Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1988, Blaðsíða 48
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
■ þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
iét eða er notað f DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið ( hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Áskréft - Dreifing: Simi 27022
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988
■ér-
Stórir samningar fyrir dyrum hjá Státvík:
Sextan gamlir togarar
seldir til arabalanda
Líklegt er að Skipasmíöastööinni
Stálvík takist innan tíðar að selja
um 30 gömul íslensk flskiskip til
arabalanda. Af þessum skipum eru
16 eldri togarar og 14 litlir fiskibát-
ar um 10-30 tonn. I upphafi var
gert ráð fyrir sölu á mun færri
skipum en þegar Stálvík hafði sent
út verð og staðfestingu á sölutilboð-
ura var óskað eftir kaupum á fleiri
skipum.
„Þessir menn hugsa og tala öðru-
visi en við eigum aö venjast en
þeim virðist vera heilmikil alvara
með að ganga frá þessum kaup-
um,“ sagði Jón Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Stálvíkur.
Að sögn Jóns bauð hann aröbun-
um fyrst tvo togara til kaups. Þegar
hann hafði sent út staðfest sölutil-
boð með fóstu verði, óskuðu þeir
þegar eftir fleiri skipum. Jón sagð-
ist hafa nú í höndunum staöfest
sölutilboð á 16togurum og 14 litlum
fiskibátum. Arabarnir hefðu sýnt
áhuga á að kaupa allan pakkann.
Að sögn Jóns hafa arabarnir einnig
sýnt áhuga á aö gera kaupsamn-
inga viö Stálvík um nýsmíði.
Jón víldi ekkert tjá sig úm hvert
söluverð. gömlu skipanna væri.
Samkvæmt hemildum DV er það
ekki undir helmingi verðs á ný-
smíðuðum skipum, sem er um 300
milljónir króna.
Jón vildi heldur ekki gefa upp um
hvaöa fiskiskip væri að ræða. Tog-
aramir væru bæöi smíðaðir hér
heima og einnig erlendis, í Noregi
og Bretlandi. Þeir væru um 10-15
ára gamlir.
„Það hefur staðið í veginum varð-
andi endurnýjun skipastólsins að
menn verða að úrelta eða sökkva
gömlum skipum til að geta keypt
ný. Einnig hafa skipin verið seld í
brotajám fyrir lítið verð. Þetta hef-
ur valdið því að íslendingar eiga
nú fiskiskipaflota sem er eldri en f
vanþróuðustu löndum. Ef af þess-
ari sölu verður skapast einnig
svigrúm fyrir verkefhi handa
skipasmíðastöövunura,“ sagðj Jón
Sveinsson.
-gse
Hæstiréttur:
Kók greiði
Hafskip
~rúma eina
milljón
Verksmiðjan Vífilfel] hefur verið
dæmd í Hæstarétti til að greiða
þrotabúi Hafskips um þrettán hundr-
uð þúsund krónur að núvirði auk
vaxta og kostnaðar. Vífilfell taldi að
fyrirtækið ætti inni eftirágreiddan
afslátt þegar Hafskip varð gjaldþrota.
Hæstiréttur taldi aö Vífilfell hefði
ekki sannað mál sitt og því bæri fyr-
irtækinu að greiöa fjárhæðina til
þrotabúsins.
Vífilfell á að greiða þrotabúinu 90
þúsund krónur í málskostnað fyrir
lliaestarétti. Dóminn kváðu upp
hæstaréttardómararnir Magnús
Thoroddsen, Guðmundur Jónssonog
Hrafn Bragason og Hjörtur Torfason
og settur hæstaréttardómari, Gunn-
ar M. Guðmundsson hæstaréttarlög-
maður. -sme
Vextimir taka stökk
Verslunarbankinn og sparisjóð-
irnir hækkuðu vexti sína umtalsvert
í gær. Landsbankinn og Útvegs-
bankinn hækkuðu vextina einnig en
minna. Aðrir bankar virðast ætla að
bíða með hækkun þar til síðar í mán-
uðinum. Búist er við aö lánskjara-
vísitalan hækki umtalsvert um
næstu mánaðamót og þurfa því
bankar að hækka nafnvexti ef þeir
æfla að tryggja sér sömu raunvexti
og að undanförnu.
Verslunarbankinn hækkaði sína
vexti mest. Víxilvextir voru hækkað-
ir úr 32 prósentum frá 21. maí í 35
prósent nú. Vextir á yfirdráttarlán-
um fóru úr 35 prósentum og í 39 pró-
sent. Vextir á almennum skuldabréf-
um hækkuðu úr 34 prósentum í 37
prósent. Vextir á verðtryggðum
skuldabréfum lækkuðu hins vegar
úr 9,5 prósentum í 9,25 prósent.
Innlánsvextir hækkuðu einnig hjá
Verslunarbankanum. Á ávísana-
reikningum úr 9 í 12 prósent og af
almennum sparisjóðsbókum úr 19 í
22 prósent. Á skiptikjarareikningum
Verslunarbankans fóru nafnvextir
allt upp í 36 prósent. Það er þó alls
ekki víst að til greiðslu þeirra komi
því búist er við að ef lánskjaravísital-
an hækkar jafnmikið og spáð er verði
þessir reikningar gerðir upp á verö-
tryggðum kjörum. -gse
Greiðslukortafyrirtækin:
Vænn gróði vegna
gengisfellingar
Kirkja úr kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Ur skugga hrafnsins,
er nú að rísa á landi fjötskyldu hans við Helluvatn. Það eru feðg-
arnir Hrafn og Gunnlaugur Þórðarson, sem hér sést, sem standa
að endurreisn kirkjunnar. - Sjá bls. 2. DV-mynd GVA
Vegna gengisfellingarinnar á dög-
unum hagnast greiðslukortafyrir-
tækin nú þegar fólk, sem notaði kort-
in erlendis upp úr miöjum apríl og
fram yfir miðjan maí, gerir upp
skuldir sínar.
Allar erlendar skuldir korthafa eru
gerðar upp á gengi eins og það var
skráð 17. maí síðastliðinn. Gengið
var fellt um 10 prósent daginn áður
eða 16. maí. Grtóslukortafyrirtækin
gera upp skæair við útlönd jafn
harðan og þær berast. Því hafa þau
þegar verið búin að greiða megnið
af erlendu skuldunum, sem þau eru
að rukka inn núna, á gamla genginu.
LOKI
Brennivínið hækkar
en Kók borgar.
Veðrið á morgun:
Vætusamt
austan-
lands
Á morgun verður suðaustan-
gola eða kaldi og dálítil súld eða
rigning um austanvert landið en
þurrt annars staðar. Hiti verður
á bilinu 4-12 stig.
Síðustu þrjá dagana fyrir gengisfell-
inguna keyptu greiðslukortafyrir-
tækin gjaldeyri fyrir um 18,8 milljón-
ir. Sé gert ráð fyrir að það hafi verið
svipuð kaup og aðra opnunartíma
banka frá 17. apríl að uppstigningar-
degi má ætla að heildarkaup þeirra
hafi verið nærri 106,5 milljónum. Nú
eru viðskiptavinir fyrirtækjanna
hins vegar krafðir um 118,2 milljónir
fyrir sömu skuld. Áætlaður hagnaö-
ur greiðslukortafyrirtækjanna ligg-
ur því nærri 11,7 milljónum króna.
Þessi hagnaður er um tíundi hluti
af hagnaði alls bankakerfisins.
-gse
Brennmnið
kostar
eitt þúsund
krónur
Nú er loksins hægt að muna hvað
brennivínsflaskan kostar. Hún kost-
ar eitt þúsund krónur sléttar.
Brennivínið var hækkað í gær eins
og annað áfengi. Sígarettur voru líka
hækkaðar í 145 krónur. Hækkunin á
áfengi og tóbaki var 6,5 prósent.
-gse