Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1986, Blaðsíða 30
30 DV. MÁNUDAGUR13. JANÚAR 1986. Sandkom Sandkom Sex af sex þúsund Fjölskylduspilið Trivial Pursuit hefur orðið feikna vinsælt hér á landi eins og annars staðar þar sem það hefur verið selt. Hið eina sem fólki hefur þótt að spil- inu er að það sé fullerfitt fyrir yngri Qölskyldumeð- limina. Það er raunar engin furða þvi spilið er ætlað fyrir unglinga og fullorðna en ekki börn. Nú er hægt að flytja að- dáendum Trivial Pursuit þau gleðitíðindi að sérstakt Trivia' fyrir börn kemur á markaðinn hér innan tiðar. Er það ætlað krökkum á aldrinum 6-14 eða 15 ára. Er ekki að efa að margir munu taka barnaspilinu fegins hendi því með til- komu þess geta allir í Ijöl- skyldunni spilað Trivial. En nóg um það. Við sögð- um frá því hér i Sandkorni á dögunum að villur hefðu fundist i þvi Trivial Pursuit sem kom á markaðinn hér í haust. Málið mun í smáat- riðum vera það að öðrum megin á þar til gerðum spjöldum eru spurningar, hinum megin svör. I prent- un urðu þau mistök að svör víxluðust á tveim spjöldum. Það eru þvi ekki nema 12 spurningar af 6000 sem eru Barna-Triviai Pursuit er vænt- anlegt á markað hér innan skamms. með þessum annmarka sem vissulega getur ekki talist hátt hlutfall. Óánægja íhaldsins í Keflavík Meðal frambjóðenda í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Keflavík er nú komin upp óánægja með próf- kjörsreglur, að því er Vik- urfréttir herma. Á fulltrúaráðsfundi fyrir nokkru var ákveðið að prófkjörið skyldi vera opið. En fyrr í þessum mánuði kom svo í ljós að prófkjörs- nefndin hafði ákveðið að hafa aðeins hálf-opið, það er að setja skilyrði fyrir þátttöku eða jafnvel að það yrði ákvörðun þeirra sem yrðu við störf hveiju sinni hvort viðkomandi fengi að kjósa eða ekki. Munu einhveijir fram- bjóðenda hafa haft á orði að betra væri að hætta við því með núverandi fyrir- komulagi fái mun færri að láta skoðun sina i ljósi um val frambjóðenda heldur en ef prófkjörið hefði verið galopið. Skyldi ríkið kaupa? DV greindi frá því í síð- ustu viku að yfirvöld hefðu ákveðið að innkalla siðasta tölublað tímaritsins Samú- els. Ástæðan fyrir þessu mun vera sú að í umræddu tölublaði birtist grein um nýja sígarettutegund. Hef- ur blaðið haft fyrir sið að kynna bæði nýjar tóbaks- og áfengistegundir á mark- Ólafur getur kannski selt rik- inu bannaða upplagið fyrir góðan skikiing. aðnum. En það má ekki hér. Tviskinnungurinn í þessum hlutum er þvilikur að farið er með tóbaks- og áfengismál eins og manns- morð. Á meðan þyrpist fólk í afvötnun ef það hefur þá ekki þegar sálast úr krabbaméini. Auðvitað væri opinská umfjöllun um þessi efni æskileg, þar með taldar umræddar „auglýsingar". Þær dygðu nefnilega skammt ef fræðslumálin væru í lagi. En það var ekki meining- in að birta hér lærða grein um nautnamál á Islandi, heldur huga aðeins betur að upptökunni á Samúel. Þetta er í annað sinn á of skömmum tíma sem tima- rit er gert upptækt hér á landi. Hið fyrra var Speg- illinn. Í því máli urðu lyktir þær að ríkið keypti bann- aða upplagið. Kannski að það eigi eftir að kaupa Samúellika. Verslunarskólanemar fluttu á dögunum með miklum tilþrif- Þýsk-íslensk kennslustofa Sem kunngt er af fréttum flutti Verslunarskólinn fyr- ir nokkrum dögum í nýtt húsnæði. Flu.tningarnir gengu vel fyrir sig eins og nærri má geta þegar marg- ar hendur vinna sama verk- ið. Eru nemendur sagðir harla ánægðir - að öllu leyti nema einu. í nýja Verslunarskólan- um háttar svo til að kennslustofurnar eru merktar tilteknum fyrir- tækjum. Hafa þau hin sömu og eiga nafn sitt i skólanum stutt byggingu hans með fjárframlögum eða á annan hátt. Þess vegna stendur nú skýrum stöfum „Hafskip" á hurð einnar kennslustofunnar. Og á hurð annarrar stofu innar í sama gangi stendur „Þýsk-íslenska" Segir sagan að nemendur í umræddum stofum séu ekkert alltof ánægðir með þessar merkingar á vistar- verum sínum. En lánið er hverfult. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir •VVJS KVJWVJW Það er fjör á verksmiðjuútsölu Fatalagersins og það fara flestir ánægðir, enda fæst þar ótrúlegt úrval af ódýrum og góðum fatnaði á alla fjölskylduna, s.s. buxur, skyrtur, peysur, blússur, bolir, jogginggallar, úlpur og fleira og fleira. PRÍSARNIR ERU ÞEIR LÆGSTU í BÆNUM. Opið mánudag til miðvikudag kl. 10-19, fimmtudag og föstudag kl. 10-22, laugardag kl. 10-16. FSIAUSERINN Grandagardi 3,Reykjavík Peningamarkaður Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarn- ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29‘X, og ársávöxtun 29%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 33,5% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36% nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. Tvisvar á ári má taka út án þessa frá- dráttar. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og 42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynisthún betri. Iðnaðarbankinn: Bónur''eikningar eru annaðhvort með 28% nafnvo/tum og 30% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5‘X, vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 36% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%, 4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, eftir 6 mánuði 37% og eftir 12 mánuði 37%. Ársávöxtun á óhreyfðu innleggi er 37%, eða eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum reikningum reyn- ist hún betri. Vextir færast einu sinni á ári. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samanburðúr er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Öndvegisreikningur er bundinn til 18 mánaðar, verðtryggður og með 7% nafnvöxt- um á binditímanum. Eftir það reiknast sömu vextir og á 3ja mánaða reikning í bankanum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. f>á ársfjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með 34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs Islands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölUm og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krönur. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára en innleysanleg éftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir 7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamið- um, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð- stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og greiddir út gegn framvísun vaxtamiða. Verð- bætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta- auka, til 18 mánaða eða 10.03.87. Vextir eru meðaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum reikningum bankanna og með 50% álagi. Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis- tryggð skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9% vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn- lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu SI)R. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin cru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-Ián, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund. Lánstími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán llfeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextimir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22‘/o nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 0,125%. Vísitöiur Lánskjaravísitala í janúar 1986 er 1364 stig en var 1337 stig í des. 1985. Miðað er við grunninn 100 íjúní 1979. Byggingarvísitala á 1. ársíjórðungi 1986 er 250 stig á grunninum 100 frá janúar 1983 en 3699 stig á grunni 100 frá 1975. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 1.-10.1.1986 INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM sjAsérlista fllfll z e z -S ii í .S 11 ll Lands- bankinn ll II Jf INNLÁN ÖVERÐTRYGGÐ SPARISJÓÐSBÆKUR Úbundin innstæöj 22.0 22,0 22.0 22,0 22,0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 25.0 26.6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0 6 mán.uppsögn 31.0 33,4 30.0 28.0 26.5 30.0 29.0 31.0 28.0 12 mán.uppsögn 32.0 34.6 32.0 31.0 33.3 SPARNAÐUR- LANSRÉTTUR Sparað3-5mán. 25.0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25.0 Sp. 6mán. ogm. 29,0 26.0 23.0 29.0 28.0 INNLÁNSSKÍRTEINI TllSmánaða 28,0 30.0 28.0 28.0 TÉKKAREIKNINGAR Ávísanareikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0 Hlaupareikningar 10,0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0 INNLÁN VERÐTRYGGÐ SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 6 mán.uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.5 3,0 3.5 3.0 INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAH Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7,5 7.0 7.5 7.5 7.5 7,5 8.0 Sterlingspund 11.5 11.5 11.0 11,0 11,5 11.5 11.0 11.5 11.5 Vestur-þýsk mörk 5.0 4.5 4.25 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5 Danskar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0 ÚTLÁN ÓVERDTRYGGÐ ALMENNIR VlXLAR (lomaMir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30,0 30.0 30.0 VIOSKIPTAVlXLAR (toiveMii) 34.0 2) kge 34.0 kge 32,5 kge 34.0 ALMENN SKULÐABRÉF 32.03) 32.0 32.0 32.0 32.0 32,0 32.0 32.0 32.0 VIÐSKIPTASKULDABRÉF 35.0 2) kge 35.0 kge 33.5 kge kge kge 35.0 HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 31.5 31,5 31.5 31.5 31,5 31,5 31,5 31.5 31.5 ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF Að21/2íri 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Lengri en 2 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTLÁN TIL FRANILEIÐSLU SJANEÐANMALS1| 1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutaings, í SDR 9,75%, í Bandaríkjadollurum 9,5%, í sterlingspundum 13%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%. 2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum er miðað við sérstakt kauj> gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í Hafharfirði, Kópavogi, Keflavík, Sjjarisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj. 3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verelunarbankanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.