann við
að í nýafstöðnum kjarasamningum*
bankamanna hefðu engar breytingar
á afgreiöslutíma bankanna verið
ræddar.
Breyting í
Sparisjóði vélstjóra
Einn banki á Reykjavíkursvæðinu
hefur breytt afgreiðslutíma sínum og
það er Sparisjóður vélstjóra við
Borgartún. I samræmda afgreiðslu-
tímanum er síðdegisopnun á fimmtu-
dögum frá klukkan 17—18. Spari-
sjóður vélstjóra hefur opiö til klukk-
an fjögur á fimmtudögum en opiö frá
klukkan 9.15 (eins og aðrir bankar)
til 18 á föstudagskvöldum.
„Þetta fyrirkomulag var sam-
þykkt samhljóða af starfsfólki bank-
ans,” sagði Magnús Waage, af-
greiðslustjóri Sparisjóðs vélstjóra.
„Við breyttum afgreiöslutímanum í
maí síöastliðnum og kemur þetta
betur út fy rir viöskiptavini okkar.”
-ÞG.
Sören Sörenson afhendir Winston Hannesson, ekkju Jóhanns Hannessonar, fyrsta eintakið af ensk-
islensku orðabókinni. Örlygur Hálfdánarson er til vinstri.
DV-mynd GVA.
Örn og Örlygur gefa út „stærstu og dýrustu bók sem unnin hefur
veriö á Islandi”:
Ensk-íslensk orðabók
með alfræðilegu ívafí
„Hér er á ferðinni stærsta og dýr-
asta bók sem unnin hefur verið á
Islandi, aö því er ég best veit. Hún
kostar í dag hátt í 40 milljónir
króna,” sagði örlygur Hálfdánarson
útgefandi er hann kynnti útkomu
glæsilegrar ensk-íslenskrar oróa-
bókar bókaútgáfunnar Arnar og
Örlygs.
Ut úr búð kostar bókin 7.904 krón-
ur. Hægt er að fá hana með af-
borgunarkjörum. Greiða menn þá
2.504 krónur út en afganginn á fimm
mánuðum. .
Örlygur Hálfdánarson sagði aö
miklum erfiðleikum heföi verið háö
að standa straum af útgáfukostnaöi
og væri reyndar ekki séð fyrir end-
ann á því dæmi.
Ensk-íslenska oröabókin er 1.241
blaösíöa að stærð með hátt á annað
hundraö þúsund orðskýringum. Enn-
fremur eru í henni tæplega tvö
þúsund skýringarmyndir, töflur og
kort.
I frétt frá forlaginu segir að bókin
eigi að vera svo nákvæm að hún
gagnist nemendum á öllum stigum
náms og fræðimönnum í starfi og ÖU-
um öðrum er þurfa aö vinna meö
enskan texta.
„Það sem greinir þessa orðabók þó
helst frá öðrum íslenskum oröabók-
um er að í henni eru upplýsingar
alfræðilegs eölis. Sá sem flettir upp í
henni ensku orði fær ekki einungis
upp gefið íslenskt orð, sem hann
skilur ef til enn síður en hið enska,
heldur og útlistun á merkingu
orösins. Auk þess er í bókinni að
finna fróðleik um lönd og þjóöir, kon-
unga, páfa og keisara, forseta og
forsætisráðherra, fremstu menn á
sviöi lista og vísinda, til dæmis
nóbelsverölaunahafa og nánast flest
sem segja má að tilheyri almennri
engilsaxneskri menningu. Bókin á að
vera handbók allra þeirra sem lesa
þurfa texta á enskri tungu, hvort
sem sá texti er fagurfræðilegs eðlis
eða fagbókmenntir,” segir í frétt
Amarogörlygs.
Mikil vinna fjölda manna liggur á
bak við verkið. Sören Sörenson hóf
þaö fyrir ellefu árum. Eftir sjö ára
vinnu afhenti Sören verkiö örlygi
Hálfdánarsyni til útgáfu. örlygur
fékk Jóhann S. Hannesson til að
stjóma endurskoöun og frekari
mótun. Jóhann féll frá fyrir ári.
Tíu vísindamenn höfðu umsjón
með afmörkuöum sviðum bókar-
innar og fjöldi annarra veitti aöstoð.
Bókin er sett og prentuð hjá Prent-
stofu G. Benediktssonar.
-KMU.
Saga Reykjavíkurskóla
Fjórða og síðasta bindi Sögu Reykja-
víkurskóla er nú komið út. Saga
Reykjavíkurskóla fjallar um skóla
þann sem fyrst var nefndur Hinn lærði
skóli í Reykjavík (Latínuskólinn),
síöar Hinn almenni menntaskóli í
Reykjavík og loks Menntaskólinn í
Reykjavík.
I f jóröa bindi Sögu Reykjavíkurskóla
er lýst skólalífi frá hausti 1946 til vors
1980. Gert er grein fyrir merkustu við-
buröum hvers árs í eins konar ár-
bókarformi. Er árbókunum skipt í
kafla eftir rektorsárum þeirra fjög-
urra rektora sem við skólann hafa
starfaö þessi ár. Þá er fjallaö um leik'
listariðkanir nemenda. Þá er í bókinni
rektoratal, forsetatal Framtíðarinnar
og dúxatal.
Ritstjóri Sögu Reykjavíkurskóla er
Heimir Þorleifsson. Bækumar voru
allar settar og bundnar í Prentsmiðj-
unni Hólum en prentaöar í Prentsmiðj-
unniGrafík.
Saga Reykjavíkurskóla er alls uin
1100 blaösíður í stóru broti. Utgefandi
er Sögusjóður Menntaskólans 1
Reykjavík sem stofnaður var 1974 af 25
ára stúdentum.
Heimir Þorleifsson, ritstjóri Sögu Reykjavíkurskóla, og Guðni Guðmunds-
son rektor með fjórða bindi ritverksins.
DV-mynd GVA■
Æviogstarf
íslenskra kvenna
Hjá forlaginu Bókrún í Reykjavík er
komið út ritverkið Ur ævi og starfi
íslenskra kvenna eftir Björgu Einars-
dóttur. Er það fyrsti hluti erindaflokks
sem höfundur hefur flutt í Ríkisút-
varpiðfrá haustinu 1983.
Bókin er yfir 400 síður og prýdd rúm-
lega 200 myndum, sumum sjaldséðum,
og töluvert af myndum var sérstak-
lega tekið vegna þessarar útgáfu. I
bókinni, sem er hin vandaöasta að allri
gerð, er sagt frá 21 konu sem uppi vom
á tímabilinu frá 1770 til 1982 og margar
brautryðjendur á sínu sviði í þjóð-
félaginu.
ÚRÆVl
0 G STARFI
ISLENSKRA