Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988. 29 DV Sérstæð sakamáJ Garðurinn við hús Zantshjónanna grafinn upp. Christine Doppler. henni ljóst aö Michael gæti ekki hafa sagt satt er hann sagði að Siegelinde væri frænka hans. Siegelinde byrjaði að rífast og skammast á þann máta að ungu stúlkunni var ljóst að sam- band unga mannsins hennar og konunnar sem hún var nú með var allt annað en hann hafði sagt. Svo breyttist sú vissa í mikinn ótta þegar húsmóðirin gekk frá og birtist aftur með veiðihníf í hendinni. Alltumseinan Þá var hins vegar engin leið fyrir Christine Doppler að komast undan örlögum sínum. Að vísu barðist hún ákaft -fyrir lífmu en úrslit þeirra átaka voru ráðin frá upphafi. Bæði var það að Siegelinde var mun sterk- ari en Christine og svo kom til sú mikla afbrýðisemi og heift sem orðið hafði kveikjan að hugmyndinni um að ráða ungu snyrtidömuna af dög- um. Óhugnanlega að farið Er Christine var látin hlutaði Siegelinde líkið í sundur. Urðu hlut- arnir tuttugu. Þá gróf hún svo í stóru gröfinni í garðinum en fót ungu stúlkunnar og skó brenndi hún. Nú taldi þessi fertuga kona aö henni hefði tekist að vinna ást Mich- aels Klaus á ný. Hún hafði hins vegar ekki tekið afstöðu nágrannanna með í reikninginn. Þeir höfðu fyrir löngu komist að því hvers konar samband var á milli húsmóðurinnar við hlið- ina og unga mannsins sem hún hitti svo oft. „Ég geri það sem mér hentar án tillits til þess hvað nágrannarn- ir kunna að segja,“ hafði Siegelinde eitt sinn látið sér um munn fara. Þá höfðu þeir komist að því að hún hafði farið með unga elskhuganum sínum í utanlandsferð. Hafði ferðinni verið heitið til Miðjarðarhafseyjunnar Krítar. Það sem nágrannarnir vissu aftur á móti ekki var að Harald Zants vissi allt um samband konu sinnar og Michaels og höfðu þau farið suður á bóginn meö samþykki hans. Hann hafði þá komist að sannleikanum og gert sér grein fyrir því hver áhrif vangeta hans hafði haft. Óþefur Það reyndist þó svo að þaö var ein- mitt það sem nágrannarnir sögðu og héldu sem varð Siegelinde Zants að falli. Þeir fundu einkennilegan óþef leggja frá Zantshúsinu. Eftir nokkrar vangaveltur fannst þeim svo ein- kennilegt aö það skyldi einhver vera að brenna eitthvað að ákveðið var að skýra lögreglunni frá því. Christine saknað Næstu tvo dagana spurðist ekkert til Christine. Rannsókn leiddi í ljós að hún hafði ekki komið til vinnu sinnar daginn sem hún hvarf. Er eft- irgrennslan leiddi ekkert í ljós um hvar hún gæti verið fór athugull lög- reglumaður að hugsa um tilkynning- una sem borist hafði frá nágrönnum Zantsfjölskyldunnar um einkenni- lega brunalykt sem komið hefði frá húsinu. Nágrannarnir höfðu sam- tímis sagt lögreglunni frá því að frú Zants stæði i leynilegu ástarsam- bandi við pilt sem væri rúmum tuttugu árum yngri en hún. Var nafn hans nefnt. Böndin berast að Siegelinde Michael hafði verið spurður hvort hann vissi um Christine en hann hafði ekki, frekar en annað ungt fólk sem leitað var til, getað gefið neina skýringu á hvarfmu enda kom hon- um ekki til hugar að Siegelinde tengdist því á neinn hátt. Grunsemd- ir lögreglumannsins jukust hins vegar stöðugt eftir því sem lengra leið frá hvarflnu og brátt þóttist hann svo viss í sinni sök að ákveðið var að yfirheyra Siegelinde Zants. Játningin Farið var heim til Zantshjónanna. í fyrstu neitaði frú Zants að vita nokkuð um örlög Christine en lög- reglan taldi ýmislegt athugavert við framkomu hennar og framburð og því var farið með hana til yfir- heyrslu. Er hún hafði staðið í nokkrar klukkustundir viðurkenndi Siegelinde Zants loks að hafa orðið Christine Doppler að bana. Sagðist hún hafa verið gripin „brjálæðislegri afbrýðisemi" sem hefði leitt hana til þess að myrða ungu stúlkuna sem hefði verið keppinautur sinn um ást- ir Michaels Klaus. Þannig lauk þessu sérstæða „þrí- hyrningsmáli" í Austurríki, þar sem það hefur vakið verulega athygli, en um það hefur einnig verið fjallaö í öðrum löndum. HMBUR Fánastengur Hurðir og gluggar Listar Klæðningar TRÉSMÍÐAMÓNUSTA Handriðalistar Gcrctti Gölflistar Kvcrklistar Loftbitar Rammalistar Skrautlistar Þakkantar Glerfalslistar SLIPPFÉLAGIÐ Vernd og viðhald eigna Mýrargata 2. Símar: 10123 og 28811. Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10, Kópavogi, á neðangreindum tíma: Hrauntunga 99, þingl. eigandi Svavar Benediktsson, fimmtud. 11. febrúar ’88 kl. 10.00. Uppboðsbeiðandi er Trygg- ingastofnun ríkisins. Holtagerði 12, neðri hæð, talinn eig- andi Rúnar S. Þorvaldsson, fimmtud. 11. febrúar ’88 kl. 10.05. Uppboðs- beiðendur eru: Bæjarsjóður Kópavogs og Ari ísberg hdL Lundarbrekka 2, íbúð 02.04, þingl. eig- andi Sveinn Guðlaugsson, fimmtud. 11. febrúar ’88 kl. 10.10. Uppboðs- beiðendur eru: Bæjarsjóður Kópa- vogs, Ólafúr Gústafsson hrl., Tryggingastofnun ríkisins og Skatt- hemita ríkissjóðs í Kópavogi. . Þverbrekka 2, 7. hæð t.v., þingl. eig- andi Kolbrún Magnúsdóttir, fimmtud. 11. febrúar ’88 kl. 10.10. Uppboðs- beiðendur eru: Bæjarsjóður Kópavogs og Skúli J. Pálmason hrl. Skemmuvegur 4, hluti, þingl. eigandi Bókfell hf., fimmtud. 11. febrúar ’88 kl. 10.15. Uppboðsbeiðandi er Skatt- heimta ríkissjóðs í Kópavogi. BÆJARPÓGEHNX í KÓPAV0GI Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, á neðangreindum tíma: Bræðratunga 5, jarðhæð, þingl. eig- andi Þór Mýrdal, fimmtud. 11. febrúar ’88 kl. 10.20. Uppboðsbeiðandi er Bæj- arsjóður Kópavogs. Furugrund 50,1. hæð C, þingl. eigend- ur Jón Snorrason og Katrín Hrafiis- dóttir, fimmtud. 11. febrúar ’88 kl. 10.20. Uppboðsbeiðendur eru: Guðjón Armann Jónsson hdl., Veðdeild Landsbanka íslands, Bæjarsjóður Kópavogs, Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi og Jón Ingólfsson hdl. Kársnesbraut 70, hluti, þingl. eigandi Elín Elke Ellertsdóttir, fimmtud. 11. febrúar '88 kl. 10.25. Uppboðsbeiðend- ur eru: Skattheimta ríkissjóð í Kópavogi, Svala Thorlacius hrl, Ró- bert Árni Hreiðarsson hdl., Veðdejld Landsbanka íslands, Landsbanki ís- lands, Klemens Eggertsson hdl. og Reynir Karlsson hdl. Kópavogsbraut 4, hluti, þingl. eigandi Hulda Harðardóttir, fimmtud. 11. fe- brúar ’88 kl. 10.25. Uppboðsbeiðandi er: Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi. Smiðjuvegur 11, þingl. eigandi Timbur og stál bf„ fimmtud. 11. febrúar ’88 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru: Guð- ríður Guðmundsdóttir hdl. og Bæjar- sjóður Kópavogs. BÆJARFÓGETKNIKÓPAV0GI Nauðungaruppboð þriðja og siðasta á eftirtöldum fasteignum: Ástún 14, íbúð 4-5, þingl. eigandi Jón S. Ólason, fer fram á eigninni sjálfri mánud. 8. febrúar ’88 kl. 10.00. Upp- boðsbeiðendur eru: Bæjarsjóður Kópavogs og Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi. Furugrund 44, þingl. eigendur Eggert Steinsen o.fl., fer fram á eigninni sjálfii mánud. 8. febrúar ’88 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru: Bæjarsjóður Kópavogs, Brunabótafélag íslands, Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi og Útvegsbandi íslands. BÆJARFÓGETKN í KÓPAV0GI Barn $ tur þægilega og öruggt í barnabílstó! Það á það skilið! ÍUMFERÐAR : RÁÐ Afsöl og sölutilkynningar Ertu að kaupa eða selja bil? Þá höfum við handa þér ókeypis afsöi og sölutilkynningar á smáauglýsingadeild
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.