Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988. 45 Islensk tunga V áleg tíðindi og nokkur nýyrði Eins og allri þjóðinni er kunnugt þá tefldi Jóhann Hjartarson einvígi við Kortsnoj í Kanada fyrir skemmstu. Allt gekk eins og í sögu framan af og þjóðin varð afskap- lega kát. En þá tapaði Jóhann ailt í einu skák. Þetta var óttalegt at- hugunarleysi hjá manninum, honum átti að vera löngu ljóst að íslenskir skákmenn tapa ekki fyrir útlenskum skákmönnum. Viðbrögð létu ekki á sér standa. Þeir sem voru búnir að birgja sig upp af’brennivíni til að halda sigur- hátíö gátu að vísu skolað niður drykknum en af allt öðru tilefni. Frétta- og blaðamenn létu heldur ekki sitt eftir liggja og var helst á þeim að heyra að Jóhann hefði svikist illilega aftan að þjóð sinni. í ríkissjónvarpinu mátti sjá döp- ur andlit og sorgmædd og alvarleg- ar raddir hrópa hástemmd orð. Þar mátti meðal annars heyra talað um reiðarslag og váleg tíðindi. Auðvitað var það leiðinlegt að Jóhann skyldi tapa skákinni en ég held að ofmælt sé að tala um reiðar- slag og váleg tiðindi. Orðið reiðar- slag getur þýtt mjög þungt áfall og váleg tíðindi eru mjög illar fréttir. Þetta eru orð sem vel má nota við mannsmorð og náttúruhamfarir og það þegar menn fara að gera stríð en varla um tap í skák; jafnvel þótt um sé aö ræða íslenskt tap. Nokkurný orð Stundum kemur það fyrir aö finna þarf ný orð af því að heimur- inn stendur ekki kyrr en er í sí- felldri þróun. Eitt orð heyrði ég um daginn haft yflr þá eiginmenn sem berja eigin- konur sínar að staðaldri. Það er oröið heimilisboxari. Mér er á hinn bóginn ókunnugt um hvort það notast einnig yfir eiginkonur sem berja eiginmenn sína. Hitt er orðið leiðbeinandi. Það er reyndar ekki alveg nýtt en er haft yflr þá sem stunda kennslustörf án þess að hafa til þess tilskilin rétt- indi. Sumir, sem hingað til hafa verið kallaðir kennarar og heita nú leiðbeinendur, eru að vonum fúlir og kannski ekki síst af því að þeir hafa lakara kaup fyrir bragð- ið. Einn leiðbeinandi kom til mín um daginn og bar sig aumlega. Hann vildi frekar kalla sig leiðbeininga- mann og jafnvel að skrifa það svona: (leið)beiningamaður til að undirstrika „launalega sérstöðu sína“ eins og það er stundum kall- að. Síðan spurði hann mig af hverju réttindalausir skólastjórar mættu kalla sig skólastjóra og bað mig um að stinga upp á einhverju viðeig- andi heiti. I ríkissjónvarpinu mátti sjá döpur andlit og sorgmædd og alvarlegar raddir hrópa hástemmd orð. Islensk tunga Eiríkur Brynjólfsson Og mér datt i hug að kalla rétt- indalausa skólastjóra leiðtoga. Ný merking? Fyrirsagnir dagblaða eru oft skemmtilegar. Ein blasti við mér á forsíðu Þjóðviljans fóstudaginn 29. janúar sl. Þar stóð: Sparifjáreig- endur Þriggja miljarða bankarán. Og þótt mér þá vera fokiö í flest skjól ef sparifjáreigendur gerðust bankaræningjar því það gefur augaleið að þeir væru þá að stela eigin fé. En svo las ég greinina undir fyrirsögninni og þar kom í ljós að þessu var öfugt farið. Bank- arnir höföu stoliö fé sparifjáreig- enda. í fyrirsögninni er orðið bankarán ekki notað í merkingunni að ræna banka, eins og venjulegast er, held- ur í hinni, að bankarnir steli því fé sem þar er geymt. Ég varð því glaður að þessi fyrir- sögn boðaði engar breytingar á siðferði þjóðarinnar en staðfesti þvert á móti þá gömlu reglu að sumir mega stela en aðrir ekki. Vísnaþáttur Gluggað í vísnasafn Theodóru Thoroddsen Einn þeirra manna, sem segja má að einna mest heíöu saman við Þórberg Þórðarsson að sælda um fyrri hluta áratugarins þriðja, var Jón Thoroddsen yngri, sonur þeirra Skúla og Theodóru. Hann þótti um margt eitt af glæsilegustu börnum þeirra hjóna, hafði farið inn á nýjar brautir í skáldskap og talinn hklegt foringjaefni fyrir Al- þýðuflokkinn við hlið þeirra Héðins Valdimarssonar og Harald- ar Guðmundssonar. Þeir Þórberg- ur höíðu unnið saman að þýðingum austrænna guðspekirita. Jón var lögfræðingur og í stað hans kom Stefán Jóhann Stefánsson í forystu jafnaðarmanna er Jón lést með slysalegum hætti í Kaup- mannahöfn um áramótin 1924-25. Þessi fregn barst fljótt til Vestur- íslendinga og Guttormur J. Gutt- ormsson orti: Laufgrein brotin er nú af íslands skáldameiði. Ég fmn ilminn ýfir haf upp af hennar leiði. Tómas Guðmundsson, vinur Jóns, orti eitt af sínum snjöllustu kvæð- um og fegurstu. Tvær síðustu ljóðlínurnar eru svona: „Sem sjálfur Drottinn mildum lóf- um lyki um lífsins perlu á gullnu augna- bliki" Hjá fámennri þjóð getur ótímabært frá- fall eins mikils efnismanns orðið afdrifaríkt. Það sannaðist hér. Eins og allir vita var frú Theodóra Thoroddsen, 1863-1952, ágætlegaskáld- mælt. Hún gekkst hiklaust við smásög- um sínum og þulum en tækifærisvisur birti hún i fyrstu í visnaþáttum í Skírni og lét heita svo að hún hefði safnað þeim, þær væru eftir ónefndar alþýðu- konur. Vinurhennar, Sigurður Nordal, gekk frá Ritsafni frú Theodóru og rit- aði formála. Þá var hún látin. Bókin kom út 1960. Má greinilega ráða af orð- um hans að hann taldi vísumar, sem hún eignaði konum, flestar eða allar eftir hana sjálfa. Ofan úr sveitum Ofan úr sveitum hét einn þessara þátta og undirfyrirsögn Nokkrar stökur ortar af sveitakonum. Hann hefst á vísu sem kölluð er gömul staka: Upp til sveita íslenskt mál á sér margan braginn. Raulaðu þá við rokk og nál, reyndu, það styttir daginn. Svo er haldið áfram en hugleiðing- ar fylgja öðru hvoru með frá frú Theodóru: Hugans annál enginn veit, þar ægir svo mörgu saman. En það, sem enginn annar veit, er oft vort besta gaman. Næsta vísan er svona: Lánið bjarta býr hjá mér, bifast vart á fótum. Jón úr Vör Þó er margt, sem þjóð ei sér, er þrengir að hjartarótum. Og svo hver af annarri í líka átt; Um mig vefur arminn sinn einhver hulinn leiði. Eru þetta örlögin, eða hvað er á seyði? Enginn festi á fisi og mund, sem feykist undan vindi. Það er eins um þessa stund, hún þurfti að hverfa í skyndi. Kvennavísur Lífið ef þig leikur grátt, láttu vera að kveina, að hafa um sína harma fátt hjálpin verður eina. Held ég litla harmabót, þá heimur er flár og stríðinn, að ganga út á gatnamót og gráta framan í lýðinn. Það voru einmitt svona vísur sem sumir héldu að Theodóra ætti meira í en hún lét uppi. Hér eru fleiri kveðnar upp á heim- inn, ef svo má komast að orði: Sitt af hvoru öfugt er og ei til lyndisbóta. En heimurinn þegar hlær við mér hans ég reyni að njóta. Ef hann heimur ygglir sig og ætlar að kárna gaman, þá kveð ég hátt um hann og mig og hlæ að því öllu saman. Brotinn pottur, budda tóm og basl er í öllum löndum. Vo'nbrigði og vesaldóm veit ég í flestra höndum. í heiminum er margt til meins, og mörg er lífsins gáta. Mér finnst ég stundum ei njóti neins nema bara gráta. Draumvísur En varla mun þó óhætt að fullyrða að Theodóra hafi ort allar vísurn- ar. Sumar þeirra má kannski finna í öðrum heimildum. Nokkrar voru þjóðsagnalegs eðlis. Hér eru t.d. tvær draumvisur: Þorvaldur prestur Björnsson, er síðast hélt Mel í Húnaþingi, drukknaði þaðan laust eftir síðustu aldamót með þeim hætti að hann féll niður um ís að nóttu til. Þá hina sömu nótt og slysiö bar til dreymdi bónda þar nyrðra að prestur legðist á glugga hjá sér og kvæði: Er á ferðum engin töf, ekki er gott að skilja. Sigli ég yfir sollin höf, svöl er næturkylja. Djúpum ofar hættu hyl, hlaðinn þungum vanda, samt ég horfi sjónum til sólar fegri landa. Á öðrum stað er þetta: í óprentuöu handriti eftir Gísla sagnfræðing Konráösson er þess getið að mann norður á Ströndum, Tómas að nafni, „dreymdi að mað- ur kæmi að sér um nótt og kvæði vísu þessa: Best er að leggja brekin af og bera vel raunir harðar. Nú er meira en hálfsótt haf heim til sælujarðar. Nam Tómas vísuna og sagði frá henni er hann vaknaði." Næsta dag eftir varð hann bráðkvaddur. Þessar síðustu þrjár vísur eru í þætti sem frú Theodóra birti í Skírni og kallaði Draumvísur. Utanáskrift: Jón úr Vör Fannborg 7 Kópavogi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.