Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1988, Side 60
FRETTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá f sfma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað I DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - DreiFpg: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988.
Tólfárfyrir
manndráp
Einar Sigurjónsson hefur í Saka-
dómi Njarðvíkur verið dæmdur í tólf
ára fangelsi fyrir að hafa með ásetn-
ingi orðið Ingólfi Ómari Þorsteins-
syni að bana i verbúð í Innri-Njarð-
vík 29. ágúst 1987. Sigurður Hallur
Stefánsson, héraðsdómari kvað upp
dóminn.
Einar, sem þá var 23 ára, og Ingólf-
ur Ómar, 25 ára, voru báðir mjög
ölvaðir þegar atburðurinn átti sér
stað. Til átaka á milli þeirra kom.
Einar stakk Ingólf Ómar með hnífi í
'ijartaö og lést Ingólfur Ómar sam-
stundis.
Ákæra var gefm út 23. nóvember
1987.
Einar var dæmdur til að greiða
sakarkostnað, 167 þúsund krónur. 60
þúsund króna sakarkostnað í ríkis-
sjóð og verjanda sínum, Páli A.
Pálssyni hæstaréttarlögmanni, 90
þúsund krónur.
Einar Sigurjónsson er í gæsluvarð-
haldi og verður þar til dómur
Hæstaréttar í málinu fellur. -sme
Tveggja ára
fangelsi
Jóhannes Hólm Reynisson. fyrr-
verandi starfsmaður Fasteignasöl-
unnar Eignanausts, hefur verið
dæmdur í Sakadómi Reykjavíkur í
tveggja ára fangelsi og til að greiða
13 aðilum rúmlega 6,6 milljónir í
bætur, auk vaxta.
Jóhannes Hólm var ákæröur fyrir
að hafa með íjársvikum, fjárdrætti
og skjalafalsi náð undir sig 11,5 millj-
ónum króna frá 20 aðilum. Verömæt-
in voru ýmist í peningum eða
verðbréfum. Svikin, sem kærð voru,
stóðu yfir frá því í ágúst 1984 og fram
í apríl 1987.
Jóhannes Hólm hefur gert upp við
fáeina aðila og einhverjir aðilar
gerðu ekki kröfu á hendur honum.
Hann var dæmdur til að greiða all-
an sakarkostnað, 100 þúsund krónur.
Bragi Steinarsson, settur ríkissak-
sóknari, ílutti málið af hálfu ákæru-
valdsins. Settur verjandi Jóhannesar
Hólm. var Kjartan Reynir Ólafsson
hæstaréttarlögmaður. -sme
oo'0ilAsroo
þrqstiir
68-50-60
VANIR MENN
Eysteinn Helgason í viðtali við fréttamann DV í Bandaríkjunum:
BrottrekstuHnn
kom mér á óvart
Ólalur Amarson, DV, Hanisburg:
Eysteinn Helgason, fyrrverandi
forstjóri Iceland Seafood Corpor-
ation, játti því í samtali við frétta-
mann DV að aðdragandi brott-
reksturs síns og Geirs
Magnússonar heíði verið langur og
atburðarásin hefði stigmagnast.
Hann vildi lítið tjá sig um máliö en
sagði þó að ákvörðun stjórnar Ice-
land Seafood Corporation í vik-
unni, um aö reka hann og Geir,
hefði komið sér verulega á óvart.
Eysteinn og kona hans, Kristín
Lúðviksdóttir, sögðu í samtali við
DV að þeim þætti þessi skyndilegi
brottrekstur furöuleg framkoma
gagnvart þeim og tjölskyldu þeirra.
Þegar þau fluttu til Bandarikjanna
fyrir einu og hálfu ári bjuggust þau
viö að vera hér í að minnsta kosti
fjögur ár og seldu þvi hús sitt á
Islandi. Börn þeirra væru í skóla í
Bandaríkjunum og nú væri mitt
skólaár og því ómögulegt að flytja
frá Bandaríkjunum fyrr en í vor.
Eysteinn sagði að þessi ákvörðun
væri enn furðulegri með tilliti til
þess að Iceland Seafood stæði mjög
traustum fótum og undir hans
stjórn hefði hagnaður fyrirtækis-
ins aukist verulega, auk þess sem
markaðshlutdeild Iceland Seafood
á Bandaríkjamarkaði hefði aukist
þótt markaðurinn heföi staöið í
stað.
Eysteinn héfur ráðiö Ragnar Að-
alsteinsson hæstaréttarlögmann til
að gæta hagsmuna sinna, en að
sögn Eysteins er fyrsta verkefni hjá
honum að hreinsa sig af öllum grun
um misferli af einhverju tagi. Þessi
málsmeðferð hefði verið líkust því
að hér hefði stórglæpamaður átt í
hlut. „Ég ætla að athuga um það
aö leita réttar míns og vil ekki að
ferill minn sé skaðaður frekar en
nauðsynlegt er,“ sagði Eysteinn
sem í gærkvöld hélt til íslands.
- sjá frekari fréttir á bls. 2
íslandsklukkan komin:
Verður sýnd í
Háskólabíói
á
„Ég vissi að þetta mundi allt ganga
vel og ég er afskaplega ánægður með
að klukkan skuli vera komin hér í
hús,“ sagði Þór Magnússon þjóð-
minjavörður þegar hann tók við
íslandsklukkunni frá Tröllatungu á
Þjóðminjasafninu í gærkvöld. Al-
menningi gefst kostur á að skoða
klukkuna í Háskólabíói á morgun.
Klukkan kom með sendiráðspósti
til landsins í gær en sendiráðið í
London hafði milligöngu um heim-
flutninginn. Það var Kristján
Ragnarsson, starfsmaður utanríkis-
ráðuneytisins, sem kom með klukk-
una á Þjóðminjasafnið og afhenti Þór
gripinn eftir að hafa khppt innsigli
ríkisins af sendiráðspokanum.
Klukkan er metin á 650 þúsund
krónur. Nú stendur yfir sofnun á
vegum Þjóðminjasafnsins til kaupa á
klukkunni og hafa safnast vel á ann-
að hundrað þúsund krónur. Söfnun-
in hefst þó ekki fyrir alvöru fyrr en
Þór Magnússon hampar Islandsklukkunni. Klukkan er nú komin í vörslu Þjóðminjasafnsins. klukkan verður komin á sýningu.
DV-mynd Brynjar Gauti -GK
morgun
LOKI
Ener þá Ijóst hverjum
íslandsklukkan glymur?
Veðrið á sunnudag
og mánudag:
Breytilegátt
og frostlaust
vestanlands
Á sunnudag og mánudag verður
fremur hæg vestlæg eöa breytileg
átt, skýjað og líklega dálítil súld
vestanlands en úrkomulaust að
mestu annars staðar og bjart veður
á Suðaustur- og Austurlandi.
Sennilega verður vægt frost norð-
austanlands en frostlaust í öðrum
landshlutum.
Fundað stíft
um efnahags-
aðgerðir
Mikil fundarhöld hafa staðið í allan
dag vegna fyrirhugaðra efnahags-
ráðstafana og hófst fundahrinan með
fundi efnahagsnefndar ríkisstjórnar-
innar klukkan 9 í gærmorgun.
í gær stóðu síðan fundir linnulítið.
Búist er við að fundir verði alla helg-
ina um efnahagsmálin og hafa
þingflokkar stjórnarflokkanna verið
boðaðir á fund klukkan 14 á sunnu-
dag. -ój
- sjá nánar fréttir Us. 2