Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Blaðsíða 22
22
Iþróttir
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986.
JUDO
Ný byrjendanámskeið hefjast
14. janúar.
Þjálfari er
Þóroddur
Þórhallsson.
Sértímar
fyrir stúlkur.
Innritun og upplýsingar í síma 83295
alla virka daga frá kl. 13-22.
k ■■■■■‘■■ÍibbIhb Ármúla 32. j
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Sérfræðingar (2) í svæfingarlækningum óskast við
svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítalans.
Önnur staðan er afleysingastaða en hin föst staða.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna sendist
stjórnarnefnd ríkisspítalanna fyrir 11. febrúar nk.
Upplýsingar veitir /firlæknir svæfinga- og gjör-
gæsludeildar í síma 29000.
Hjúkrunarfræðslustjóri óskast við Geðdeild Landspít-
alans. Umsóknir, er greini menntun og fyrri störf,
sendist skrifstofu ríkisspítalanna fyrir 11. febrúar nk.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Geðdeilda
Landspítalans í síma 38160.
Fóstra og starfsmaður óskast við dagheirrúli Kópa-
vogshælis, Stubbasel.
Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilisins í
síma 44024.
Fóstra og starfsmaður óskast við dagheimili ríkisspít-
ala við Engihlíð.
Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilisins í
síma 29000-590.
Aðstoðardeildarstjóri óskast við Geðdeild Barnaspít-
ala Hringsinsvið Dalbraut.
Fóstra eða þroskaþjálfi óskast við Geðdeild Barna-
spítala Hringsins.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkrunar-
framkvæmdastjóri í síma 84611.
Afgreiðslumaður óskast við birgðastöð ríkisspítal-
anna.Tunguhálsi 2.
Upplýsingar veitir birgðastjóri í síma 671362.
Starfsfólk óskast til ræstinga við Kópavogshæli.
Hlutastarf eða fullt starf.
Upplýsingar veitir ræstingastjóri í síma 41500.
Starfsfólk óskast til vinnu við þvottahús ríkisspítal-
anna, Tunguhálsi 2. Boðið er upp á akstur til og frá
vinnustað að Hlemmi.
Upplýsingar veitir forstöðumaður þvottahússins í
síma 671677.
Röntgentæknar og röntgenhjúkrunarfræðingar óskast
við röntgendeild Landspítalans.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri Landspítalans
í síma 29000.
Reykjavík, 10.1.1986.
. Iþróttir iþróttir
Óbreytt staða —
efstu liðin unnu
— Man. Utd sigraði í Oxfordshire og Everton vann upp
tveggja marka f orskot QPR. David Speedie
tryggði Chelsea enn sigur
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV á Englandi:
„Gary Bailey er mun hærri en
Chris Turner og þar sem miðverðir
Man. Utd, þeir Kevin Moran og Billy
Garton, eru heldur lágvaxnir valdi
ég Bailey frekar í markið þó svo
Turner hafi ekki fengið á sig mark í
þeim leikjum sem hann hefur leikið
með United að undanförnu," sagði
Ron Atkinson, stjóri Man. Utd og
fyrrum leikmaður Oxford, eftir að lið
hans hafði unnið góðan sigur í svað-
inu á litla Óðalsvellinum á Oxford á
laugardag, 1-3. Turner tók því hins
vegar mjög illa að vera settur úr
markinu og er jafnvel að hugsa um
að komast frá United.
Kevin Moran lék með United á ný
eftir langvarandi fjarveru vegna
meiðsla og átti góðan leik sem mið-
vörður. Þá lék John Gidman einnig
á ný eftir meiðsli en Mike Duxbury,
sem lék í bikarleiknum gegn Roch-
dale, var settur út. Aðalmaðurinn
bak við sigur United á laugardag var
URSLIT
Úrslit í ensku knattspj'rnunni á
laugardag urðu þessi.
1. deild
Birmingham-Ipswich 0-1
Chelsea-Luton 1-0
Coventry-Aston Villa 3-3
Everton-QPR 4-3
Leicester-West Ham 0-1
Man. City-Southampton 1-0
Oxford-Manchester United 1-3
Sheff. Wed.-Arsenal frestað
Tottenham-Nott. Forest 0-3
WBA-Newcastle 1-1
Leik Sheff. Wed. og Arsenal var
frestað en 1 - einn - kom upp hjá
isl. getraununum. Watford og
Liverpool léku í gær og er sagt frá
úrslitum á öðrum stað í blaðinu.
2. deild
Blackburn-Brighton frestað
Carlisle-Grimsby 1-2
C. Palace-Charlton 2-1
Huddersfield-Sheff. Utd. 3-1
Hull-Bradford 1-0
Millwall-Stoke 2-3
Norwich-Middlesbro 2-0
Oldham-Wimbledon 2-1
Portsmouth-F ulham 1-1
Shrewsbury-Barnsley 3-0
Sunderland-Leeds 4-2
3. deild
Bolton-Gillingham 0-1
Brentford -Wigan 1-3
Bristol City-Rotherham 3-1
Chesterfield-W alsall frestað
Derby-Bristol Rov. frestað
Lincoln-Bury 2-0
Newport-Bournemouth 2-1
Notts. County-PIymouth 2-0
Reading-Cardiff 1-1
Swansea-Blackpool 2-0
York-Wolves 2-1
4. deild
Burnley-Aldershot frestað
Cambridge-Hereford 4-0
Chester-Tranmere 1-0
Colchester-Torquay 0-0
Crewe-Wrexham 3-2
Exeter-Stockport 1-0
Mansfield-Northampton 1-0
Orient-Hartlepool 1-1
Preston-Halifax 0-1
Rochdale-Port Vale 3-3
Scunthorpe-Peterborough 2-0
Gordon Strachan. Lék frábærlega
vel og það var alltaf hætta þegar
hann geystist með knöttinn að marki
Oxford. Marga þekkta leikmenn
vantaði í bæði lið, Oxford án fimm
leikmanna úr aðalliði sínu. Leikur-
inn varð strax fjörugur, David Lew-
orthy misnotaði gott færi fyrir Ox-
ford á 2. mín. og Mark Hughes fyrir
United aðeins síðar áður en fyrirliði
Man. Utd, Norman Whiteside, skor-
aði fyrsta markið á 11. mín.
Neil Slatter braut á Whiteside rétt
utan vítateigs. Strachan tók auka-
spyrnuna, gaf inn í teiginn. Moran
skallaði á markið, Alan Judge mark-
vörður missti knöttinn og Whiteside
renndi honum í markið. „Man. Utd
var betra liðið í fyrri hálfleik og
verðskuldaði forustuna," sagði Tre-
vor Brooking, fréttamaður BBC, í
leikhléinu. Hins vegar tókst Oxford
að jafna í 1-1 á 54. mín. og eftir það
var leikurinn mjög spennandi. Mark-
ið var umdeilt. Oxford fékk auka-
spymu sem John Trewick tók. Gaf
inn í teiginn og þar virtist knötturinn
fara í hönd eins leikmanns Oxford.
Dómarinn veifaði að halda leiknum
áfram og knötturinn barst til Lew-
orthy sem skoraði af stuttu færi.
Fjórða mark hans í fimm leikjum frá
því hann var keyptur frá Tottenham.
Skömmu síðar fékk hann færi en
spyrnti framhjá en eftir það fór miklu
meiri leikni leikmanna United að
segja til sín. Á 73. mín. skoraði Mark
Hughes eitt fallegasta mark sem
hann hefur skorað á leikferli sínum,
þrumufleygur eftir sendingu John
Gidman, þar sem Judge sá ekki
knöttinn fyrr en hann lá í netinu.
Oxford reyndi að jafna og eftir tals-
verð mistök í vöm United, þar sem
John Aldridge spyrnti rétt yfir, Ray
Houghton síðan framhjá, barst
knötturinn skyndilega langt fram á
vallarhelming Oxford. Frank Staple-
ton gaf fyrir - menn ekki á eitt sáttir
hvort það átti að vera markskot -
og Colin Gibson skallaði í mark.
Úrslit ráðin. Liðin voru þannig skip-
uð.
Oxford. Judge, Trewick, Charles,
Sutton, Slatter, Houghton, Hebbard,
Jones (Rhodes-Brown), Phillips,
Aldridge og Leworthy. Man. Utd.
Bailey, Gidman, Moran, Garton,
Albiston, Blackmore, Whiteside,
Gibson, Strachan, Hughes og Staple-
ton. Jesper Olsen varamaður en kom
ekki inn á.
Fjör í Liverpool
Það var mikið fjör á Goodison Park
þegar meistarar Everton fengu QPR
í heimsókn. Everton án Bracewell
og Steven en Lundúnaliðið kom á
óvart með leikaðferð sinni, þrír
bakverðir, fimm tengiliðir, tveir
framherjar. Þetta kom Everton
greinilega í opna skjöldu því QPR
skoraði tvö fyrstu mörkin. 0-2 eftir
25 mínútur. Gary Bannister skoraði
fyrra markið, síðan John Byrne. Á
lokamínútu fyrri hálfleiksins fékk
Everton vítaspyrnu, sem Graeme
Sharp skoraði úr. Everton byrjaði
síðari hálfleikinn með miklum látum.
Gary Lineker jafnaði og á eftir fylgdu
enn tvö mörk. Paul Wilkinson, sem
hafði komið inn sem varamaður fyrir
Sheedy, skoraði þriðja markið og gaf
síðan á Sharp, sem skoraði fjórða
mark Everton. Það var á 67. mín. Á
84. mín. minnkaði Bannister muninn
í 4-3 en fleiri urðu ekki mörkin. QPR
fékk ekki möguleika á að jafna.
Chelsea tryggði sér þrjú stig gegn
Luton með marki David Speedie í
síðari hálfleiknum. Leikurinn heldur
daufur. Luton fékk góð færi framan
af, sem leikmönnum liðsins tókst
ekki að nýta. Síðan kom að leik-
mönnum Chelsea að misnota færin
þar til Speedie skoraði. Mike Newall,
sem Luton keypti nýlega frá Wigan
í 3. deild fyrir 85 þúsund sterlings-
pund, lék sinn fyrsta leik með Luton
og sást varla í leiknum. Var keyptur
til þess að fylla stöðu Mike Harford,
sem er meiddur, en Newall var mark-
hæsti leikmaðurinn í 3. deild.
Sex mörk í Coventry
Simon Steinrod skoraði eftir aðeins
tvær mínútur fyrir Aston Villa i
Coventry. Heimaliðið svaraði með
tveimur mörkum í fyrri hálfleik.
Cyrille Regis og Kilclane skoruðu.
Kilclane skoraði þriðja mark Co-
ventry úr vítaspyrnu en þeir Andy
Gray og Paul Elliott fyrir Villa.
Jafntefli, 3-3, og Elliott skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Aston Villa frá því
hann var keyptur frá Luton.
Nottingham Forest lék Tottenham
grátt í grenjandi rigningu á White
Hart Lane í Lundúnum. Ray Clemen-
ce bjargaði Tottenham frá enn
stærra tapi - vörn Tottenham var
hreint hörmuleg. Davenport komst
tvívegis frir að marki Tottenham í
STAÐAN
Eftir leikina á Englandi á laugar-
dag er staðan þannig.
1. deild
Man. Utd 25 17 4 4 45-17 55
Everton 26 15 5 6 60-35 50
Chelsea 24 15 5 4 39-23 50
West Ham 24 14 6 4 39-20 48
Liverpool 25 13 8 4 49-25 47
Sheff. Wed. 25 12 7 6 40-39 43
Arsenal 24 12 6 6 28-26 42
Luton 26 11 8 7 41-29 41
Nott.For. 26 12 4 10 44-38 40
Newcastle 25 9 9 7 35-37 36
Tottenham 25 10 5 10 39-31 35
Watford 24 9 6 9 40-39 33
Man. City 26 8 8 10 30-33 32
Southampton 25 8 6 11 33-36 30
QPR 25 9 3 13 27-35 30
Coventry 25 6 7 12 32-43 25
Leicester 26 6 7 13 33-47 25
A. Villa 26 5 9 12 31-41 24
Oxford 25 5 8 12 37-52 23
Ipswich 26 6 5 15 20-38 23
Birmingham 25 5 3 17 14-35 18
WBA 26 2 7 17 23-60 13
2. deild
Norwich 25 15 6 4 51-23 51
Portsmouth 25 16 4 6 44-20 49
Wimbledon 26 12 6 8 34-28 42
Charlton 23 12 4 7 41-27 40
Brighton 25 12 4 9 44-36 40
Sheff. Utd. 26 11 7 8 43-37 40
Hull 26 10 8 8 42-36 38
C. Palace 25 11 5 9 32-30 38
Barnsley 26 10 7 9 27-26 37
Blackburn 24 9 8 7 28-30 35
Stoke 25 8 10 7 32-31 34
Bradford 23 10 3 10 27-32 33
Shrewsbury 26 9 5 12 33-39 32
Leeds 26 9 5 12 34-45 32
Sunderland 26 9 5 12 27-39 32
Grimsby 25 8 7 10 39-37 31
Oldham 25 9 4 12 36-41 31
Huddersfield 25 7 9 9 36-41 30
Millwall 23 8 3 12 35-41 27
Middlesbro 25 7 6 12 21-29 27
Fulham 22 7 3 12 23-31 24
Carlisle 24 4 3 17 21-51 15