Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1988, Qupperneq 3
3
FIMMTUDAGUR 2. J'ÚNÍ T988.
Fréttir
Mikil þensla á vinnumarkaði:
Námsmenn með háar launakröfur
- erftít að ráða fólk í láglaunuðu störfin
Mývatnssveit:
Vélsleða fálkagæslumanns stolið
Vélsleða Hauks Hreggviðssonar
fálkagæslumanns var stolið um
hvítasunnuhelgina. Haukur geymdi
sleðann, eins og hann hefur lengi
gert, um 10 kílómetra austan Náma-
fjalls.
Þegar Haukur kom aftur, tveimur
dögum eftir að hann yfirgaf sleðann,
var búið að stela honum. Haukur
æskir þess að allir þeir sem geti gefið
Akureyri:
Yfimnnubann
í matvöm-
verslunum
Gylfi Kristjánsson, DV, Aknreyri:
„Þetta er fjórða sumarið sem svona
yfirvinnubann er sett á stærri mat-
vöruverslanirnar í bænum," sagði
Jóna Steinbergsdóttir, formaður Fé-
lags verslunar- og skrifstofufólks á
Akureyri, í samtali við DV.
Fulltrúi KEA hefur lýst óánægju
sinni með að þetta yfirvinnubann
bitni einungis á KEA og Hagkaupi
og látið að því liggja að hér sé félagið
að mismuna aðilum í verslun í bæn-
um.
„Þetta á sér einfaldlega þá skýr-
ingu að okkur barst beiðni um það
frá félagsmönnum okkar í verslun-
um Hagkaups og KEA að setja þetta
bann á og við urðum að sjálfsögðu
við þeirri beiðni félagsmanna okkar.
Okkur hafa ekki borist slíkar beiðnir
frá starfsfólki í öðrum verslunum í
bænum,“ sagði Jóna Steinbergsdótt-
ir, er DV bar þetta undir hana.
Allar stærri matvöruverslanirnar
á Akureyri, að Matvörumarkaðnum
í Kaupangi undanskildum, verða því
lokaðar á laugardögum í sumar frá
1. júni til í. september.
Verslanir Hagkaups og KEA í
Sunnuhlíð verða opnar til kl. 19 á
laugardögum, Matvörumarkaður
KEA í Hrísalundi til kl. 20 á fimmtu-
dögum og fóstudögum og verslun
KEA við Byggðaveg til kl. 20 mánu-
daga til fostudaga._________
Sjávarútvegsráðuneytíð:
Banndagar í júní
og um verslunar-
mannahelgina
Sjávarútvegsráðueytið hefur sent
frá sér reglugerð þar sem banndagar
við fiskveiðum eru tilgreindir.
Tímabilin eru tvö; frá og með 13.
júní til og með 19. júní, og frá og með
28. júlí og til og með 6. ágúst í sumar.
Á þessum dögum eru allar fiskveið-
ar, aðrar en grásleppuveiðar, bann-
aðar á bátum minni en 10 brúttólest-
ir sem ekki hafa sérstök botnfisk-
veiðileyfi skv. 5. grein laga nr. 3. frá
8. janúar sl. um stjórn fiskveiða
1988-1990. -StB
upplýsingar um hvað varð af sleðan-
um láti til sín heyra.
Vélsleði Hauks er af gerðinni
Evinrude Skinner SS 440. -sme
HATSU CU0RE
: . ............................... •. ---
5 dyra 5 gíra
5 dyra sjálfskiptur
kr. 377.900,-stgr
kr. 419.500,-stgr.
VERÐ MIÐASTVIÐ BÍLINN K0MINN ÁGÖTUNA
BRIMBORG HF.
ÁRMULA 23 - SÍMAR 685870 - 681733
„Það er mjög erfitt aö fá fólk í sum
störf,“ sagði Jóhann M. Jónsson, hjá
Ráðningarþjónustu starfsmiðlunar, í
samtali við DV. „Til dæmis er
ómögulegt að fá starfsfólk í fata-
hreinsanir. Einnig getur verið erfitt
að ráða í ýmsar verslanir, þó sérstak-
lega matvöruverslanir."
Upp úr áramótum fór að gæta mik-
ils skorts á starfsfólki í hin ýmsu
störf en eftir verkfallið virðist sem
ástandið'hafi eitthvaö lagast. Þá hef-
ur streymi skólafólks á vinnumark-
aðinn haft sitt að segja. En enn geng-
ur erfiðlega aö ráða fólk í lægstlaun-
uðu störfin.
Að sögn Jóhönnu Harðardóttur,
hjá starfsmiðluninni Vettvangi, er
þó mesta vandamál fyrirtækjanna
hvað fólk helst stutt við í láglaunuðu
störfunum.
„Fyrirtæki getur kannski auglýst
eftir fólki í vinnu og fengið 20-30
umsóknir," segir Jóhanna, „en hann
hefur enga tryggingu fyrir því að
starfsmaðurinn sem var ráðinn hald-
ist í vinnunni lengur en í mánuð.“
Þótt þúsundir námsmanna komi á
vinnumarkaðinn nú í sumar, þá láta
þeir ekkert bjóða sér láglaunuðu
störfm. Þeir gera miklar kröfur um
góð laun.
„ Jú, námsmenn gera miklar kröfur
þegar þeir óska eftir vinnu,“ sagði
Maren Finnsdóttir hjá atvinnumiðl-
un stúdenta, „bæði um laun og helst
verður starfið að tengjast þeirra
námi. í ár erum við meö tæplega 600
manns á skrá en við höfum fengið
um 400 störf. Nú þegar erum við
búin að útvega 200 manns atvinnu.
Skrifstofustörf hjá einkafyrirtækjum
ganga strax út, enda er fjöldi við-
skiptafræðinema á skrá hjá okkur
sem óska eftir starfi við bókhald og
annað slíkt. Hjá einkafyrirtækjunum
er gjarnan um yfirborganir að ræða,
enda þýðir lítið að bjóða stúdentum
skrifstofustörf hjá því opinbera.“
Að sögn Marenar eru talsvert færri
vel borguð störf á boðstólum í ár. Svo
virðist sem fyrirtækin dragi í aukn-
um mæh saman í starfseminni yfir
sumartímann.
-RóG