Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1984, Qupperneq 13
DV. LAUGARDAGUR15. DESEMBER1984.
13
Hér er nær tvö hundruð ára
gömul mynd af matseld á hvera-
svæði. Fremst á henni hefur þri-
fæti verið komið fyrir yfir einum
smáhvernum. Pottur hangir i
bandi ofan úr þrifætinum, og bull-
andi vatnið leikur um pottinn
neðanverðan. Til vinstri við pott-
inn situr kona með ausu í hendi,
en börn og fullorðnir hafa ýmist
fengið ausið úr pottinum i skálar
sínar, aska og nóa eða biða eftir
þvi.
Einn hverinn er miklu mestur,
enda stendur Geyser undir henni,
sem þó gæti eins átt að vera sam-
heiti fyrir goshveri. í baksýn eru
eldfjöll spúandi logum og reyk-
mekki. Höfuðföt karla og kvenna
eru heldur forneskjuleg og gætu
verið dregin eftir teikningum i
handritum frá 15. og 16. öld.
Hér virðist þó fremur vera um
hugsýn að ræða en raunverulega
atvikslýsingu úr leiðangri ferða-
manna. Þvi er likast, að reynt sé
að þjappa nokkrum helstu ein-
kennum íslands saman á einni
mynd og hún eigi að sýna um-
heiminum daglegan lifsmáta á
þessu undarlega landi. Og raunar
hefur vitneskja almennings um Ís-
land sjaldnast náð miklu lengra i
hinni viðu veröld en sem jvarar
einni þessháttar mynd.
Smalastúlka á Þingvöllum árið
1862. Höfundur myndarinnar segir
svo frá fundi þeirra:
í þann mund sem óg stakk ófull-
kominni rissmyndinni niður hjá
mór og tók að rölta heim á leið tíl
hibýla prestsins, gestgjafa mins,
kom mannvera i Ijós fram á milli
kletta, og ég stóð andspænis is-
lenskri hjarðmey.
Nú jæja, það þýðir ekkert að
verða skáldlegur vegna þessa at-
viks. Reyndar vorum við alein útí i
auðninni og hún var mjög falleg
og hrifandi i bláum upphlut með
skotthúfu og i stuttu pilsi, að ekki
só minnst á fagurskapaða fótieggi,
en ég gat ekki sagt eitt einasta
orð á íslensku og þótt svo hefði
verið, hvað gat ég, ráðsettur
maðurinn, sagt við unga hjarð-
mey? Ég gat i mesta lagi sagt
henni, að hún væri einstaklega
heillandi og að hún liktist engu
fremur en rós i eyðimörkinni, er
blómgast fjarri augum allra manna
o.s.frv. Þegar hún skoppaði feimin
burt frá mór yfir urðina, hlaut ég
að dást að fjörlegum yndisþokka
hennar og furða mig á að ein-
göngu heimskar sauðkindur
skyldu fá að njóta slikrar fegurðar,
á meðan heimurinn væri fullur af
ungum myndarmönnum, sem yrðu
bálskotnir í henni, ef þeir aðeins
fengju að sjá hana.
Þessimynd af hrörlegum burstabæ er úr Seyðisfirðiárið 1882. Við kofaveggina má greina tunnur,
staura og leifar af einhverjum áhöldum. Til hægri virðast menn vera að búa sig tíi ferðar á hestum.
Góð greiðslukjör.
Sérstakt desembertilboð
,, Við bjóðum aðeinsþað besta”
Opiðíkvöld tilkllO
HÚSGAGNASÝNING
SUNNUDAG KL. 14-17.
LEYSUM HVERS MANNS VANDA VIO
HÚSGAGNAVALIÐ, HVORT
HELDUR ER FYRIR NÝJA HEIMILIÐ EÐA
ENDURNÝJUN Á ÞVÍ GAMLA.
TM-HÚSGÖGN
Síðumúla 30 sími 68-68-22