Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1988, Qupperneq 2
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988.
Sakadómur Kópavogs úrskurðar:
Ökuleyfissvipting lögreglu
vegna hraðaksturs ólögleg
- lögreglustjóri sjátfur verður að framkvæma ökuleyfissviptinguna
„Ákvörðun um sviptingu öku-
réttinda til bráðabirgða er íþyngj-
andi stjórnarathöfn sem ekki verð-
ur beitt af öðrum en þeim sem hafa
slíka heimild samkvæmt lögum.
Framsal lögreglustjóra á þessu
ákvörðunarvaldi til aðalvarðstjóra
styðst hvorki við lagaheimild né
venju... Með vísan til þessa ber
að fella úr gildi ákvörðun lögreglu-
stjórans í Reykjavík um sviptingu
ökuréttinda Davíðs...“
Svo segir í úrskurði Sakadóms
Kópavogs í máli sem höfðað var þar
vegna ökuleyfissviptingar til
bráðabirgða. Sakadómur komst að
þeirri niðurstöðu að ökuleyfis-
sviptingin hefði veriö ólögleg og
fékk sá kæröi ökuskírteini sitt af-
hent á ný.
Sá kærði var sviptur ökuréttind-
um 17. maí síöastliðinn. Hann
krafðist niöurfellingar á svipting-
unni. Rök hans voru þau að lög-
reglumaðurinn, sem framkvæmdi
sviptinguna, hefði hvorki vald né
lagaheimild til að ákveða og fram-
kvæma ökuleyfissviptingu. Sam-
kvæmt lagaákvæði hafi lögreglu-
stjóri þessa lagaheimild en valdsvið
lögreglumanna sé afmarkað í lög-
um um lögreglumenn, lögum um
meðferð opinberra mála og í sér-
refsilögum. Framsal lögreglustjóra
á slíku ákvörðunarvaldi fái ekki
staðist nema samkvæmt sérstakri
lagaheimild og hún hafi ekki verið
fyrir hendi í þessu tilviki.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
Böðvar Bragason, sagði í bréfi til
Sakadóms að um síðustu áramót
hefði hann tekið upp þaö fyrir-
komulag að fela aðalvarðstjórum
að taka ákvörðun um sviptingu
ökuleyfis til bráðabirgða ef nauö-
synlegt reyndist utan starfstíma
lögfræðinga sem starfa við embætti
lögreglustjórans.
Lögreglustjóri sagði einnig að
lögreglustjóri mæti hvort skilyrði
væru til ökuleyfissviptingar og ef
svo væri skyldi ökumaður sviptur
ökuréttindum til bráðabirgða. Hins
vegar hefði aldrei verið litið svo á
að lögreglustjóri annaöist þessa
framkvæmd sjálfur heldur hefði
hann falið hana einhveijum starfs-
manna sinna.
Dóminn kvaö upp Sigríður Ing-
varsdóttir sakadómari. -sme
jpur Ijóðaskálda og annarra áhugamanna um Ijóðlist var samankomin á Hótel Borgigær þa'f • kynnt voru
■rk þekktra sem óþekktra skálda. Almenna bókafélagið hefur gefið út Ljóðaarbok 1988 þar sem frumb.rt eru verk
i skálda. Hér sjást ung Ijóðskáld hlýða á Ijóðaupplesturinn.
Lykill aó íslenskri Ijóðagerð:
Safh Ijóða eftir
75 skáld komið út
„Það má segja aö tilgangur með
útgáfu þessarar ljóðaárbókar sé að
safna saman í eina bók úrvah ís-
lenskrar ljóðlistar," sagði Siguröur
Valgeirsson hjá Almenna bókafélag-
inu í samtali við DV. „í dag er mikið
um að skáld séu aö gefa út eigin ljóð
og því getur veriö erfitt að rata í þeim
frumskógi. Hér gefst fólki færi á að
kynna sér verk margra nýrra skálda
og ætti því bókin að geta verið nokk-
urs konar lykill aö íslenskri sam-
tímaljóðlist.“
í gær kom saman á Hótel Borg
fjöldi skálda og annarra ljóðlistará-
hugamanna en tilefniö var að hlýða
á skáld kynna ljóð sín í nýútkominni
Ljóðaárbók 1988. Almenna bókafé-
lagiö stendur fyrir útgáfunni en bók-
in hefur að geyma safn frumbirtra
ljóða eftir 75 höfunda á aldrinum
18-83 ára. í bókinni er að finna verk
þekktrar skálda sem og skálda sem
lítið eða ekkert hefur birst eftir á
prenti áöur. Sýnilega kunnu Borgar-
gestir vel að meta þau verk sem
kynnt voru en þama fluttu nokkur
ung skáld ljóð sín í fyrsta skipti fyrir
almenningi.
„Ef vel gengur með þessa bók kem-
ur vel til greina að gera útgáfu svona
bókar að árvissum viðburði. Arbókin
þyrfti ekki endilega að vera alveg
eins og þessi,“ sagði Sigurður, ég
gæti vel séð fyrir mér árbók sem
væri safn smásagna, ljóða og ann-
arra ritsmíða." -RóG.
Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins:
Hart deilt um hver
fai eignir sjóðsins
_ 1,5 milljarðar verða bHbein útgerðar, sjómanna ogvinnslu
Nefnd á vegum sjávarútvegsráðu-
neytisins, sem endurskoða átti lög
og reglur um Verðjöfnunarsjóð fisk-
iðnaðarins, leggur það til að sjóður-
inn veröi lagður niður þar sem hann
hafi ekki náð markmiðum sínum.
Ef stjómvöld framkvæma tillögur
nefndarinnar má búast við harövít-
ugum deilum um hvemig eigi að
skipta þeim 1,5 milljörðum sem í
sjóðnum eru.
„Það hefur lengi verið stefna fé-
lagsins að leggja sjóðinn niöur og við
fþgnum því tillögum nefndarinnar.
Ég hef trú á því að svo sé um flestar
aðrar greinar fiskvinnslunar. Varð-
andi eignir sjóðsins nú tel ég rétt aö.
greiða þær út til þeirra framleiöenda
sem hafa lagt þær til,“ sagði Láms
Jónsson, framkvæmdastjóri Félags
rækju- og hörpudisksframleiðenda.
En þó Láras nefni framleiðendur
má telja víst að útgerðarmenn og sjó-
menn geri einnig kröfu í eignir sjoðs-
ins.
„Viö munum að sjálfsögðu gera
kröfur til þess sem við af sjónum
höfum lagt til Veröjöfnunarsjóðs.
Það er alveg á hreinu að framleiðend-
ur eiga ekki einir sjóðinn," sagði
Óskar Vigfússon, formaöur Sjó-
mannasambands íslands.
Nefndin sjálf lagði til að eignum
sjóðsins yröi ráðstafaö á sama hátt
og útlánareglur sjóðsins segja til um.
Ef tillögum hennar verður framfylgt
munu sjómenn og útgerðarmenn þvi
ekkert fá. Hún lagði auk þess til að
höfð yrði meiri hliðsjón af rekstrar-
stöðu fyrirtækja innan hverrar
framleiðslugreinar en hingað til. í
stað sjóðsins leggur nefndin til að
hvert fyrirtæki geti stofnað sinn eig-
in jöfnunarsjóð og verði skattaíviln-
anir notaðar til þess að hvetja þau
til þess. -gse
Fiskveiðasjóðun
1.200 milljónir
„Það var búið að gera samning um
sniíði Haraldar Kristjánssonar þegar
auglýsing birtist frá okkur í október
síðast liðnum um að ekki yrði lánað
til skipa sem þegar hafi verið samið
um. Það hefði því verið óréttlátt að
neita að lána til skipsins af þeim
ástæðum," sagöi Már Elísson, for-
stjóri Fiskveiðasjóðs.
Á fundi stjómar sjóðsins á mánu-
dag greiddu fulltrúar fiskvinnslunn-
ar og Seðlabankans ekki atkvæði um
lán til sex skipa. Ástæðan var sú að
fulltrúar útgerðarinnar og viðskipta-
bankanna virtust hafa þegar ákveðið
um lán til þessara skipa. Bentu þeir
meðal annars á að umsókn um lán
til nýrra skipa
til Haraldar Kristjánssonar stæðust
ekki auglýst skilyrði lánveitingar.
Fiskveiðisjóður mun lána um 1.200
mílljónir á þessu ári til nýsmíða
skipa. Það er aukning frá fyrra ári.
Hins vegar hefur dregið úr lánum til
stækkana og breytinga en endanleg-
ar tölur liggja ekki fyrir um hversu
mikið verður lánað til slíkra verk-
efna.
í reglum sjóðsins segir að óheimilt
sé að lána til skipa nema aö fyrir-
rennarar þeirra séu komnir af skipa-
skrá. Þau skip sem koma í stað hinna
nýju em um þriðjungi stærri en þau
skip sem seld em úr landi eða úrelt.
-gse
Kirkja úr kvikmynd reist við Helluvatn
feðgamir Hrafn Gunnlaugsson og Gunnlaugur Þórðarson reisa kirkjuna
„ __hriár kirkiur fvrir myndina. Tvær sögn Gunnlaugs er veriö a<
Hrafn Gunnlaugsson kvik
myndageröarmaður og faðir hans,
Gunnlaugur Þórðarson hæstarétt-
arlögmaður, standa nú í stórræö-
um á sumarbústaðalandi fjölskyld-
unnar viö Helluvatn í landi Elliða-
vatns. Fjölskyldan er að endurreisa
þar kirkju sem notuð var í kvik-
mynd Hrafns, Úr skugga hrafns-
ins.
Að sögn Gunnlaugs er kirkjan
leikmynd, en alls vom byggöar
þrjár kirkjur fyrir myndina. Tvær
þeirra vom brenndar í atriði í
myndinni, en þá þriöju er nú verið
að endurreisa viö Helluvatn.
Kirkjan er í kaþólskum, tólftu
aldar stíl og byggö úr flekum. Að
sögn Gunnlaugs er veriö að reisa
hana til varðveislu, fiölskyldunni
og öðrum til ánægju og augnaynd-
is.
-StB
Umferðarslys:
Ók á staur
á ÁHtanesi
Umferðarslys varð á Álftanesvegi
um miðnætti í nótt. Bíl var ekið á
mikilli ferð á ljósastaur. Tvennt var
í bílnum og voru þau flutt á slysa-
deild. Bíllinn og staurinn skemmdust
mikið.
Grunur er um ölvun við akstur.
•sme