Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1988, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1988, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988. Sakamál Unga, laglega afgreiðsl- ustúlkan í bar gistihúss- ins fannst myrt í dimmu skoti. Það var greinilegt að henni hafði verið mis- Dyrmt. En morðinginn íafði skilið eftir vísbend- ingu um hver hann var. Sagan hefst aö kvöldi föstudagsins 1. ágúst 1986 í barnum í Wellingtongistihús- inu í Birkenhead á Englandi. Þar var þá margt um manninn og gestirnir í kátara lagi. Þaö var heldur ekki aö undra því þetta var sá dagur vikunn- ar er margir fengu laun sín greidd og þar að auki var fríhelgi framund- an. Um beina gekk uppáhald flestra gestanna, Díana Sindall, tuttugu og eins árs gömul, lagieg stúlka. „Hún er stefnuföst“ var lýsing sem síðar var gefin á Díönu. Þaö voru líka orð að sönnu því hún var vinnusöm og átti sér markmið í lífinu. Á daginn rak hún blómabúð sem hún átti en á kvöldin gekk hún um beina í bar Welling- tongistihússins. Hún var lofuð og var að spara fé til heimihsins sem hún ætlaði að eignast og brúðkaupsferð- arinnar sem framundan var en hún og unnusti hennar ætluðu til Kaup- mannahafnar. „Vanaföst“ var einnig sagt að Díana hefði verið og það fékk lögreglan sann- reynt þegar hún hafði haft þetta mál til rannsóknar um hríð. Á hverju kvöldi eftir lokun ók Díana unnusta sínum, Davið Beattie, sem var tutt- ugu og tveggja ára, í gömlum sendi- ferðabíl, sem hún átti, til einhvers matsölustaðar þar sem þau fengu sér eitthvaö að borða. Þennan hátt ætluðu þau einnig að hafa á þegar Díana kæmi frá gisti- húsinu um hálftólfleytið þetta fóstu- dagskvöld. Hún var hins vegar þreytt að lokinni vinnu um daginn og leið ekki sem best. Og það kann að hafa verið ástæðan til þess að hún hafði ekki tekið eftir því að bíllinn hennar var bensínlaus. Davíð Beattie. Díana kemur ekki heim Um klukkustundu eftir lokun barsins í Welhngtongistihúsinu var Davíð ekki farinn að heyra neitt frá Díönu. Hann hringdi þá heim til hennar en þangað hafði hún ekki komið. Því hringdi hann til gistihúss- ins en þar vissi enginn neitt um hana heldur. Davíð leist nú ekki á blikuna og hafði samband við lögregluna. Hún fór þegar að svipast um eftir Díönu og skömmu síðar fannst bíll hennar á stæðinu bak við gistihúsið. í ijós kom við athugun að ekkert bensín var á honum. Þá var farið að ræða við afgreiðslumenn á bensínstöðv- um, sem opnar voru í nágrenninu, til þess að kanna hvort hún hefði komið í einhverja þeirra til þess aö kaupa bensín en enginn kannaðist við að hafa séð hana. Frekari rann- sókn um nóttina leiddi í ljós að enginn strætisvagnstjóri kannaðist heldur við að hafa séð hana. Lögreglan og sjónvarpið settu nokkur atriði málsins á svið og sýndu þá meðal annars leiðina sem Díana gekk frá bílnum sínum. „Það er eins og jörðin hafi gleypt hana“ varð einum þeirra lögreglu- manna, sem leituðu Díönu þessa nótt, að orði. Var nú farið að und- irbúa nákvæma leit í öllu hverfinu umhverfis Welhngtongistihúsið dag- inn eftir. Sú leit hafði hins vegar ekki borið árangur þegar kona ein, sem átti leið um skammt frá því, kom að skoti sem hún sá eitthvað í. í fyrstu hélt hún að þarna hefði verið kastaö skemmdri útsthlingarbrúðu en þegar hún gáði betur kom í ljós að um hálfnakta konu var að ræða. Hún reyndist vera Díana Sindall. Illa leikin Lögreglan kom von bráðar á vett- vang. Skoðun leiddi í ljós að Díana haföi verið slégin með einhverju þungu. Þá hafði henni verið kynferð- islega misboðið áður en hún lést. Eitthvað af fótum hennar var horf- ið. Á öxl hennár sáu réttarlæknamir hins vegar bit sem vakti athygli þeirra. Þeir komust brátt að þeirri niðurstöðu að það væri eftir mann. Bitið gaf lögreglunni enn ákveðn- ari hugmyndir um eðh morðingjans. Ljóst var að hann hafði ekki ætlað Pétur Sullivan. að ræna Díönu því hún var enn með
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.