Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Qupperneq 8
8 DV. LAUGARDAGUR19. OKTOBER1985. Úigáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöurogútgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóriog útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNÁS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aöstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlASSNÆLAND JÖNSSON Fréttastjórar: JÖNAS HARALDSSON ogÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PALLSTEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn: SÍÐUMÚLA12-14. SlMI 686611 Auglýsingar: SIÐUMÚLA33, SlMI 27022 Afgreiðsla.áskriftir.smáauglýsingarogskrifstofa: ÞVERHOLT111,SlMI 27022 Slmi ritstjórnar: 686611 Setning.umbrot.mynda- oa plötugerð: HILMIP. HF., SIÐUMÚLA12 Prentun: ARVAKUR H F. - Askriftarverö á mánuði 400 kr. Verð í lausasölu virka daga 40 kr. - Helgarblaö 45 kr. Frumvarp í fínu formi Nýja fjárlagafrumvarpið hefur einn kost. Hann felst ekki í innihaldi þess. Það er óþarflega mikið og leiðir til allt of hárra niðurstöðutalna þess. Samkvæmt frum- varpinu er ríkissjóði einum ætluð rúm fjárráð í landinu, auðvitað á kostnað heimila og atvinnuvega. Kostur frumvarpsins er breytt ytra form. Það er nú skiljanlegra en fyrr. Skýringar og dæmi þess eru mun ýtarlegri en áöur hefur þekkzt. Það er eins og fram- setningunni sé ætlað að auka skilning lesenda fremur en að hindra hann eins og tíðkaðist í fyrri frumvörpum. Fyrstu merki þessa sáust raunar í síðasta frumvarpi. Þar var í greinargerð sagt frá, hvernig frumvarpið gæti litið út á nýjan hátt, ef farið væri eftir staðli Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Síðan voru sett um þetta lög í fyrra- vor. Nýja frumvarpið er í töluverðu samræmi við þau. Lánsfjáráætlun ríkisins er nú í fyrsta sinn hluti af greinargerð fjárlagafrumvarpsins, en ekki sérstakt plagg, sem birtist eftir dúk og disk. Samhliða frum- varpinu hafa verið lögð fram lánsfjárlagafrumvarp og þjóðhagsáætlun, en ekki skildir eftir opnir endar. Bæði aðalfrumvarp fjárlaganna og viðbótarfrumvarp lánsfjárlaganna fá nú meðferð sömu þingnefndar, fjár- veitinganefndar, og verða væntanlega afgreidd samhliða sem lög frá Alþingi fyrir jól. Þetta eru ólíkt vitrænni vinnubrögð en þau, sem hingað til hafa tíðkazt. Hinn eini opni endi fjárhagsáætlana ríkisins, sem nú er eftir, felst í aukafjárveitingum ríkisstjómarinnar án meöferðar og samþykkis Alþingis. Slíkar fjárveitingar hafa jafnan verið umtalsverður þáttur ríkisbúskaparins og raunar verið til umræðu að undanfömu. Ein merkasta nýbreytni frumvarpsins er, að í greinar- gerð þess er í fyrsta sinn gerð rækileg grein fyrir öllum aukafjárveitingum þessa árs fram að 1. október. Þannig hefur fyrrverandi fjármálaráðherra að mestu svarað fyrirfram spurningum st jómarandstöðunnar. Athyglisvert er við þessa skrá, að 954 milljón króna aukafjárveitingar þessara níu mánaða eru ekkert einka- mál Alberts Guðmundssonar. Hann hefur sjálfur úthlutað 5,4 milljónum af þessari summu. En að vísu vantar í myndina aukafjárveitingar frá fyrri hluta október. Skráin sýnir, að helmingur aukaútgjaldanna stafar af kjarasamningum. Mest af hinum hlutanum er björgunaraðgerðir fyrir önnur ráðuneyti. Því miður stríðir sumt af þeim gegn afgreiðslunni, sem þær höfðu áður fengið í fjárveitinganefnd Alþingis og síðan Alþingis sjálfs. Fleiri nýjungar fylgja frumvarpinu, þar á meðal yfirlit um allar skuldbindingar ríkissjóðs, þar á meðal ábyrgðir. Þá er töfluviðauki frumvarpsins ýtarlegri og gagnlegri en nokkru sinni fyrr. Ennfremur er margvíslegur saman- burður í töflum, sem víða fylgja skýringum frumvarps- ins. Ekki er frumvarpið þó enn orðið alveg heiðskírt. Þrátt fyrir staðal Alþjóða gjaldeyrissjóðs hafa niðurgreiðslur landbúnaðarafurða ekki enn verið fluttar til viðkomandi ráðuneytis. Og 149 milljón króna gjöf til Lífeyrissjóðs bænda er falin hjá samtals þremur ráðuneytum. Slíkir annmarkar eru þó tiltölulega fáir. Að mestu leyti hefur verið reynt að auðvelda skilning fremur en að tor- velda hann, létta samanburð fremur en að hindra hann, loka endum í stað þess að hafa þá opna. Að formi til er þetta bezta fjárlagafrumvarp í manna minnum. Jónas Kristjánsson. Þeir sátu þrír saman yfir þessum óhjákvæmilegu kaffibollum. Einn var töskuberi og sendill á miöjum aldri sem titlaði sig fulltrúa. Annar var eilíflega vongóður fjárglæfra- maöur með sex ávísanareikninga, alla lokaöa. Sá þriðji var minnihátt- ar hagfræðingur í opinberri þjón- ustu, í öngum sínum. — Eg þoli þetta ekki lengur, sagði hagfræðingurinn opinberi og faldi andlitið i höndum sér. — Hverjum manni er ekki gefið nema svo og svo mikiö þrek í vöggu- gjöf og mitt er allt uppurið. Þeir horfðu á hann með þessari fyrirlitningarblöndnu vorkunn sem ólæknandi bjartsýnismenn sýna allt- af þeim sem kvarta upphátt. — Þetta getur ekki verið svo slæmt, sagði töskuberinn. r Úr ritvélinni Ólafur B. Guðnason — Það er bara þessi venjulegi fjár- lagablús, sagði hagfræðingurinn. — Sko, við höfum verið að setja saman fjárlög nú í tæpt ár. Svo er venjan sú að frumvarpið er sent í þingið og þar er því öllu hvolft við, samþykkt aukaútgjöld og allthvað- eina. Síðan eru lögin samþykkt og svo reddum við málinu með lánum. Þeir kinkuðu kolli, sessunautar hans. Þeir voru báðir þaulkunnugir öllum aðferðum við að redda málum meðlánum. — En núna ætla þeir að byrja upp á nýtt! Þeir leggja frumvarpið fram en um leið á að endurskoða allt drasl- iö. Það veröur semsagt ekkert frí! — Hvað með það? Þetta er ekkert nýtt! Svona hefur þetta alltaf verið. Þið leggið fram frumvarp, sem allir vita að stenst engan veginn, og svo ÞJóðin sniii sér að öðru — Við verðum allir að bera okkar byrðar. Ég viðurkenni að þínar eru þungar um þessar mundir, en þessu lýkur, eins og öðru. Maður verður bara aö bíta á jaxlinn. — Einmitt, bíta bara á jaxlinn, sagði hinn stolti eigandi sex lokaðra ávísanareikninga og bankaði í borðið til áherslu. — Það er alveg sama hvað útlitið er svart, manni leggst alltaf eitthvað til. Sjáðu bara hvernig málin ætla að reddast hjá mér! Þessar andskotans smásálir lokuðu tveim síðustu reikn- ingunum mínum fyrir viku og ég hef ekkert getað gert síðan. En ég gafst ekki upp, ónei. Það gildir að vera vakandi og fylgjast með. Nú vill svo til að ég var að frétta af manni sem vill fjárfesta í tölvubransanum, sem passar mér fínt. Hagfræðingurinn leit upp og sann- aði þaö rétt einu sinni aö til eru þeir menn sem engum jjola kátínu eða bjartsýni þegar þeir eru í fýlu sjálfir. — Hver heldurðu að vilji leggja fé í þennan lager þinn af úreltum vasa- tölvum? Hvað eru þær gamlar? Frá 1973, er það ekki? Maðurinn þarf að vera bæöi blindur og sjónlaus, auk þess að vera barnslega saklaus, til þess að ganga í félag við þig um þess konar bisness. En bjartsýni hefur ekkert með staðreyndir að gera, og fjárglæfra- maðurinn brosti glaðlega. — Eg skal nú samt hafa nóg út úr honum til þess að opna að minnsta kosti tvo reikninga. Og þegar ég er búinn að opna þá verður ekki mikill vandi að koma hinum fjórum í fúnksjón. Hann þagnaði andartak og horfði hugsi út í loftið. — Ætli það gæti ekki verið skyn- samlegt að opna svo nýjan reikning til öryggis, svona fyrir persónuleg- um nauðþurftum. Það er ansi óþægi- legt þegar þeir loka öllum reikning- unum í einu. Þeir félagar hans brostu þreytu- lega. Þeir vissu aö reikningar 2—6 höfðu allir verið opnaðir til þess að viðskiptalegar ófarir kæmu ekki nið- ur á persónulegum fjárhag manns- ins. En hans persónulegi fjárhagur varð ekki aöskilinn frá viðskiptaf jár- hagnum, enda var það réttsem einn vinur hans hafði sagt: „Hann lifir sig svo inn í viðskiptin aö hann á sér ekk- ert einkalíf.” Töskuberinn, sem hafði það hlut- verk í stöndugu fyrirtæki mágs síns, að ryðjast fram fyrir alla í bönkum og borga reikninga á síðustu stundu, sneri sér að hagfræöingnum og spurði hann af hverju lífið væri hon- um svo sérstaklega andsnúið einmitt nú. dunda þingmennimir sér við það frameftir vetri að gera það enn vit- lausara. Þetta er hinn fasti gangur mála og hvað ertu að kvarta yfir því? — Þetta er svo leiðinlegt, sagði hagfræöingurinn fýldur. — Maður verður nú að gera fleira en gott þykir, sagði töskuberinn ábyrgðarfullur á svip. — Annars var ég að heyra hvaða lausn Þorsteinn hefði fundið á þessu, sagöi fjárglæframaðurinn. Og hafandi tekiö þagnarloforð af vinum sínum, upplýsti hann þá um það hvernig f jármálaráðherrann nýi ætlaði aö leysa efnahagsvanda þjóð- arbúsins í eitt skipti f)Tir öll. — Hann ætlar að senda bréf til helstu alþjóðlegra lánardrottna okk- ar og útlista fyrir þeim hversu von- laus fjármál okkar eru og hvernig allur frekari rekstur þjóöarbúsins geti ekki annað en leitt okkur dýpra út í skuldafeniö. Síðan ætlar hann að bjóða þeim samning, eins og menn vilja gjarna bjóða hér útgerðar- mönnum og bændum. Semsagt, aö þessar lánastofnanir spari sér pen- inga, þegar til lengri tima sé Utið, með því að veita tslendingum árleg- an óafturkræfan úreldingarstyrk, gegn því að Islendingar hætti þjóðar- búskapnum og snúi sér að öðru.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.