Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Side 60

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Side 60
/'ti F R F Hafir þú ábéndingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjáist,óháð dagblað LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988. Líklegast að Bandaríkjamenn kosti ný vatnsból „Bandaríkjamenn gera sér fyllilega grein fyrir því aö um gífurlegar skaðabætur getur verið að ræða ef olia kemur fram í vatninu og því muni líklega véra ódýrast fyrir þá að kosta ný vatnsból,“ sagði Stein- grímur Hermannsson utanríkisráð- herra en í viðræðum hans og James Webb, flotamálaráðhérra Bandaríkj- anna, var mengunarslysið við her- stöðina við Keflavík einmitt tekið fyrir. Steingrímur sagði að Webb hefði verið gert ljóst að líklega yrði að finna ný vatnsból og hefði það kom- ist vel til skila enda Bandaríkja- mönnum umhugað að leysa þessi naál farsællega og þeir gerðu sér fylli- lega grein fyrir skyldum sínum. Þá sagði ráðherra að meðal íslenskra ráðamanna væri engin spurning um að varnariiðið ætti að kosta þær breytingar sem yrði að gera vegna olíulekans. -SMJ Sexmanna- nefrídin ákveður verðið „Það eru fyrirmæli um það í bú- vörulögunum að berist beiðni til nefndarinnar frá löglegum samtök- um framleiðenda og stéttarsamtök- um bænda þá beri nefndinni að taka þetta fyrir,“ sagði Baldur Óskarsson sem á sæti sem fulltrúi neytenda í sexmannanefndinni svokölluðu en nefndin mun nú finna verðlags- grundvöll á verð til bænda sem framleiða egg, kjúklinga og kartöfl- ur. Það fellur hins vegar í hlut fimmmannanefndarinnar svoköll- uðu að finna verðgrundvöll á slátr- unar- og heildsölukostnað. Það er því i-Aáfjóst að nefndimar eiga mikið starf fyrir höndum. Fulltrúar neytenda í nefndiftni lögðu fram bókun á fundi nefndar- innar í gær þar sem þeir harma að viðkomandi framleiðendur skuli nú óska eftir opinberri verðlagningu á vörur sínar. -SMJ Hjaitaþeganum líður vel og losnaði úr einangrun í gær: Axel T. Ammendrup, DV, London „Það urðu miklir fagnaðarfundir þegar Halldór Halldórsson, sem gekkst undir hjarta- og lungna- skiptaaðgerð á þriðjudagskvöld, tók á móti foreldram sínum, þeim Halldóri Sigurðssyni og Aðalheiði Guðmundsdóttur, í gær. Hann Halldór Halldórsson, fyrsti islenski hjartaþeginn, liggur enn á Old Court-spitalanum i London þar sem hann var skorinn upp annan febrúar. DV/Simamynd Reuter/ATA losnaði úr einangrun um hádegis- bilið og þá fengu foreldrar hans að líta til hans. Þau hafa beðið í Eng- landi frá því í september eftir aö Halldór gengist undir aðgerðina,“ sagði Jón A. Baldvinsson, sendi- ráðsprestur í London, í samtali við DV í gærkvöldi. „Batiim hefur orðið eins og best verður á kosið. Halldór hefði átt að losna úr gjörgæslu í gær. Hann hefði þá verið fluttur til Harefield- sjúkrahússins, en þar mun hann dvelja næstu vikumar í eftirmeð- ferð. Vegna þrengsla á Harefield- sjúkrahúsinu gæti dregist að flytja Halldór í einn til tvo daga.“ Foreldrar Halldórs voru í sjö- unda himni eftir að hafa hitt hann í gær. Hann var hress í máli, glað- legur og alltaf stutt í brosiö hjá honum. Þau sögöu aö hann hefði ekki litið svona vel út í mörg ár. Litaraftiö var eðlilegt og hann var laus við súrefnisslöngur sem hann hefur orðið aö ganga með á annað ár. Jóhann í hóp átta bestu skákmeistara heims ÞRðSTllR . 68-50-60 VANIRMENN Eftir stórkostlega taflmennsku í gærkvöldi sigraði Jóhann Hjartar- son Viktor Kortsnoj í 39 leikjum. Kortsnoj féll á tíma með gjörtapaða stöðu. Þegar klukkan féll rétti Kortsnoj Jóhanni höndina, stóð upp og strunsaði út úr salnum. Það var sigurbros á andliti Jóhanns. Það fer ekkert á milli mála að árangur Jó- hanns hér í Saint John er mesta skákafrek sem íslendingur hefur unnið. Með því að sigra Viktor Kortsnoj hefur Jóhann tryggt sér sæti í átta manna úrslitum um rétt- inn til að tefla við sjálfan heims- meistarann Garry Kasparov ásamt þeim Timman frá Hollandi, Short frá Englandi, Speelman frá Englandi, Yusupov frá Sovétríkjunum, Port- isch frá Ungverjalandi, Anatoly Karpov og annaðhvort Sjokolov eða Spragett frá Kanada. Hér er að sjálfsögðu ríkjandi óskap- leg gleði meðal íslendinganna á staðnum og ekki bara þeirra heldur allra stórmeistaranna. Aflir ensku stórmeistaramir, sem sátu í blaða- mannasalnum, ráku upp siguröskur er Kortsnoj gafst upp. Þegar leiknir höfðu verið 28 leikir og taugar okkar íslendinganna voru þandar til hins ýtrasta hitti ég gamla stórmeistara og fyrrum heimsmeist- ara, Mikhail Tal. Hann brosti breitt og klappaði á öxflna á mér og sagði: „Þinn maður hefur yfirburðastöðu. Nigel Short, enski stórmeistarinn, öskraði manna hæst er Kortsnoj gafst upp, enda eru þeír Jóhann mikflr vinir. Hann sló brosandi á öxlina á mér og sagði: „Skilaöu ham- ingjuóskum mínum til íslensku þjóðarinnar.“ -S.dór Ég hef tekið þá ákvörðun að læra manngariginn! Veðrið um helgina: Austanátt og snjókoma sunnan- lands Á sunnudag og mánudag verður austlæg og suðaustlæg átt á landinu, víða snjókoma sunnan- og vestanlands en þurrt norðaustan- lands. Frost verður á bilinu 1 til 8 stig. Bensínið lækkar í 31,90 kr. Bensínið lækkaði í dag og kostar nú bensínlitrinn 31,90 kr. en kostaði síðan 1. nóvember 33,70 kr. Þetta er 5,3% lækkun sem stafar af lægra inn- kaupsverði og lækkandi gengi doll- ars. Það má búast við að þetta bensínverð gildi í um tvo mánuði, á meðan birgðir endast. Olíufélögin óskuðu eftir þessari lækkun 25. janúar en óvenjulengi hefur dregist að ákveða hvort af lækkun yrði. Þess má geta að sVartol- ía lækkar um 14,5% af sömu ástæð- um og kostar nú tonnið 5.900 kr. en kostaði 6.900 kr. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.