Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Page 26
26
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988.
Popp
13 V
ian skein sól í æfinga
kemúrfýíst’fi'am upp;
miö[úm ntánuóiriilm:
DV-mynd Kristján'Ari
Undir fótum Agnars, byssusmiös á Grettis-
götunni, er oft býsna líflegt þessa dagana. Og
meira að segja dálítiö hávaöasamt eins og vill
veröa þegar liðsmenn rokkhljómsveita æfa sig.
Rúmu ári eftir aö hljómsveitin Síðan skein sól
var stofnuð er hún vöknuö til lífsins á ný eftir
margra mánaöa svefn.
„Þaö var einfaldlega endaiaus tímaskortur sem
geröi þaö að verkum að Síöan skéin sól hvarf af ,
sjónarsviðinu í fyrrasumar,“ segir Helgi Bjöms-
son söngvari. „Viö sjáum nú fram á bjartari tíð
og ætlum að reyna að spila sem oftast og mest,
aö minnsta kosti fram á vor.“
Auk Heiga eru í Síðan skein sól þeir Jakob
Magnússon bassaleikari, Eyjólfur Jóhannsson
gitarleikari og Ingólfur Sigurösson trommari.
Ingólfur settist viö settiö í staöinn fyrir Pétur
Grétarsson. Hann lék áöur meö Rauðum flötum
og Blátt áfram og er aö sögn Helga „ungur, ljós-
hærður og geysilega efnilegur."
Ungir áheyrendur
Síðan skein sól kemúr fyrst fram þann 18. þessa
mánaðar í Lækjartungli. En hvaö svo meö fram-
haldið?
„Okkur langar til aö spila virkilega mikið, setja
saman eins konar sýningu og fara meö hana
milli staöa,“ segir Helgi Björnsson. „Þaö er ofar-
lega á stefnuskránni hjá okkur að reyna aö glæöa
áhuga unga fólksins - grunnskólanemanna - á
rokktónhst. Við viljum gjarnan ná til þess hóps,
komast í skólana tii aö spila fyrir krakkana og
svo náttúrlega einnig í félagsmiöstöðvarnar."
ÖU dagskrá hljómsveitarinnar Síöan skein sól
verður frumsamin. Fjórmenningarnir semja lög-
in saman og Helgi sér um textasmíði. Er íslenskir
tónhstarmenn gáfu út plötu til styrktar vímu-
lausri æsku á síöasta ári átti Síðan skein sól þar
eitt lag, Skemmtilega nótt. Er þaö dæmigert fyrir
tónlistarstefnu hljómsveitarinnar?
„Jaa,“ svarar Helgi hugsi. „Þaö má kannski
segja það... Æth Skemmtileg nótt sé ekki dæmi
um miðjuna í prógramminu hjá okkur.
Ég vil leggja á þaö áherslu," bætir hann viö,
„að okkur langar til aö spila virkilega mikið.
Ekki einu sinni til tvisvar í viku, vera svo aö-
gerðalausir í eina og spila kannski einu sinni þá
þarnæstu. Meö slíku móti ná hljómsveitir aldrei
almennilega saman og verða virkilega þéttar. Við
setj um stefnuna á að verða þétt band! “ -ÁT-
Bítlavinafélagiö leítar I íslensk dægurlög sjöunda áratugarins á þriöju
plötu sina.
Islensku bítlalögin
á plast á nýjan leik
Bítlavinaféiagiö er ekki dautt úr
öUum æðum þótt gítarleikari þess,
Stefán Hjörleifsson, stundi nú nám
vestanhafs. Þótt félagiö komi ekki
fram opinberlega hefur þaö ýmis-
legt á pijónunum. Þar á meöal
plötu sem væntanlega var hafist
handa við í vikunni.
„Viö verðum ekki raeð neitt
frumsamiö aö þessu sinni. Aöeins
gömul íslensk dægurlög - gömlu
bítlalögin,“ segir Rafn Jónsson.
„Mörg þessara laga eru hætt aö
heyrast. Plöturnar eru löngu upp-
seldar og flestar ónýtar. Viö ætlum
með þessu að koma gömlum úrv-
alslögum á framfæri á ný.“
Lögin sem ákveðið hefur veriö
að hljóðrita eru Glugginn, Gvendur
á Eyrinnni, Kling-klaiig, Ertu
með?, Leyndarmál, Það er svo und-
arlegt með unga menn, Ég er frjáls,
Léttur i lundu, Miðsumarnótt,
Dimmar rósir, Vetrarnótt og
Skuldir.
• „Við ætlum aö hafa lögin fjórtán
i aht og eigum þar af leiðandi eftir
að velja tvö til viðbótar," segir
Rafn. „Þaö kemur jafnvel til greina
að taka einhver sem aldrei voru
gefm út. Það er þó ekki endanlega
ákveöiö."
Bítlavinafélagið áformar að láta
upprunalegar útsetningar laganna
halda sér að mestu. í mesta lagi
verða gerðar smávægilegar breyt-
ingar á tveimur eða þremur.
Auk Rafns Jónssonar eru i Bítla-
vinafélaginu þeir Jón Ólafsson,
Haraldur Þorsteinsson, Eyjólfur
Kristjánsson og Stefán Hjörleifs-
son. Þeir sjá aö mestöllu leyti um
flutning gömlu bítlalaganna sjálflr
nema hvað þeir hafa boöið tveimur
gömlum poppstjörnum að koraa
fram og syngja sitt lagið hvor.
Hvetjar skyldu þessar gömlu popp-
stjörnur vera?
„Þær vilja ekki láta naflis síns
getið,“ svarar Rafn. „Það kemur
bara í Ijós þegar platan kemur út. “
-ÁT-
n i • •• n / / • Helgarpopp
ðtjomuians a nyju
Melody Makersplötunni
Næsta plata Ziggy Marley and the Melody Makers
ætti að hljóma vel. Auk Marleys koma fram á henni
systkini hans Stephen, Sharon og Cedella, öll börn
reggaekóngsins látna, og hjónin Tina Weymouth og
Chris Frantz út Talking Heads sem jafnframt eru upp-
tökustjórar plötunnar.
Og íleiri mættu til leiks er platan var hljóðrituð ein-
hvers staðar á hlýlegri eyju í vetur. Jerry Harrison,
gítarleikari Talking Heads, fékk aö spila á píanó í einu
lagi. í því syngja systur Tinu úr Tom Tom Club bakradd-
ir. Og gamh gítarjálkurinn Keith Richards spilar meira
aö segja í einu lagi, Lee and Molly.
Hvernig líkaöi þeim hjónum, Tinu og Chris, svo aö
vinna með Ziggy Marley og systkinum hans?
„Það var ákaflega gaman. Ziggy er raunar mjög góöur
söngvari og sýndi okkur fram á hversu vel er hægt að
syngja á náttúrlegan hátt - með eðlilegri röddu.-Viö
þekkj um slíkan söng einungis af afspurn enda vönust
röddinni hans Davids Byrne!“
Tina Weymo-
uth og Chris
Frantz ásamt
Ziggy Marley
sem ku vera
farinn að
hljóma ákaf-
lega líkt og
faðirhans,
Bob Marley,
gerði.
Rod Stewart til Kína
Rod Stewart ætlar að hefja næstu
hljómleikaferö sína um heiminn í
Kína. Minna dugir ekki á þessum
síöustu og verstu tímum. Hann
áformar aö spila í Kína í apríl.
Ste.wart hefur að undanförnu unn-
iö að nýrri plötu. Meðal þeirra sem
þar koma fram eru Andy Taylor, sem
eitt sinn lék í hljómsveit sem kallast
Duran Duran eöa eitthvaö svoleiöis,
Tony Thompson trommuleikari og
Bernard Edwards bassisti. Tveir þeir
síöarnefndu léku saman í Chic og
Tony og Andy spiluðu með Power
Station.
Ný smáskífa með Stewart er vænt-
anleg á hverri stundu en hvað á sú
stóraaöheita?
„Þaö hef ég ekki hugmynd um,“
svarar sá rámi. „Kannski Afsakiö
fortíö mína (Pardon My Past).“
Rod Stewart og fjölskylda - Kelly Emberg og Ruby Rachel Stewart.