Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Síða 13
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNf 1986.
13
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Breyttar neysluvenjur
Bandaríkjamanna
Frá árinu 1982 hefur orðið vart
nokkuð mikillar breytingar á neyslu-
venjum Bandarikj amanna. Hvers
kyns hollustufæði verður sífellt vin-
sælla og spáir fólk orðið mun meira í
innihald þeirrar fæðu sem það leggur
sér til munns. Bandaríkjamenn gera
sér nú orðið grein fyrir því að salt- og
fituríkur matur, svo sem hamborgarar
og franskar, er óæskilegur og neyta
þess í stað orðið grófmetis og kalkríkr-
ar fæðu í ríkara mæli. Eftirspum eftir
koffinminna kaffi, sykurlausum gos-
drykkjum, ávöxtum og grænmeti eykst
að sama skapi.
Hingað til hefur kjúklingakjöt ekki
þótt fituríkt, samanborið við t.d. svína-
eða nautakjöt, en alifúglabændur þar
vestra hafa ekki látið sitt eftir liggja
og bjóða nú kjúklinga með 15-24%
minni fitu.
Náð hefur fótfestu á Bandaríkja-
markaði hin aldagamla framleiðsla
Japana, surimi. Surimi er firamleidd
úr ufsa og er mjög fitulítil en prótín-
rík afurð og laus við fiskbragðið sem
mörgum Bandaríkjamanni hefúr ekki
þótt sérstakt. Ufeinn, sem notaður er
við framleiðslu surimis, er roðflettur,
beinin tekin úr, hakkaður og loks
frystur í litlum bitum. Frá árinu 1979
hefúr innflutningur á surimi frá Japan
til Bandaríkjanna aukist úr 1.000
tonnum í 30.000 tonn. Surimi hefur
verið vinsæl í salöt og alls kyns pott-
rétti. -RóG.
Salöt og annaö hollustufœöi nýtur oröið gíturtegra vlnsœlda f Bandarfkjunum
sem og annars staöar.
I umferðinni
(í umsjá
Bindindisfélags
ökumanna)
Til hvers
að gefa
stefnuljós?
Hvemig er stefiiuljósanotkun þinni
í umferðinni háttað? Veistu að hægt
er að skipta ökumönnum í þrjá hópa
varðandi notkun stefnuljósa?
Fyrsti hópurinn eru þeir sem nota
aldrei eða sjaldan stefimljós. Hvers
vegna? Ég veit það ekki. Að minnsta
kosti getur varla verið um spamað að
ræða. Kannske er það of mikil fyrir-
höfri að teygja sig í stefnuljósarofann.
Ef svo er þá ráðlegg ég þeim sem em
svo latir að vera bara heima og liggja
í leti. Nóg er af mistökum í umferð-
inni fyrir.
Annar hópurinn em þeir sem gefa
stefnuljós um það leyti sem þeir em
að beygja eða eftir að þeir hafa beygt.
Þar kemur frásagnareðlið upp í land-
anum. Að segja fiá liðnum atburðum.
Stefiiuljós á ekki að nota til að segja
hvað verið sé að gera, verið var að
gera, heldur hvað ætlunin sé að gera.
Þriðji hópurinn em þeir sem vita
hvemir nota á stefnuljós og fara eftir
því. Þeir gefe stefiiuljós í tæka tíð og
gleyma ekki þessu mikilvæga merkja-
tæki. Þessi hópur ökumanna er
nokkuð stór og fer vonandi stækk-
andi. En betur má ef duga skal. Sýnum
samstöðu, bætum umferðina einnig á
þessu sviði og notum stefiiuljósin rétt.
Gefúm þau í tæka tíð og ætíð þegar
breytt er um akstursstefriu á akbraut-
um, þar sem um 2 eða fleiri leiðir er
að ræða. Þannig stuðlum við að bættu
öryggi í umferð og betri umferðar-
menningu. EG
ÍSLENSKT SEMENT
HÆFIR ÍSLENSKUM AÐSTÆÐUM
Alltfrá upphafi hefur Sementsverksmiðja ríkisins kappkostað að
íslenskt sement hæfi sem best íslenskum aðstæðum.
FRAMLEIÐSLA
SEMENTSVERKSMIÐJARÍKISINSframleiðir:
Portlandsement ívenjulega steinsteypu.
Hraðsement í steypu sem verður að harðna hratt.
Pozzolansement í steypu sem má harðna hægt en verður
að vera þétt og endingargóð. (Sérstaklega ætlað í stíflur,
brýr og hafnarmannvirki).
STYRKLEIKI
Portlandsementið er framleitt í samræmi við íslenskan
sementsstaðal IST 9.
Styrkleiki sements er aðaleiginleiki þess.
Styrkleiki íslensks Portlandsements:
Styrkleikikg/sm2eftir 3daga 7daga 28daga
Portlandsement 250 350 500
Lágmarkskrafa IST 9 175 250 350
GAGNLEGAR UPPLÝSINGAR FYRIR
HÚSBYGGJENDUR
• Það er ekki alltaf hægt að treysta því að steinsteypa sé
gallalaus. Látið því kunnáttumenn framleiða og með-
höndlasteypuna.
• (slenska sementið er blandað varnarefnum gegn aikalí-
hvörfum, sölt steypuefni eða salt steypuvatn geturónýtt
þessa vöm. Hvers konarönnuróhreinindi, svosem sýrur
og fínefni í steypuefnum, geta valdið skemmdum í
steinsteypunni.
• Sparið vatnið í steypuna. Hver Ktri vatns fram yfir það,
sem nauðsynlegt er, rýrir endingu hennar.
• Gerið steypuna þjála, þannig að hún þjappist vel í mótin.
Varist þó að auka þjálina með íblöndun vatns fram yfir
það sem steypuframleiðandinn gefur upp.
• Hlífið nýrri steypu við örri kólnun. Einangrið lárétta fleti
og sláið ekki frá mótum of snemma. Annars getur
steypan enst verr vegna sprungumyndana.
• Leitiðávalltráðgjafarhjásérfræðingum efþiðætliðað
byggjahúseðaönnurmannvirki úrsteinsteypu. Betri
ending bætirfljóttþann kostnað.
SEMENTSVERKSMIÐJA
RÍKISINS