Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1986, Page 29
DV. MÁNUDAGÚR 14. APRlL 1986. 29 „Vegna fjárskorts er ekki hægt að gera miklar breyt- ingar á flugleiðum“ - margar þeirra eru orðnar íhugunarefni. Fáum aðeins 61 milljón króna til viðhalds á 90 flugvöllum/4 segir Pétur Einarsson flugmálastjóri „Það er alltaf hægt að deila á flug- leiðir sem liggja sumar hverjar yfir geysilegt flalllendi. Þá sérstaklega lengri flugleiðimar á milli landshluta. Það er því íhugunareíhi hvort á að nota litlar flugvélar ó lengri leiðum sem liggja yfir hin ýmsu veðrasvæði. Það hefur verið eldraun fyrir marga flugmenn, sem fljúga t.d. frá Reykja- vík til Egilsstaða, á flugvélum sem geta ekki farið upp í 10.000 feta hæð. Þeir fljúga vélunum í ókyrrð yfir óbyggðu hálendi og langt frá manna- byggðum. Það má ekkert fara úr- skeiðis því að þá er hætt við að illa fari,“ sagði Pétur Einarsson flug- mólastjóri þegar hann var spurður um flugleiðir yfir hálend svæði sem sum hver eru alþekkt veðravíti. Pétur sagði að það væri alþjóðleg regla að lágmarksflugleið væri á 1500 fetum yfir hæstu hindrunum. „Spum- ingin er hvort það er nægileg lág- marksflughæð. Það er yfirleitt svo að flugvélar, sem geta flogið í 10-12.000 feta hæð í blindflugi, em með jafh- þrýstibúnaði í farþegaklefa og geta flogið upp fyrir veður á lengstu flug- leiðunum f slæmu veðri. „Sumum flugleiðum er mögulegt að breyta en sumum ekki. Vegna fjár- skorts er ekki hægt að gera miklar breytingar á flugleiðum. Fjórveiting til okkar er sorglega lítil, eða aðeins 61 milljón. Þá upphæð þarf að nota til viðhalds á 90 flugvöllum víðs vegar um land. Þar af 32 áætlunarflugvöll- um. Til að gera miklar breytingar á flugleiðum þarf að fá ný aðflugstæki og leiðarflugstæki. Til þeirra fram- kvæmda höfum við ekki peninga," sagði Pétur. Er veðurfræðikennsla flug- manna nægileg? Nei, ég hef lengi verið þeirrar skoð- unar að bæta þurfi grunnkennslu flugmanna vemlega. Þá verklega kennslu. Við eigum aftur á móti vel þjálfaða atvinnuflugmenn. Fá flugmenn nægilega góðar veðurupplýsingar? Það hefur oft verið rætt um þetta atriði. Niðurstaðan er sú að flugmenn em yfirleitt mjög ánægðir með sam- skipti sín við veðurfræðinga. Þeir hafa sýnt mikla lipurð í samskiptum við flugmenn. Pétur sagði að hann hefði þó heyrt raddir sem vildu að veðurfræðingar gæfu út meira af aðvömnum um staði þar sem flugmenn gætu átt í erfiðleik- um vegna veðurs eða veðurbreytinga og vildu að veðurfræðingar gæfu reglulega út aðvaranir. „Það vakna alltaf margar spuming- ar eftir flugslys. Við erum alltaf að læra og að sjálfsögðu er það stefna okkar að búa sem best að flugmálum hér á landi þar sem allra veðra er von og margar flugleiðir erfiðar," sagði Pétur Einarsson flugmálastjóri. -sos Miklar umræður hafa orðið um öryggismál í flugi hér á landi í framhaldi af flugslysinu í Ljósufiöllum. DV-mynd GVA. „Flugleiðir alltaf með tvo flugmenn“ - í farþegaflugi á litlum flugvélum, segir Sæmundur Guðvinsson, blaðafulltrúi Flugleiða Pétur Einarsson flugmálastjóri sagði í viðtali við DV að æskilegt væri að tveir flugmenn væru um borð i flugvélum í blindflugi og þá sérstak- lega þegar um farþegaflug væri að ræða. Flugleiðir hafa oft leigt litlar flugvélar til óætlunarflugs þegar ekki hefur verið hægt að koma því við að fljúga stómm flugvélum í innanlands- flugi. „Þegar Flugleiðir leigja litlar flug- vélar er það algjört skilyrði að tveir flugmenn séu um borð í flugvélinni. Það er sama hvort um sjónflug eða blindflug er að ræða. Við viljum gæta fyllsta öryggis þegar flogið er með farþega," sagði Sæmundur Guðvins- son, blaðafulltrúi Flugleiða, þegar við spurðum hann hvort það væri regla hjá Flugleiðum að fljúga ekki nema tveir flugmenn væru um borð. Sæmundur sagði að oft hefði verið deilt ó Flugleiðir fyrir að fella niður flug á flugleiðum. „Það er oft eins og fólk geri sér ekki grein fyrir að við tökum aldrei áhættu þegar vitað er um ókyrrt veður eða ísingu í lofti. Það getur verið gott veður á þeim stöðum sem fljúga á til og frá þó ein- hvers staðar ó leiðinni sé ófært. Mér finnst að það eigi að vera harðari reglur um að loka eigi hinum ýmsu flugleiðum fyrir öllu flugi ef veðurút- lit er vafasamt. Einnig flugvöllum þannig að enginn freistist til að fara á loft þegar veðurútlit er ótryggt,“ sagði Sæmundur. -sos OPIÐ' VIRKADAGA9-18 LAUGARD. 9-12 HÁRGREIÐSLUSTOFA VITASTÍG18A SÍMI14760 Hringbraut 120- sími 28603. r am precision hjöruliðskrossar Þekking Reynsla Þjónusta FALKIN N SUPURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.