Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1985, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1985, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR1985. 5 Samanburður á byggingarkostnaði þriggja aðila við Álfatún íKópavogi: VERKAMANNABÚSTAÐIRNIR LANGDÝRASTIKOSTURINN Stjórn verkamannabústaöa í Kópa- vogi afhenti nýlega íbúðir við Alfatún 27—35 formlega til nýrra eigenda. Töluverð umræöa hefur skapast um byggingarkostnaö verkamannabú- staðanna og þá í beinum samanburði við tvö önnur byggingafélög, Byggingasamvinnufélag Kópavogs og Byggung h/f.. Síöamefndu bygginga- félögin eru einnig með sambærilegar byggingaframkvæmdir við Alfatún og á mun hagstæðara verði. Að sögn bæj- arstjórans í Kópavogi, Kristjáns Guð- mundssonar, kom fram fyrirspurn um kostnað verkamannabústaðanna og samanburð við kostnað Byggingasam- vinnufélags — og Byggungíbúðanna. Bæjarstjóri fól tæknideild Kópavogs- kaupstaðar að framkvæma nákvæman samanburð á byggingarkostnaöi hinna þriggja byggingafélaga. Hagdeildin skilaði verkefni sínu í lok janúar og því var síðan dreift á bæjarstjómarfundi 29. janúar sl. I yfirlitinu kemur fram verulegur munur á byggingarkostnaði, þar sem verkamannabústaðirnir koma út sem langdýrasti valkosturinn. 1 skýrslunni er tekið dæmi um íbúð á almennum fasteignamarkaði, 4 her- bergi, í 3ja hæða húsi auk kjallara og bílskúrs, þar sem kostnaðijr á rúm- metra er áætlaður 4030 kr. Samskonar kostnaöur á svokallað vísitöluhús án bílskúrs yrði 5463 kr. Hjá Bygginga- samvinnufélagi Kópavogs reiknaðist kostnaðurinn 5683 kr., hjá Byggung 5919 kr. en hjá verkamannabústöðun- um var heildarkostnaður á rúmmetra alls 6854 kr. Hér er því um verulegan munaðræða. I yfirliti tæknideildar komu einnig fram þættir er aðgreindu byggingar- kostnað verkamannabústaðanna frá hinum aöilunum. Til hækkunar verðs verkamannabústaðanna: „Eldhús- innrétting mjög stór, sérsmíðuð og vönduð, skápar í herbergjum stórir, upp í loft, með 40 em hurðum, veggir baðherbergja flísalagöir upp í loft, timbureiningar meö gleri efst og organpine stoðum. Dýr útfærsla miðað viö múraöa veggi. Linóleumdúkur á öll gólf, vönduð geymsla í kjallara, þvottahús í hverri íbúð, svalir á suður- og norðurhlið, alls 123—15 fm með blómaker jum í handriðum.” Til lækkunar byggingarkostnaðar verkamannabústaðanna: „Jarðvinna við sökkla var mjög hagstæð, gröftur og fylling í lágmarki og sprengingar engar. Lóðhagstæð, byggt á láréttu, en baklóö brött. Opið bílskýli í staðinn fyrir bílskúr við 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Ennfremur segir í yfirlitinu. ,,Ef gera á nákvæman samanburð á verði íbúða frá verkamannabústööum og öðrum þarf aö fara í gegnum reikninga og meta síöan kostnað á samsvarandi hátt af sama aöila.” Kristján Guðmundsson bæjar- stjóri var frekar inntur eftir þessu kostnaðarmisræmi. „Hér er um alveg fullfrágengnar íbúðir að ræða og verulega til þeirra vandað. Að skaölausu heföi vel mátt sleppa einhverjum útfærslum við bygginguna, t.d. öðrum svölum á norðurhliö og skápainnréttingum í stofu. Auk þess má alltaf spyrja hvort nauðsynlegt sé að skila öllum gólfum dúklögðum. Það má líka benda á það að í þrem af fimm stigagöngum húsanna eru aðeins tvær hæðir er gera útfærsluna dýrari. En hér er um góöa og mikla sameign að ræða og þaö má alltaf deila um vissa þætti svona fram- kvaanda.” -hhei. »n liwf SÉRVERSLUN MEÐ ELDHÚS- 0G BORÐBÚNAÐ • ELDHUSAHÖLD •GJAFAVÖRUR • BORÐBÚNAÐUR •RAFTÆKI NÝBÝLAVEGI 24-SÍMI 41400 Skóverslun Þórðar Péturssonar LaugavegíSS, sími 13570, Kirkjustræti8, sími 14181 Póstsendum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.