Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1988, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 1988.
aÍ7
Lesendur
Hraður taktur í fjármálaráðuneyti
Sighvatur hringdi:
Stundum er fjargviörast út af því
aö hjá hinu opinbera sé hægagangur
í flestum málum. Þaö má sennilega
til sanns vegar færa, en þaö þarf
ekki endilega að vera einskorðað við
hið opinbera. Ég hef rekist á mikinn
og langvinnan hægagang hjá mörgu
fyrirtækinu í einkarekstri, og þar er
hann ekki síður hvimleiður en ann-
ars staðar.
í fjármálaráðuneytinu er sagður
hafa verið tekinn upp nýr taktur og
tónn og ekki vera í samræmi við það
orðspor sem áður fór af stofnunum
hins opinbera. Er sagt að sumir sem
vanir voru að vinna eftir mottóinu;
„flýttu þér hægt, maöur“ hafi ekki
verið ýkja hrifnir af aö fá nýjan
stjórnanda, þar sem Jón Baldvin
Hannibalsson fjármálaráðherra kom
inn og sló taktinn ótt og títt. Aðrir
voru tilbreytingunni fegnir og fylgdu
eftir taktinum.
Hvað sem um þessa sögusögn má
segja (ef hún er þá sögusögn) þá er
víst að mikil og góð umskipti hafa
orðið í þessu mikilvæga ráðuneyti,
bæði hvað varðar afgreiðslu alla í
ráðuneytinu sjálfu og stofnunum
sem undir það heyra. Ýmsir veikleik-
ar i þessu mikla kerfi munu eða eru
að hverfa og þeir sem ekki hafa
reynst þess megnugir að leika í því
spilverki sem þarna þarf að vera vel
samhæft taka upp þráöinn annars-
staðar, þar sem tónlist af gamla skól-
anum er enn leikin og með hægari
takti.
Fáir munu geta mótmælt því, að
fjármálaráðherra hefur reynst hinn
„Mikil og góð umskipti hafa orðið í þessu mikilvæga ráðuneyti
ritari m.a. - Starfsmenn funda i fjármálaráðuneytinu.
Bjórdós kast-
að úr bfl
Sigurður Þorgrímsson kom:
Það var síðastl. fóstudag að ég og
sonur minn vorum á ferð á reið-
hjólum austur aö Svínafelli í Öræf-
um. Þegar við erum að hjóla í
Svínahrauninu heyrum viö í bU
fyrir aftan okkur og er ekki í frá-
sögur færandi, nema af því að í bU
þessum var ungt fólk sem tók sig
til og öskraöi án afláts um leið og
þaö fór fram hjá. Þetta var myndar-
legasti sendibíll frá einu stórfyrir-
tæki hér í borginni og greinUega
merktur því.
Nú, við höldum áfram sem leiö
liggur austur og gistum á leiðinni.
Þegar við komum austur á Mýr-
dalssand á móts við Skálm vill svo
einkennilega tdl aö við mætum
sama bílnum, nú á leið til baka. í
það skiptiö teygir sig út um glugga
á bifreiðinni ungur maður og kast-
ar út bjórdós með þeim afleiðing-
um, að hún lendir í öðru hjóli son-
ar míns. Hér hefði getaö farið illa
ef ekki hefði heppni ráðið.
Þetta var hins vegar eina ónæðið
sem við urðum fyrir á leiöinni allri.
Bflstjórar voru til fyrirmyndar og
viku vel og tímanlega. Eins var
gott að koma til þeirra staöa þar
sem við áðum, t.d. Víkur í Mýrdal
og Kirkjubæjarklausturs en við
gistum á báðum stöðum. En það
er því leiðinlegra til þess að vita
að alltaf eru einhverjir sem ekki
hafa hemfl á þöríinni fyrir speU-
virki eða ótímabært sprell sem
gæti haft ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar. Hvorugt á viö úti í umferð-
inni, hvorki í þéttbýli né í dreifbýli.
hæfasti stjómandi og hefur tekist að aUs ómögulegt að framkvæma ámm breytanlegt hjá hinu opinbera, sem
koma á breytingum sem var talið saman. Það er því ekki allt óum- betur fer.
FRABÆR AMERISKUR JEPPI
Á HAGSTÆÐU VERÐI
Kr. 1.295.000.-
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR.
ATHUGIÐ FORO BRONCE ER
BYGGÐUR Á STERKRI
SJÁLFSTÆÐRI GRIND.
TIL AFGREIÐSLU STRAX.
Ford í Framtíð við Skeifuna
Sími685100
Vél 2, 9L V-6 m/tölvustýrðri innspýtingu og kveikju.
Aflhemlar, diskar að framan,
skálar að aftan m/ABS læsivörn.
5 hraða skipting m/yfirgír.
Vökvastýri.
Krómaðir stuðarar.
Toppgrind.
Hjólbarðar P205/75R x 15
Varahjólsfesting ásamt læsingu og hlíf.
Felgu krómhringir.
Skrautrönd á hlið.
Stórir útispeglar.
Vönduð.innrétting m/tauáklæði á sætum, teppi á gólfi.
Spegill í hægra sólskyggni.
Framdrifslokur.
Útvarp AM/FM stereo m/kassettuspilara, 4 hátölurum
og sjálfleitun.
Skyggðar rúður.
Öryggisbelti í fram og aftursætum.
Skipt aftursætisbak.
Þurrka, sprauta og afþíðing f. afturrúðu.
Sjómannadagurinn er 50 ára. Af því
tilefni verður dagskrá hans að þessu
sinni mjög fjölbreytt og veigamikil.
Dagskráin í Reykjavík hefst á föstu-
dag og stendur meira og minna í
þrjá daga. Mikið verður um dýrðír í
Reykjavíkurhöfn og sjálfsagt í flest-
um öðrum höfnum landsins á sjó-
mannadaginn sjálfan. í DV á morgun
verður nánar sagtfrá helstu viðburð-
um sjómannadagsins í stærstu kaup-
stöðum landsins.
Um helgina hefst Listahátíð í Reykja-
vík. Að þessu sinni er listahátíð mjög
umfangsmikil og fjölbreytileg, að
sögn aðstandenda. Má sem dæmi
nefna að í gangi verða sjö myndlistar-
sýningar, handrita- og bókasýning
og sýning á byggingarlist í Berlín.
Að auki verða 13 tónleikar, fjórar
brúðuleikhússýningar, sýning á leik-
ritinu Marmara, látbragðsleikurog
íslenskar og erlendar danssýningar.
Nánar verðursagt frá helstu við-
burðum listahátíðar í DV á morgun.