Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1986, Qupperneq 48
68*78*58 Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Haíir þú ábendingu eða vitn- eskju um frétt - hringdu þá í sima 687858. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiðast 1.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 3.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við hréttaskotum allan sólarhringinn. MÁNUDAGUR 2. JÚNl 1986. Steingrímur Hermannsson: Erum á uppleið „Ég neita þvi ekki að þetta er tap miðað við síðustu kosningar en þá komum við mjög vel út. Það eru þó ýmsar bjartar hliðar á þessum úrslit- um. Ég bendi á Reykjavík þar sem allar skoðanakannanir höfðu spáð okkur nær engu fylgi. Reyndar miðað við skoðanakannanir þá erum við á uppleið," sagði Steingrímur Her- mannsson, formaður Framsóknar- flokksins. „Ég er ekki mjög óhress með þessi úrslit. Við komum viða vel út en ann- ars staðar verr. Það var t.d. mjög slæmt að missa mann i Kópavogi og Hafnarfirði.“ -APH - sjá einnig viðtöl við forystumenn flokkanna á bls. 2 Kristín Halldórsdóttir: Áhrif kvenna- * framboð- anna mikil „Það er ekki rétt að bera þessi úr- slit saman við úrslit síðustu kosninga. Kvennalistinn bauð fram á mismun- andi stöðum og einnig voru kvenna- listakonur aðilar að öðrum framboð- um svo sem á Höfn og i Bessastaða- hreppi," sagði Kristin Halldórsdóttir, Kvennalista. „Það sem mér er efst í huga er hversu mikil áhrif sérframboð kvenna hafa haft á gömlu flokkana, bæði hvað snertir áherslur á mál og einnig hversu mikið konum hefur nú verið teflt frám. Við teljum því að við höfum náð mikl- ^ um árangri því eitt af meginmarkmið- um okkar er að koma á hugarfars- breytingu. Hlutur kvenna er þó ekki enn nægifega mikill og þess vegna verðum við að halda áfram barát- tunni.“ Sjá einnig bls. 2 LOKI Sigtryggur vann! Tvær A-stjórnir og ein viöreisnarstjom Meirihluti í 13 af 23 kaupstöðum landsins féll í kosningunum á laug- ardaginn. Jafhframt er óvíst um meirihluta í 4 öðrum en hreinn meirihluti vannst í aðeins 6 kaup- stöðum, þar með borginni. í Kópa- vogi er nýr meirihluti A-flokkanna líklegastur, eins er í Hafnarfirði. Á Akureyri búast menn hins vegar helst við viðreisnarstjórn Sjálfstæð- isflokks og Alþýðuflokks. A-flokkamir í Kópavogi unnu eitt sæti hvor og hafa nú þrjú sæti hvor flokkur. Þessir flokkar vom í meiri- hluta' með Framsóknarflokknum sem tapaði sæti og hefur aðeins eitt. A-flokkunum nægja þessi sex sæti í ellefú manna bæjarstjóm. Gamlar og nýjar væringar vinstri flokkanna og Sjálfstæðisflokksins draga mjög úr líkum á samstarfi hans og annars hvors A-flokkanna. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur þó óskað eftir viðræðum við Alþýðuflokkinn. Þriðji maður á lista Alþýðuflokksins þvertók fyrir slíkt stunstaif x út- varpsumræðum. Alþýðuflokkurinn vann þrjú sæti í Hafharfirði og hefur fimm, en Óháðir borgarar, gamall klofiiings- listi frá Alþýðuflokknum, þurrkaðist út. Harrn hafði tvö sæti. Samkvæmt traustum heimildum DV em þegar á döfinni viðræður Alþýðuflokks og Alþýðubandalags sem getur lagt til sjötta mann í ellefu manna bæjar- stjóm. Eirmig kemur til greina samstarf þessara flokka og Frjáls framboðs með einn mann, svo og samstarf Alþýðuflokks og Sjálfstæð- isflokks. Fleiri möguleikar em ekki fyrir hendi ef marka má yfirlýsingar M því fyrir kosningar. Á Akureyii hefur þegar verið ákveðinn fyrsti viðræðufundur Sjálfstæðisflokks með fjóra fulltrúa og Alþýðuflokks með þrjá, þar af tvo nýja. Þessir flokkar vom í minni- hluta síðasta kjörtímabil. Heimildir DV segja að þetta samstarf sé mjög líklegt á Akureyri. Aðrar þi-eifingar em ekki á dagskrá þar í bili að minnsta kosti. -HERB Geysileg sigurgleði ríkti að vonum á kosningaskrifstofu Alþýðuflokksmanna kosninganóttina þegar stórsigur flokksins lá fyrir. „Við eigum landið og miðin,“ varð einum að orði. Alþýðuflokkurinn er nú næststærsti flokkurinn á Akureyri með þrjá menn og hefur það aldrei gerst áður. Dv-mynd jgh Veðrið á morgun: Bjart austan- lands Á morgun leikur vestan- og norð- vestanátt um landið. Smáskúrum er spáð vestanlands en bjart verður fyrir austan. Hiti verður á bilinu 6-8 stig sunn- an- og vestanlands en fer upp í 13 stig á Austurlandi. Afengið vann i á tveim- f ur stöðum | Greinilegt er að áhugi er fyrir að* , opna áfengisútsölur í Kópavogi og í ■ Ólafsvík. Kosið var um þetta efni sam- fara kosningunum á laugardaginn. í Kópavogi vildu rúmlega 4700 é áfengisútsölu í bænum, tæplega 2700 i vom því hins vegar mótfallnir. Rúm- r lega 1200 skiluðu ógildum eða auðum seðlum. g Ólsarar höfðu svipaða skoðun á málinu. Þar vildu 389 áfengisverslun en 188 vom andsnúnir. Ögildir og a auðir seðlar vom 26. -APH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.