Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Page 25
DV. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER1984
25
RIKULEGUR AFRAKSTUR:
Ibúðalánareikningur með Kaskó ávöxtun.
Með íyrirhyggjusemi getur þú nú loksins
tryggt þér langtíma bankalán til íbúðarkaupa.
Þú stofnar sérstakan innlánsreikning í
Verzlunarbankanum, ÍBÚÐALÁNAREIKN-
ING, sem tengist rétti til lántöku.
Vaxtakjörin eru þau sömu og á KASKO-
reikningnum góðkunna. Þannig er tryggt að
spamaðurinn ber alltaf raunvexti.
AUÐVELDUR SPARNAÐUR:
Misháar upphæðir á milli mánaða.
Samfeildur spamaðartími Ibúðalánsins er
skemmstur tvö ár en lengstur fimm ár. Fastur
gjalddagi er mánaðarlega.
En það getur vissulega staðið misjafnlega á
hjá þér fjárhagslega og þess vegna ræður þú sjálfur
þeirri upphæð sem þú leggur inn frá einum mánuði
til annars. Spamaðurinn er auk þess alltaf laus.
Sannarlega auðveldur og áhyggjulaus spamaður.
TIMAMOT I BANKAÞJONUSTU:
Allt að 10 ára lánstími og 200% lánshlutfall.
Lánshlutfallið verður því hærra og endur-
greiðslutíminn lengist því lengur sem sparað er.
Við lánveitingu er tekið mið af spamaði með
vöxtum eða verðbótum, ef þær reynast hærri.
EFTIR 2 ÁRA SPARNAÐ 150% LÁN, ENDURGREIÐSLUTÍMI 3 ÁR.
EFTIR 3 ÁRA SPARNAÐ 165% LÁN, ENDURGREIÐSLUTIMI 5 ÁR.
EFTIR 4 ÁRA SPARNAÐ 180% LÁN, ENDURGREIÐSLUTÍMI 7 ÁR.
EFTIR 5 ÁRA SPARNAÐ 200% LÁN, ENDURGREIÐSLUTÍMI 10 ÁR.
íbúðalán Verzlunarbankans gerir gæfumuninn
þegar íbúðarkaup em annars vegar og er því
langþráð lausn fyrir fjölmarga. Ert þú einn af þeim?
Komdu við í næstu afgreiðslu Verzlunar-
bankans og náðu þér í upplýsingabækling um
ÍBÚÐALANIÐ eða hringdu og fáðu hann sendan
heim.
VÆRZlUNfiRBfiNKINN
-vitttuvittteðþ&il
Italska fegurðardrottningin Fed-
erico Moro komst meö naumindum hjá
örlögum sem hljóta aö teljast verri en
sjálfur dauöinn þegar Marco nokkur
Bresolin sigraöi fyrir allnokkrum
árum í helstu h jólreiöakeppni Italiu.
Bresolin lagöi afar hart aö sér i
keppninni, enda var ekki aöeins um
góö verölaun aö keppa. Tilkynnt haföi
veriö aö sigurvegarinn fengi koss frá
hinni fögru ungfrú Moro, ríkjandi
feguröardrottningu landsins. Bresolin
var ákveöinn í aö hreppa þann koss.
En þegar hinn örþreytti sigurvegari
staulaöist upp á pallinn þar sem ung-
frú Moro beið meö stút á vörum kom
alvarlegt babb í bátinn. Fegurðardísin
leit á hjólreiðakappann, eggjandi
stúturinn hvarf af vörum hennar og
hún æpti upp yfir sig. Síöan snerist hún
á hæli og flúði niður af verðlauna-
pallinum.
,,Ég fer ekki aö kyssa. . . ÞETTA!”
emjaði hún viö furöulostna dómarana
og benti á afmyndaö andlit Bresolins.
„Hann er svo. . . hann er svo. . .
ljótur!”
Dómararnir höföu varla leitt hugann
aö andliti Bresolins en þegar þeir fóru
að kanna máliö hlutu þeir aö fallast á
álit atvinnumanneskjunnar. Bresolin
var satt aö seg ja meö ólíkindum ljótur.
Til þess aö bjarga andlitinu — þeirra
eigin og ungfrú Italíu; andliti
Bresolins var greinilega ekki hægt aö
bjarga — þá báöu þeir hinn snoppu-
fríða MarcoSgaravatto, sem lent haföi
í öðru sæti, um aö stíga fram og taka
viö kossi feguröardrottningarinnar.
Einn dómaranna sagöi viö blaða-
menn: ,,Sannleikurinn er einfaldlega
sá aö Bresolin er of ófríður. Þaö hefði
slæm áhrif ef mynd af Italíumeistar-
anum í hjólreiöum væri af svo ljótum
manni.”
Aö ekki sé talað um þá raun sem ung-
frúin fagra þyrfti að ganga í
gegnum.. .
Á Italíu er sigur augsýnilega ekki
þaö mikilvægasta.
Golf er yfirleitt talin fullkomlega
hættulaus íþrótt. En frá þessu eru þó
undantekningar. Ágætt dæmi er aö
finna frá Zimbabwe.
Snemma á síðasta áratug var
Rhodesia enn viö lýöi og hvítir menn
börðust af hörku gegn land-
stjórnendum og höföu meöal annars
áhrif á áhugasama golfleikara ná-
lægt Viktoríufossum. Aögeröir
skæruliöanna höföu þaö í för meö sér
aö teknar voru upp nýjar reglur sem
hljóta aö hljóma heldur framandlega
fyrir flest golffrík.
„Endurtaka má högg ef golfleikari
truflast vegna skyndilegrar skothriöar
eöa sprengjuárásar.” Kannast
íslenskir golfleikarar við þessa reglu?
Eða: „Keppendur skulu athuga hverja
holu og aögæta hvort sprengju hefur
veriö komið fyrir í henni. ”
Ariö 1976 stóö yfir golfkeppni á
vellinum þegar skæruliöar hófu
sprengju- og eldflaugaárás á hann og
hótelið sem hýsti keppendur og áhorf-
endur. Einn hótelgestur lét lífið en
keppendur héldu ótrauöir áfram uns
komið var aö 19. holu. Þá hrakti stööug
eldflaugahríö þá loks burt.
Keppninni var um síöir hætt en það
var raunar ekki vegna árása
skæruliöa. Þaö leyndist nefnilega nóg
af öörum hættum á golfvellinum. Til aö
mynda hélt krókódíll til í vatnsgryfju
viö 12. holu, fílahjörð haföi hreiðraö
um sig annars staðar og viö næstum
hverja hindrun mátti eiga von á
bavíönum, villisvínum og buffalóum.
Þessi dýr höföu í för meö sér aö enn
varö aö setja sérstakar reglur og má
taka fram aö þær eru enn í gildi.
Lendi kúla til aö mynda innan um
dýrahjörö er keppanda heimilt aö taka
hana upp (nái hann yfirleitt kúlunni!)
og setja hana niður i sem svarar
tvegg ja kylfu f jarlægö.
Lendi kúla í innan viö einnar kylfu
fjarlægö frá sofandi buffaló má til
dæmis setja hana niöur annars staöar
Allt að 10 ára lánstími og 200% lánshlutfall
en þó skal gæta þess að hún verði í ná-
kvæmlega sömu fjarlægð frá holunni
ogáöur.
Bavíanar og villisvín eru sérkapítuli
út af fyrir sig. I reglum golfvallarins
segir aö stingi bavíani af meö kúlu
einhvers golfleikara fái hann þrjár
mínútur til aö elta apann uppi og
endurheimta kúlu sína. Takist þaö ekki
fær hann refsistig, en jafnframt leyfi
til aö endurtaka högg sitt.
Hitti kúla á flugi hlaupandi villisvín
er keppanda hins vegar ekki ieyft aö
endurtaka höggiö.
Nú er skæruhemaöur aö mestu af-
lagöur í Zimbabwe og reglurnar um
skothríö og sprengingar eru því orönar
úreltar — í bili alla vega. Mesta hættan
sem steöjar aö golfleikurum á þessum
merkilega velli er nú frá fílum. Ein
reglan hljóöar svona:
,,Ef keppandi þarf að flýja undan
óöum fil, og lifir þaö af, skal honum
heimilt að hefja keppni aö nýju þar
sem frá var horfið.”
Það fylgir sögunni aö golfvöllur
þessi sé afar vinsæll.
Langtímalán
til íbúðakaupa
Iþrótttr
eru varasamar