Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Síða 17
E>V. MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1986. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur UM FLETT Hrafn Harðarson skrifar: Vinur minn einn, sem ég þekki nokkuð vel, skrifaði fyrir nokkrum árum (svona 10) grein í eitthvert blað um símaskrána okkar. Þetta var svona hálfgerð bókaumsögn með nokkurri gagnrýni á ýmsa þætti þessarar mest notuðu handbókar fólks. Enda þótt hann skrifaði þá undir dulnefninu Síma-Kalli var ritstjóri símaskrárinn- ar svo vinsamlegur að taka sér penna í hönd og svara honum stuttu síðar á sama vettvagni. Ég man að ég var sammála gagnrýni vinar míns, sérstaklega um það atriði sem ég ætla að gera að umtalsefhi í þessum pistli. Ég man líka hvað ég varð skúffaður (orð, sem mér skilst að sé notað um möppudýr þegar þau hafa verið sett í skúffur og una því illa) þegar mér varð ljóst að ritstjórinn virt- ist ekki skilja hvað Kalli meinti með aðfinnslum sínum. Nema hann hafi ekki viljað skilja hann? Nú er símaskráin tölvusett og öll nútímans tölvutækni brúkuð af fær- ustu Tótum tölvuköllum við útgáfu hennar, og hafi á sínum tíma verið vandkvæðum bundið að breyta upp- setningu hennar þá ætla ég að nú geti það varla verið erfitt. Þvi ætla ég að taka upp baráttu vinar míns frá því fyrir u.þ.b. 10 árum og freista þess að fá ritstjóm símaskrárinnar til að skilja og til að vilja breyta henni, mér til ánægju og öllum öðrum til þæg- indaauka og tímaspamaðar. Þannig er málið vaxið: Handbækur, eins og símaskráin, em fyrst og ffemst flettibækur, þ.e. fáir lesa þær í gegn með því að byrja á fremstu síðu og stafa sig svo í gegn ffá orði til orðs og síðu til síðu, heldur eru þeir að leita að ákveðnum orðum og upplýsingum sem að baki þeim standa. I orðabókum leita menn uppi orð og fá þar svar við spumingum um þýðingu þeirra eða önnur orð sömu merkingar o.s.ffv. í símaskrá em menn að leita að símanúmerum, heimilis- fongum og stundum þjónustu einstakl- inga, fyrirtækja og stofnana. Allt frá bemsku prentlistarinnar hafa verið prentaðar slíkar flettibækur og menn fundu fljótt bestu lausnir á helstu vandamálum við uppsetningu slíkra rita og settu auk þess í þau hjálpartæki, sem æ síðan hafa verið talin ómissandi öllum notendum, m.a. flettiorðin. Nema útgefendur íslensku símaskrárinnar. Þeim virðist vera með öllu fyrirmunað að skilja þetta eða vilja. í stuttu máli er galdurinn sá að líta á hverja opnu í bókinni sem eina sjálfstæða einingu, líkt og skúffu, sem hefur að geyma ákveðnar upplýsingar. Þar eð skráin er í stafrófsröð, og öll kunnum við staffófið, þurfum við að- eins að vita hvert er fyrsta og síðasta orðið (nafhið) á hverri opnu til að sjá á augabragði hvort orðið (nafhið), sem við leitum að, er þar á meðal. Sé það ekki á þeirri opnu, sem við erum með fyrir ffaman okkur, flettum við á næstu opnu eins og við opnum næstu skúflu f skjalaskáp, og leitum að síð- asta orðinu. Til þess nú að flýta fyrir okkur hafa prentarar og útgefendur handbóka gert okkur þann greiða að setja fyrsta og síðasta orðið á hverri opnu upp fyrir dálkana með feitara letri og erum við þeim ákaflega þakk- lát fyrir þetta hjálpartæki. í síma- skránni okkar eru hins vegar aðeins tekin efstu orðin i öllum dálkunum, sem þýðir það að öll orðin (nöfnin) fyrir neðan efsta orðið (nafnið) í síð- asta dálkinum á hverri opnu virðast eiga heima á næstu opnu fyrir aftan. Ég ætla ekki að reyna að lýsa ergelsi mínu og pirringi í hvert sinn er ég þarf að fletta aftur til baka af þessum sökum. Dæmi: Leitað er að Sjálfsbjörg. Opnað er og flett að síðu 293. Þar stendur feitletrað efst í hægra homi Sívertsen, og er því flett yfir á næstu opnu. Og sjá, þar stendur Sjófang. Til þess að finna það, sem leitað var að þarf að fletta þungri blaðsiðunni við aftur og eyða í það tíma og orku. Einhverjum kann að sýnast þetta smámunir einir en ég er á öðru máli og þykist tala fyrir munn margra símnotenda. Lagfærum þetta nú í snarhasti, kæm símaskrármenn. Ég hef nú flett ofan af þessu máli og er engum blöðum um það að fletta að verði þetta lagfært mun blaði verða flett í sögu símaskrárinnar okkar. Til áréttingar vil ég benda ritstjóm henn- ar á að fletta upp á orðinu fletta í Orðabók Menningarsjóðs og skal ég fletta mig klæðum ef þeir sjá ekki þar, eins og flett væri af þeim, hvemig flettibók á að vera. Hrafn Harðarson „Handbækur, eins og símaskráin, eru fyrst og fremst flettibækur, þ.e. fáir lesa þær í gegn með þvi að byija á fremstu siðu og stafa sig svo í gegn frá orði til orðs og síðu til síðu, heldur eru þeir að leita að ákveðnum orðum og upplýsingiun sem að baki þeim standa.“ Látum mjölkina vinna meðokkur Mjólk fyrir alla eftir dr. Jón óttar Ragnarsson Fájr ef nokkrar algengar fæðutegundir eru eins góðar uppsprettur fyrir bætiefni og mjólk. Hún er i flokki örfárra alhliöa næringarefnagjafa, og yfirburðafæða t.d. fyrir bein, tennur, húð, hár og taugakerfi. Böm og unglingar ættu að nota allan mjólkurmat eftir því sem smekkur þeirra býður. Fullorðnir ættu á hinn bóginn að halda sig við fituminni mjólkurmat, raunar við magra fæðu yfirleitt. 2 mjólkurglös á dag eru hæfilegur lágmarksskammtur á dag ævilangt. Mundu að hugtakið miólk nær yfir léttmjólk, undanrennu og nýmiólk. MJÓLKURDAGSNEFND Mjólk er nýmjólk, léttmjólk og undanrenna. ierlidaðsins Valgeir Cuöjónsson er vinnuhestur. Hann er menntaður felagsráðgjafi, hefurfengistvið bókaútgáfu, kvikmyndgerð, gerð útvarps- og sjónvarpsþátta, kennslu, unnið vð leikhús og á tónlistarsviðinu hefur hann samið, leikið og sungið, einkum með Spilverki þjóðanna og Stuðmönnum, mörg skemmtilegustu og vinsælustu dægurlög síðustu ára, tekið þátt í gerð ótal hljómplatna og komið fram á tónleikum og dansleikjum i hundruða og þúsunda tali. Og er þá ekki allt talið. Starfsorka, bjartsýni og úthald kemur ekki af sjálfu sér. Til þess að geta stundað skapandi og erfiða vinnu undir álagi þarftu að borða holla og góða fæðu. Þetta veit Valgeir Guðjónsson. Enda drekkur hann mjólk. Mjólk er full af bætiefnum. Hún er ómissandi liður í daglegri fæðu okkar allra!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.