Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Blaðsíða 8
DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Columbía loks á loft Bandarísku geimskutlunni Col- umbía var skotið á loft frá Canaver- alhöfða á Flórída í gær eftir að fresta hafði þurft flugtaki sjö sinnum síð- ustu þrjár vikur vegna bilana. Ferð geimferjunnar stendur í fimm daga og um borð eru sjö geimfarar, þar á meðal einn þingmaður úr full- trúadeild bandaríska þingsins, Bill Nélson, og fyrsti bandaríski geim- farinn sem ættaður er frá rómönsku Ameríku. Ferð Columbíu í gær er fyrsta geimskutluferðin af fimmtán er bandaríska geimferðastofnunin hef- ur skipulagt á árinu. Aðalverkefni ferðarinnar verður að koma tveggja tonna, 50 milljón dollara, gervihnetti á sporbaug fyrir bandaríska RCA fyrirtækið, auk rannsókna á Halley halastjörnunni sem nú sést í fyrsta sinn í 76 ár nærri jörðu. Columbía er elst fjögurra geim- skutla Bandaríkjamanna og er bér um að ræða fyrsta flug hennar í rúm tvö ár en síðustu mánuði hefur hún gengic í gegnum mikla skoðun auk þess sem tæknibúnaður hefur verið aukinn og endurbættur. 1 fyrsta sinni í geimferðasögu Bandaríkjanna eru tvær geim- skutlur á skotpöllum við Kennedyhöfða. Colombía er til vinstri. Það hefur þurft að fresta nokkrum sinnum skoti hennar á loft. Til hægri er Chal- lenger. Qm , ^ «• Bon" °9 þvottastoöin hf. KU Sigtúni 3, a“9i" Sími 14820. Bön- og þvottastöðin hf. Sigtúni 3 AUGLYSIR: ** Bifreiðaeigendur, vitið þið að það tekur aðeins 15 mínútur að fá bílinn þveginn og bónaðan, ótrúlegt en satt. Ath. eftirfarandi: Móttakan er í austurenda hússins, þar er bíllinn settur á færiband og leggur síðan af stað í ferð sína gegnum húsið. Eigendur fylgjast með honum. Síðan er hann þveginn með mjúkum burst- um (vélþvottur), þar á eftir kemur hand- þvotturinn (svampar og sápa). Hægt er að sleppa burstum og fá bílinn eingöngu handþveginn. Næst fer bíllinn í bónvélina og er þar sprautað yfir hann bóni og síðan herði. Að þessu loknu er þurrkun og snyrt- ing. 8 bílar eða fleiri geta verið í húsinu í einu, t.d. einn í móttöku, annar í háþrýstiþvotti, þriðji í handþvotti o.s.frv. Fyrst fer bíllinn í hinn ómissandi há- þrýstiþvott, þar sem öll lausleg óhrein- indi, sandur og þvi um líkt, eru skoluð af honum, um leið fer hann í undir- vagnsþvott. Viðskiptavinir eru mjög ánægðir með þá þjónustu, því óhrein- indi safnast mikið fyrir undir brettum og sílsum. Bíll, sem þveginn er oft og reglulega, endist lengur, endursöluverð er hærra og ökumaður ekur ánægðari og öruggari á hreinum bíl. Tíma þarf ekki að panta. Þeir sem koma með bílinn sinn í fyrsta skipti til okkar undrast hvað margt skeður á stuttum tima (15 mínútum). Mikill ör- yggisvið- búnaöurí Kaupmanna- höfn Lögregluyfirvöld á Norðurlöndun- um juku mjög eftirlit sitt með flug- völlum og helstu dvalar- og sam- komustöðum gyðinga um helgina. Herma fréttir að leyniþjónustu- fregnir hafi varað við yfirvofandi árás hermdarverkamanna á skot- mörk á Norðurlöndunum. Danir hafa það eftir leyniþjónustu- heimildum að hryðjuverkamenn á vegum skæruliðaforingjans Abu Nidal hyggi á aðgerðir í Danaveldi á næstunni gegn gyðingum og hugs- anlega Bandaríkjamönnum. Lögregla og öryggissveitir í Dan- mörku hafa aukið allt eftirlit með stofnunum gyðinga og Bandaríkja- manna í landinu. Lögreglumenn með alvæpni fylgdust með bænhúsi gyð- inga í Kaupmannahöfn, sendiráði ísraels og öðrum líklegum vettvangi fyrir árás hryðjuverkamanna. Eftirlit var einnig stórlega aukið á Kastrupflugvelli. Bænhús gyðinga í Kaupmanna- höfn var ein margra bygginga í eigu og umsjón gyðinga er varð fyrir barðinu á hryðjuverkaárásum á síð- asta ári í Kaupmannahöfn. Svíar taka eyðni- sjúklinga með valdi Gunnlaugur A. Jónsson, DV, Lundi: Eyðnisjúklingar í Svíþjóð eiga nú á hættu að verða teknir með lög- regluvaldi og þvingaðir inn á sjúkra- hús. Héraðsdómur í Stokkhólmi úr- skurðaði fyrir helgi að 30 ára gamall fíkniefnaneytandi skyldi með valdi fluttur í læknismeðferð. Eyðnisjúklingurinn hafði brotið gegn nýjum lögum í Svíþjóð er kveða á um að þeir sem smitast hafi af eyðni verði að gæta þess sjálfir að breiða sjúkdóminn ekki út. Umræddur sjúklingur hafði ítrek- að lánað öðrum fíkniefnaneytendum notaðar sprautur sínar og þannig stuðlað að útbreiðslu sjúkdómsins. Talið er að um 700 Stokkhólmsbúar hafi þegar smitast af eyðni. Borusewicz tekinn Bogdan Borusewicz, einn leiðtoga Samstöðu, hins ólöglega pólska verkalýðsfélags, er handtekinn var í skyndiáhlaupi lögreglu á ólöglega prentsmiðju stjórnarandstæðinga í Varsjá í síðustu viku, var handtek- inn ásamt fimm öðrum virkum Sam- stöðumönnum. Heimildir innan Samstöðu hérrna að Borusewicz sé einn þriggja leið- toga framkvæmdanefndar Samstöðu er verið hafi neðanjarðar frá því herlög tóku gildi í Póllandi fyrir fimm árum. Lech Walesa lofaði Borusewicz i gær sem einn helsta baráttumann borgaralegra réttinda í Póllandi og r Viandtökuhans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.