Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1987, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1987.
13
Neytendur
Einnota hlutir leggja hinn
vestræna heim að fotum sér
Einnota hlu* ir eru að verða æ al-
gengari. Allir þekkja slíka hluti og
taka varla eftir þeim lengur sem ein-
hverju sérstöku.Við þekkjum einnota
borðdúka, munnþurrkur og borð-
búnað bæði úr plasti og pappa. Hér á
landi eru t.d. einnota rakvélar sem eru
síst dýrari en rakvélar sem eru marg-
nota en í þær þarf að kaupa rándýr
blöð. Nefria má ýmsa aðra hluti sem
m.a. eru notaðir í heilbrigðiskerfinu
eins og t.d. einnota nálar, hitamælar
og lök. Erlendis er einnota rúmfatnað-
ur mikið notaður á sjúkrahúsum og
jafiivel á heimilum.
Einnota símar innan við 1000
kr.
1 Bandaríkjunum er farið að fram-
leiða einnota síma sem þar eru seldir
á innan við 1000 kr. Gert er ráð fyrir
að símar þessi geti dugað í eitt ár en
eftir það er þeim fleygt.
Sl. ár voru seldir 120 þúsund slíkir
símar i Bandaríkjunum. Fyrirtækið
sem þá framleiðir gerir ráð fyrir að
árið 1990 verði salan komin í 2,5 millj-
ónir tækja!
Einnota myndavélar hafa haldið
innreið sína fyrir alvöru í Bandaríkj-
unum. Þar hafa verið á markaðnum
tvær gerðir af slíkum myndavélum.
Kodak vél sem gerð er fyrir 35 mm
filmu og Fuji vél sem gerð er fyrir
filmukassettu. Þessar myndavélar
komu fyrst fram í Japan en Fuji fyrir-
tækið seldi þar 1,5 milljón véla fyrstu
sex mánuðina sem þær voru á mark-
aði. Þeir gera sér því góðar vonir um
að Bandaríkjamarkaðurinn bregðist
vel við.
Kodak vélin kostar tæpa 10 dollara
en Fuji vélin er ódýrari, kostar tæpa
7 dollara í Bandaríkjunum.
Einnota vélar eru komnar á íslensk-
an markað, við sáum þær i verslunar-
glugga og kostuðu þær innan við 500
kr.
Listinn lengist alltaf
En listinn yfir einnota hluti lengist
alltaf ár frá ári. Talið er víst að innan
skamms verði farið að framleiða ein-
nota sjónvarpstæki og tölvur. Talið
er að linsur sem hægt er að nota í
nokkrar vikur séu á teikniborðinu og
að Gillette fyrirtækið, sem kom með
einnota rakvélina á markaðinn, sé
einnig með einnota tannbursta í burð-
arliðnum. Tannburstinn er þannig að
í honum er hæfilegt tannkrem fyrir
nokkurra daga notkun.
Gert er ráð fyrir að ekki sé langt
undan að farið verði að framleiða
hreinlætistæki í baðherbergi og véla-
flytjum i einnota hús?
kost eldhússins sem ekki duga nema
takmarkaðan tíma.
Meira að segja hafa bílar verið
nefndir sem einnota tól framtíðarinn-
ar. Þá er átt við hluta bílanna, eins
og t.d. vélina. Sú vél yrði gerð úr
plasti og það ódýr að þegar hún bilaði
yrði henni hent.
Segja má að nú séu á markaðnum
einnota úr. I Bandaríkjunum er hægt
að fá ágætisúr sem kosta ekki nema
5 dollara eða sem svarar 200 kr. ísl.
Það kostar hins vegar 150 dollara eða
6000 ísl. kr. að taka armbandsúr í
sundur og hreinsa það samkvæmt upp-
lýsingum úrsala í New York.
Og ekki er talið ólíklegt að á 21.
öldinni búum við í húsum sem verði
úr mjög ódýrum efnum og taki ekki
nema örfáa daga að reisa. Þeim verði
síðan hent eða þau endumýjuð með
nýjum húsum frekar en að halda þeim
við eins og gert er við venjuleg hús í
dag.
Dökku hliðarnar
En allir þessir einnota framtíðai--
hlutir hafa sínar dökku hliðar. Flestir
hlutimir em úr plasti þannig að málm-
framleiðendur sjá sína sæng útbreidda
Nú er hægt að kaupa einnota myndavélar, einnig hér á landi.
og verða að draga saman seglin.
Umhverfisvemdarsinnar benda á að
of mikið af plastframleiðslu hafi í för
með gífúrlegt vandamál hvað varðar
eyðingu þessara efha . Um það bil 8%
af öllu sorpi sem urðað er í Bandaríkj-
unum árlega er plast sem ekki eyðist
í náttúrunni. Ekki líður á löngu þar
til stórborgimar vestanhafs verða
uppiskroppa með land til þess að urða
sorpið.
Ekki er möguleiki á að brenna plast-
inu. Sumar tegundir gefa frá sér
eitraðar lofttegundir og aðrar eiga
sinn þátt í að mynda hið illræmda
súra regn.
Hagfræðingar og umhverfisvemdar-
sinnar vestanhafs telja að neytendur
séu ekki látnir greiða nægilega hátt
verð fyrir þau áhrif sem plasthlutimir
hafa á bæði þjóðfélagið og umhverfið.
Ef framleiðendur einnota rakvélar-
innar þyrftu að taka þátt í kostnaðin-
um við að eyða henni myndu þeir
vanda betur til hennar svo hún yrði
betur samkeppnishæf við margnota
rakvélar.
Enn sem komið er hafa ekki verið
sett nein lög hvað þetta varðar og er
ekki talið að hætt verði við notkun
einnota hluta eða framleiðslu þeirra
þótt umhverfisvemdarmenn láti í sér
heyra.
Þetta er tímanna tákn. Fólk hefúr
meiri áhuga á því sem ekki er varan-
legt í dag er haft eftir bandarískum
neytendasérfræðingi.' En hann telur
hins vegar ekki nokkra hættu á því
að vandaðir hlutir sem eiga langa líf-
daga verði úr sögunni fyrir fullt og allt.
Byggt á N.Y.Times
-A.BJ.
gamla gátan: (er i sjó og sekkur ekki, tyrir björg og brotnar ekki... o.s.frv. nýtt gildi.
EINSTAKT TÆKIFÆRI
Til sölu tveir gullfallegir Porsche 924 árg. 1985, beint frá Porsche
verksmiðjunum í Stuttgart. Þessir tveir bílar voru í eigu Porsche
AG og eru algjörlega eins og nýir. Okkur tókst að fá þessa bíla
á hreint frábæru verði og er þetta tækifæri sem ekki býðst aftur.
Steingrár, sanseraður, með rafm. topplúgu, rúðum og speglum,
sportstólum og stýri ásamt ýmsu öðru, ekinn 21.800 km.
Verð kr. 880.000,- (Stgr. 850.000,-).
Silfurblár, sanseraður, með Blaupunkt útv/segulb., rafm. spegl-
um, sportstýri og m.fl., ekinn 25.400 km. Verð kr. 830.000,- (Stgr.
Porsche 911 tur’bo árg. 1976, dökkgrænn, sanseraður gullmoli með öllu, þ.m.t.
rafm. sóllúgu, rúðum og speglum og compl. leðurinnréttingu, ekinn aðeins 85.000
km frá upphafi.
Þetta er fyrsta árgerðin af þessum sjladgæfa og eftirsótta alvöru sportbíl. Eftir
tveggja ára leit fundum við þetta eintak. Einn eigandi frá upphafi og algjörlega
tjónlaus. Hröðun 0-100 á 4,2 sek. Hámarkshraði ca 270 km.
Verð kr. 1.450.000,- (Stgr. 1.250.000,-).
Porsche 911 árg. 77/85, vínrauður dekurbíll, með gangverki og compl. undir-
vagni undan Carrera 1985, vél 231 hö.
Verð ca. 900-950.000.
Porsche 944 árg. 1983, hvítur, með rafm. rúðum, -speglum, topplúgu, Blau-
punkt útv./segulb. og aflstýri, ekinn 115.000 km, í langkeyrslu nær eingöngu,
toppástand.
Verð kr. 880.000,- (Stgr. 850.000.-)
Porsche 924 árg. 1981, dökkgrár, sanseraður, með miklu af aukahlutum, fallegur
bíll, í endursölu frá einum af okkar viðskiptaaðilum, ekinn ca 85.000 km. Verð
kr. 630.000,- (Staðgr. 580.000,-).
Getum nú boðið upp á lánakjör samkv. samkomulagi.
umboðið - Austurströnd 4 - s. 611210.