Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1986, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1986, Síða 28
40 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1986. Friðfinnur Kjærnested lést 7. nóv- ember sl. Hann fæddist á Stað í Aðalvík í Sléttuhreppi vestra 14. október 1894, sonur hjónanna Elías- ar Kristjáns Friðfmnssonar og Jóhönnu Jónsdóttur. Friðfinnur fór í fóstur til hjónanna Guðbrands Ein- arssonar og Kristínar Sveinsdóttur. Hann tók farmannapróf frá Stýri- mannaskólanum og sigldi um árabil sem stýrimaður. Seinna starfaði hann hjá Vita- og hafnamálastofnun, fyrst sem' stýrimaður og síðar sem skipstjóri á dýpkunarskipinu Gretti. Hann hætti skipstjórn fyrir aldurs sakir en starfaði í birgðastöð sama fyrirtækis til 86 ára aldurs. Hann var giftur Annie Tall en hún lést árið 1984. Þeim hjónum varð fjögurra barna auðið. Friðfinnur eignaðist einn son fyrir hjónaband. Utför Frið- finns verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Indriði Sigurðsson lést 6. nóvember sl. Hann fæddist að Hofdölum í Við- víkursveit 7. maí 1921, sonur hjón- anna Önnu Einarsdóttur og Sigurðar Stefánssonar. Indriði lauk námi frá Sjómannaskólanum í Reykjavík og stundaði ætíð eftir það störf tengd sjómennsku. Eftirlifandi eiginkona hans er Ingibjörg Erla Hafstað. Þau hjónin eignuðust fimm börn og eru fjögur þeirra á lífi. Útför Indriða verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. hársnyrtivörur frá L’ORÉALr- Hárgreiðslustofa Helgu Harðar, Suðurg. 33, Keflav. Sigurður Sigurgeirsson bankafull- trúi lést 8. nóvember sl. Hann fæddist á Isafirði 6. júlí 1920, sonur hjónanna Guðrúnar Pétursdóttur og Sigur- geirs Sigurðssonar. Sigurður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1941. Stundaði síðan verslunarrekstur um skeið. í Útvegs- banka Islands í Reykjavík hóf hann störf 1. mars 1946 en varð forstöðu- maður sparisjóðsdeildar bankans 1. júlí 1963 og hefir jafnframt haft með höndum ráðgjafarstörf hin síðari ár. Eftirlifandi eiginkona hans er Pálína Guðmundsdóttir. Þeim hjónum varð sex barna auðið. Útför Sigurðar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 15. Emma Jónsdóttir, Aðalgötu 3, 01- afsfirði, lést á elli- og hjúkrunar- heimilinu Hornbrekku aðfaranótt 12. nóvember. Vilborg Auðunsdóttir, Eyvind- armúla, andaðist í Vífilsstaðaspítala 6. nóvember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Jón Jóhannsson, Mímisvegi 2, lést í Landakotsspítala miðvikudaginn 12. nóvember. Örnólfur Nikulásson verslunar- maður, Holtsgötu 19, andaðist í Borgarspítalanum 13. nóvember. Tilkyimingar Foreldrar barna í Steinahlíð Koreldrar á foreldrafundi í Steinahlíð 11. nóv. 1986 mótmæla 10% hækkun á dag- vistargjöldum sem borgarráð hefur nýlega samþykkt. Við styðjum fóstrur í sinni launabaráttu og teljum sinnuleysi borgar- yfirvalda gagnvart kröfum þeirra stefna starfsemi dagvistarheimilanna í mikinn voða. Við borgum gjarnan 10% hærra dagvist- argjald ef það yrði til þess að hækka laun starfsfólksins. Við viljum að börnin okkar fái góða þjónustu og búi við þroskandi uppeldisleg- ar aðstæður. En með stefnu borgaryfir- valda er hætt við að dagvistarheimilin verði geymsla þar sem fátt fagmenntað starfsfólk fæst til að vinna. Við hvetjum aðra foreldra til að láta í sér heyra. Fræðslufundur öllum opinn Blóðgjafafélag Islands heldur fræðslufund mánudaginn 17. nóv, nk. kl. 21 í Nóatúni 21, Reykjavík. Þar verða flutt tvö stutt erindi. Hið fyrra flytur Ólafur Jensson yfirlæknir og nefnist það Tegundir dreyra- sýki hérlendis og síðan mun Alfreð Árnason erfðafræðingur skýra frá nýleg- um rannsóknum hérlendis á ónæmiserfða- fræði giktar. Blóðgjafafélag Islands var stofnað í júlí 1981 og er tilgangur félagsins að fræða blóðgjafa, almenning og stjórnvöld um mikilvægi blóðs til lækninga, um blóðsöfn- un og blóðbankastarfsemi, rannsóknir á blóðefnum og erfðaþáttum blóðsins og að styrkja rannsóknir í þágu blóðgjafa og sjúklinga, sérstaklega á sviði blóðónæmis- fræði og ónæmiserfðafræði. Til að ná þessum tilgangi sínum hefur félagið m.a. haldið fræðslufundi og er þessi hinn 16. í röðinni. Formaður Blóðgjafafélags íslands frá stofnun þess hefur verið Ólafur Jens- son, yfirlæknir Blóðbankans. Námskeið í skyndihjálp Reykjavíkurdeild RKI beitir sér nú sem oft áður fyrir því að halda námskeið í skyndihjálp. Næsta námskeið í almennri skyndihjálp hefst þriðjudaginn 18. nóv. kl. 20.00 og stendur yfir í 5 kvöld. Námskeiðsgjald er krónur 1000. Á námskeiðinu verður kennd endurlífg- un, fyrsta hjálp við bruna, kali, og eitrun- um af völdum eiturefna og eitraðra plantna. Einnig verður kennd meðferð helstu beinbrota og stöðvun blæðinga og fjallað um ýmsar ráðstafanir til varnar slysum í heimahúsum. Auk þess verður Nauðungaruppboð Aö kröfu tollgæslunnar í Keflavík og Steingríms Þormóðssonar hdl. verða eftirtaldir lausafjármunir seldir á nauðungaruppboði föstudaginn 21. nóvemb- er næstkomandi: Kl. 14.00 á athafnasvaeði skipaafgreiðslu Suðurnesja, Keflavík. Ca 109 m3 af timbri, 1x6, 1x4, 2x4 o.fl. Kl. 15.30 við malarnámu í Vatnsskarði við Krísuvíkurveg, Gullbringusýslu. Jarðýta, tegund D9G Cater- pillar. Greiðslur fari fram við hamarshögg. Úppboðsskilmálar liggja frammi á skrifstofu. Bæjarfógetinn í Keflavík. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu. I gærkvöldi Sunna Kartsdóttir, deildarstjóri fjárreiða búvörudeildar SÍS: Stöð 2 býður upp á úrvalskvikmyndir Ég horföi ekki á fegurðarsam- keppnina í gær og horfi yfirleitt ekki mikið á sjónvarp. En aftur á móti á þriðjudagskvöldið og yfir leitt öll þriðjudagkvöld reyni ég að horfa á sjónvarp, því þá er boðið upp á góða sakamálaþætti svo og voru þættimir með Peter Ustinov í Rússlandi mjög góðir. Ég reyni einnig að horfa á góðar bíómyndir, ætli endi ekki með því að maður fái sér afruglara því ég hef séð að Stöð 2 býður upp á úrvalskvikmyndir. Ég horfi oftast á fréttimar í sjónvarpinu en hef horft á þær á Stöð 2 einnig. Þeir em báð- ir með nákvæmlega sömu frétta- myndimar það finnst mér synd því ég hélt að þeir yrðu með sitthvað fréttaefni eða myndu allavega ekki vera með sama sjónarhom á fréttun- um. Sjónvarpsfréttimar finnst mér hafa slaknað að því leytinu til að Sunna Karlsdóttir. þeir sýna meira af fréttamönnunum í stað þess að vera úti í bæ að sýna myndir að fréttaefninu. Einstaka sinnum hef ég horft á létta fram- haldsþætti en reyni að byrja ekki á þeim því það þýðir að maður horfir á alla sem þar koma á eftir. Stjóm- málaumræðum og fræðsluþáttum reyni ég að missa alls ekki af og mig langar að koma þvi að að fundimir sem þeir hafa haldið í Háskólabíói fyrir kosningar bæði þá alþingis- kosningar og borgarstjórnarkosn- ingar hafa mér þótt góðir. Útvarp hlusta ég heldur lítið á, en þá helst Bylgjuna á morgnana og get þvi lítið sagt um það. Það er helst einn þáttur sem ég læt ekki fram hjá mér fara, Jiað er þáttur Friðriks Pálssonar, Út og suður sá þáttur getur verið mjög góður. íjallað um margt fleira sem kemur að not- um þegar menn og dýr lenda í slysum. Sýndar verða myndir um hjálp við helstu slysum. Þessu námskeiði lýkur með verk- efni sem hægt er að fá metið í ýmsum skólum. Einnig ætlar Reykjavíkurdeildin að halda upprifjunarnámskeið í skynihjálp fyrir þá sem hafa tekið þátt í námskeiði í almennri skyndihjálp einhvern tíma á síð- ustu 4 árum. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 19. nóv. Þess má geta að æskilegt er talið að menn taki allt námskeiðið á 3ja ára fresti. En nú er ætlunin að gefa þeim kost á upprifjun sem hafa tekið þátt í námskeið- um einhvern tíma á síðustu fjórum árum. Þessi tími verður síðar styttur í 2 ár. Þátt- tökugjald í þessu námskeiði er kr. 300. Námskeiðin verða haldin í kennslusal RKÍ að Nóatúni 21. Leiðbeinandi verður Guðlaugur Leósson. Þeir sem vilja taka þátt í námskeiðunum geta látið skrá sig hjá deildinni í síma 26722. Taflfélag Reykjavíkur vill vekja athygli nemenda skólans á sér- stökum skákæfingum fyrir 14 ára og yngri (bæði drengi og stúlkur) sem fara fram að Grensásvegi 46 einu sinni í viku á laug- ardögum kl. 14 18. Á þessum skákæfingum er einkum um að ræða eftirfarandi: 1) Skákkennsla fyrir byijendur og skókskýringar. Skákir eru skýrðar, einkum með tilliti til byrjana. Skipt er í flokka eftir getu. 2) Fyrir stúlkur. Stúlkur eiga kost á sér- leiðsögn. 3) Æfingaskákmót. Teflt er í tveim eða fleiri flokkum eftir fiölda og getu. 4) Fjöltefli. Þekktir skákmeistarar koma í heimsókn og tefla fjöltefli, að meðaltali einu sinni í mánuði. 5) Endataflsæfingar. Nemendum gefst kostur á að gangast undir sérstök próf í endatöflum. Fjölrituð verkefni eru aíhent í félagsheimilinu. Þátttaka í laugardagsæfingum er ókeypis. Þeir sem gerast félagar í Taflfé- lagi Reykjavíkur geta tekið þátt í öðrum skákæfingum og skákmótum á vegum fé- lagsins fyrir lægra gjald en ófélagsbundn- ir. Aðalleiðbeinandi er hinn kunni skák- meistari Jón A. Pálsson. Aðstoðarmenn hans eru Davíð Ólafsson og Þröstur Þór- hallsson. Aðalleiðbeinandi stúlkna er hin reynda skákkona Svana Samúelsdóttir. Jólakort Svalanna er komið út Jólakort Svalanna er komið út en ein fé- lagskvenna, Sigríður Gyða Sigurðardóttir, hefur hannað kortið. Kortin verða til sölu í versluninni Svörtu perlunni, Skóla- vörðustíg 3, og versluninni Ástund, Austurveri. Svölurnar eru félag núverandi og fyrrverandi flugfreyja. Aðalmarkmið félagsins er að afla fjár til styrktar þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu og er jólakortasalan ein aðalfjáröflunarfeið fé- Neyðarskýli við nýja Bláfjalla- veginn. Sunnudaginn 9. nóvember sl. var vígt neyðarskýli sem Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði hefur komið upp við nýja Blá- fjallaveginn ofan við Hafnarfjörð. Skýlið er ætlað öllum þeim sem lenda í vandræð- um og þurfa á aðstoð að halda, bæði skíðafólki, vélsleðafólki og öðrum sem um þetta svæði fara. Neyðarskýlið er við gömlu Selvogsgötuna rétt neðan við Grindasjtörð. Það er því á vesturmörkum útivistarsvæðisins sem kennt er við Blá- fjöll. Þar hefur komið fyrir að gönguskíða- Jólamerki kvenfélagsins „Framtíðin á Akureyri“ er komið út. Merkiðpr gert af myndlistar- konunni Iðunni Ágústsdóttur og er prentað í Prentverki Odds Björnssonar, h/f. Akureyri. Sölustaðir eru: Póststofan Akureyri, Frímerkjahúsið og Frímerkja- miðstöðin í Reykjavík. Félagskonur sjá um sölu á Akureyri. Merkið kostar sjö krónur og allur ágóði af sölunni rennur í elliheimilissjóð félagsins. fólk hafi týnst og hrakist undan veðri. Þeir sem lenda í slíku geta nú leitað skjóls í skýlinu og beðið um aðstoð í talstöð. Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði hefur unnið að þessu undanfarið og fengið að- stoð frá Vegagerð ríkisins, Hafnarfjarðar- bæ og fleiri aðilum. Landssamband hjálparsveita skáta hefur gefið talstöð í skýlið og annan neyðarútbúnað. Hjálpar- sveitin mun sjá um eftirlit og viðhald skýlisins og vonar að þeir sem þurfa að nota það gangi vel um, þannig að það komi að sem bestum notum þegar á þarf að halda. Jólakort kvenfélagsins Hringsins Jólakort til styrktar barnaspítalasjóði Hringsins eru komin á markaðinn. Hönn- uður kortanna er Guðrún Geirsdóttir félagskona. Þau eru í tveimur litum, blá og rauð, á bakhlið er merki félagsins. Þau verða seld á ýmsum stöðum í borginni, m.a. á Barnaspítala Hringsins, Hagkaupi, blóma- og bókabúðum og hjá félagskonum. Afmæli 85 ára er í dag, 14. nóvember, frú Matthildur Sigríður Magnúsdótt- ir, Hverfisgötu 46 í Hafnarfirði. Þar á heimili sínu ætlar hún að taka á móti gestum í dag. lagsins. Á þessu ári munu Svölumar nota allt söfnunarfé sitt til að styrkja fjölfötluð böm. 1 október sl. veittu Svölurnar 10 ein- staklingum námsstyrki til framhaldsnáms í kennslu og þjálfun fjölfatlaðra barna. Einnig styrkja Svölurnar í ár stofnanir sem annast fjölfötluð böm. Árangur jóla- kortasölunnar ræður því hversu myndar- lega verður hægt að styrkja þessar stofnanir. Svölurnar þakka velunnurum sínum veitta aðstoð á liðnum ámm og treysta á stuðning þeirra nú sem fyrr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.