Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1987, Blaðsíða 6
6 Fréttir Fáskmðsfjorður: Næg verkefni hjá skipasmíðastöðinni Ægir Kristinssan, DV, Fáskrúðsfirði; Nýlega var sjósettur hjá skipasmíða- stöð Guðlaugs Einarssonar á Fá- skrúðsfirði nýr bátur, 9,8 tonn að stærð. Báturinn, sem er frambyggður, er skarsúðaður úr eik og furu. Aðalvél bans er Ford 180 ha. í bátnum eru radar, dýptarmælir og loran með plotter af Kelvin Huges gerð og Scan sjálfstýring. Einnig eru í bátnum línu- og netaspil. Matsverð bátsins er níu milljónir króna. Báturinn er óseldur en verður seldur á fijálsum markaði. Búið er að sam- þykkja teikningar af sams konar bát og á hann að verða tilbúinn í desemb- er n.k. Sagði Guðlaugur Einarsson að næg verkefhi væru framundan hjá fyr- irtækinu. Næstu verkefiú væru bryggjsmíði á Árskógssandi og á Bakkafirði. Peningamarkaður stæðu bundna í 18 mánuði óverðtryggða á 25,5% nafnvöxtum og 27,6% ársávöxtun eða á kjörum 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum. Vextir færast á höfuðstól misserislega og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatímabili á eftir. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Nes- kaupstað, Patreksfirði og Sparisjóður Reykjavík- ur og nágrennis bjóða þessa reikninga. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verð- bréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf- in eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggö og með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu vextir á óverötryggðum skuldabréfum vegna fasteignaviðskipta eru 20%. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkisins getur numið 2.562.000 krónum á 2. ársfjórö- ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúö á síðustu þrem árum, annars 1.793.000 krónum. Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.793.000 krónum, hafi viökomandi ekki átt Ibúð á sl. þrem árum, annars 1.255.000 krónum. Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna. Lánin eru til allt að 40 ára og verðtryggð. Vextir eru 3,5%. Fyrstu tvö árin greiðast aðeins verðbætur og vextir, síðan hefjast afborganir af lánunum jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóöir eru í landinu. Hver sjóöur ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæöir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30-60 mánuöir. Sumir sjóðir bjóða aukinn láns- rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verðtryggö og með 5-6,75% vöxtum. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaöir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxta- vextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextirnir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum verður innstæöan í lok.tímabilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn- vel orðiö neikvæð. Liggi 1000 krónurnar inni (6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæö leggjast 5% vextir seinni 6 mánuöina. Á endanum veröur innstæðan því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttan/extir eru 2,8% á mánuði eða 33,6% á ári. Vísitölur Lánskjaravísitala i júli 1987 er 1721 stig en var 1687 stig í maí. Miöað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala fyrir júlí 1987 er 320 stig á grunninum 100 frá 1983. Húsaleiguvísitala hækkaöi um 9% 1. júlí. Þessi vísitala mælir aöeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miðað sérstaklega í samn- ingum leigusala og leigjenda. Hækkun vísi- tölunnar miöast við meðaltalshækkun launa næstu þrjá mánuöi á undan. Innlárt með sérkjörum Alþýöubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað innstæður sínar með 9 mánaöa fyrirvara, 70-74 ára með 6 mán- aða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris- sjóðum eða almannatryggingum. Innstæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 18% og ársávöxtun 15,5%. Sérbók. Viö innlegg eru nafnvextir 15% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuöi án úttekt- ar upp í 21%. Hvert innlegg er meðhöndlaö sérstaklega. Áunniö vaxtastig helst óbreytt óháð úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán- uði ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður við ávöxtun þriggja mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 2% vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færð á höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir. Búnaðarbankinn: Gullbók er óbundin með 24% nafnvöxtum og 25,4% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxta- leiðréttingu. Vextir færast misserislega. Metbók er með hvert innlegg bundið í 18 mánuöi á 27,0% nafnvöxtum og 28,8% árs- ávöxtun, eða ávöxtun verðtryggös reiknings með 3,5% vöxtum reynist hún betri. Hvert inn- legg er laust að 18 mánuðum liðnum. Vextir eru færðir misserislega. lónaóarbankinn: Bónusreikningur er óverð- tryggöur reikningur og ber 20% vexti. Verð- tryggð bónuskjör eru 3%. Á sex mánaða fresti er borin saman verðtryggð og óverðtryggð kjör og gildir þau sem hærri eru. Heimilt er aö taka út tvisvar á hverju sex mánaða tímabili. Hreyfð- ar innstæður innan mánaðarins bera sérstaka vexti, nú 0,75% á mánuöi, og veröbætur reikn- ast síðasta dag sama mánaðar af lægstu inn- stæðu. Vextir færast misserislega á höfuðstól. 18 mánaöa bundinn reikningur er með 27% ársvöxtum. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 22,5% nafnvöxtum og 23,8% ársávöxtun. Af óhreyfðum hluta innstæðu frá síðustu áramót- um eða stofndegi reiknings síöar greiðast 23,9% nafnvextir (ársávöxtun 25,2%) eftir 16 mánuði og 24,5% eftir 24 mánuöi (ársávöxtun 25,8%). Á þriggja mánaöa fresti er gerður samanburður á ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra reikninga og gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast 0,8% í svonefnda vaxtaleiöréttingu. Vextir fær- ast misserislega á höfuðstól. Vextina má taka út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta- tímabil á eftir. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3 mánuðina 14%, eftir 3 mánuði 19%, eftir 6 mánuði 23%, eftir 24 mánuði 25% eða ársávöxt- un 26,6%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaða verð- tryggðum reikningum gildir hún um hávaxta- reikninginn. Vextir færast á höfuðstól 30.6. og 31.12. Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 24% nafnvexti og 25,4% ársávöxtun á óhreyfðri inn- stæðu. Ef ávöxtun CL mánaða verðtryggðs reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast misserislega.. Af útttekinni upphæð reiknast 0,75% úttektargjald, nema af uppfærðum vöxt- um síðustu 12 mánaða. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverótryggðra reikninga í bankanum, nú 23,21% (ársávöxtun 24,10%), eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings, sem reiknuð er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman- burður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekiö út af reikningnum gilda al- mennir sparisjóðsvextir, 15%, þann mánuð. Heimilt er að taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan án þess að ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki er tekið út af reikningnum i 18-36 mánuði tekur hann á sig kjör sérstaks lotusparn- aðar með hærri ábót. Óverðtryggð ársávöxtun kemst þá i 25,26-28,79%, samkvæmt gildandi vöxtum. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur. Meg- inreglan er að innistæða, sem er óhreyfö í heilan ársfjóröung, nýtur kjara 6 mánaða bundins óverðtryggs reiknings, nú með 21,0% ársávöxt- un, eða 6 mánaða verötryggðs reiknings, nú með 2% vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxt- un fyrir þann ársfjóröung. Vextir og veröbætur færast á höfuðstól í lok hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess- ara „kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör, þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem færðar haía verið á undangengnu og yfirstand- andi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum sem hér segir: Við eina úttekt i fjóröungi reiknast almennir sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó- kjör af eftirstöðvum. Við fleiri úttektir fær öll innistæða reikningsins sparisjóðsbókarvexti. Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virk- an dag ársfjóróungs, fær innistæðan hlutfalls- legar verðbætur m.v. dagafjölda í innleggsmán- uði, en ber siöan kaskókjör út fjórðunginn. Reikningur, sem stofnaður er síðar fær til bráða- birgða almenna sparisjóðsbókavexti en getur áunniö sér kaskókjör frá stofndegi að uppfyllt- um skilyrðum. Sparisjóöir: Trompreikningur er verðtryggð- ur og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3,5% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 22,5% með 24,12% ársávöxtun. Miðaö er við lægstu innstæöu í hverjum ársfjórðungi. Reynist trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning- inn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna sparisjóðsvexti, 15%. Vextir færast misserislega. 12 mánaöa reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverð- tryggða en á 26,5% nafnvöxtum. Misserislega er ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings, nú með 3,5% vöxtum, borin saman viö óverð- tryggöa ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur. Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs. Topp-bók nokkurra sparisjóða er með inn- FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987. ~ '.mMSrn- x «■ X. Heldur hefur IHnað yfir veiðlnni í Laxá á Ásum síðustu daga og hafa veiðst í henni 817 laxar og á myndfnni rennir Þorgeir Daníelsson fyrir lax I Brúar- streng og veiddi þar einn Laxá og Bæjará í ReykhólasveR Veiddu 80 bleikjur á þremur dögum „Þetta hefiir gengið vel hjá okkur síðustu daga og núna eru komnir á land á milli 120 og 130 laxar en á sama tíma í fyrra 58 laxar,“ sagði Sigurður Lárusson á Gilsá er við spurðumst fyrir um veiði í Breiðdalsá. „Fyrstu tvo INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur ób. 14-15 Lb.Sp, Úb.Bb, Ab Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 15-18 Ab 6 mán. uppsögn 16-20 Ib.Vb 12 mán. uppsögn 17-26,5 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 25,5-27 Ib.Bb Ávísanareikningar 4-15 Ab.lb, Vb Hlaupareikningar 4-8 Ib.Lb Innlan verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 3-4 Ab.Úb 14-24 Bb.Sb Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 5,5-6,5 Sp.Vb, Ab Sterlingspund 7,5-9 Vb Vestur-þýsk mörk 2,5-3,5 Vb Danskarkrónur 8,5-10 Vb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir víxlar(forv.) 27-28,5 Lb Viðskiptavlxlar(forv.)(1) 25-26 eða kge Almenn skuldabréf 25-31 Úb Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) 28,5-30 Lb Utlan verðtryggð Skuldabréf Að2.5árum 7,5-9 Úb Til lengritíma 7,5-9 Úb Útlántilframleiðslu Isl. krónur 23-29 Vb SDR 7,75-8 Bb.Lb, Úb.Vb Bandaríkjadalir 8,5-9,25 Bb.Lb, Úb.Vb Sterlingspund 10-10,75 Sp Vestur-þýsk mörk 5,25-5,5 Úb Húsnæðislán 3,5 Lifeyrissjóðslán 5-6,75 Dráttarvextir 36 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala júlí 1721 stig Byggingavísitala 320 stig Húsaleiguvísitala Hækkaöi9%1.júli VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða (uppl. frá Fjárfestini arfélaginu): Ávöxtunarbréf 1.1634 Einingabréf 1 2,163 Einingabréf 2 1,283 Einingabréf 3 1,337 Fjölþjóðabréf 1,030 Kjarabréf 2,158 Lífeyrisbréf 1,088 Markbréf 1,075 Sjóðsbréf 1 1,058 Sjóösbréf 2 1,058 Tekjubréf 1,174 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 114 kr. Eimskip 255 kr. Flugleiðir 175kr. Hampiðjan 118 kr. Hlutabr.sjóðurinn 114 kr. Iðnaðarbankinn 137 kr. Skagstrendingur hf. 182 kr. Verslunarbankinn 120 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki kaupir viöskiptavíxla gegn 25% ársvöxtum, Samv.banki 25% og nokkrir sparisj. 26%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = lönaöarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, CJb= Otvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. dagana núna í ágúst komu á land 10 laxar, stærsti laxinn, sem er kominn á land núna, er 18 pund og lax er víða í ánni svo við erum mjög ánægðir með þessa aukningu á laxveiðinni." Veiðimenn, sem voru að koma úr Laxá og Bæjará í Reykhólasveit, fengu um 80 bleikjur og veiðimenn, sem voru á undan þeim, fengu 3 laxa og 20 bleikjur. Fiskur er víða í ánum, eins og í Hólmahylnum í Laxá þar sem veiðimenn töldu lax og um 60 bleikj- ur, sumar um tvö pund. Það eru komnir 17 laxar á land og 150 bleikjur af öllum stærðum. Stærsti laxinn er 15 pund og veiddist í Hólma- hylnum á maðk, veitt er á tvær stangir. Bleikjan var ekki áköf í að taka flug- umar en eina flugu vildi hún þó og það var krafla, appelsínugul. -G.Bender Hér er Þorgeir með þrjá laxa úr ánni. DV-mynd Ámi B. Veiðivon Gunnar Bender Laxá í Dölum: Laxinn að koma „Þetta er allt að koma, laxinn er farinn að bunka sig í hylina í ánni, enda hefur rignt héma síðustu daga og það vel fyrir tveimur dögum síð- an,“ sagði Erla Sigurðardóttir í veiði- húsinu Þrándargili við Laxá í Dölum, sem hefur verið mjög róleg hingað til en veiðin er aðeins að glæðast. „Það em komnir 400 laxar og síðasta holl sem hjá okkur var í viku veiddi 103 laxa og hollið þar á undan 30 laxa. Það em útlendingar sem veiða héma hjá okkur þessa dagana og verða fram til 9.júlí. Veiðin hefur verið róleg í Mýrar- kvísl og vom komnir 120 laxar þegar við síðast fréttum. Nokkrir 20 punda laxar hafa komið á land en smálaxinn er farinn að láta sjá sig í ánni. Veiðimaður sem var að koma úr Setbergsá veiddi 10 laxa eftir tveggja daga veiði og em komnir 40 laxar, aðeins að lifiia við.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.