Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1985, Blaðsíða 6
Neytendur
6
Neytendur
DV. FIMMTUDAGUR 28. MARS1985.
Neytendur Neytendur
Um vörumerkingar:
Hvemig á góð vörumerking að vera?
I pistli þessum mun ég fjalla örlítiö
um vörumerkingar á unnum mat-
vælum. Ég mun kynna hvernig
merkja á vöruna og fjalla aðeins um
ástandiö í þessum málum.
Hvað eru
unnin matvæli?
I stuttu máli má segja aö unnin
matvæli séu þau matvæli sem á ein-
hvem hátt hafa veriö meöhöndluð,.
t.d. reykt, söituö, krydduö, settí rasp
og pakkað síöan í neytendaumbúöir.
Þessar vörur getur neytandinn yfir-
leitt tekiö beint úr kæli. Dæmi um
unnar matvörur eru t.d. kæfa, pyls-
ur, fiskur sem velt er upp úr raspi,
öll salöt og sósur o.s.frv.
Hvernig á vöru-
merkingin að vera?
Þegar matvaran hefur verið sett í
neytendaumbúöir eru ákveönar
reglur til sem segja fyrir um vöru-
merkingar. Þessar reglur er aö finna
í reglugerö no. 250/1976 um tilbúning
og dreifingu matvæla og annarra
neyslu- og nauðsynjavara (meö
áorönum breytingum).
Samkvæmt þessari reglugerö þarf
eftirfarandi aö koma fram:
1) Nafn og heimilisfang fram-
leiöanda eöa pökkunaraðila.
2) Vörutegund.
3) Þyngd (netto) /stykkjatal.
4) Innihald: Hráefni, þar meö talin
öll aukaefni, skulu skráð eftir
minnkandi magni. Aukaefni skulu
auökennd meö flokksheiti og G
númeri, t.d. rotvamarefni (E 202).
Ef aukaefni hafa ekki E númer skulu
þau skráö meö flokksheiti og efna-
fræöilegu heiti.
5) Geymsluþol og geymsluskilyröi.
a) viðkvæm matvæli (þ.m.t. unnin)
skulu merkt meö pökkunardegi og
síöasta söludegi.
b) Kælivöru á aö geyma við 0—4°C
og merkja sem slíka.Á umbúöum
fyrir kælivöru skal ekki getið um
geymsluþol í frysti.
c) Frystivöru á aö geyma í frysti viö
— 20°C og merkja sem slíka.
d) Ef um breyttar forsendur er aö
ræða varðandi geymsluþol vegna
meðhöndlunar vörunnar (t.d.
opnun umbúða) skal þess getiö á
umbúðunum.
Til hvers eru
vörumerkingar?
Þær upplýsingar sem fram-
leiöanda er skylt aö geta um á vöru
sinni eru til þess aö gefa neyt-
andanum sem gleggstar upplýsingar
um innihald, geymsluþol, aldur og
geymslumeöferð þeirrar vöru sem
hann er að kaupa. Innihaldslýsing á
vörum er sérstaklega mikilvæg
þeim, sem haldnir eru ofnæmi fyrir
ákveðnum efnum t.d. litar- eöa rot-
varnarefnum.
Geymsluþol vörunnar er hægt aö
marka á því hvenær síöasti sölu-
dagur er gefinn upp. Síðasti
söludagur á vöru er sá dagur sem
framleiöandinn hættir aö taka
ábyrgö á vöru sinni. Þess vegna er
bannað að selja vöru sem komin er
fram yfir síöasta söludag.
Aldur vörunnar er hægt aö sjá meö
því aö skoöa hvenær vörunni er
pakkaö. Þaö má þó segja það aö
„framleiðsludagur” væri réttari
dagsetning, vegna þess aö vara
getur veriö f ramleidd og geymd í ein-
hvem tíma áöur en henni er pakkað í
neytendaumbúöir.
Geymslumeðferö er nauðsynlegt
að hafa á umbúðum matvöru, vegna
þess aö hún segir fyrir um þaö á
hvern hátt eigi aö geyma vöruna svo
aö gæði hennar haldist sem best.
Bannaö er aö geyma matvöru sem
merkt er „kælivara” í frysti. Það
sama á við um vöru sem merkt er
frystivara, aö hana má alls ekki
geymaíkæli.
Vörumerkingar eru leiðbeiningar
sem auðvelda bæði neytendum og
framleiöendum aö fylgjast meö
ástandi vöru þeirrar sem um er að
ræöa hverju sinni. T.d. ef upp koma
skemmdir í matvöru er auövelt aö
fjarlægja og rannsaka vöruna sem
hefur aö geyma sömu dagsetningar
og skemmda varan. Á þann hátt er
miklu auöveldara aö framkvæma
markvissari rannsóknir og eftirlit
með framleiösluvörum en ella væri.
Ástand vörumerkinga
Auðvitað eru mörg fyrirtæki sem
leggja sig öllu fram um aö vera meö
fullkomnar merkingar, eins og t.d.
Goöi, Sól h/f, Mjólkursamsalan, Síld
Mikilsvert er að merkingar á matvælum, sem seld eru i neytendaumbúðum, séu samkvæmt reglugerð um
tilbúning og dreifingu matvæla.
Vöraval á ísafirði dýr-
asta matvörabúð landsins
Frá fréttaritara DV tsafirði, Páli Ás-
geirssyni:
Verslunin Vöruval á Isafirði er
dýrasta matvörubúðá landinu. Þetta
kom fram í verökönnun sem
Verðlagsstofnun gekkst fyrir í mat-
vöruverslunum á nokkrum stööum
úti á landsbyggöinni og í Reykjavík.
í ljós kom aö vöruverð í matvöru-
verslunum á Isafiröi, Vöruvali og
Kaupfélagi Isfiröinga, er langhæst.
Verð 39 ólikra vörutegunda var boriö
saman og í 15 tilfella var hæsta verð í
versluninni Vöruvali og í 9 tilfeUum
hæst í Kaupfélaginu. I báöum
verslunum voru aðeins fjórar
vörutegundir undir meðalverði.
Könnun þessi var gerð að tilhlutan
Neytendafélagsins á Siglufirði. Neyt-
endasamtökin á Isafirði gengust
fyrir fundi um frjálsa álagningu á
Hótel Isafiröi sl. laugardag. Kom
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, á fundinn og
kynnti niöurstöður áöurgreindrar
könnunar.
Könnunin náði til verslana á Isa-
firði, Siglufirði, Sauöárkróki, Akur-
eyri, Selfossi, Eskifiröi og Reykja-
vík.
Þykir mönnum á Isafirði með
ólíkindum aö hægt sé aö rökstyðja
þessar niöurstöður með háum
flutningskostnaöi. Bent var á aö
Eskifjörður, sem er í svipaöri fjar-
lægð frá Reykjavík og Isafjörður,
kemur mun betur út í samanburð-
inum. -Pá/ABj.
1 Verslunar- | félag Siglufj. KEA Sigluf. Fiskbúð Siglufj. Skagf. búð Sauðárkr. KEA Höfðahl. KEA Hrisal. ! t 11 X z .< J * 1 Vörum. Eiðist. i 11 Vöruv. Ísaf. Kaupf. isaf.
Fjöldi vörutegunda sem gerður er saman- burður á 36 38 11 41 41 42 39 43 40 40 42 39 39
Fjöldi vörutegunda með lægsta verð 0 4 2 0 3 8 8 1 4 16 2 1 1
Fjöldi vörutegunda með hæsta verð 2 1 0 3 5 0 1 4 6 1 0 15 9
Fjöldi vörutegunda undir meðalv. 14 31 4 16 16 40 38 13 13 33 18 4 4
Fegrun og snyrting:
Varaþurrkur og hrukkur
í kringum munninn
Elisabet Arden hefur komiö með á
markaöinn krem, Visible Difference,
sérstaklega til notkunar fyrir varimar
og húöina í kringum þær.
I.ipFix, ensvonefnistkremið (erlítil
túpa), á aö leysa þrjú vandamál: aö
vama því aö varaliturinn smiti út fyrir
varalínuna, draga úr hrukkum í
kringum varimar og einnig vara-
þurrk.
Ef þú átt viö þaö vandamál aö stríöa
að varaliturinn vilji smita út fyrir
varalínuna, skaltu bera Lip Fbc á
varirnar á undan varalitnum.
Ef þaö em hrukkurnar í kringum
munninn eöa varaþurrkur sem þú átt
aö stríöa viö er ráðlagt aö nota þetta
krem tvisvar til þrisvar sinnum á dag.
Elisabet Arden lofar aö þú bæði sjáir
og finnir greinilegan mun eftir þriggja
vikna notkun.
Lip Fix kostar kr. 362,00 og fæst í
flestum snyrtivöruverslunum.
Tíu góð megrunarráð
Tíu góð ráö ef þú vilt grenna þig:
1) Drekktu mikið en aðeins
venjulegt vatn, kaffi eða te án
sykurs. Drekktu ekki vín, öl eða
sterka drykkl.
2) Boröaöu hægt. Tyggðu matinn
vel.
3.) Notaöu litla diska undir matinn,
þá finnst þéraö þú borðir meira.
4) Ef þú freistast til að borða of
mikiö einhvem daginn verðurðu
aö boröa minna næsta dag.
5) Saltaðu matinn minna. Salt
bindur vatn í líkamanum. Þú
gartir notað sellerísalt í staöinn
fyrir venjulegt matarsalt.
6) Notaöu minna smjör á brauöiö.
Skeröu burt fituna af k jötinu.
7) Boröaöu aldrei sælgæti, kökur, ís
eða gosdrykki.
8) Þaö em til skemmtilegri um-
ræðuefni en „megrun”.
9) Stigðu á vigtina á hverjum
morgni. Láttu þér ekki bregöa
þótt vigtin sýni ekki minni þyngd
alla daga. Þú ert á réttri leið.
10) Fáöu þér góöan göngutúr á
hverjum degi. Sumum finnst líka
skemmtilegra að ganga eða
v hlaupa af sér aukakílóin. Gangi
þér vel.
DB.
Það getur verið smart að bera
þennan rétt fram i stórum vín-
glösum. Kiwi og ananas fara einkar
vel saman bæði i bragði og lit.
Hvað vegur
þvotturinn?
Þvottavélar og þurrkarar taka
ákveðið magn af þvotti til þess aö serm,
bestur árangur náist. Er magniö gefiö
upp í kílógrömmum.
En hve mörg kg vegur hvert stykki?
Hér fer á eftir tafla sem gæti komið sér
vel að hafa við höndina í þvottahúsinu:
Lak
Sængurver
Koddaver
Leirþurrka
Karlmannsskyrta
Bómullarbolur f/fullorö.
Gallabuxurfullorð.
um 500—700 g
700-800 g
150 g
100 g
250 g
100 g
600-800 g
Lokið rennilás á buxum, hnýtiö löng
bönd og snúið röngunni út áöur en fatn-
aöur er látinn í véUna.
Gætiö þess aö tæma alla vasa áöur
en þvotturinn er látinn í vélina.
DB
A. Bj.