Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988.
65
Afmæli
Þorvaldur Steingrímsson
Þorvaldur Steingrímsson, fiðlu-
leikari og skólastjóri Tónlistarskól-
ans í Hafnarfirði, verður sjötugur
á morgun. Þorvaldur fæddist á
Akureyri og ólst þar upp. Hann var
við nám í Tónlistarskólanum í
Reykjavík frá 1934-37, tók fullnað-
arpróf í fiðluleik 1937 og var við
framhaldsnám í The Royal Aca-
demy of Music í London 1946.
Þorvaldur er skólastjóri Tónlistar-
skólans í Hafnarfirði, en hann
kenndi við Tónlistarskólann í
Reykjavík 1943^46. Hann var fiðlu-
leikari Útvarpshljómsveitarinnar
frá 1944, forfiðlari þar frá 1947,
fiðluleikari Sinfóníuhljómsveitar
íslands frá stofnun, aðstoðarkon-
sertmeistari þar frá 1966 og kon-
sertmeistari við Þjóðleikhúsið frá
1966-80. Þorvaldur var formaður
Félags íslenskra hljóðfæraleikara
1953-55, formaður Lúðrasveitar
Reykjavíkur 1976-78 og formaður
Félags íslenskra tónlistarskóla-
stjóra frá 1982.
Fyrri kona Þorvaldar var Ingi-
björg hárgreiðslumeistari, f. 5.5.
1919, d. 8.1. 1966, dóttir Halldórs
Jónssonar, fiskkaupmanns í Rvík,
og konu hans, Sigríðar Sighvats-
dóttur frá Gerðum í Garði.
Þorvaldur og Ingibjörg eignuðust
þrjú böm: Sigríður, f. 12.4. 1941,
leikkona i Rvík, gift Lárusi Sveins-
syni trompetleikara, en þau eiga
þrjár dætur; Kristín, f. 31.10. 1942,
hárgreiðslukona, gift Braga Hall-
dórssyni, skólameistara á Sauðár-
króki, en þau eiga eina dóttur og
Kristín á tvö böm frá fyrra hjóna-
bandi; Halldór, f. 27.9.1950, tækni-
fræðingur og forstjóri í Delton á
Flórída, kvæntur Regínu Valgerði
Scheving, en þau eiga tvö böm og
Valgerður átti dóttur fyrir sem er
kjördóttir Halldórs.
Seinni kona Þorvaldar er Jó-
hanna Hulda, f. 11.8. 1921, dóttir
Lárusar Hanssonar, innheimtu-
manns í Rvík, og konu hans,
Jónínu Gunnlaugsdóttur.
Þorvaldur á nú þrjú systkini á
lífi. Systkini hans: Baldur, f. 3.8.
1907, d. 20.7.1968, deildarverkfræð-
ingur hjá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur, átti Kristbjörgu Guðmunds-
dóttur; Bragi, f. 3.8. 1907, d. 11.11.
1971, héraðsdýralæknir í Biskups-
tungum, átti Sigurbjörgu Lárus-
dóttur; Ingvi, f. 21.8. 1908, d. 20.1.
1911; Anna, f. 16.7. 1910, átti Árna
Kristjánsson, píanóleikara og tón-
listarstjóra Ríkisútvarpsins, en
meðal barna þeirra eru Ingvi Matt-
hías, faðir Magneu rithöfundar, og
Kristján, kennari og heimspeking-
ur; Jón, f. 27.7. 1914, stýrimaður í
Rvík, átti Guðbjörgu Þórhallsdótt-
ur; meybarn, f. 1.9.1916; meybarn,
f. 1.9. 1916; Herdís, f. 23.11. 1921,
átti Sigurð Ólason, lækni á Akur-
eyri.
Foreldrar Þorvaldar voru Stein-
grímur Matthíasson, læknir a
Akureyri, f. 31.3.1876, d. 27.7.1948,
og kona hans, Kristín Thoroddsen,
f. 8.9.1885, d. 7.10.1959. Meðal syst-
kina Kristínar voru Emil tónskáld
og Þorvaldur, forstjóri í Rvík. For-
eldrar Steingríms voru Matthías
Jochumsson, prestur og skáld á
Akureyri, og þriðja kona hans,
Guðrún Runólfsdóttir, systir Þórð-
Þorvaldur Steingrímsson.
ar, foður Bjöms forsætisráöherra.
Foreldrar Kristínar voru Þórður
Thoroddsen, þingmaður og héraðs-
læknir í Keflavík, og kona hans,
Anna Guðjohnsen. Bræöur Þórðar
voru Sigurður landsverkfræðing-
ur, faðir Gunnars forsætisráð-
herra, Þorvaldur náttúrufræðing-
ur og Skúh, þingmaður og ritstjóri
Þjóðviljans á Isafirði. Foreldrar
þeirra bræðra voru Jón Thorodd-
sen, sýslumaður og skáld á Leirá,
og kona hans, Kristín Þorvalds-
dóttir. Faðir Jóns var Þórður
Þóroddsson, beykir á Reykhólum,
sem Thoroddsenættin er kennd
við. Foreldrar Önnu vora Pétur
Guðjónsson, organleikari og tón-
skáld í Rvík, sem Guðjohnsenættin
er kennd viö, og kona hans, Guð-
rún Knudsen. Guðrún var dóttir
Lauritz Knudsen, kaupmanns í
Rvík, sem Knudsenættin er kennd
við, og konu hans, Margrethe Hölt-
er.
Guðrún Lilja Dagnýsdóttir
Guðrún Lilja Dagnýsdóttir hús-
móðir, Faxabraut 22, Keflavík, er
sextug í dag. Hún fæddist í Dags-
brún á Seyðisflrði og ólst þar upp.
Guðrún Lilja átti tvö börn fyrir
hjónaband: Birgir Óttar er vélvirki
í Kópavogi, f. 4.10.1950, á þrjú börn
frá fyrra hjónabandi og er kvæntur
Ástu Samúelsdóttur skrifstofu-
manni; Bryndís Ósk er meinatækn-
ir í Keflavík, f. 29.2.1952, gift Gísla
Grétari Björnssyni húsasmíða-
meistara. Þau eiga tvö böm.
Guðrún Lilja giftist 26.5. 1956
Sveini Ragnari, sjómanni frá Seyð-
isfirði, syni Ásmundar Sveinsson-
ar, sjómanns frá Seyðisfirði, og
konu hans, Emerenstínu Péturs-
dóttur frá Fáskrúðsfirði.
Guðrún Lilja og Sveinn Ragnar
eiga fjögur börn: Ásmundur arki-
tekt, f. 19.3. 1958, kvæntur Önnu
Htibner félagsfræðingi en þau búa
í Buffalo í New York; Dagný, hús-
móðir í Bandaríkjunum, f. 2.11.
1959, gift Michael Richard Cramblit
rafeindatækni en þau eiga tvær
dætur; Steinn Ómar, stýrimaður í
Keflavík, f. 2.5.1961, kvæntur Línu
Þyrí Jóhannsdóttur, en þau eiga
einn son; Emma Kristín, verka-
kona í Keflavík, f. 28.10. 1963. Hún
á einn son.
Guðrún Lilja átti sjö systkini en
tvö þeirra létust ung. Systkini
hennar: Lilja, f. 19.5. 1924, d. 10.8.
sama ár; Siguröur, f. 25.7. 1925,
búsettur í Hafnarflröi; Ólafía, f.
16.7. 1926, búsett í Reykjavík; Leif-
ur, f. 7.3. 1929, d. 3.4. 1930; Björk,
f. 8.7.1930, búsett í Reykjavík; Hlyn-
ur, f. 16.8.1931, búsettur í Reykja-
vík; og Vigdís, f. 16.1.1933, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Guðrúnar eru Dagnýr
Kristinn Bjamleifsson skósmíða-
meistari, en hann er látinn fyrir
fáeinum árum, og eftirlifandi kona
hans, Steinunn Gróa Sigurðardótt-
ir frá Berlín. Föðurforeldrar
Guðrúnar Lilju voru Bjarnleifur
Árni Jón'sson, skósmiður frá Sauð-
Guðrún Lilja Dagnýsdóttir.
árkróki, og kona hans, Ólafía
Kristín Magnúsdóttir. Móðurfor-
eldrar Guðrúnar Lilju voru Sigurð-
ur Eiríksson, útvegsbóndi í Berlín
á Seyðisfirði, og seinni kona hans,
Guðrún Lilja Finnbogadóttir, ætt-
uð úr Húnavatnssýslu.
Til hamingju með daginn
80 ára
Ragnar Jónsson, Skjólbraut 2,
Kópavogi, verður áttræður á morg-
un.
Kkra Tryggvadóttir, Litlahvammi
7, Húsavík, verður áttræð á morg-
un.
Stefán Jón Karlsson, Brekastíg 31,
Vestmannaeyjum, verður áttræöur
á morgun.
75 ára
Helgi Gíslason útgerðarmaður, Að-
algötu 18, Ólafsfirði, verður sjötíu
og fimm ára á morgun.
Kristjana Guðnadóttir, Bleiksár-
hlíð 39, Eskifirði, verður sjötíu og
fimm ára á morgun.
Guðmundur Jónasson, Skólavegi
70, Fáskrúðsfirði, verður sjötíu og
fimm ára á morgun.
70 ára
Þorbjörn Sigurðsson umboðsmað-
ur, Hafnarbraut 24, Höfn í Horna-
firði, verður sjötugur á morgun.
Ragnheiður Gestsdóttir, Ásólfs-
stöðum 1B, Gnúpverjahreppi,
verður sjötug á morgun.
50 ára
Jóhann Guðmundsson, Grænu-
kinn 6, Hafnarfirði, verður fimm-
tugur á morgun.
Kristín Ingveldur Ingólfsdóttir,
Engjavegi 30, Selfossi, verður
fimmtug á morgun.
40 ára
Elías Gíslason, Neðstaleiti 14,
Reykjavík, verður fertugur á morg-
un.
Margrét S. Bárðardóttir, Kögurseli
14, Reykjavík, verður fertug á
morgun.
Þráinn Hallgrímsson, Helgubraut
13, Kópavogi, verður fertugur á
morgun.
Bjarki Leifsson, Vesturgötu 8,
Keflavík, verður fertugur á morg-
un.
Alda Hafdis Demusdóttir, Ásabraut
15, Grindavík, verður fertug á
morgun.
Hallgrímur Einarsson, Vogagerði
15, Vatnsleysustrandarhreppi,
verður fertugur á morgun.
Steinunn Erla Marínósdóttir, Lind-
argötu 20B, Siglufirði, verður
fertug á morgun.
Þorkell Rögnvaldsson, Furulundi
15F, Akureyri, verður fertugur á
morgun.
Arnar Daðason, Vesturkoti,
Skeiðahreppi, verður fertugur á
morgun.
Björn H. Einarsson, Akurgerði 8,
Hrunamannahreppi, verður fer-
tugur á morgun.
Til hamingju með daginn
85 ára
Jón Þorsteinsson bóndi á Kol-
freyju, Fáskrúðsfirði, er áttatíu og
fimm ára í dag.
80 ára
Kristmundur Guðmundsson, Mið-
stræti 5, Reykjavík, er áttræður í
dag.
75 ára
Kristín S. Steinsdóttir, Hvassaleiti
23, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára
í dag.
Alda Halldórsdóttir, Austurvegi 35,
Hrísey, er sjötíu og fimm ára í dag.
50 ára
Helga Þóra Jakobsdóttir, Æsufelli
4, Reykjavík, er fimmtug í dag.
Karl Sesar Sigmundsson, Alfheim-
um 7, Reykjavík, er fimmtugur í
dag.
Einar Halldór Gústafsson, Bláskóg-
um 13, Reykjavík, er fimmtugur í
dag.
Sigurgeir Ormsson, Smiðjuvegi 21,
Kópavogi, er fimmtugur í dag.
Þuríður Sigurjónsdóttir, Háaleiti
5, Keflavík, er fimmtug í dag.
40 ára
Rafn Kristjánsson, Lækjarseli 2,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Rannveig Halldórsdóttir, Klappar-
bergi 15, Reykjavík, er fertug í dag.
Einar Ólafsson, Árbraut 31,
Blönduósi, er fertugur í dag.
Erlendur Sigurðsson, Stóratjarn-
arskóla, húsi 3, Ljósavatnshreppi,
er fertugur í dag.
Jóhann Jónsson, Bröttugötu 27,
Vestmannaeyjum, er fertugur í
dag.
Oddgeir Sigurberg Julíusson
Oddgeir Sigurberg Júhusson
verkstjóri, Þórufelli 10, Reykjavík,
er sextugur í dag. Oddgeir fæddist
á Sæbóli á Álftanesi en ólst upp í
Hafnarfirði til sex ára aldurs og
síðan að Arnarstapa á Snæfells-
nesi. Hann stundaði sjómennsku á
Arnarstapa en flutti til Reykjavík-
ur 1947 þar sem hann stundaði fyrst
sjómennsku, var siðan bifvélastjóri
á þungavinnuvélum og síðan verk-
stjóri hjá Kexverksmiðjunni Frón.
Kona Oddgeirs er Guðbjörg
Bryndís, f. 30.5.1935, dóttir Sigfúsar
ökukennara Gunnlaugssonar og
konu hans, Maríu Brynjólfsdóttur.
Börn þeirra eru: Agúst Gunnar,
verkamaður í Ólafsvík, f. 9.11.1957,
kvæntur Kristbjörgu Sæunni
Ágústsdóttur; Sigrún Júlía, ríkis-
starfsmaður í Reykjavík, f. 8.3.1959,
gift Þorgeiri Hjartarsyni sjómanni;
María Sif, verslunarmaöur í
Reykjavík, f. 4.11. 1957, en hún er
fósturdóttir Oddgeirs og Guöbjarg-
ar.
Oddgeir Sigurberg Júliusson.
Oddgeir átti ellefu systkini en á
nú níu systkini á lífi.
Foreldrar Oddgeirs: Júlíus Sól-
bjartsson' og Agústa Guðríður
Sigurbergsdóttir.
Jón Helgason
Jón Helgason, Skólabraut 41,Sel-
tjarnarnesi, verður sjötugur á
morgun. Jón fæddist að Felli í
Vopnafirði og ólst þar upp. Hann
fór til Reykjavíkur tuttugu og
þriggja ára og stundaöi sjó-
mennsku þaðan í tvö ár, var svo
sex vertíðir í Vestmannaeyjum og
aðrar sex í Sandgerði. Jón stundaði
trésmíðar i ellefu ár og var síðan
sendibílstjóri hjá Þresti í tuttugu
og tvö ár og samtímis vörður í Ut-
vegsbankanum í sex ár.
Kona hans var Kristín Guðjóns-
dóttir, f. 27.7. 1927, d. 5.9. 1979.
Foreldrar hennar: Guðjón, b. á
Bakkahóli í Landeyjum, Guðlaugs-
son og kona hans, Guðbjörg Páls-
dóttir.
Synir Jóns og Kristínar erU: Helgi
Frímann, f. 19.9.1950, stýrimaður í
Keflavík, kvæntur Friði Friðgeirs-
dóttur, eiga þau tvö börn; Sigurður
Þráinn, f. 26.2. 1952, vélstjóri í
Reykjavík, kvæntur Auði Arn-
geirsdóttur, eiga þau þrjár dætur;
Bergvin Fannar, f. 16.6. 1953, vél-
stjóri í Vestmannaeyjum, kvæntur
Önnu Kolbeinsdóttur. Þau eiga tvö
börn.
Jón átti fimm systkini og eru fjög-
ur þeirra á lífi. Systkini hans:
Gunnlaugur Þór, vélstjóri í Vest-
mannaeyjum, en hann fórst 1942;
Jón Helgason.
Jóhanna Magnea, húsmóðir í
Reykjavík; Elín Steinþóra, hús-
móðir á KáraStööum í Þingvalla-
sveit; Haraldur Sófanías,
matsveinn í Reykjavík; Kristján
Hólmsteinn, verkamaður í Reykja-
vík.
Foreldar Jóns: Helgi Magnússon
og kona hans, Matthildur Vil-
hjálmsdóttir. Föðurforeldrar Jóns
voru Magnús á Læknisstöðum á
Langanesi, Jónsson og kona hans,
Jóhanna Helgadóttir. Móðurfor-
eldrar Jóns voru Vilhjálmur, b. í
Sunnudal í Vopnafirði, Jónsson, og
kona hans, Þóra Þorsteinsdóttir.
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur
þeirra til að senda því myndir og upplýsing-
ar um frændgarð og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta
lagi tveimur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir