Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1987, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 6. ÁGtJST 1987.
11
Arasarbatar
til Persaflóa
Bandaríkin eru nú að bæta sérstak-
lega hraðskreiðum árásarbátum við
flota sinn á Persaflóa sem vemdar þar
skip er sigla undir bandarískum fána.
Hafa tveir bátar þegar verið sendir
með skipi og er búist við að þeir verði
komnir á áfangastað eftir þrjár vikur.
íranskir byltingarverðir em enn við
flotaæfmgar á flóanum og herma
fregnir að þeir séu að æfa sjálfsmorðs-
árásir gegn skipum með hraðskreiða
báta. Hafa íranar tilkynnt að þeir
hafi notað kafbát og hraðbáta við æf-
ingamar. Einnig hafi þeir komið fyrir
flugskeytum sem skjóta megi strax ef
þeim verður ógnað.
Þrátt fyir hótanir írana gegn Banda-
ríkjunum er búist við að þrjú olíuflutn-
ingaskip frá Kuwait sigli undir
bandarískum fána i dag til þess að
geta notið vemdar Bandaríkjamanna.
Fimm japönsk olíuflutningaskip
sigldu inn á flóann í gær og út af hon-
um aftur.
Bandarísk yfirvöld vara nú aftur
Bandaríkjamenn við að ferðast til ír-
ans vegna hótana gegn Bandaríkjun-
um og árása á sendiráð i Teheran.
Bandaríkin vömðu einnig við ferðum
til írans árið 1981 stuttu eftir að gísl-
amir fimmtíu og tveir, sem verið höfðu
rúmt ár í gíslingu, losnuðu úr prísund-
inni.
Skipatryggingafélög í London til-
kynntu í gær að vegna aukinnar
spennu á Persaflóasvæðinu myndu
iðgjöld fyrir skip er sigla þar hækka
frá og með deginum í dag.
Sumarið ókomið
Gurmlaugur A Jónsson, DV, Lundú
Maímánuður var sá kaldasti í
manna minnum. Sólarstundir í júní-
mánuði hafa ekki verið svo fáar síðan
1920 og í júlí, aðal sumarleyfismánuði
Svía, hefur rignt með litlum hléum.
Sviar em þegar famir að tala um
sumarið 1987 sem sumarið er aldrei
kom. Flestir hafa þegar tekið út sum-
arfrí sitt og binda því ekki miklar
vonir við hugsanlegar breytingar á
veðrinu í ágústmánuði.
Enn bendir heldur ekkert til þess að
breytingar séu í vændum. í nýjustu
fimm daga veðurspánni segir í upp-
hafi, væntanlega til að slá á alla
óskhyggju, að orðið sól komi aldrei
fyrir í spánni.
Þeir Svíar sem ferðuðust suður á
bóginn til að flýja rigningamar í Sví-
þjóð em ekki mikið ánægðari en þeir
sem heima sátu. Hitinn á Grikklandi
og Suður-Ítalíu reyndist svo óbærilega
mikill að heppilegast var að halda sig
innandyra.
Sálfræðingar em teknir að tjá sig í
blöðum hér um hugsanlegar afleiðing-
ar þessa óvenjulega sumars. „Við
þurfúm á sól að halda á sama hátt og
nauðsynlegt er að hlaða batterí. Ef við
fáum ekki nægilega sól minnkar mót-
stöðuafl okkar gegn stritinu," sagði
einn sálfræðingurinn í blaðaviðtali.
„Þær vonir sem við bindum við sum-
arfríið geta líka reynst hættulegar.
Velheppnað sumarfrí á að bæta úr
öllu því sem miður hefur farið. Ef það
bregst er hætt við að þunglyndi geri
vart við sig,“ sagði sami sálfræðingur.
Útlönd
Mandela aldar-
fjórðung í fangelsi
Nelson Mandela, sem um árabil
hefur verið sameiningartákn þeim
sem berjast fyrir jafnrétti þeldökkra
í Suður-Afríku, hefur nú dvalið í
fangelsi í aldarfjórðung. Að sögn
þeirra sem hafa beint samband við
Mandela hefur hann ekki misst móð-
inn við dvölina.
Mandela afþlánar lífstíðarfangelsi
fyrir landráð.
PHILIPS - 007 - GETRAUN
Aðeins það besta
er nógu gott!
I myndinni „The Living
Daylights" hafa framleiðendur
aðeins valið PHILIPS tæki fyrir
James Bond - en þau eru yfir
eitt hundrað.
PHILIPS
Við bjóðum áhorfendur James Bond í getraun - leikurinn er í þvi
fólginn að í Bíóhöllinni liggja frammi miðar þar sem þú segir til
um fjölda PHILIPS tækja í myndinni. - Glæsileg verðlaun:
Geislaspilari frá PHILIPS að verðmæti kr. 28.000.-
IPGoodrich
Bjóðum nú þessi frábæru kjör:
A: Útborgun 25%
B: Eftirstöðvar á 4-6 mánuðum
LT 215/75R15 32xll.50R15LT 235/85R16LT
LT235/75R15 33xl2.50Rl5LT 31xl0.50Rl6.5LT
30x9.50R15LT 35x12.50R15LT 33xl2.50R16.5LT
31xl0.50R15LT 255/85R16LT 35xl2.5Rl6.5LT
Einnig fólksbílahjólbarðar AMRTsf
Jeppadekkin sem duga.
Vatnagörðum 14, Reykjavík, s. 83188.
■ ■■