Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Síða 29
DV. MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 1986.
37 »
Eigendur söluskálans í Viðigerði þegar hann var opnaður eftir gagngerar
endurbætur. DV-mynd /Egir
Rannsakar lækninga-
mátt Bláa lónsins
„Þessi rannsókn okkar er unnin í
samvinnu við húðlækningadeild
Landspítalans og hefur nú staðið í
tæpa þrjá mánuði,“ sagði Guðjón
Magnússon aðstoðarlandlæknir í
samtali við DV er blaðið spurði hann
um framhaldsrannsókn þá sem nú
er unnin á vegum embættisins á
lækningamætti Bláa lónsins.
Þessi rannsókn landlæknis kemur
í framhaldi af forkönnun sem gerð
var á lækningamætti Bláa lónsins
en í þeirri könnun voru 20 psoriasis-
sjúklingar, sem stundað höfðu Bláa
lónið, athugaðir. í ljós kom að um
helmingur þeirra litu betur út að
mati lækna eftir böðin í Bláa lóninu
og svokölluð „afhreistrun“ var mjög
góð hjá sjúklingunum eftir böðin.
„Er við hófum framhaldsrannsókn
okkar höfðum við samband við allar
heilsugæslustöðvar í landinu. Rann-
sóknin fer þannig fram að psoriasis-
sjúklingur fær umslag þar sem kveð-
ið er ú um hvort hann fer í venjulega
læknismeðferð eða hvort hann dvel-
ur þrjár vikur við Bláa lónið og
stundar þar böð. Þannig fáum við
tilviljanaúrtak og ætlunin er að fá
átta sjúklinga í hvom hópinn sem
samanburðarrannsókn verður svo
gerð á,“ sagði Guðjón.
Áætlað er að rannsókn þessari
ljúki um næstu áramót.
-FRI
k
JÖFUR HFH
NÝBÝLAVECI 2 • SÍMI 42600
í Hópinu, eins er unnið að því að setja
upp hestaleigu í samráði við bændur
í nágrenni Víðigerðis.
Ibúar Þorkelshólshrepps binda mikl-
ar vonir við þessa auknu þjónustu í
sveitarfélaginu og þá ekki síður með
tilliti til þess að félagsheimilið Víði-
hlíð er nánast við hliðina á Víðigerði
og gefur það mikla möguleika á sam-
starfi öllum til hægðarauka.
Ungmenni kæið
- fyrir fíkniefnamisferli
Nokkur ungmennanna nítján á
fsafirði, sem voru tekin til yfirheyrslu
um sl. helgi, grunuð um fíkniefiiamis-
ferli, hafa játað að hafa haft undir
höndum fíkniefiii. Þau verða kærð.
Eins og hefur komið fram leysti lög-
reglan á fsafirði upp hasspartí í húsi
einu og bað viðstadda að fylgja sér á
lögreglustöðina.
Þar dvöldúst ungmennin fram eftir
nóttu. Sex þeirra vom síðan eftir
vegna nánari yfirheyrslu. Málið er enn
í rannsókn á ísafiiði. -SOS
ísafjörður:
Verkmenntaskólanum
slitið í fyrsta sinn
Frá Þorgerði Malmquist, fréttaritara
DV í Neskaupstað:
Verkmenntaskóla Austurlands var
slitið í fyrsta sinn laugardaginn 17.
maí sl. en skólinn var stofhaður um
síðustu áramót. í ræðu Smára Geirs-
sonar skólameistara kom m.a. fram að
náðst hefði mjög víðtæk samstaða á
Austurlandi um skólann og hafa á
þriðja tug austfirskra sveitarfélaga til-
kynnt aðild að honum.
Nemendur í skólanum vom alls 260
talsins, þar af 150 á framhaldsskóla-
stigi. Að þessu sinni útskrifuðust alls
14 nemendur af sex námsbrautum, þ.e.
sex af iðnbraut húsasmíði, þrír af iðn-
braut vélvirkjunar, tveir af tveggja ára
viðskiptabraut og einn af hverri eftir-
talinna námsbrauta: iðnbraut hús-
gagnasmíði, iðnbraut bifvélavirkjunar
og iðnbraut netagerðar.
Gestir víðs vegar af Austurlandi
komu til skólaslitanna og fluttu eftir-
taldir ávarp: Þorvaldur Jóhannssoh
bæjarstjóri, Seyðisfirði, sem jafnframt
er formaður Verkmenntaskóla Aust-
urlands, Ásgeir Magnússon, bæjar-
stjóri í Neskaupstað, og Hjörleifur
Guttormsson alþingismaður sem tal-
aði fyrir hönd alþingismanna kjör-
dæmisins. Sveinbjörg Halldórsdóttir
lék á píanó og Hildur Þórðardóttir lék
á flautu við undirleik Ágústs Ármanns
Þorlákssonar en Sveinbjörg og Hildur
em báðar nemendur Verkmennta-
skóla Austurlands. Skólanum bámst
heillaskeyti frá Sverri Hermannssyni
menntamálaráðherra og Guðmundi
Magnússyni, fræðslustjóra Austur-
lands. Athöfriinni lauk síðan með
kaffiveislu í Hótel Egilsbúð.
■■iORBERU-
ÍHJÓLBARÐAR
■ SEM SKILA ÞÉR
Á LEIÐARENDA
\ X '
FIRESTONE RADIAL ATX Og
atx 23° hjólbarðarnir hafa ver-
ið margprófaðir við erfiðustu
hugsanlegar aðstæður og út-
koman er stórkostleg. Þeir eru
þrælsterkir og gripmikllr í tor-
færuakstri en samt pýðir og
hljóðlátir á maibikf.
Vestur-Húnavatnssýsla
Söluskáli í
nýjum búningi
Frá Júlíusi Guðna Antonssyni í V-
Hún.
Um sl. áramótseldi Halldór Jóhann-
esson Söluskálann Víðigerði og
Vélaverkstæðið Víði í Víðidal. Kaup-
endurnir voru bræðumir Valur Krist-
inn og Dagbjartur Már Jónssynir
ásamt eiginkonum sínum, þeim Jónu
Lóu Sigþórsdóttur og Jórunni Jó-
hannesdóttur. Þau hafa gert miklar
endurbætur á söluskálanum, útbúið
veitingasal og sett upp grill. Undir
þetta tóku þau hluta verkstæðisins en
em nú þegar að byggja við það. í til-
efni af opnun söluskálans í nýjum
búningi efndu þau til eins konar
vígsluhófs að kvöldi 10. maí þar sem
Víðdælingum var boðið ásamt fleirum
sem tengjast þessum rekstri. Var þetta
hóf mjög vel sótt og auðséð að svei-
tungamir kunnu vel að meta þessar
breytingar.
í Víðigerði er nú starfrækt margs
konar þjónusta fyrir utan veitinga-
reksturinn. Á vélaverkstæðinu er veitt
öll almenn viðgerðaþjónusta, einnig
er hægt að fá gistingu á efri hæð sölu-
skálans, bæði svefnpokapláss og gisti-
herbergi. Veiðileyfi verða til sölu í
sumar í nærliggjandi veiðistöðum, s.s.
{jd’-VAKTA
REIKNING
SAMVINNUBANKI ISLANDS HF.