Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1988, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ11-988.
5
Fréttir
íslensku nem-
endumir hafa
sérstakan stíl
- segir skólastjóri Tísku- og hönnunarskóla Kaupmannahafnar
„íslensku nemendurnir hafa staðiö
sig mjög vel og hefur verið gaman
að fylgjast með þeim þroskast sem
fatahönnuðir,“ sagði Maienne Duch-
weider, skólastjóri Tísku- og hönn-
unarskóla Kaupmannahafnar, í sam-
tali við DV.
Skólinn útskrifar nú í júní 22 fata-
hönnuði og eru fjórir þeirra íslen-
skar stúlkur. Nemendur vinna nú að
lokaverkefnum sínum og að þeim
loknum taka þeir próf.
„Það er athyglisvert að sjá hve ís-
lensku nemendurnir skera sig úr.
Hönnun þeirra hefur einhvern viss-
an karakter sem erfitt er að lýsa.
Bæði efnis- og litaval sem og sköpun-
in sjálf er sérstakt," sagði Maienne,
„litavalið ber glögg einkenni ís-
lenskrar náttúru og notast þær mikið
við alls kyns skinn.“
- Ber einhver íslensku nemendanna
af að þessu sinni?
„Já, ég get ekki neitað því. Ingi-
björg Gestsdóttir hefur sýnt mjög
skemmtilega og frumlega hönnun og
ég bind miklar vonir við hana. Ann-
ars eru þessir nemendur allir mjög
efnilegir. Nemendum héðan úr skól-
anum hefur gengið mjög vel að koma
sér áfram eftir námið. Nú þegar nem-
endurnir skila lokaverkefnum sín-
um verður haldin mikil sýning á
verkum þeirra."
Tísku- og hönnunarskóli Kaup-
mannahafnar, Köbenhavns Mode og
Design Skole, er aðeins flmm ára
gamall einkaskóli sem hefur getið sér
góðan orðstír. Námið tekur tvö ár en
síðastliðið haust hófu fimm íslend-
ingar nám þar.
- RóG
Verkalýðshreyfingin:
Til aðgerða gæti komið í haust
A fundi formanna aðildarfélaga
ASÍ á mánudag var einróma sam-
þykkt harðorð ályktun í garð ríkis-
stjórnarinnar vegna setningar
bráðabirgðalaganna.
Að sögn Ásmundar Stefánssonar,
forseta ASÍ, verður ekki gripið til
beinna aðgerða á næstu dögum eða
vikum. „Við hvetjum fólk til að fylgja
þessari kröfu eftir en ákvarðanir um
aðgerðir hafa ekki verið teknar,"
sagði Ásmundur í samtali við DV.
Aðspurður sagði Ásmundur að kom-
ið gæti til aðgerða í sumar eða haust,
en hvort um verkföll eða yfirvinnu-
bann yrði að ræða vildi hann ekki
tjá sig.
„Það var samkomulag að gefa fólki
tækifæri til að kynna sér innihald
laganna, bæði hvað varöar kjara-
skerðinguna, sem í þeim felst, svo
og þá mannréttindasviptingu sem
þau fela í sér,“ sagði Ásmundur.
Forseti ASÍ hefur fengið umboð
miðstjórnár sambandsins til að kæra
bráðabirgðalögin til Alþjóðavinnu-
málastofnunarinnar, ILO.
„Það sem hér er um að ræða, eru
samþykktir Alþjóðavinnumálastofn-
unarinnar um félagafrelsi og frjálsan
samningsrétt," sagði Ásmundur.
„Við teljum augljóst að ríkisstjórnin
brjóti þær samþykktir með þeirri
lagasetningu sem nú hefur gengið
yfir, því lögin banna alla samnings-
gerð í nærri ár,“ sagði Ásmundur.
„Ég geri ráð fyrir að flest launþega-
félög innan ASÍ sjái hverju fram
vindur í sambandi við kjara- og
launamál áöur en gripið verður til
annarra aðgerða en mótmæla gegn
setningu bráðabirgðalaganna," sagði
Hrafnkell A. Jónsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Árvakurs á Eski-
firði í samtali við DV í gær.
„Við teljum að ekki sé nauðsynlegt
að banna kjarasamninga heldur sé
nægjanlegt að setja á verðstöðvun
sem síðar er fylgt eftir. Það liggur
ekki ljóst fyrir að ríkisstjórnin sé að
taka á óeðlilegu launaskriði í
landinu, heldur að hún sé að grípa
fram fyrir hendur verkalýðsfélaga
og stöðva þau í að starfa samkvæmt
eðlilegum leiðum.
Þessi ríkisstjórn verður að gæta sín
vandlega á þessari leið í efnahags-
stjórnun. Við munum fylgjast með
gangi mála, ekki síst hvort settar
verði hömlur á aðra en launþega.
T.d. hvort verðlagsbreytingar svo og
útseld vinna og þjónusta verði innan
eðlilegra marka. Þetta veröum við
að gera upp við okkur áður en gripið
veröur til frekari aðgeröa," sagði
Hrafnkell A. Jónsson. -StB
Gefinn hefur verið út vandaður bæklingur á vegum skólans þar sem út-
skriftarnemendur og verk þeirra eru kynnt. Hér gefur að lita verk eins is-
lenska nemandans, Ingibjargar Gestsdóttur.
21. júní - 3 vikur. Verð frá kr. 36.270 pr. mann.*
28. júni - 3 vikur, Verð frá kr. 36.270 pr. mann.*
* Fjórlr í íbúð, hjón og 2 böm. 2ja-12 ára.
Sérlega góð grefðslukjör.
Pantaðu strax. Órfá sæti laus í spænska sumarið í Benfdorm.
FERÐA Cvhtcat
MiÐSTOÐIN Tcauet
AOALSTRÆTI 9-REVKJAVÍK -S.28133
I
z
p