Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1985, Blaðsíða 2
2 DV. FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR1985. FRAMTIÐ REYKJAVIKURFLUGVALLAR Vindmyllutal að færa flugið til Keflavíkur segir Davíð Oddsson borgarstjóri „Aö tala um þaö aö innanlandsflugið veröi rekið frá Keflavík þannig að þaö nýtist borginni og borgarbúum er gjörsamlega út í bláinn, — ófram- kvæmanlegt,” sagöi Davíö Oddsson borgarstjóri. „Staöa höfuöborgarinnar er þess eðlis aö þaö er ekki hægt aö reka flugið í svo mikilli fjarlægö frá Reykjavík. Mjög margir þurfa að sækja þjónustu hingaö og viö veitum hana. Aö þessu leyti er nálægð flugvallarins nauösynleg. Hins vegar er það annaö mál aö ef þarna heföi ekki verið settur niöur flugvöllur í stríðinu þá heföi honum kannski ekki verið komiö fyrir ná- kvæmlega þar sem hann er. En þarna er hann. Og þaö er algjörlega óraunhæft aö gera ráö fyrir því — þaö er bara vindmyllutal — að tala um þaö að hann hverfi á einu, tveimur, þrem- ur, fjórum eöa fimm árum. Þaö hlýtur hver maðuraðsjá. Menn verða aö gera sér grein fyrir þessum veruleika og meðan flug- völlurinn er þarna aö reyna þá aö vinna skipulega aö því aö koma fyrir þeim mannvirkjum, sem þarna þurfa aö vera, en ekki aö drita þeim niöur skipulagslaust meira og minna, eins og gert hefur veriö á undanförnum ára- tugum. Slíkt dæmi gengur ekki upp.” — Hvemig líst þér á tillögur þær sem nú hafa verið settar fram? „Ég held að þær séu í meginatriðum ágætar. Eg held aö þær leysi málefni flugvallarins farsællega og mildi hann íumhverfisínu.” Davíð Oddsson sagði að mikla fjár- muni, hugsanlega sjö til tíu milljarða, myndi kosta aö flytja flugvöllinn. Þeir fjármunir lægju ekki á lausu. Rannsakaö heföi verið hvort byggja mætti flugvöll í nágrenni borgarinnar á stööum eins og Kapelluhrauni. Þaö dæmi gengur ekki upp tæknilega. „Þannig aö þaö er bara einn möguleiki, aö flytja innanlandsflugiö til Keflavíkur. Þeir sem hafa feröast út á land eöa utan af landi hingaö, — þar sem maður er kallaður fram og til baka á hálftíma fresti út af veöri á Isa- firði eöa veöri á Egilsstöðum og svo framvegis — þeir vita það glöggt að flugvöllurinn veröur að vera nær heldur en í klukkutíma keyrslu,” sagði borgarstjóri. -KMU. Flugstöð á að risa sunnan við flugturninn, samkvæmt hugmyndunum. Einnig er gert ráð fyrir að flugturninn verði stækkaður, eins og teiknað hefur verið inn á Ijósmyndina. DV-myndGVA. FRAMTÍÐARFLUGS Reykjavíkurflugvöllur samkvæmt skipulagshugmyndum Flugmálastjórnar og Borgarskipulags. Gert er ráð fyrir að flugbrautin 14/32 verði lengd um 300 metra til vesturs og að Suðurgata liggi i göngum undir brautina. Við lenginguna ætti að draga úr notkun á norður-suður brautinni og flugum- ferð yfir miðborgina því að minnka. DV-mynd S. NAUÐSYNLEGUR TIL — segir Sigfús Erlingsson, yfirmaður innanlandsflugs Flugleiða „Viö teljum aö Reykjavíkurflugvöll- ur sé oröinn nauðsynlegur til framtíö- arflugs og eigi og veröi aö vera áfram,” sagöi Sigfús Erlingsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiöa. Innanlandsflug félagsins heyrir undir hann. „I meginatriöum er búiö aö útiloka þann möguleika aö úthluta landsvæði undir flugvöll í næsta nágrenni viö Reykjavík. Það var gert með þeirri ákvöröun félagsmálaráðherra aö leyfa ibúöabyggingar á Álftanesi sem áöur var búiö aö taka til hliðar.” — Teljið þið aö innanlandsflugiö geti verið rekiö frá Keflavíkurflugvelli? „Tæknilega er þaö hægt. En við þaö myndu samgöngur viö höfuðborgina versna verulega. Ferðatími frá og til hinna ýmsu staða á landinu myndi í meginatriðum lengjast um helming. Ferðalagiö yrði óöruggara og ven-a. Viö búum því miöur viö erfiö veöurskil- yröi stóran hluta ársins sem gerir mikla fjarlægt flugvallar frá borginni ákaflega erfiða,” sagöi Sigfús Erlings- son. -KMU. ALDREIVERIÐ LEITAÐ í ALVÖRU "S.S”"'”” AÐ NÝJU FLUGVALLARSTÆÐI „Viö höfum viljaö skoöa þaö mjög vandlega hvort ekki væri mögulegt aö flytja flugvöllinn,” sagði Sigurjón Pét- ursson, oddviti Alþýöubandalagsins í borgarstjórn. „Við teljum aö flugvöllurinn sé á svæöi sem er dýrmætt og mikilvægt byggingarland. Meö ákveönum hætti kljúfi hann borgina í sundur. Viö höfum bent á ákveöna hættu sem er samfara því að vera meö flugvöll staðsettan inni í miðri borginni. Ef til þess kæmi, sem vonandi veröur ekki, aö slys yrði mundu þær kröfur vaxa hratt að f lugvöllurinn yrði fluttur. Eg tel aö þaö hafi í raun aldrei veriö gerö nein alvarleg tilraun til að skoöa aðra möguleika, meöal annars vegna þess aö aðstandendur flugvallarins og flugmála vilja vera í miöri borginni. Þess vegna hafa þeir aldrei leitaö í al- vöru, eöa neinn aðili, aö nýju flugvall- arstæði. Ég þekki málið ekki nógu vel til aö leggja til tiltekna aðra staðsetningu. Þaö veröur aö byggjast á viðamiklum rannsóknum. Það hefur verið bent á nokkur svæöi; svo sem Kapelluhraun. Eg hef leitt hugann aö því hvort þaö væri möguleiki á heiöinni hér fyrir ofan, til dæmis Sandskeiöi eöa þar í kring. Geldinganesið er auövitaö hugs- anlegur staður. Þó aö menn geti hugsað sér-.að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram um einhvem tíma þá er mjög erfitt aö sjá hann um alla framtíð festan niöur á þessusvæði.” — Gætir þú sætt þig við aö flugstöð yröi byggð þar á næstu árum? „Það er alveg ljóst aö allar fram- kvæmdir, sem verið er aö hugleiða þarna núna, eru til aö festa flugvöllinn í sessi á þessum staö. Því meira sem gert er af varanlegum byggingum, sem beint tengjast flugvellinum og hans starfsemi, þess dýrara veröur að flytja hann. Dæmiö getur endaö þannig að þaö sé betra aö búa viö þá land- skerðingu sem flugvöllurinn er, og þá áhættu sem honum fylgir, heldur en aö leggja í þann gríöarlega kostnaö aö flytja hann. Aö mínu áliti ætti næsta skrefið aö vera þaö aö í virkilegri alvöru veröi fengnir til sérfræðingar aö rannsaka önnur flugvallarstæði. Síöan yrði tíma- sett hversu lengi flugvöllurinn ætti aö vera þama. Byggingu allra mann- virkja yröi hagað í samræmi við þaö. Jafnframt yrði hafin uppbygging á nýju flugvallarstæöi, ef til þess kemur, eöa, ef niöurstaðan yröi sú aö flytja starfsemina til Keflavíkur, þá yröi gengið þannig frá samgöngumálum aö þaö væri hægt aö komast á milli á eins skömmum tíma og mögulegt er. Þaö er alveg ljóst, sérstaklega gagnvart inn- anlandsflugi, aö þegar stööugt er verið að seinka og fresta heföi þaö mikil óþægindi í för með sér fyrir aðila ef þaö væri langur vegur að flugvelli,” sagði Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi. -KMU. Einvfgið Margeir-Agdestein Margeir tapaði einvíginu Norömaöurinn ungi Simen Agde- stein geröi sér lítið fyrir í gærkvöldi og vann þriðju skákina í einvígi sínu við Margeir Pétursson um rétt til þátttöku á millisvæðamóti. Margeir lagði allt í sölurnar til þess aö bera sigurorð af Norðmann- inum og reyndi eftir mætti að foröast þau uppskipti sem hann átti kost á. Til þessa þurfti hann aö taka á sig heldur þrengra tafl í byrjuninni en náöi þó í framhaldinu aö rétta úr kútnum eftir ónákvæmni hjá Norðmanninum. Um tíma leit út fyrir aö Margeiri tækist aö vinna skákina en þá var hann kominn meö gott grip á miðborðinu. I miklu tímahraki undir lokin sneri Simen Agdestein hinsvegar á Mar- geir, náöi aö skipta upp í endatafl og hafði peði yfir. Þegar skákin átti að fara í bið sá Margeir fram á vonlausa baráttu viö tvö samstæö frípeö andstæöingsins á drottn- ingarvæng í annarri setu. Hann tók því þann kostinn sem vænstur var: að gefast upp og óskaði Simen jafnframt til haming ju meö sigurinn. Einvíginu lauk því með öruggum sigri Simens en hann vann tvær skákir og geröi eitt jafntefli án þess aö okkar manni tækist að svara fyrir sig. 3. einvígisskákin: Drottningarindversk vörn. Hvítt: Simen Agdestein (Noregi). Svart: Margeir Pétursson. 1. d4 Rf6 2. c4e6S. Rf3b64. a3 Petrosijan afbrigöiö sem mjög var í tísku fyrir 2—3 árum þegar Kasparov beitti því í mörgum skákum meö frábærum árangri. 4. —Bb7 5. Rc3 d5 6. cxd5 Rxd5 7. Da4+ Nýjasti leikurinn í þessari stööu er 7. e4! ? Rxc3 8. bxc3 Bxe4 9. Re5 og hvítur hefur mikiö spil fyrir peðiö. Norðmaðurinn tekur hins vegar að sjálfsögðu ekki þá áhættu í þessari skák að gefa peö enda nægir honum jefntefli til þess aö tryggja sér far- seðil á millisvæðamót. 7. — Rd7 8. Rxd5 Bxd5 9. Bg5! Góöur leikur vegna þess sem á undan er sagt um jafnteflisþörf Norðmannsins! Nú er best fyrir svartan aö leika 9. — Be7 en eftir 10. Bxe7 Dxe7 blasir jafntefli fljótt viö. Margeir neyöist því til þess aö leika næstbesta leiknum. 9. - Dc810. Hcl Bd611. Rd2 c5 Hvítur hótaöi að ná fram e4 meö leik- vinningi og neyðist svartur því til þess að láta þegar i staö til skarar skríða. 12. dxc5bxc5?! Vafasamur leikur. Hiö staka peö svarts á c5 veröur honum nú höfuð- verkur. Sennilega var betra aö leika 12. 0—0 vegna þess aö hvíta peðið á c5 er leppur og biskup svarts því friöhelgur. 13. e4 Bc614. Dc2Dc7! Sýnilegt er aö Margeir hyggst tefla til vinnings. Þrátt fyrir að peöastaöa hans sé veikari en sú hvíta. Nú hefur hann e.v.t. í hyggju aö ræna hvíta peðinu á h2 og hleypa þannig taflinu upp. 15. Bh4 0—016. Bg3 Hab8 Hér áttu menn heldur von á fram- rásinni 17. — f5! ? en óvist er aö hún standist allar gæðakröfur. Þess í staö hyggst svartur þrýsta á b2 peðiö. 17.Be2a5?! Svörtu peöin veröa nú bæði veik á a5 og c5. Enn var vert að gefa gaum aö ■ framrásinni 17. — f5! ?. Nú má t.d. ekki drepa það peð, með því aö g2 Ásgeir Þ. Árnason peðiö er óvaldaö.18. b3 Hd8 19. 0—0 Bxg3 20. hxg3 Db7 21. Hdl h6 Rökrétt er aö eignast holu fyrir framan kónginn þegar ekki finnast aörir góðir leikir. Meö öörum oröum: Nú bíður Margeir átekta. 22. Dc3 Da8 23. a4? Ljótur leikur. Biðleikur svarts 21. — h6 hefur komiö Norðmanninum úr jafnvægi. Hvítu peöin veikjast nú fremur en styrkjast á drottningar- væng. 23. — Hb4 24. Bc4 Rf6! 25. f3?! Enn teflir hvítur veikt. Svörtu reitirnir á kóngsvæng bjóöa nú hættunni heim. 25. —Db826.g4?! 26. Rfl er sjálfsagður varnarleikur. Svartur tekur nú gott frumkvæði. 26. — Hd4 27. Be2. Hótar peöinu á c5. Ekki gekk 27. Rfl vegna 27 — Bxa4 og vinnur peö. 27. — Rd7 28. De3 Da7 29. Kf2 Re5 30. Hc3 Hb8 31. Hdcl Hbd8 32. Rc4 Afleikur væri: 32. Hxc5? vegna Rd3+. Keppendur, og þó sérstaklega Margeir, voru hér mjög tímanaumir. 32. — Rd7 33. Ra3 Db6 34. Hlc2 Rf6 Margeir grípur til tvíeggjaös ridd- araleiks í tímahrakinu. Hann tapar valdi á c5 peðinu en vill svara á taktískan hátt. Ogjörningur hefur veriö fyrir hann aö sjá fyrir alla leiki andstæöingsins. 35. Hxc5 Bxe4 abcdefgh 36. H2c4! Stórkostlegur varnarleikur. Margeir missirnúþráöinn. 36. — Hxc4?? 36. — H4d5 var nauðsynlegt. Fram- haldið hefði þá oröið: 37. Hc8 (Ekki 37. fxe4? Hxc5 38. Hxc5 Dxc5! 39. Dxc5 Rxe4+ og vinnur) — Dxe3+ 38. Kxe3 Bg6 og svartur hefur ekki verra tafl. 37. Rxc4 Da7 Svörtum hefur yfirsést að eftir 37. — Db4 leikur hvítur 38. Hb5 og foröar hróknum frá hættu . Þaö gerir hann einnig eftir textaleikinn. 38. Hxa5 Dxe3+ 39. Rxe3 Bbl 40. Kel Hb8 41. Hb5 Hér átti skákin aö fara í bið en eftir nokkra umhugsun ákvaö Margeir aö gefast upp. Hann ræöur ekki viö hvítufrípeðin. -Á.Þ.Á.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.