Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Síða 6
syngja eigin lög
Bergþóra Arnadóttir
brá skjótt við og œtlar
að hjálpa til þess að
gera þann draum að
veruleika.
„Eg hef í gegnum árin samið
nokkuð lög og texta mér og mínum til
ánægju. Þetta hefur ekki birst
opinberlega en mig langar að koma
þessuáframfæri.
Draumurinn er að koma nokkrum
lögum á framfæri, helst á hljómplötu
og jafnvel syngja sjálfur.”
Svona hljóðaði bréf frá Steini
Kárasyni og draumur hans var einn
fjölmargra sem við birtum nýlega í
helgarblaði DV. Og viti menn. Okkur
barst von bráöar svar. Það var frá
Bergþóru Árnadóttur og hljóðaöi
svona:
Til draumaþáttar DV:
„Eg var að lesa um drauma fólks í
helgarblaðinu og sá þar einn draum
sem ég hugsanlega gæti hjálpað til
við að láta rætast. Þetta er draumur
manns sem langar aö koma tónlist
sinni á framfæri. Að vísu segir í
fyrirsögn að viðkomandi langi að
spila á plötu en það gæti nú tæplega
gerst nema hann komi fyrst fram og
sanni hæf ileika sína.
I þessu tilviki er ég að hugsa um
vísnavini. Á vísnakvöld, sem haldin
eru einu sinni í mánuði á Hótel Borg,
bjóðum viö alla velkomna sem hafa
eitthvaö fram aö færa. Það hafa
margir stigiö sín fyrstu spor á
glæsilegum tónlistarferli á vísna-
kvöldum, sbr. Bubbi Morthens, Hálft
í hvoru og fleiri. Því vil ég gjarnan
fyrir hönd vísnavina bjóöa þessum
tónlistardreymanda að hafa sem
skjótast samband og segja okkur
hvað hann langar að gera. Ef hann
leikur ekki á hljóöfæri sjálfur þá ætti
að vera hægur vandi að bæta úr því.
Svona til gamans læt ég fylgja með
minn eigin draum sem eflaust getur
aldrei ræst!
Mig dreymir um að syngja bak-
Stein Kárason dreymdi um að koma
lögum sínum a framfœ • • •
raddir meö uppáhaldinu mínu,
ELTONJOHN!
Ekkisvo lítiö?
Svona hljóöaöi bréf Bergþóru
Árnadóttur.
Fengnir verða „vanir
menn"
Við höföum strax samband við
Stein og honum leist alls ekki svo illa
á hugmyndina. Hann hitti Bergþóru
að máli og úr varð að hún ásamt
fleirum veldi nokkur lög úr safni
hans til flutnings. Síðan yrði reynt að
æfa þau eins vel og hægt væri og fá
„vana menn” til liös. Það verður
vonandi glæsilegt prógramm sem
Steinn, Bergþóra og fleiri geta boðið
upp á í janúar. Við munum fylgjast
náið með undirbúningnum.
Tækifæri fyrir plötuútgef-
endur
En hver er þessi Steinn Kárason?
Hann svaraði þvi til, þar sem við
heimsóttum hann niöur í Sölufélag
garðyrkjumanna, aðkalla mætti sig:
garðyrkjufræöing, ylræktarfræðing,
skrúðgarðafræðing, allt eftir því
hvað maöur vildi.
En hvenær fór hann að semja lög?
„Það var þegar ég var 15—16 ára,”
svaraði Steinn. Hann lék á sínum
tíma með ýmsum unglingahljóm-
sveitum og tók þátt í einhverjum tón-
listarlegum uppákomum í Hvera-
gerði. Hann sagði að hann væri alls
ekki ókunnugur vísnakvöldum, hefði
sótt þau fyrir nokkrum árum. Um
hve mikið hann spilaöi sagði Steinn
aö það kæmi í skorpum. Stundum liði
vika, svo gerði hann það daglega á
milli.
Gerir þú bæöi lög og texta ?
„Já, ég bæði sem textana og svo
grufla ég í þessum gömlu: Steini og
Tómasi. Síðan vorum við að fikra
okkur saman, Lárus Sólberg
Guðjónsson og ég. Hann hefur gert
texta við lög sem ég hef samiö og svo
hefur hann komið meö texta sem ég
hef samið lög viö.
Nei, ég hef ekkert gert aö því að
syngja opinberlega undanfariö.”
Þig myndi ekki langa til aö vera
poppstjarna?
„Nei, það held ég ekki. Það væri
gaman að gera eitthvað, svona
ákveöið. Þaö býr ekki á bak viö þetta
löngun að verða toppnúmer. Ég hef
haft gaman af aö gera þessi lög og ég
vona að aðrir gætu haft gaman af því
líka.”
Og þá er ekkert annað að gera en
halda áfram undirbúningi og benda
plötuútgefendum á aö fylgjast vand-
lega með þróuninni.
-SGV.
ckritstoia „ýna iienm oæu er
ferö til Atoreyra ’ lega einnig 1 &***'£& langar ti
rflptist i ianuar. rætist væntan g íræðmgs, s s
Sí”a tónlega etnn« í ***■££** «
-sael annars
ffiSgír4
^ Snnt við Vi5 draunnnn «tast