Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Page 24
24
Iþróttir
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Robson
ekki með
gegn
Portú-
gal?
- á morgun
Óvist er hvort Bryan Robson,
fyrirliði Englendinga, getur leikið
með í fyrsta leik þeirra á móti
Portúgal á þriðjudag. Robson seg-
ist geta spilað allar 90 mínútumai
á móti Portúgölum ef það sé nauð-
synlegt en hann óttist að það geti
komið niður á leik hans seinna í
keppninni.
Robson segist vera bjartsýnn á
gengi Englendinga í keppninni því
undirbúningur þeirra hafi aldrei
verið betri en núna. „Evrópsku lið-
in eru betur undirbúin núna en
1970. Mikilvægi aðstæðnanna í
Mexíkó hefúr því minnkað og því
ættum við að hafa góða möguleika
á því að sigra. Við erum með jafn-
góða vöm og þá en nú emm við
með betri markaskorara,“ sagði
Robson. -SMJ
Bergomi
varð fyrstur
ítalinn Bcrgomi varð fyrstur
leikmanna á heimsmeistarakeppn-
inni til að verða sér úti um gult
spjald. Kortið fékk hann fyrir gróft
brot á einum búlgörsku leikmann-
anna í opnunarleiknum. ítalskir
léku mjög fast í þcssum leik og ef
að likum lætur eiga þeir bláu eftir
að fá fleiri spjöld í keppninni. -SK
36 dómarar
í Mexíkó
Dómarar þeir er dæma á HM í
Mexíkó hafa í nógu að snúast. Alls
eru þeir 36 sem dæma alla leiki
keppninnar. Mikið mun mæða á
þeim að venju og eitt er víst að
þeir verða að standa sig betur en
sá ástralski sem dæmdi leik Brasil-
íu og Spánar í gær. -SK
Tvær vafasamar
vítaspymur
ÍBÍ - Einherji 2-2
Frá Guðjóni Þorsteinssyni,
fréttaritara DV á ísafirði:
„Við erum ekki nógu samstilltir
ennþá. Margir leikmanna hafa
dvalist í Reykjavik og þvi erfiðlega
gengið að ná mannskapnum sam-
an á æfingar. Ég hef þó trú á þvi
að þetta eigi allt eftir að koma hjá
okkur,“ sagði ömólfur Oddsson,
ijálfari ÍBÍ, eftir að ÍBÍ hafði gert
2-2 jafntefli við Einheija í 2. deild
igær.
Fyrri hálfleikur var ágætlega
leikinn af hálfu heimamanna sem
sóttu þá mun meira. Fyrsta mark
leiksins skoraði Jón Oddsson á 30.
minútu eftir einleik frá miðju vall-
arins. Mínútu síðar var dæmt
vafasamt viti á ÍBÍ og Njáll Eiðsson
skoraði úr því. Á 37. minútu skor-
aði Baldur Kjartansson annað
mark Einherja með þrumuskoti.
BÍ jafnaði í seinni hálfleik úr ann-
ari vafasamri vitaspyrnu sem
Guðmundur Jóhannsson skoraði
úr. Leiknum lauk því með 2-2 jafn-
tefli sem verða að teljast sanngjörn
úrslit. -SMJ
Fvábær árangur hjá
landsliðínu í blaki
- varð í öðni sæti á alþjóðlegu móti í Belfast
íslenska karlalandsliðið í blaki náði
frábærum árangri um helgina þegar
það náði 2. sæti á sex landa keppni í
Belfast á N-írlandi. Árangur liðsins
var mjög óvæntur og kom trúlega
landsliðsmönnunum sjálfum mest á
óvart. Þeir þurftu að breyta flugfar-
seðlum sínum vegna þess að þeir
komust í úrsbtakeppnina. Þetta eru
fyrstu sigrar íslenska landsliðsms á
öðrum en Færeyingum síðan íslend-
ingar hófu að leika landsleiki í blaki
árið 1972.
Islendingar léku með Norður-Irum
og írum í riðlakeppninni. Þeir töpuðu
3-0 fyrir Norður-írum í fyrsta leiknum
enda var spilað á steingólfi. Síðan
unnu íslendingar frækinn sigur á
Irum. Leikurinn fór 3-1 fyrir ísland
og stóð hann yfir í 110 mínútur.
I undanúrslitum mættu Islendingar
Wales og sigruðu 3-1. Úrslit í einstök-
um hrinum urðu: 12-15, 15-9, 15-12
og 15-9. Þessi árangur fleytti Islend-
ingum í sjálfan úrslitaleikinn. Þar
mættu þeir Norður-írum aftur en þeir
unnu Skota nokkuð óvænt í hinum
undanúrslitaleiknum.
Úrslitaleikurinn var æsispennandi
og var leikið í tvo tíma og 40 mínút-
ur. íslendingar byrjuðu með látum og
unnu tvær fyrstu hrinumar, 15-9 og
15-11. Norður-Irar unnu næstu hrinu
15-5. Fjórða hrinan var síðan hreint
ótrúlega spennandi og stóð í 79 mínút-
ur. ísland komst í 14-9 en tapaði að
lokum hrinunni 16-14 eftir að írskir
línudómarar höfðu tvisvar dæmt bolta
úti sem var greinilega inni. Norður-
írar unnu síðan síðustu hrinuna 15-9
og þar með mótið.
Lokastaðan í mótinu varð þessi: 1.
Norður-írland. 2. ísland. 3. Skotland.
4. Wales. 5. Irland. 6. England.
-SMJ/KMU
Damr skemmta á HM
- Og sigra vonandi líka - segir Piontek þjálfari
„Danir eru komnir til Mexíkó til að
skemmta knattspymuáhugamönnum
og vonandi einnig til að sigra,“ sagði
Sepp Piontek, þjálfari danska lands-
liðsins, við fréttamenn í Mexíkó fyrir
keppnina.
Það fer ekki hjá því að knatt-
spyrnuáhugamenn gleðjist yfir þess-
um ummælum. Sérstaklega af þvi að
þau em að því er virðist í andstöðu við
ríkjandi viðhorf meðal knattspyrnu-
manna sem nú em staddir í Mexíkó.
Fræg em orð Pele, sem kallaði
knattspymuna „hinn fagra leik“ og
notaði orð eins og ballett, ástríður og
rómantík til að lýsa henni. Þessi orð
em ekki í hávegum höfð núna meðal
knattspyrnumanna. Nú er það árang-
urinn einn sem skiptir máli. Meira að
segja brasilíska liðið, sem skemmti
áhorfendum á Spáni með stórkostlegri
knattspymu, ætlar að þessu sinni að
láta árangurinn sitja í fyrirrúmi.
Menn eins og Tele Santana, Zico og
Socrates tala nú um að það verði að
spila af hörku og að brasilíska liðið
verði að leika breytta knattspymu ef
það eigi að hafa möguleika á því að
sigra.
Því em viðhorf Pionteks eins og vin
í eyðimörkinni. Hann segir að Danir
muni láta ánægjuna sitja í fyrirrúmi.
Þetta em lofsamlegt viðhorf, sérstak-
lega þegar tekið er tillit til þess að
Danir leika í erfiðasta riðli keppninn-
ar.
Piontek hefúr þó fullan hug á því
að sigra því það er ekkert sem hann
þráir heitara en að fara með titilinn
til Kaupmannahafnar. Hann segist þó
einnig verða ánægður ef liðs ha«s
verði minnst fyrir skemmtilega knatt>
spyrnu. „Ég vænti þess að leikmenn
mínir leggi allt sem þeir eigi í leikinn.
Auðvitað munu þeir ekki alltaf vinna,
ég get ekki krafist þess, aðeins að þeir
leggi sig alla fram. En hvemig sém
leikimir fara þá munum við allir setj-
ast niður eftir á og drekka nokkra
bjóra saman." Þess má geta að bjór-
drykkja dönsku leikmannanna vakti
mikla athygli á Evrópumeistara-
keppninni í Frakklandi en þá þótti
hún með óh'kindum.
Nú er bara að vona að Dönum gangi
vel í Mexíkó. Það væri sigur fyrir
knattspymuna. -SMJ
„Við vorum betri“
- sagði Bearzot, þjálfari Ítalíu, eftur sigurinn gegn Búlgörum
„Við vomm betri aðilinn í þessum
leik og áttum að sigra. Þetta eru slæm
úi'slit fyrir okkur og áður en við fömm
að hugsa um næsta leik okkar gegn
Argentínu verðum við að gleyma þess-
um,“ sagði Enzo Bearzot, þjálfari
heimsmeistara ítaliu, eftir að ítalir
höfðu aðeins náð jafntefli gegn Búlgar-
íu í opnunarleik heimsmeistarakeppn-
innar á Aztec leikvanginum í Mexíkó
á laugardag. Hvort lið skoraði eitt
mark.
Bearzot kom mjög á óvart fyrir leik-
inn er hann setti Paolo Rossi út úr
liði sínu og Rossi, sem skoraði sex
mörk í síðustu keppni þegar ftalía
varð meistari, var ekki einú sinni á
meðal varamanna. Eftir leikinn, þegar
Bearzot var spurður um ástæðuna,
sagði hann aðeins: „Hann er í 22ja
manna hópnum."
Leikur Ítalíu og Búlgaríu olli nokkr-
um vonbrigðum og greinilegt var á
leik beggja liða að taugamar voru
ekki í sem bestu lagi hjá leikmönnum.
Einnig var mikið um ljót brot hjá leik-
mönnum beggja liða og þá ekki síður
hjá Itölum.
Italir byrjuðu betur og sköpuðu sér
smávægileg færi en náðu ekki að
• Það var oft hart barist i leik Italíu og Búlgariu á laugardag. Hér sjást
leikmenn berjast um knöttinn og má vart á milli sjá hvor hefur betur.
skora fyrr en tveimur minútum fyrir
leikhlé og var Altobelli þar að verki,
fyrsta mark heimsmeistarakeppninnar
var staðreynd.
ítalir höfðu einnig yfirhöndina í síð-
ari hálfleik og smátt og smátt virtist
draga af leikmönnum Búlaríu. Þreyta
þeirra kom þó ekki í veg fyrir jöfnun-
armarkið sem Sirakov skoraði sex
minútum fyrir leikslok með glæsileg-
um skalla.
Liðin voru þannig skipuð í leiknum:
Ítalía: Galli, Bergomi, Cabrini, Vierc-
howod, Scirea, Gennaro, De Napoli,
Bagni, Conti (Vialli), Altobelli, Gald-
erisi. Búlgaría: Mikhailov, Sirakov,
Arabov, Markov, Dimitrov, Zdravkov,
Iskerenov (Kostadinov), Sadkov, Mla-
adenov, Gospsdinov (Yeliaskov).
• 112 þúsund áhorfendur sáu leik-
inn. Italinn Bergomi fékk fyrstur
manna gult spjald í nýhafinni heims-
meistarakeppni. Þess má geta að ekki
hafa verið skoruð fleiri mörk í opnun-
arleik HM síðan í Chile áríð 1962.
Leikinn á laugardag dæmdi Svíinn
Eriksson frá Svfyjóð. -SK
• Junior leikur nú á miójunni með bra
bakvarðar í síðustu heimsmeistarakeppr
ingu Spánverjans Francisco Lopez. Þrá
tókst þeim ekki að halda marki sínu hre
Brasilíi
voru h
er þeir signiði
Brasiliumenn sigruðu Spánveija, 1-0,
í fyrsta leiknum i D-riðb á HM í Mexíkó
i gær. Það sýndi sig í leiknum að greini-
legt er að Brasilíumenn kunna vel við
sig á Jalisco leikvanginum í Guadalaj-
ara. Þeir léku þar alia sína leiki nema
úrslitaleikinn í heimsmeistarakeppninni
1970 og unnu þá alla. Þeir hafa þvi ekki
enn tapað stigi þar. Þeir eru líka
óhemjuvinsælir meðal íbúa þar eins og
heyrðist greinilega á leiknum í gær.
Leiksins í gær verður sjálfsagt lengi
minnst fyrir það að Spánverjar skoruðu
fullkomlega löglegt mark sem var dæmt
af. Markið hefði fært þeim forystu í
leiknum og ómögulegt hefði verið að spá
um úrslit ef það hefði gerst. Atvikið
gerðist á 54. mínútu þegar Spánverjinn
Michel fékk knöttinn eftir homspymu
20 metra frá marki Brasilíu. Hann skaut
þrumuskoti sem hafnaði í þverslánni og
þaðan niður í markið. Dómarinn Bam-
bridge frá Ástralíu sá ekki að boltinn
fór inn og lét leikinn halda áfram. Línu-
vörðurinn heíði átt að gera athugasemd
en hann virðist heldur ekki hafa séð
atvikið. Það gerðu liins vegar sjón-
varpsáhorfendur sem sáu greinilega að
knötturinn fór inn fyrir marklínuna.
Þrátt fyrir áköf mótmæli Spánveija var
dómnum ekki hnikað.