Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1986, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986.
Viðskipti
Útvegsbankaskýrslan:
llla stödd fýrirtæki á
framfæri ríkisbankanna
- Jón Þorsteinsson skýrsluhófundur vill ekki nefha þessi fyrirtæki
I Otvegsbanka/Hafskips-skýrsl-
unni, sem birt var nú í vikunni, segir
á einum stað: „í framhaldi af þessu
skal vakin athygli á að það tíðkast
nokkuð hjá ríkisbonkunum að fleyta
á&am stórum, illa stæðum atvinnu-
fyrirtækjum, sem hafa fjölda manns
í vinnu og njóta stuðnings margra
hagsmunaaðila, sem eiga mikið und-
ir því að reksturinn haldi áfram...“
Hér er um alvarlega fullyrðingu
að ræða og Jón Þorsteinsson lög-
maður, sem er einn af nefhdarmönn-
um sem sömdu skýrsluna, var
spurður um hvaða fýrirUeki væri hér
átt við.
„Við nefnum ekki þessi fyrirtæki,
enda tel ég okkur ekki skylt að
standa í einhverjum frekari útskýr-
ingum né að svara gagnrýni á okkar
skýrslu. Hitt er annað mál að við
hefðum ekki tekið þetta fram í
skýrslunni ef þetta væri ekki rétt
og við stöndum að sjálfsögðu við
þessa fúllyrðingu," sagði Jón.
Samkvæmt heimildum DV vildi
Jón Þorsteinsson vera enn harðorð-
ari í skýrslunni en raun varð á.
Aðspurður sagðist hann ánægður
með skýrsluna. „Hitt er annað mál
að það komu stundum upp nokkrar
umræður um orðalag skýrslunnar
innan nefndarinnar en ég hef skrifað
undir hana og er ánægður," sagði
Jón Þorsteinsson.
Þórður Ólafsson, forstöðumaður
bankaeftirlitsins, var spurður hvort
hann kannaðist við þessi illa stöddu
stórfyrirtæki á framfæri ríkisbank-
anna en hann neitaði með öllu að
ræða það mál.
-S.dór.
Útvegsbankamálið:
,jTek á mig
mína ábyrgð“
- segir Jónas RafnarT fýrrum bankastjóri
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%» hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 8-9 Bb.Lb.Sp
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 9-10 Ab.lb.Sb.
6 mán. uppsögn 10-15 Sp.Vb Ib
12 mán. uppsögn 11-15.75 Sp
Sparnaður- Lánsréttur
Sparað í 3-5 mán. 9-13 Ab
Sp. i 6 mán. og m. 9-13 Ab
Ávísanareikningar 3-7 Ab.Sb
Hlaupareikningar 3-7 Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 12 Bh.Úb.Vb
6 mán. uppsögn 2.5-4 Úb
Innlán með sérkjörum 8.5-17
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 5-7 Ab
Sterlingspund 8.75-10.5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab
Danskar krónur 7.5-9 Ib.Vb
ÚTLÁNSVEXTIR % lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 15.25 16.25 Ab.Úb.Vb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge/19.5
Almenn skuldabrcf (2) 15.5-17 Ab.Vb
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikning.(yfirdr.) 15.25-18 Ab.Sp.Vb
Lltlán verðtryggð Skuldabréf
Að 2.5 árum 4-6.75 Ab
Til lengritima 5-6,75 Ab
Útlán til framleiðslu
ísl. krónur 15-16.25 Ab.Lb.
SDR 8 Sp.Úb.Vb Allir
Bandaríkjadalir 7.5 Allir
Sterlingspund 12.75 Allir
Vestur-þýsk mörk 6.25 Allir
Húsnæöislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5
Oráttarvextir 27
VÍSITÚLUR
Lánskjaravisitala 1517 stig
Byggingavísitala 281 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1. okt.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnur m.v. 100 nafnverðs:
Almennartryggingar 111 kr.
Eimskip 216 kr.
Flugleiðir 152 kr.
Hampiðjan 131 kr.
Iðnaðarbankinn 98 kr.
Verslunarbankinn 97 kr.
„Ég ætla ekki að þvo hendur mínar
af þessu ináli því auðvitað er það
stjóm bankans sem ber ábyrgð þegar
allt kemur til alls. Hitt er svo annað
mál að ég er fjarri því að vera ásáttur
með allt það sem kemur fram í þessari
skýrslu," sagði Jónas Rafhar, fyrrum
bankastjóri Útvegsbankans, í samtali
við ÐV .
Jónas sagðist ekki hafa skoðað
skýrsluna til hlítar og því ekki tilbú-
inn til að fara ofan í einstök atriði.
Auk þess sagðist hann ekki ætla að
reka sitt mál hvað þetta varðar í fjöl-
miðlum.
„Ef við bankastjóramir verðum
dregnir til ábyrgðar, þá mun ég verja
mitt mál á réttum vettvangi," sagði
Jónas. Hann var spurður um það sem
gengur í gegnum alla skýrsluna og er
höfuðásökunin á hendur bankastjór-
unum að þeir hafi ekki fylgst með
ástandinu hjá Hafskip?
„Auðvitað fylgdumst við með, en það
er ef til vill matsatriði hve grannt á
að fylgjast með hverjum viðskiptavini
bankanna hverju sinni, en eins og ég
sagði áðan vil ég sem minnst tjá mig
um málið í fjölmiðlum og ekki síst
vegna þess að ég hef ekki kynnt mér
efni skýrslunnar nægjanlega vel,“
sagði Jónas Rafhar.
-S.dór
Nokkrir meðlimir stjórnar Hlutabréfasjóðsins hf., frá vinstri dr. Sigurður B. Stefánsson framkvæmdastjóri, Baldur
Guðlaugsson, hæstaréttariögmaður og stjórnarformaður Hiutabréfasjóðsins hf., Þorsteinn Haraldsson, endurskoö-
andi og framkvæmdastjóri Hlutabréfasjóðsins hf., og dr. Pétur H. Blöndal framkvæmdastjóri.
Hlutabréfasjóðurinn hf.
nýtt fjárfestingarfélag
Fjáríestingarfélagið Hlutabréfa-
sjóðurinn hf., hið fyrsta sinnar tegund-
ar hér á landi, hefur verið stofnað í
Reykjavík. Mun félagið fjárfesta í
hlutabréfum og skuldabréfum þeirra
fyrirtækja sem líklegust þykja til að
skila góðri ávöxtun á hverjum tíma.
Verður félagið opið bæði einstakl-
ingum og lögaðilum. Hlutabréfakaup
einstaklinga verða íirádráttarbær frá
skatti næsta ár upp að vissu marki,
ef keypt er fyrir áramót.
í fréttatilkynningu frá fjárfestingar-
félaginu segir að tilgangurinn með
stofnun þess sé að veita einstaklingum
tækifæri til góðrar ávöxtunar í hluta-
bréfum, að veita auknu fjármagni inn
í arðbær atvinnufyrirtæki og að örva
hlutabréfaviðskipti hér á landi.
í ár verður að minnsta kosti 30 pró-
sent af ráðstöfúnaríé Hlutabréfasjóðs-
ins hf. notað til kaupa á hlutabréfum
en þetta lágmarkshlutfall hækkar síð-
an um 5 prósent á ári þar til það nær
45 prósentum af heildaríjármagni.
Annað ráðstöfunarfé verður notað til
fjárfestingar í skuldabréfum atvinnu-
fyrirtækja.
Hlutabréfin eru seld í einingum að
nafnverði kr. 10 000, kr.50 000 og kr.
100.000. Verða þau seld á nafnverði
fyrstu dagana, en frá og með þriðju-
deginum 18. nóvember og fram til
áramóta hækkar gengi þeirra daglega
miðað við 15 prósent ársvexti.
Framkvæmdastjóri Hlutabréfasjóðs-
ins hf. er Þorsteinn Haraldsson,
löggiltur endurskoðandi. .
IBS
Dalvík:
Fiskmarkaður
í uppsiglingu
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbankinn reiknar þó vexti
af viðskiptavíxlum miðað við 19,5% árs-
vexti. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til
uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á verð-
tryggð og óverðtryggð lán, nema í
Alþýðubanka og Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankii i, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
imir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðjnn birtast í DV á fimmtudög-
um.
„Það er rétt að við erum að skoða
það í fúllri alvöru að koma upp fisk-
markaði fyrir Norðurland á Dalvík.
Nú þegar er Dalvík orðin miðstöð fyr-
ir gámaútflutning frá Norðurlandi,
þ.e. að þangað er safnað í gáma fiski
sem svo er fluttur út. Þess vegna telj-
um við að hér sé heppilegur staður
fyrir fiskmarkað sem auðvitað kemur
á Norðurlandi eins og annars staðar.
Bæjaryfirvöld hafa ákveðið að gera
allt sem í þeirra valdi stendur til að
koma þessu í kring,“ sagði Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Dalvík, í
samtali við DV.
Mikill áhugi virðist vera víða á fisk-
markaði og er búist við að þeir verði
5-6 á öllu landinu eftir einhvem tíma.
Kristján sagði að höfhin á Dalvík
væri ágæt en aftur á móti væri ekkert
hús til fyrir fiskmarkað og landrými
við höfnina ekki til staðar. Fara þyrfti
nokkuð frá henni ef reisa ætti mark-
aðshús en það væri í sjálfu sér ekkert
stórmál. Það væri aftur á móti lega
Dalvíkur sem hefði mest að segja í
þessu máli.
Þess má og geta að færeysk/íslenska
skipið Austfar er nú með reglubundn-
ar ferðir til og frá Dalvík sem aftur
hefur orðið til þess að bæði Ríkisskip
og Eimskip hafa fjölgað ferðum sinna
skipa til Dalvíkur. Þetta hefur valdið
því öðm ffernur að Dalvík er orðin
miðstöð gámaútflutnings frá Norður-
landi. -S.dór
Hveitimylla að rísa við Sundahofn:
Bakarar undrandi
„Þetta var rætt á félagsfundi hjá
okkur síðastliðinn laugardag og
menn vom undrandi á því að
ákveðið skyldi hafa verið að reisa
mylluna án þess að samráð væri
haft við okkur,“ sagði Jóhannes
Bjömsson bakarameistari í sam-
tali við DV.
Það er Fóðurblandan hf. sem er
að reisa hveitimyllu við Sunda-
höfn, í samvinnu við danska fyrir-
tækið Valsemollen sem á
helminginn í fyrirtækinu. Iðnlána-
sjóður og Iðnþróunarsjóður veittu
ábyrgð fyrir láni hjá Norðurlanda-
bankanum vegna byggingar
myllunnar en kostnaðaráætlun
vegna hennar er um það bil 80
milljónir.
Að sögn Hjörleifs Jónssonar, for-
stjóra Fóðurblöndunnar, á myllan
að geta annað landinu öllu og
verður hún prufukeyrð í maí. „Við
erum búnir að margreikna þetta.
Forsenda þess að myllan geti geng-
ið er að bakarar verði í viðskiptum
hjá okkur og verður bakarahveitið
blandað eins og bakarar óska og
verður haft samráð við þá síðar
um vinnsluna á bakarahveitinu.
Við verðum að minnsta kosti að
reyna að ná sextíu prósentum af
innanlandsmarkaðnum til að þetta
gangi,“. sagði Hjörleifúr.
Það kom fram hjá Jóhannesi að
bakarar hefðu mjög slæma reynslu
af dönsku hveiti og þá sérstaklega
frá Valsemollen.
Hjörleifur sagði að gæðin ættu
að verða sambærileg og sagðist
hann ekki geta ímyndað sér annað
en fólk vildi frekar kaupa nýmalað
hveiti en innflutt.
-SJ