Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1988, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988.
Olafur Þ. Þórðarson - „Eg hef ekki beitt málþófi í bjórmálinu.“
DV-mynd KAE
irnar eru mótaðar af áróðrinum en
það kann að snúast við.“
- Þú neitar að þið andstæðingar
málsins beitið málþófl og reynið að
tefja málið. Samt stóðst þú á mið-
vikudaginn fyrir orðaskaki út af
þingsköpum þegar átti aö ræða mál-
ið. Er þetta ekki málþóí?
„Það var leiðinlegt þetta atvik sem
gerðist þá og þingskapaumræðan
spannst af. Meinið var það aö svo
virtist að það væri vegna þess að
klukkan væri fimm að ég vildi ekki
áfram. Ég lýsti þá yfir við forseta að
ég væri reiðubúinn að tala. Þetta er
skjalfest. Hins vegar spurði ég for-
seta að því fyrr um daginn, vegna
þess að ég hafði áhuga á að ganga frá
ákveðnum hlutum í samráði við aðra
aðila, hvað þingfundur yrði langur.
Mér var sagt að hann stæði til fimm.
Þá sammæltist ég við aðra um ákveð-
ið verk sem ég var að fara að vinna.
Argur út í forseta
Ég var argur mjög yfir aö ekki
væri hægt að treysta forseta í þessum
efnum. Við þingmenn sátum hér
milli jóla og nýárs að vilja forseta og
ég skorast ekki undan að sitja kvöld-
fundi. En mér finnst það líka
mannréttindamál mitt sem þingmað-
ur að ég geti treyst orðum forseta og
hafi vissu fyrir því að ég fái tíma
fyrir mig.
Við skulum örlítið átta okkur á
stöðunni. Það er enn nægur tími til
að klára þessa umræðu. Forseti neðri
deildar getur haldið kvöldfund hve-
nær sem hann vill og klárað
umræðuna. Það strandar ekki á mér.
Hinum var líka í lófa lagið að flytja
breytingartillögur við frumvarpið og
koma þannig í veg fyrir að það færi
aftur til nefndar. Þeir höfðu meiri-
lilutann til þess. Bjórinn hefur alltaf
fallið hér í þinginu vegna þess að það
hefur ekki verð samstaða milli þing-
manna sem vilja bjórinn um af-
greiðsluna. Málið hefur ekki
strandað vegna þess að við andstæð-
ingar málsins höfum staðið í vegi
fyrir því. Þetta mál fer til atkvæða
hér í neðri deild. Það má treysta því."
Hverjir eru
sérfræðingar?
- Nú gengur bjórmálið þvert á
allar flokkslínur og bæði framsókn-
armenn og sjálfstæðismenn komnir
í hár saman. Stafar þetta af mismun-
andi íhaldssemi í flokkunum eða
hvað?
„Ég held að þetta mál geti aldrei
skipt mönnum í stjórnmálaflokka.
Það eru ólík viðhorf til þess í öllum
flokkum. Menn vilja ekki nema fáir
hlusta á að einn eða neinn geti verið
sérfræðingur í þessu máli. Læknarn-
ir, sem skrifa undir áskorunina, eru
ef til vill búnir að kynna sér þetta
mál meira en aðrir.
Ég er þó ekki viss um að tannlækn-
ar eða augnlæknar, svo ég nefni
dæmi, þuríi endilega að vera svo vel
að sér um áfengismál þótt þeir geti
vissulega verið það. Ég tel að sumir
menn séu sérfræðingar á þessu sviði.
Það eru þeir menn sem hafa unnið
að þessum málurii hvort sem það eru
læknar hjá SÁÁ eða læknar á Kleppi
þar sem áfengissjúklingar koma."
- Þú kallar sem sagt þá sem eru á
móti sérfræðinga?
„Ég er að segja það aö starfs-
reynsla geðlæknisins á Borgarspítal-
anum, sem hefur skrifað mikla grein
um þetta mál, hlýtur að hafa meira
um málið að segja en skoðun læknis
sem hefur ekki komið nærri því. Ég
veit að vísu ekki hvernig störfum er
skipt með geðlæknum á spítölunum
en ég geri ráð fyrir að hann tali af
reynslu."
Gæti orðið
kosningamál
- Verður bjórinn samþykktur í
vor?
„Það veit ég ekki en verði meiri-
hluti fyrir því að leyfa bjór þá verður
ekki gerð tilraun til að breyta slíku
fyrr en eftir næstu kosningar."
- Gæti bjórinn þá orðið kosninga-
mál ef hann verður samþvkktur?
„Það færi eftir hver reynslan yrði."
- Nú virðist oft sem þið séuð með
andstöðu ykkar að verja vígi og mál-
ið sé endanlega tapaö ef vígið fellur
einu sinni. Bindið þið einhverjar
vonir við endurskoðun?
„Málið er ekki svona einfalt. í Sví-
þjóð hefur bjórinn lengi verið átaka-
mál og þar hefur verið hlaupið frá
einni reglunni til annarrar. En þegar
menn segja að það sé verið að verja
ákveðið vígi þá eru íslendingar aö
sumu leyti vegna legu sinnar betur
í stakk búnir til að hafa stjórn á sín-
um málum heldur en ýmsar aðrar
þjóöir.
Mér finnst að þessi þjóð hafi frá
seinustu aldamótum lifað sigur-
göngu í uppbyggingu þessa lands.
Viö voru heilli öld á eftir nágrönnum
okkar að komast út úr barnadauðan-
um. Við nálgumst stöðugt að geta
staðið jafnfætis þessum þjóðum á
flestum sviðum og á sumum sviðum
eru viö komnir lengra. Allt sem veik-
ir þessa þjóð er að mínu viti mistök.
Við erum oft spuröir af hverju við
séum á móti veikustu áfengistegund-
inni þegar vitað eru að hinar eru
skaðlegri. Sem betur fer er stærð-
fræðikennsla á íslandi í þó nokkuð
góðu lagi og allir sem komnir eru upp
úr grunnskóla ættu að vita hvernig
á að fara að því að gera sterkari
drykki veika," sagði Ólafur Þ. Þórð-
arson.
-GK
EGiLL VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202
Jeep
TIL SÖLU
Cherokee Chief árg. 1987, 5 dyra, rauður,
6 cyl., 4.0 I, 173 ha vél, 5 gíra.
Cherokee Pioneer árg. 1987, 5 dyra, rauð-
ur, 4ra cyl., 2.5 I, 121 ha vél.
Wagoneer Limited árg. 1985, 5 dyra, 6 cyl.,
sjálfskiptur og m/öllu.
Jeep Eagle stw. árg. 1987, 5 dyra, 6 cyl.,
4.2 I vél, litur hvítur/brúnn.