Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Blaðsíða 2
2
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
Stjórnmál
Stjórnmál
Stjórnmál
Stjórnmál
Sviftingar í meirihlutasamstarfi eftir kosningamar:
Miklar þreifingar
milli flokkanna
Sveitarstjómarkosningamar í
fyrradag breyttu víða styrk flokk-
anna og sums staðar er ljóst að
stokka þarf spilin upp. f 23 kaupstöð-
um, að Reykjavík meðtalinni, réðst
meirihluti í einungis sex í kosning-
unum sjálfum. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur yfirhöndina í höfuðborginni, á
Seltjamamesi og í Garðabæ og hann
endurheimti meirihluta í Ólafsfírði.
Alþýðuflokkurinn náði meirihluta í
Keflavík og Alþýðubandalagið hélt
sínu striki í Neskaupstað.
Kópavogur
Alþýðuflokkur og Alþýðubanda-
lag bættu við sig sínum manninum
hvor flokkur í Kópavogi og hafa nú
þrjá bæjarfulltrúa hvor. Þeir vom í
meirihluta ásamt Framsóknar-
flokknum sem tapaði manni og hefur
nú aðeins einn.
Sjálfstæðisflokkurinn missti mann
og hefur fjóra. í samræmi við yfirlýs-
ingar A-flokkanna fyrir kosningam-
ar má fastlega gera ráð fyrir
áframhaldandi samstarfi þeirra. Þeir
hafa saman meirihluta, sex af ellefu
sætum. Ekki er útilokað að Fram-
sókiiarflokkurinn sláist með í ferð-
ina áfram, þótt það sé fremur ólíklegt
að svo komnu máli.
Hverfandi líkur em á að Sjálfstæð-
isflokkurinn komi til með að taka
þátt í meirihlutamyndun í bænum,
bæði vegna tapsins nú og eins vegna
gróinnar úlfúðar á milli hans og
hinna flokkanna.
Hafnarfjörður
Alþýðuflokkurinn hlýtur að hafa
forystu um meirihlutamyndun í
Hafnarfirði eftir stórsigur sinn.
Hann hefúr nú fimm sæti af ellefú
og þarf aðeins eitt atkvæði til við-
bótar til þess að mynda meirihluta.
Þar koma til greina bæði Alþýðu-
bandalagið og Frjálst framboð, sem
hafa einn mann hvor listi. Slíkt sam-
starf yrði þó sjálfeagt strembið því
eins manns flokkurinn hefði ætíð
úrslitaatkvæðið. Þá kemur til greina
samstarf þessara þriggja flokka og
loks samstarf Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks, sem hefur fjóra menn.
Sjálfetæðisflokkurinn á raunar
ekki annan kost til þess að vera
áfram í meirihluta því fyrir kosning-
ar var því lýst skorinort yfir að
samvinna við Frjálst framboð eftir
kosningamar kæmi ekki til greina.
Og þá dugir Sjálfstæðisflokknum
ekki samstarf við Alþýðubandalagið.
Akureyri
Meirihlutinn, sem var á Akureyri,
er ekki lengur til á blaði. Þrír flokk-
ar, Framsóknarflokkurinn með þrjá
fulltrúa, Alþýðubandalagið með
einn og Kvennaframboðið með tvo
fúlltrúa voru í meirihluta. Kvenna-
firamboðið bauð ekki fram nú og
Framsóknarflokkurinn missti sæti.
Alþýðubandalagið vann að vísu sæti
en saman hafa þessir tveir flokkar
aðeins fjögur af ellefú sætum í bæj-
arstjóm nú.
Alþýðuflokkurinn, sem vann tvö
sæti og hefur nú þrjú, er í oddaað-
stöðu til samninga við annaðhvort
þessa tvo flokka eða Sjálfetæðis-
flokkinn, sem hefúr fjögur bæjar-
stjómarsæti. Þetta em tveir
líklegustu möguleikarnir á Akur-
eyri.
Suö-Vesturland
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks á Akranesi er úr sög-
unni. Alþýðuflokkurinn vann að
vísu sæti og hefur nú tvö en Sjálf-
stæðisflokkurinn tapaði tveim og
hefur einungis tvö eftir. Samanlagt
hafa flokkamir fjögur sæti af níu.
Framsóknarflokkurinn hefur
áfram þrjú sæti og Alþýðubandalag-
ið bætti við sig og hefur því tvö.
Saman hafa þessir flokkar tölulegan
meirihluta en alveg er óvíst hvaða
meirihlutasamstarf verður uppi á
teningnum á Skipaskaga.
Sjálfetæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur töpuðu báðir sæti í
Grindavík en gætu samt haldið
úfram meirihlutasamstarfi. Þeir hafa
tvö sæti hvor og samtals fjóra bæjar-
fulltrúa af sjö. A-flokkamir unnu
sitt sætið hvor.
Sjálfetæðisflokkurinn missti sæti
og þar með hreinan meirihluta í
Njarðvík. Alþýðuflokkurinn hreppti
sætið og hefur nú þijú, jafnmörg og
Sjálfstæðisflokkurmn. Framsóknar-
flokkurinn hefúr eitt sæti eins og
áður.
Miklar breytingar urðu í Ólafsvík
og eiga nú fimm listar sjö bæjarfull-
trúa, þar af Alþýðuflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur tvo hvor. Framsókn-
arflokkur, Alþýðubandalag og
Almennir borgarar eiga einn fúlltrúa
hver. Meirihluti Sjálfctæðisflokks og
Almennra borgara féll.
Vestfirðir
I Bolungarvík féll gamalt vígi
sjálfstæðismanna, sem fengu nú að-
eins þrjá fúlltrúa af sjö en höfðu
fjóra. Alþýðuflokkur vann sæti, Al-
þýðubandalagið einnig og hefúr nú
tvö. Óháðir misstu sæti og hafa eitt
en Framsóknarflokkur missti þau
tvö sæti sem hann hafði.
Þrír flokkar á ísafirði héldu sætum
sínum, Framsóknarflokkur einu, Al-
þýðubandalag einu og Sjálfetæðis-
flokkur fjórum. Alþýðuflokkur fékk
nú þrjú en hafði tvö. Óháðir borgar-
ar, sem höfðu sæti áðUr, buðu ekki
fram. Þannig halda andstöðuflokkar
Sjálfetæðisflokksins meirihluta í
bæjarstjóm vilji þeir endumýja sam-
starf sitt.
Norðurland
Á Sauðárkróki urðu þær einar
breytingar að Alþýðuflokkur vann
sæti og Framsóknarflokkur tapaði
sæti. Hann hefur þijú eftir, Sjálf-
stæðisflokkur þrjú og Alþýðubanda-
lag og Óháðir sitt sætið hvor.
Meirihluti Framsóknarflokks og Al-
þýðubandalags stendur ekki lengur
samkvæmt þessum úrshtum.
Á Siglufirði gæti meirihluti Al-
þýðuflokks, Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks staðið. Alþýðu-
flokkurinn hafði eitt sæti en hefur
nú þrjú, Alþýðubandalagið tvö sem
fyrr en Framsóknarflokkurinn tap-’
aði einu og hefur tvö. Sjálfstæðis-
flokkur tapaði einnig sæti og hefur
þijú
I Ólafefirði náði Sjálfstæðisflokk-
urinn fjórum bæjarfúlltrúum og
meirihluta sem Vinstri menn töpuðu.
Þeir hafa nú þijá fulltrúa.
Framsóknarflokkurinn á Dalvík
missti fjögurra manna meirihluta.
Hann hefúr nú aðeins tvo fúlltrúa.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk nú þijá,
bætti við sig tveim. Alþýðubanda-
lagið bætti við sig sæti og hefúr tvö
en Alþýðuflokkurinn missti sitt sæti
í bæjarstjóm.
Meirihluti Framsóknarflokks og
Sjálfetæðisflokks á Húsavík féll.
Framsóknarflokkurinn fékk tvo fúll-
trúa, hafði þrjá, og Sjálfetæðisflokk-
urinn fékk einn en hafði tvo.
Alþýðubandalagið og Óháðir unnu
sæti og hafa þrjú, Víkveijar unnu
sæti og Alþýðuflokkurinn hélt sín-
um tveimur.
Austurland
Á Seyðisfirði gætu Sjálfetæðis-
flokkur og Framsóknarflokkur
haldið áfram meirihlutasamstarfi
þrátt fyrir tap á sæti. Framsóknar-
flokkurinn hélt þrem sætum en
Sjálfctæðisflokkurinn tapaði einu og
hefúr aðeins eitt eftir. Alþýðuflokk-
urinn hélt tveim, Alþýðuhandalagið
einu og Alþýðubandalagið og Óháð-
ir unnu sæti.
Alþýðubandalagið í Neskaupstað
hélt fimm sæta meirihluta. Sjálf-
stæðisflokkur hélt tveim sætum en
Framsóknarflokkur tapaði sæti og
hefúr eitt eftir en Óháðir núðu sæti.
Á Eskifirði héldu Alþýðuflokkur
einu, Framsóknarflokkur tveim og
Alþýðubandalag einu sæti, en þeir
vom í meirihluta saman. Sjálfstæð-
isflokkur tapaði tveim og hefur eitt
ef'tir en Óháðir náðu tveim sætum
og fengu flest atkvæðin.
Suðurland
Meirihluti Sjálfetæðisflokksins í
Vestmannaeyjum féll. Flokkurinn
núði fjóruin sætum en hafði sex af
níu. Alþýðuflokkur og Alþýðu-
bandalag unnu sæti og hafa tvö hvor
flokkur. Framsóknarflokkur hélt
einu sæti.
Meirihlutaflokkamir á Selfossi
gætu haldið samstarfinu áfram.
Framsóknarflokkur hélt þrem full-
trúum en Sjálfetæðisflokkur missti
sæti og hefur nú einnig þrjú. Saman
hafa flokkarnir sex af níu sætum.
A-flokkamir héldu sinn hvom sæt-
inu en Kvennalistinn vann sæti.
HERB
Alþýðuflokksmenn í sigurvímu:
„Mesti kosninga-
sigur efdr stríð“
- segir formaður flokksins
Gífurlegt fjör var hjá alþýðufiokksmönnum í Hafnarfirði þegar Ijóst var að |>eir höfðu unnið stórsigur. Kunnu menn
sér engin læti eins og sjð má.
„Þessi sigur flokksins er sambæri-
legur við kosningamar 1978 og sá
mesti kosningasigur eftir stríð,“ sagði
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður
Alþýðuflokksins, við DV í gær er hann
var inntur álits á velgengni Alþýðu-
flokksins í kosningunum.
„Það sem er einnig ánægjulegt er
að veikleikar Alþýðuflokksins úti á
landi hafa verið þurrkaðir út. Hann
er nú næststærsti flokkurinn utan
Reykjavíkur.
Ef við lítum aftur til 1978 þá stað-
festu þingkosningar skömmu seinna
að flokkurinn jók fylgi sitt um 6 pró-
sent frá sveitarstjómarkosningum.
Miðað við að aðeins helmingur þeirra
sem gefa sig upp fyrir að vera jafnðar-
menn kusu flokkinn í Reykjavík
bendir allt til þess að þessi saga endur-
taki sig. Á grundvelli þessa tel ég að
flokkurinn eigi góða möguleika á að
ná yfir 20 prósent fylgi í næstu Al-
þingiskosningum," sagði Jón Baldvin.
Mest aukning hjá Alþýðu-
flokki
Samkvæmt tölvuspám jók Alþýðu-
flokkurinn mest fylgi sitt í sveitar-
stjómarkosningunum. Kjömum
fulltrúum flokksins á öllu landinu
fjölgaði um 18 og flokkurinn jók fylgi
sitt um tæp 5% frá síðustu sveitar-
stjómarkosningum. Hann náði m.a.
hreinum meirihluta í Keflavík og
fjölgaði fulltrúum þar úr tveimur í
fimm. Sama fjölgun fulltrúa varð einn-
ig í Hafharfirði.
Fulltrúum Alýðubandalagsins fjölg-
aði um 8 og fylgisaukning frá síðustu
kosningum var tæplega 2%. Flokkur-
inn fékk 24 þúsund atkvæði á landinu
öllu sem er aukning um 4 þúsund.
„Þetta þýðir að flokkurinn er næst-
stærsti flokkurinn miðað við atkvæði.
Ég tel að góð útkoma Alþýðubanda-
lagsins og Alþýðuflokks feli í sér
ákveðin fyrirheit sem eiga eftir að
skipta miklu máli í næstu kosningum.
Þetta er góð viðspyma fyrir vinstri-
menn og félagshyggjumenn. Hægri
bylgjan er gengin yfir og góðir mögu-
leikar að koma stjóminni og stjómar-
stefnunni burt í næstu kosningum,“
sagði Svavar Gestsson, formaðiu Al-
þýðubandalagsins, við DV.
Mikilll sigur fyrir borgarstjó-
rann og meirihlutann
Bæði Sjálfetæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur tapa fylgi á landsvísu.
Sjálfetæðisflokkur hélt fylgi sínu í
Reykjavík en tapaði 17 fúlltrúum á
öllu landinu. Fylgistapið er í heild um
2,5%. Ef aðeins er tekið fylgi utan
Reykjavíkur tapar flokkurinn rúm-
lega 4%.
Þorsteinn Púlsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, segir það vera út í
hött að spá í einhverjar heildarbreyt-
ingar út frá þessum niðurstöðum.
Annars vegar sé verið að tala um 7
kosna fulltrúa í smábyggðarlögum og
hins vegar 15 fulltrúa fyrir 80 þúsund
manna borg.
„Ég tel að Sjálfstæðisflokkurinn
megi vel við þessi úrslit una. Hann
van feikilega mikinn sigur í Reykja-
vík. Sambærilegur sigur hefur aðeins
átt sér stað tvisvar áður og það var
þegar vinstri ríkisstjómir sátu við
völd, sem þjóðin var að mótmæla,"
sagði Þorsteinn.
Hann benti á að mjög mikil sveifla
væri í niðurstöðum. Sums staðar tap-
aði flokkurin fylgi en annars staðar
yki hann fylgi sitt verulega. „Það er
mjög góð staða í landsmálunum núna
og þau eiga ekki að hafa sett mark
sitt á þessar niðurstöður. Ég tel því
að menn og málefni á einstöku stöðum
hafi ráðið mestu um úrslitin.“
Framsókn tapar fylgi
Framsóknarflokkurinn tapaði sam-
anlagt 15 fulltrúum frá síðustu kosn-
ingum og er fylgistap hans á landsvísu
tæp 3 prósent.
Kvennalistinn náði inn einum
manni á Selfossi og í Reykjavík, en
engum í Hafnarfirði. Flokkur manns-
ins hafði ekki árangur sem erfiði.
Hann bauð fram á 13 stöðum og fékk
engan mann kjörinn.
-APH