Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Qupperneq 22
Ú2 DV: MÁNtTDAGUR 14. APRlL l'986. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir • Sigurgleðin leynir sér ekki i andliti Eiísabetar Þórðardóttur. Hún sést hér hampa verðlaunum sinum fyrir sigrana í einliða- og tvíliðaleik. DV-mynd Brynjar Gauti. Pétur lék í 24 mínútur skoraði átta stig og tók átta fráköst í sigri Lakers á Sacramento Kings Pétur Guðmundsson lék með Los Angeles Lakers gegn Sacramento Kings í NBA deildinni bandarísku aðfaranótt sunnudags. Pétur var inn á í 24 minútur og skoraði átta stig og tók átta fráköst i sigri Lakers, 105 92. „Ég er þokkalega ánægður með minn hlut. Ég stóð mig sæmilega í vörninni en lítið var leikið upp á mig í sókninni. Jaabar var hvíldur en ég og Mitch Kutchak lékum i hans stað,“ sagði Pétur. Sigur Lakers var 62. sigur liðsins á tímabilinu en liðið hefur tapað 19 Jeikjum. Lakers er með besta vinn- ingshlutfallið í vesturdeildinni og mun leika við liðið sem er í áttunda sæti í úrslitakeppninni, sem líklega verður Dallas Mavericks. Liðið þarf síðan að vinna þrjá leiki í þeirri keppni til að tryggja sér farseðilinn í úrslitakeppnina gegn sigurvegur- um austurstrandarinnar. Þeir leikir hefjast í lok maí. Þrátt fyrir að Lakers hafi unnið 13 stiga sigur leit lengi út fyrir óvæntan sigur Sacramento. Liðið hafði á tímabili 10 stiga forystu en stórkostlegur kafli „magic“ Johnson tryggði Lakers sigurinn. -fros SAABUPP! Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttarit- ara DV í Svíþjóð: Saab, sænska liðið sem Þorbergur Aðalsteinsson leikur með og þjálfar, tryggði sér í gærkvöldi sæti i All- svenskan með því að vinna óvæntan en sanngjarnan sigur á Frölunda er liðin mættust á heimavelli Frölunda í lokaumferðinni í úrslitakeppninni um Allsvenskansæti. Frölunda var efst í keppninni fyrir leikinn og sigur Saab kom mjög á óvart. Með sigrinum tryggði Saab sér efsta sætið, nokkuð sem enginn reiknaði með fyrir mótið. Liðið hlaut sjö stig, Frölunda, Cliff og H43 hlutu sex stig og þau tvö fyrstnefndu kom- ust upp, Savehof hlaut fimm stig og Viking ekkert stig. Þorbergur var ekki atkvæðamikill í sóknarleik Saab. Hann skoraði að- eins tvö mörk, annað úr víti. -fros Beta og Broddi sigurvegarar - í einliðaleik á íslandsmótinu í badminton Broddi Kristjánsson og Elísabet Þórðardóttir, bæði úr TBR, voru ótvíræðir sigurvegarar á Islandsmeistaramótinu í badminton sem fram fór um helgina. Þau unnu bæði tvö- faldan sigur, í einliða- og tvíliðaleik, og Broddi bætti reyndar um betur með því að sigra einnig í tvenndarleikn- um. Óvæntur sigur Elisabetar Sigur Elísabetar Þórðardóttur í einliðaleik kvenna kom líklega hvað mest á óvart. Hún hafði aldrei orðið íslandsmeistari í einliðaleik fyrir mótið. Hún sigraði Þórdísi Edwald í úrslitaleik, 1-11,11-6 og 11-3. Árangur Elísabetar má án efa að nokkru leyti þakka það að hún hefur verið við æfingar í Svíþjóð. í tvíliðaleiknum léku þær Þórdís og Elísabet saman og sigruðu Ingu Kjartansdóttur og Kristínu Magnús- dóttur i úrslitum, 18-5 og 15-7. steinn síðan sigur í tvíliðaleiknum er þeir sigruðu Jóhann Kjartansson og Sigfús Ægi Árnason, 15-11, 17-18 og 15-12. Eins og tölurnar gefa til kynna var viðureignin hörkuspenn- andi. Þriðja gull Brodda kom í síðustu grein mótsins, tvenndarleiknum. Broddi lék þar með Kristínu Magn- úsdóttur en þau sigruðu Þorstein Hængsson og Ingu Kjartansdóttur, 15-12 og 15-12. I A-flokki sigraði Ármann Þor- valdsson í einliðaleik karla og Akurnesingurinn Guðrún Gísladótt- ir vann einliðaleikinn í kvenna- flokki. Líklegt er því að Guðrún og Ármann vinni sig upp í meistara- flokk þó vissulega sé það ekki algild regla að sigurvegarar A-flokks færist upp. -fros Þrefalt hjá Brodda Broddi Kristjánsson vann nú sigur í einliðaleik karla á nýjan leik eftir að hafa tapað titlinum í fyrra. Árang- ur Brodda er mjög athyglisverður fyrir þær sakir að hann fótbrotnaði í ágúst sl. og gat af þeim sökum ekk- ert sinnt æfingum. Broddi byrjaði síðan að þjálfa upp fótinn í ársbyrj- un. Fáir ætluðu að hann yrði eins fljótur að ná sér á strik eins og raun- in varð en hann varð þrefaldur sigurvegari á mótinu. Úrslitaleik hans við Þorstein Hængsson í ein- liðaleiknum lyktaði með sigri Brodda, 15-8 og 15-7. Árni þór og Guðmundur Adolphs- son náðu sér aldrei á strik og líklegt er að þreyta eftir Evrópumeistara- mótið hafi setið í þeim. Með sigri sínum bætti Broddi met Haraldar Kornelíussonar. Haraldur varð fimm sinnum Islandsmeistari í einliðaleik en sigur Brodda varð sá sjötti. Saman unnu þeir Broddi og Þor- • Broddi Kristjánsson kom, sá og sigraði á íslandsmótinu í Badminton um helgina. Broddi er nýstiginn upp úr meiðslum en hann lét það ekki aftra sér og sópaði til sín öllum verðlaununum í karlaflokki. DV-mynd Brynjar Gauti. ísland með á OL í knattspymu Landsliðiö tekur þátt í undankeppninni fyrir leikana í Seoul 1988 • Sigurður Sveinsson. Gummersbach KSÍ samþykkti á stjórnarfundi í dag að a-landsliðið tæki þátt í undan- keppninni í knattspyrnu fyrir ólympiuleikana í Seoul 1988. ísland hefur ekki tekið þátt í knatt- spyrnukeppni ólympíuleikanna síðan árið 1975. Ástæðan fyrir því að hætt var að senda lið til keppninn- ar var áhugamannareglur sem meinuðu atvinnumönnum að leika með. Reglunum var síðan breytt og nú eru aðrir leikmenn en þeir er leik- ið hafa í leikjum fyrir heimsmeist- arakeppnina gjaldgengir. Fyrir okkur Islendinga táknar það að við munum leika án margra af okkar sterkustu leikmönnum, sem og reyndar önnur lið, en landsleik- imir ættu að vera góð reynsla fyrir þá sem staðið hafa rétt utan við landsliðshópinn. Forkeppnin hefst 1. ágúst á þessu ári en lýkur 31. maí 1988. Tekið er tillit til landfræðilegar legu þegar dregið er í riðla en það mun verða gert í lok maí. -fros Páll var tekinn úrumférð - er Dankersen tapaði fýrir Schwabing. Essen vann „Fallið blasir við' - sagði Ragnar Margeirsson eftir enn eitt tap Waterschei. Úrslitaleikur Anderlecht og Club Brugge Frá Atla Hilmarssyni, fréttaritara DV í V-Þýskalandi: Páll Ólafsson átti mjög góðan leik fyrir Dankersen er liðið lék gegn Schwabing í v-þýska handboltanum í gær. Páll skoraði sjö mörk og var tekinn úr umferð síðasta stundar- fjórðunginn er Scwabing sigraði, 29-19. Þrátt fyrir þennan stóra sigur var það ekki fyrr en í síðari hálfleik að Schwabing náði umtalsverðri for- ystu. Þá sigraði Essen Dússeldorf, 18-1.6. Grosswaldstadt hefur nú 30 stig í 1. deildinni, Essen og Schwabing 29, Gum- mersbach 26 og Kiel 21.1 neðri hlutanum er Gúnzburg með 13 stig ásamt Weiche Handewitt og Göppingen, Dankersen hefur 12 stig, Hofweier 11, Lemgo 9 og Berlin rekur lestina með sex stig. Þrjú lið falla niður í aðra deild. -fros - en það dugði Lemgo ekki. Létt hjá Hameln. Fró Atla Hilmarssyni, fréttaritara DV í V-Þýskalandi: Sigurður Sveinsson skoraði sjö mörk fyrir liemgo, þar af þrjú úr vítum, er liðið lék gegn Gummersbach í 1. deild v-þýska handboltans á laugardaginn. Mörk Sigurðar dugðu þó ekki liemgo til sigurs. Gummersbaeh vann í jöfnum leik, 22 19, en leikurinn fór fram á heimavelli Lemgo. „Það var fyrst og fremst stórkostleg mark- varsla Andreas Thiele sem tryggði sigur Gummersbach. Við áttum síst minni möguleika. Sjálfur fann ég mig vel í leiknum og held að ég sé að fullu laus við meiðslin,“ sagði Sigurður. Pólska stórskyttan, Jerzy Klempel, var í ess- inu sínu hjá Göppingen er liðið lék gegn Kiel. Klempel skoraði ellefu mörk, en Kiel sigraði, 28 26. Þá unnu Kristján Arason og félagar hans hjá Hameln öruggan sigur á Verden í 2. deildinni, 28 18, eftir að staðan hafði verið 15 5 í hléi, Hameln í hag. Mörkin skiptust nokkuð jafnt á leikmenn Hameln en Kristján skoraði sex mörk. Dormagen er enn efst í deildinni. Liðið vann á útivelli um helgina og hefur tveggja stiga for- ystu þegar fímm leikjum er ólokið. -fros Frá Kristjáni Bernburg, fréttaritara DV í Belgíu: Allt stefnir nú í hreinan úrslitaleik And- erlecht og Club Brúgge í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu. Anderlecht tap- aði mjög óvænt um helgina fyrir Beersc- hot, 2-0, og hefði sigur liðsins auðveld- lega getað orðið stærri. Á meðan sigraði Brúggeliðið Lierse í köflóttum leik, 6 3, eftir að Lierse hafði haft 2-0 yfir í hálf- leik. Arnór Guðjohnsen lék ekki með aðal- liði Anderlecht, hann sat á bekknum. Hann átti hins vegar stjörnuleik með varaliði Anderlecht á föstudagskvöldið og skoraði tvö af sjö mörkum liðsins í 7-1 sigri á Beerschot. „Fallið blasir við“ Það er ekkert annáð en fallið sem blas- ir við,“ sagði Ragnar Margeirsson, daufur í dálkinn, eftir enn eitt tap Wat- erschei um helgina. Að þessu sinni var það Charleroi sem hafði betur af Wat- erschei og sigraði 2 0. Ragnar Margeirs- son var mjög nálægt því að skora í leiknum. Hann átti skalla í stöng. Anderlecht og Club Brug:ge eu nú jöfn að stigum fyrir lokaumferðina. Þá mætir Anderlecht Charleroi og Club Brúgge leikur við Beerschot. Markatalan er ekki látin ráða í Belgíu og verði tvö lið efst og jöfn að stigum þá þarf hreinan úrslita- leik til að skera úr um titilinn. -fros

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.