Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988.
25
Hinar miklu vinsældir
gamanmyndarinnar
Þrír menn og bam
(Three Men and a
Baby) á undanfórn-
um mánuðum hafa
komið mörgum á óvart og eru enn
ein rósin í hnappagat Touchstone
sem er útibú frá Disney-fyrirtækinu.
Virðist þeim er þar ráða varla geta
mistekist þessa dagana. '
Þrír menn og barn fjallar um þrjá
piparsveina sem leiknir eru af Tom
Selleck, Steve Guttenberg og Ted
Danson er lenda í þeirri aðstöðu
að sex mánaða stúlkubarn, sem
einn þeirra á, er skilið eftir við
dyrnar hjá þeim og lýsir myndin
því vandræðaástandi sem upp
kemur hjá þeim við barnauppeldið
en enginn þeirra hefur haft kynnst
því að ráði áður.
Handritið er unnið upp úr
franskri mynd, Trois hommes et
un couífin, sem gerð var fyrir
tveimur árum og naut þó nokkurra
vinsælda á meginlandi Evrópu.
Leikstjóri frönsku myndarinnar
var Coline Serreau og var henni
boðið að leikstýra bandarísku útg-
áfunni.
Fjórum vikum áður en kvik-
myndun hófst hætti hún við og
opinbera yfirlýsingin var sú að
veikindi hrjáðu hana, en þeir sem
stóðu næst framleiðslunni sögðu
hana hafa haldið of fast í frumgerð-
ina og tekið illa öllum breytingar-
tillögum.
Uröu nú margir hræddir um að
einhver hraðvirkur leikstjóri úr
sjónvarpinu mundi taka við, en svo
var blessunarlega ekki. Leikarinn
og leikstjórinn Leonard Nimoy
varð fyrir valinu, mörgum til undr-
unar, þvi hann haföi aðeins leik-
stýrt tveimur kvikmyndum í
geimseríunni Star Trek. Leysti það
að vísu vel af hendi. Þrír menn og
barn var samt nokkuð annar hand-
leggur.
Hann var samt rétti maðurinn,
það urðu allir sammála um eftir
nokkrar vikur, því eitt er víst að
það þarf þolinmæði til leikstýra
kvikmynd þegar aðalleikonan er
aðeiris sex mánaða stúlkubarn sem
er alls ekki viss um að hún vilji
nokkuð vera leikkona.
Þar sem öll ungbörn þurfa mik-
inn svefn og eru ekki til í að vaka
og brosa samkvæmt kröfum leik-
stjórans voru fengnir tvíburar til
að leika hlutverkið, Lisa og Mic-
helle Blair, kanadískir að uppruna.
Þess má geta að Þrír menn og barn
er tekin upp í Kanada að mestu og
segja framleiðendur að hægt hefði
verið að spara umtalsverða fjár-
hæð með þeirri ákvörðun.
Það eru þekktir leikarar í aðal-
karlhlutverkunum, Tom Selleck,
sem þekktastur er fyrir leik sinn í
sjónvarpsþáttunum Magnum PI,
leikur arkitektinn Peter Mitchell.
Hann hefur hingað til verið frekar
óheppinn í vali hlutverka í kvik-
mynd en dettur í lukkupottinn í
þetta skiptið og stendur sig með
prýði. Sfeve Guttenberg, sem hefur
leikið í mörgum vinsælum kvik-
myndum á undanfórnum árum,
leikur teiknarann Michael Kellam
og Ted Darison, sem þekktastur er
fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsser-
íunni Staupasteini, er í hlutverki
leikarans Jack Holden.
Þótt ameríska útgáfan sé vissu-
lega frábrugðin þeirri frönsku þá
vildu aðstandendur samt að kæmi
Kvikmyndir
Þrír menn og bam
Vinsælasta kvikmyndin vestanhafs
Það reyndi oft á þolinmæði tæknimanna sem leikara við gerð Þrir menn og barn, enda aðalleik-
konan ekki nema sex mánaða.
í gegn sami boðskapur, sem sagt hvernig bar- takast á við vandann enda hugsanagangur fran-
nauppeldi gjörbreytir lífi hvers einstaklings. skra karlmanna öðruvísi en bandarískra.
Gamansemin er ósvikin í báðum myndunum. HK
Munurinn er aðallega í hversu karlmennirnir
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
James Caan, eldri og lífsreyndari.
James Caan
Francis Coppola hefur reynst James Caan vel i gegnum tíðina. Hér sjást þeir gantast viö töku
á Gardens of Stone.
Níundi áratugurinn hefúr
ekki verið dans á rósum
fyrir hinn þekkta leikara
James Caan og viður-
kennir hann það fúslegá.
Fyrir fáum árum virtist
sem Caan væri fórnarlamb eigin frægð-
ar. Þar sem hann var orðljótur í
blaðaviðtölum og tillitslaus gagnvart
starfsfélögum vildi enginn umgangast
hann og þótt honum byðust hlutverk
neitaði hann öllum á þeim forsendum
aö handritið væri vonlaust.
Það var svo Francis Coppola, hans
gamli vinur, sem fékk hann út úr lang-
tíma einangrun til að leika aðalhlut-
verkið í Gardens Of Stone. Caan lék
fyrst undir stjórn Coppola í The Rain
People 1969 og síðan í The Godfather
1972. Þá var James Caan ungur leikari
á mikilli uppleið.
Nokkur góð ár tóku við og nokkrar
ágætar myndir, en íleiri ómerkilegar.
Óumdeilanlega var hann þó einn eftir-
tektarverðasti ieikarinn á áttunda
áratugnum. 1979 er eftirminnilegt ár
fyrir Caan. Þá lék hann í einni af sínum
bestu myndum, Comes A Horseman,
þar sem meðleikari hans var Jane
Fonda og sama ár leikstýrði hann og lék
aðalhlutverkið í Hide In Plain Sight.
Myndin fékk víðast hvar góða dóma en
áhorfendur létu sig vanta.
Nú fór að halla niður á við og endinn
er að finna í Kiss Me Goodbye frá 1982.
Var Caan svo óánægður með myndina
að hann gekk út á prufusýningir og
neitaði að auglýsa myndina. Fannst
hann klipptur út úr mörgum atriðum
til að gera hlut meðleikara hans, Sally
Field og Jeff Bridges, stærri. Enda fór
það svo aö Kiss Me Goodbye var aldrei
sýnd utan Bandaríkjanna, þar sem hún
var tekin í geymslu eftir nokkra sýning-
ardaga.
Á sama tíma voru mikilk vandræði í
einkalífinu. Hann hafði stundað hið
ljúfa líf af kappi, var tíður gestur hjá.
Hugh Hefner playboy-kóngi og var hvað
eftir annað forsíðuefni á síðum æsi-
fréttablaða. Hjónaband hans og fyrir-
sætunner Sheilu Ryan endaði með
miklum látum. Ekki bætti úr fyrir hon-
um þegar hann játaði aö hafa lamið
hana í afbrýðiskasti.
Á sama tíma lést systir hans, Bar-
bara, úr hvítblæði. Hún var þrjátíu og
átta ára og hafði hann reynt allt henni
til hjálpar, meðal'annars í örvænting-
artilraun gengist undir aðgerð til að
gefa henni beinmerg úr sjálfum sér.
Hann lenti í alvarlegu b’ílslysi og var
lengi að ná sér eftir það. Lamaðist um
tíma á hægri hendi. Margir urðu reiðir
þegar hann birtist við réttarhöld yfir
maJEÍumönnum, sagði tvo þeirra vera
vini sína og hóf samræður við þá. Meiri-
hluti vandræða hans stafaöi af notkun
eiturlyíja og óhóflegri drykkju, vanda-
mál sem hann réð ekki við á þessum
árum. Honum tókst þó um síðir með
hjálp vina og lækna að þurrka sig upp.
Eftir öll þessi ósköp var hann skuld-
um vafinn en vildi samt ekki taka til
við leik á ný, eingöngu til þess aö borga
reikninga eins og hann orðaði það.
Hann tók að sér son sinn, Scott, sem
er tíu ára og uppeldi sonarins og
ábyrgðin sem því fylgir hefur gert hann
að ábyrgari persónu aö því er hann
segir og nú sé hann fyrst tilbúinn að
takast á við vandamálin.
Hann er ákveðinn í að heija leik áð
nýju og hlutverk hans í Gardens of
Stone lofar góðu. Varla væri hægt að
fá betri leikara í hlutverk hins harða
liðþjálfa sem kennir nýliðum í Wash-
ington.
Þessa dagana er hann að leikáFí geim-
vísindamynd, Outer Heat. Allir sem til
James Caan þekkja telja hann hafa
mildast með árunum. Hann hefur »1-
varlegt yfirbragö, hlær ekki eins mikið
og áður, en hefur fullkomlega stjóm á
lífi sínu, öfugt viö fyrri daga. HK.