Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1985, Page 10
10 DV. LAUGARDAGUR19. OKTOBER1985. HaustmótTR: Spennandi lokaumferð — Guðmundur Halldórsson sigraði í A-flokki Fyrir síðustu umferð á haustmóti Taflfélags Reykjavíkur var Davíð Olafsson efstur með 7,5 v. Andri Áss Grétarsson hafði 7 v. og jafnteflis- lega biðskák og í þriðja sæti var Guð- mundur Halldórsson með 7 v. Loka- umferðin, sem tefld var sl. miðviku- dag, bauö því upp á mikla spennu og ekki bætti úr skák að Andri og Guð- mundur áttu aö tefla saman. Davíð átti einnig verðugan andstæöing, Róbert Haröarson, skákmeistara Reykjavíkuríár. Snemma dró til tíöinda. Róbert fékk upp eina eftirlætisstöðu sina gegn Sikileyjarvörn Davíðs, hrókaöi á lengri veginn og hóf síðan framrás peöanna á kóngsvæng. Davíð tók ekki nógu hraustlega á móti og áöur en hann vissi af var hann orðinn mát. Þá höfðu aðeins verið leiknir 28 leikir og enn var allt í jámum í skák Guö- mundar og Andra. Andra var þá far- ið að leiðast þófiö og hóf aögerðir á drottningarvæng. Þær voru ótíma- bærar; Guðmundur náði betra enda- tafli og eftir frekari ónákvæmni Andra náði hann að knýja fram sig- ur. Guömundur Halldórsson varð því efstur á haustmótinu en þar sem hann er í Taflfélagi Seltjarnarness getur hann ekki orðið skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur. Alit stefnirí einvígi tveggja næstu manna um þann eftirsóknarverða titil. Davíð hefur 7,5 v. og Andri 7 v. og haföi bið- skák við Björgvin Jónsson síðast er fréttist, með hrók einan að vopni gegn hrók og biskup Björgvins. Stað- an er fræðilegt jafntefli i bókum hvort sem hún er það á borði eður ei en nýjar reglur Campomanesar, FIDE-forsetans ástsæla, sem tóku gildi um áramótin, kveða á um að ekki megi krefjast jafnteflis fyrr en staðan hafi verið tefld í 100 leiki. Þetta er frávik frá 50 leikja reglunni svonefndu og sýnist sitt hverjum. Þeir Andri og Björgvin hafa þegar teflt stöðuna í 40 leiki og samkvæmt gömlu reglunum hefði skákinni átt að vera að ljúka. Annars er það eftir- tektarvert hversu oft þessar frægu stöður með hrók á móti hrók og bisk- up koma upp í næstsíðustu eða síð- ustu umferð skákmóta! Haldi Andri jafntefli þurfa hann og Davíð að heyja fjögurra skáka einvígi um titil- inn „skákmeistari TR1985”. Lokastaöan í A-flokki varð þessi: 1. Guðmundur Halldórsson 8 v. 2. Davíð Olafsson 7,5 v. 3. Andri Áss Grétarsson 7 v. og bið- skák 4. Róbert Harðarson 7 v. 5. Björgvin Jónsson 6 v. og biðskák 6. -7. Benedikt Jónasson og Árni Á. Ámason 51/2 v. 8. Pálmi Pétursson 41/2 v. 9. Þröstur Þórhallsson 4. v. 10. -12. Lárus Jóhannesson, Halldór G. Einarsson og Jón G. Viðarsson 3 1/2 v. Skák lón L. Árnasoo I B-flokki voru ungir og efnilegir skákmenn í efstu sætum sem áreið- anlega fara að láta að sér kveða í efsta flokki innan tíðar. Tómas Bjömsson sigraði, hlaut 8 v. og 43 stig, en Jóhannes Ágústsson, sem hlaut jafnmarga vinninga og Tómas, var lægri á stigum, hlaut 39,5 stig og annað sætiö. Þriðji varö Jón Þ. Berg- þórsson með 7 v., Jón Á. Halldórsson, skákmeistari Seltjarnarness, fékk 6 1/2 v., í 5.-8. sæti urðu Hannes Hlíf- ar Stefánsson, Þröstur Ámason, Ur- os Ivanovic og Þráinn Vigfússon með 6 v. Síöan komu Erlingur Þorsteins- son með 3 1/2 v. og Haraldur Bald- ursson og Jón Á. Jónsson hlutu 2 1/2 vinning. Flesta vinninga á haustmótinu hlaut Hjalti Bjarnason sem sigraði örugglega í C-flokki. Hjalti var tveim vinningum fyrir ofan næsta mann, með 91/2 v. af 11 mögulegum. Glæsi- legur árangur og hann tefldi einnig vel eins og lesendur DV sáu síðasta laugardag og andstæðingar hans á mótinu urðu varir við. Baldur A. Kristinsson var í 2. sæti með 7 1/2 v., Bragi Björnsson varð þriðji með 7 v. og Amaldur Loftsson fékk 6 1/2 v. Aðrir minna. Gunnar Björnsson var efstur í D- flokki með 8 1/2 v. og lakari biðskák við Einar Þorgrímsson. Sigurður D. Sigfússon var með 81/2 v. og átti því enn möguleika á deildu efsta sæti. Þriðji í D-flokki varð Hallgrímur Sigurðsson með 7. v. og biðskák. I E-flokki var teflt eftir Monrad- kerfi. Þar urðu hlutskarpastir Kristófer Svavarsson, sem fékk 9 v. og efsta sæti, og Eggert Isólfsson og Ámi R. Loftsson sem fengu 8 1/2 v. og skiptu á milli sín 2. sæti. Hannes Hlífar Stefánsson og Þröst- ur Ámason voru í sérflokki meðal unglinga. Hannes Hlífar hlaut 8 1/2 v. og titilinn „unglingameistari TR 1985” en Þröstur varð að sætta sig við 2. sæti með 8 v. 13. sæti varð Sig- urður Daði Sigfússon með 61/2 v. Við skulum leggja leið okkar að Grensásvegi 44—46 og fylgjast með úrslitaskákunum í A-flokki. Fyrst viðureign Róberts og Davíðs. Hvítt: Róbert Harðarson Svart: Davíð Ólafsson Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Dd2 Be7 8. f3 Miklu algengara er 8. 0—0—0 og síðan 9. f4. Þessi uppbygging er al- geng í skákum Róberts sem hyggst freista þess að sækja fram með peð- unum á kóngsvæng. 8. —a6 9.0-0-0 0-010. h4 h6? Leikur á borð við þennan jafngildir HEIMSMEISTARAKEPPNIN HEFST í BRASILÍU í DAG 1 dag hefst heimsmeistarakeppnin í bridge og er spilað á Maksoud Plaza Hótel í Sao Paulo. 1 karlaflokki er keppt um Bermuda- bikarinn en í kvennaflokki um Fen- eyjabikarinn. Þátttakendur í karla- flokki, eða opna flokknum, eru þessir: Austurríki, Israel, Bandaríkin, Kan- ada, Argentína, Pakistan, Venesúela, Indónesía, Nýja-Sjáland og Brasilía. Á þessari stundu er hins vegar ekki Ijóst hvort Pakistanar verði með, því heyrst hefur að þeir muni ekki spila við Israel af pólitískum ástæðum. Stjömu- spilarinn, Zia Mammood, verður þá illa fjarri góðu gamni, en hann hefur verið fastur maöur í landsliði Pakistana á seinni árum. Núverandi handhafar Bermudabik- arsins eru Bandaríkjamenn og liðiö, sem ver titilinn, er mjög sterkt: Martel, Standsby, Pender, Ross, HammanogWolff. Þátttakendur í kvennaflokki eru þessir: Frakklandi, England, Bandaríkin.A og B, Argentína, Indland, Venesúela, Formósa, Ástralía og Brasilía. Keppnisfyrirkomulagið er það sama í báðum flokkum. Bandaríkin og Áust- urríki (Evrópumeistaramir) fara beint í undanúrslit meðan hinir átta spila um hin tvö undanúrslitasætin. I kvennaflokki eru það sveitir Englands og Frakklands sem fara beint í undan- úrslit. Fyrir þá, sem vilja fylgjast daglega með mótinu, er símaþjónusta í aðal- stöövum Alþjóðabridgesambandsins í Sviss. Númerið er 41-22-50-10-65. Keppnin stendur til 2. nóvember og veröur nánar skýrt frá því í næstu þátt- um. Þótt margir góðir bridgemeistarar séu ó meðal þátttakenda, þá mun Zia Mammood vera sá litríkasti og því væri mikil eftirsjá í því,- ef Pakistan yrði ekki með. Hér er skemmtileg blekkispila- mennska hjá Zia úr rúbertubridge ný- lega. Vestur gefur/n-s á hættu Norður * D109 ^ 6542 O 632 * A86 VtSTUR ÁUÍTUB * G2 + K5 ^ G87 D1093 O 104 O G987 * KDG1092 SUÐUK A A87643 ^AK O AKD5 + 5 + 743 Sagnir gengu þannig með Zia í vest- ur: Vestur Norður Austur Suður 3L pass pass 4L pass 4H pass 4S pass 5L pass 5T pass 5S pass 6S pass pass pass Zia spilaði út laufkóng og sagnhafi drap með ás. Þar sem trompin eru 2— 2, þá er auðvelt fyrir sagnhafa að vinna spilið, því hann getur trompað einn tígul. Eða er það ekki? Ekki á móti Zia! Sagnhafi tók nú trompás og Zia lét gosann. Takið eftir því hve áhrifaríkt það er. Eftir þrigg ja landa opnun vesturs, þótti sagnhafa ekki líklegt að tígullinn væri 3—3 og því reyndi hann eðlilega að spila hann upp á stuttan tígul og gosann einspil í trompi, en kónginn með til vara. Hann tók því þrjá hæstu í tígli og tapaöi þar með upplögðu spili, vegna blekkispila- mennsku Zia. Síðustu fréttir: Indland tekur sæti Pakistan í heimsmeistarakeppninni þar eð þeir síðarnefndu neita að spila við Israel af pólitískum ástæöum. Margrét og Júlíana íslandsmeistarar Margrét Margeirsdóttir og Júlíana Isebam, Reykjavík, urðu Islands- meistarar í tvímenning kvenna 1985. Þær sigruðu um síðustu helgi. 18 kvennapör tóku þátt í mótinu sem fór vel fram í Gerðubergi í Breiðholti. Þær Margrét og Júliana tóku mikinn endasprett undir lok mótsins, á sama tíma og helstu keppinautar þeirra, þær Dísa Pétursdóttir og Soffía Guðmunds- dóttir, stóðu í staö, en þær höföu leitt mest allt mótið. Bridge Stefán Guðjohnsen Röð efstu para varð þessi: 1. Margrét Margeirsdóttir. — Júliana Isebarn, Rvk. 102 2. Dísa Pétursd.-Soffia Guðmundsd., Ak.. 75 3. Halla Bergþérs.-Kristj. Steingrd., Rvk , 54 4. Steinunn Snorrad.-Þorgerður Þórarinsd., Rvk. 52 5. Aldís Scbram-Soffia Theódórsd., Rvk.. 37 8. Esther Jakobsd.-Valg. Kristjónsd. Rvk. 36 7. Erla Sigurbjörnsd.-ðlafía Þóröard., Rvk. 9 8. Gunnþórunn Erlingsd.-Ingunn Bemburg 0 Islandsmót kvenna í tvímennings- keppni hefur nú veriö haldið sl. 3 ár. I fyrra sigruðu þær Ingibjörg Halldórs- dóttir og Sigríöur Pálsdóttir, Reykja- vík, en þær voru því miður ekki með að þessu sinni. 1983 sigruðu þær Margrét og Júlíana einnig. I beinu framhaldi, vegna óska frá fjölmörgum keppeiidum, er það nú til athugunar hjé Bridgesambandinu að næsta ár verði Islandsmót kvenna og parakeppnin (sem verður um næstu helgi) slitiö í sundur, þannig að önnur keppnin veröi að vori, en hin að hausti. Bjöm Theodórsson, forseti Bridge- sambandsins, sleit síðan mótinu með verðlaunaafhendingu og óskaði kepp- endum góðrar heimf erðar. Opna Samvinnuferöamótiö á Húsavík Mikill áhugi er fyrir opna Sam- vinnuferða/Landsýnarmótinu sem Bridgesamband Islands gengst fyrir helgina 9.—10. nóvember nk. Skráning er þegar hafin, hjá Bridge- félagi Akureyrar og Húsavíkur fyrir norðursvæðið og Bridgesambandi Is- lands fyrir hin svæðin á landinu. Þátt- tökugjaldið pr. par er kr. 1.500. Stór- glæsilegir ferðavinningar eru í boði, auk þess sem spilað er um gullstig. Flugleiðir bjóða helmingsafslátt af flugi til Húsavíkur, auk þess sem mjög hagstætt verð gildir hvað varðar gist- ingu og fæði á Hótel Húsavík. Spilaöur verður tölvuvæddur tví- menningur, undir stjóm þeirra Olafs Lárussonar og Vigfúsar Pálssonar. Spilamennska hefst kl. 13 á laugar- deginum og verða spiluð lágmark 90 spil (fer eftir þátttöku hverju sinni): Þetta er fyrsta mótið af þremur sem fyrirhugað er að halda á Húsavík. öll verða þau í eins konar raðkeppnis- keðju, þó þannig að hvert mót er sér- stök eining. Næsta mót verður helgina 7.-8. desember nk. og þriðja mótið helgina 15,—16. febrúar 1986. Eftir þessi þrjú mót verða veitt sérstök heildarverðlaun. Stig verða gefín fyrir árangur í öllum mótunum (efstu pör- um) og þau munu síðan skera úr um endanlega sigurvegara. Nánar síðar. Bridgesamband íslands Stofnanakeppni Bridgesambands Is- lands og Bridgefélags Reykjavíkur, sveitakeppni, verður haldin eftirtalda daga: Mánudaginn 11. nóvember í Domus Medica kl. 19.30. Miðvikudaginn 13. nóvember í Hreyf- ils-húsinu kl. 19.30. Mánudaginn 18. nóvember í Domus Medica kl. 19.30. Fyrirkomulagið verður með svipuðu sniði og síöasta ár. Spilaðar verða 9 umferðir í sveitakeppni, 3 á kvöldi með 10 spilum milli sveita, eftir Monrad- fyrirkomulagi. Hver sveit má vera skipuð mest 6 spilurum, öll frávik frá því eru háð leyfi keppnisstjóra. Aðeins er ætlast til að í hverri sveit spili sam- an samstarfsfólk og eru reglur þannig að viðkomandi þarf að hafa verið á launaskrá hjá viðkomandi fyrirtæki/ stofnun á þessu starfsári. Eru þetta svipaðar reglur og gilda í firmakeppn- um hjá Skáksambandinu. Þátttökugjald pr. sveit verður kr. 5.000. Síðasta ár tóku upp undir 30 sveitir þátt í stofnanakeppni og vakti sú keppni mikla hrifningu keppenda, enda um algera nýjung að ræða í bridgekeppni. Sigurvegari í fyrra varð sveit Sendibílastöðvarinnar hf. Skráning í stofnanakeppni 1985 er hjá Bridgesambandi Islands, Olafi Lárussyni, í s.: 18350. Frestur til aö til- kynna þátttöku rennur út fimmtudag- inn 7. nóvember nk. Allar nánari uppl. verða gefnar á skrifstofu Bridgesam- bandsins. Opið mót á Hólmavík A laugardaginn verður haldiö á Hólmavík opið mót í bridge. Til leiks eru boðuð 22—24 pör og verður spilaö eftir barometer-fyrirkomulagi. Keppn- isstjóri er Olafur Lárusson. Þetta verður fyrsta mótið (opið) sem haldið hefur verið á Hólmavík og þar með vonast heimamenn til þess að Hólmavík sé komin á landakort bridgespilarans. Bridgedeild Breiðfirðinga Eftir fjórar umferðir af 19 er staða efstu sveita í aðalsveitakeppninni þannig: Sveit Stig Ölafs Valgeirssonar 88 Daníels Jónssonar 84 Hans Nielsens 82 AmarScheving 76 Gróu Guðnadóttur 76 Alison Dorosh 75 Jóhanns Jóhannssonar 72 Ingibjargar Halidórsdóttur 63 Þórarins Aiexanderssonar 63 Stjórnandi er Isak Orn Sigurösson og er spilað í húsi Hreyfils viö Grensás- veg. Athygli er vakin á því að aðalfundur félagsins verður haldinn næsta fimmtudag, á undan spilamennskunni, oghefsthannkl. 18. Bridgedeild Barðstrend- ingafélagsins Mánudaginn 14. október var spiluð 3. umferðin í aöalsveitakeppni félagsins. Staða 8 efstu para eftir 3 umferðir: stig 1. Daði Bjömss.-Guðjón Bragas. 540 2. Sigurður Isakss.-lsak Sigurðss. 537 3. Edda Thorlacius-Gróa Eiðsd. 523 4. Jónina Halldórsd.-Hannes Ingibergss. 522 5. Viðar Guðmundss.-Pétur Sigurðss. 509 6. ÞórarinnÁmas.-RagnarBjömss. 508 7. Ágústa Jónsd.-Guðrún Jónsd. 507 8. Hermann ðlafss.-Gunnl. Þorstss. 496 Mánudaginn 21. október verður spiluö 4. umferð í aöalsveitakeppninni og hefst keppni stundvíslega kl. 19.30. Spilað er í Síöumúla 25. LAIMDVARI Almennur félagsfundur í Landvara verður haldinn að Hótel Esju, Reykjavík, fimmtudaginn 24. okt. nk. og hefst kl. 20. Á dagskrá eru almenn félagsmál og nýleg hækkun þungaskatts. Stjórn Landvara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.