Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1984, Page 34
34
DV. LAUGARDAGUR 22. DESEMBER1984
¥
JÓLAMYNDIR KVIKMYNDAHÚSANNA
Superman er hempuklæddur i Monsignor.
NYiA BIO—MONSIGNOR
OG PIRATE MOVIE
SUPERMAN
VERÐUR
PRESTUR
Fyrirgef mér, faöir, því ég hef
syndgað. Ég hef myrt fýrir larid mitt.
Ég hef stoliö fyrir kirkju mína. Eg
hef elskaö konu og ég er prestur,
segir John Flaherty, söguhetjan í
Monsignor, jólamyndinni í Nýja bíói.
I Monsignor fáum viö að fylgjast
meö Christopher Reeve í allnýstár-
legum ham. Hann er eins og áður
segir kaþólskur prestur sem er
kallaöur í herinn. Þegar bandamenn
ná yfirráðum á Italíu gerist hann
fulltrúi hersins hjá Páfagaröi. Hann
notað tvíræöar aðferðir til fjár-
öflunar fyrir kirkjuna, skiptir m.a.
viö mafíuna. Þá á hann ástar-
samband viö Klöru sem ætlar aö ger-
ast nunna. Loks stingur hann af meö
allt lausafé sem hann kemst yfir eftir
að hafa tapaö stórfé í braski.
Leikstjóri er Frank Perry. Meö
aöalhlutverk fara Christopher
Reeve, GenéVieve Bujold og
Fernando Rey.
Nýja bíó mun einnig taka til
sýningar um jólin The Pirate Movie.
Myndin er létt og f jörug gamanmynd
frá 20th Century Fox. Meö
aöalhlutverkin fara Kristy McNichol
og Christopher Atkins. Leikstjóri er
Ken Annakin. I myndinni gerast
margs konar ævintýri, bæöi sjó-
ræningjaævintýri og ástarævintýri.
Mikil gleöilæti brjótast út — bæöi
söngur og dans.
-EH.
AUSTURBÆJ ARBÍÓ - GULLSANDUR
ÞJÓDAREINKENNIMÖRLANDANS
DREGIN FRAM í DAGSUÓSIÐ
Gullsandur kom glóðvolgur til landsins rétt fyrir jól frá London.
Pálmi Gestsson og Arnar Jónsson í útreiðartúr i Gullsandi sem frumsýnd sýnd verður i
Austurbæjarbiói um jólin.
Níu nóttum fyrir jól, eöa um þaö
bil, kom hún til landsins fullsköpuö.
Hér er um aö ræöa einu íslensku
kvikmyndina sem frumsýnd verður
um jó'in — Gullsand. I uppliafi gekk
myndin undir nafninu Saridur en
orðinu gull var skeytt framan við á
■sm-
síöustu stundu. Þaö er kvikmynda-
frömuöurinn og leikstjórinn Agúst
Guömundsson sem setið hefur í
London undanfarnar vikur önnum
kafinn við aö skeyta myndina saman
til þess aö hún yrði sýningarhæf fyrir
jól.
í Gullsandi greinir frá hrepps-
nefnd austur í MeöaUandi og afskipt-
um hennar af hópi hermanna af
VeUinum sem þar eru á ferö í óljós-
um erindagjörðum.
Meö helstu hlutverk fara Pálmi
Gestsson, Edda Björgvinsdóttir, Jón
Sigurbjörnsson og Arnar Jónsson.
Auk þeirra kemur fram fjöldi
þekktra og óþekktra leikara, m.a.
Siguröur Sigurjónsson, Omar
Ragriarsson og hljómsveitin Sóma-
menn.
I myndinni eru ýmis þjóöarein-
kenni mörlandans dregin fram á
launfyndinn hátt. Ekki er óliklegt aö
margur þekki þar sjálfan sig í ein-
hverri sögupersónunni. Jafnframt
frumsýningunni i Austurbæjarbíói
munu sýningar hefjast á Gulisandi í
BíóhöUinniá Akranesi. -EH.