Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1984, Qupperneq 18
DV. LAUGARDAGUR15. DESEMBER1984.
GÓÐIDÁTINN SVEJK
eftir Jaroslov Hasek
í þýðingu Karls fsfelds er komin
út í nýrri útgáfu. Það er með öllu
óvíst að nokkur önnur þjóð en
við íslendingar eigi jafnsnjalla
þýðingu á þessu heimsfræga
verki. Það er óþarfi að tíunda
þetta snjalla skáldverk. Fyndnin
er svo leiftrandi að það er dauð-
ur maður, sem ekki tárast við
lestur þókarinnar.
ORÐ MILLI VINA
eftir Gunnar Dal
er nýjasta Ijóðabók skáldsins.
Enginn, sem ann góðum skáld-
skap lætur þessa bók framhjá
sér fara.
SPAMAÐURINN
eftir Kahlil Gibran
í þýðingu Gunnars Dal nýtur
stöðugt aukinna vinsælda hér á
landi. Þessi heimsfrægi Ijóða-
flokkur er nýlega kominn út í
sjöttu útgáfu.
ÞARABLÖÐ
ÞÆTTIR FRÁ BREIÐAFIRÐI
eftir Bergsvein Skúlason
flytur ýmsar frásagnir frá Breiða-
firði. M.a. er að finna frásögn af
breiöfirskum konum, sem öðrum
fremur stunduðu sjóinn, bæði
sem hásetar og formenn, en auk
þess eru margvíslegir þættir og
sögur og langur þáttur sem
nefnist: Slætt upp af minnis-
blöðum Jóns Kristins Jóhannes-
sonar, gamansöm og fjörlega
skrifuð frásögn.
VÍKURÚTGÁFAN
GRETTISGÖTU 29 - SÍMAR: 27714 36384
MAEWEST:
FYRSTA
KVEN-
REMBU-
SVÍNIÐ
„Þegar ég er góð er ég góð. En
þegar ég er slæm þá er ég betri,” sagði
Mae West. Fraukan sem hefur sagt
þaö mesta og dónalegasta. Og hvers
vegna að vera að neita þér lesandi
góöur um eitthvaö af því.
,,ELskaðu nágranna þinn. Ef hann
er hár, glæsilegur og hættulegur getur
þaö varla verið svo erfitt.”
Eða: „Er þetta byssa sem þú ert
með í vasanum eða ertu bara svona
glaðuraðsjámig?”
Mae West var ein mesta kyn-
sprengja fyrir stríðiö. Ljóshærö
mannæta.
Ut hefur verið gefin lítil ævisaga
hennar sem er með ýmsum hnyttni-
orðum og setningum. Titillinn er: „Eg
er enginn engill.” Dæmi um hnyttnina
er: „I mörg ár skammaðist ég mín fyr-
ir hvemig ég eyddi lífinu! ”
— Þýöir það að þér hafið snúiö viö
blaðinu, ungfrú West: „Nei, ég er hætt
aðskammastmín.”
Hve lengi lifði Mae West? Hratt,
frjálslega og sjálfstætt þar til hún dó í
nóvember 1980,87 ára. Hún hafði leikiö
í 12 myndum og tekið þátt í 2 leikhús-
uppfærslum. Skrifað sjö gamanleiki,
sjö kvikmyndahandrit og fimm skáld-
sögur. Auk þess hafa komið út 15 plötur
með henni þar sem hún syngur meöal
aiuiars eigin texta.