Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1988, Síða 7
FiMM'TlTDAGUR’2.íJT3rNf 1968.
Nýjar, vandaðar þáttaraðir í sumar.
' T -<í rÁ *• '. ' ■
«
NINwAK
ÞÆTTIR
í sumarskapi ^
Lifandi og bráöskemmtilegur íslenskur
skemmtiþáttur með Jörundi Guðmundssyni og
Sögu Jónsdóttur. Gesturfyrsta þáttar: Flosi
Ólafsson. Þátturinn er fluttur á Hótel fsland og
sendur út beint á Stöð 2 og Stjörnunni
samtímis.
-Föstudagar.
Ruglukollar ^
(Marblehead Manor)
Bandarískir þættir. Snarrugluð kímni og
stráksskapur. Afar vinsælir þættir erlendis.
- Laugardagar.
Kona í karlaveldi ik
(She's the sheriff)
Hildy er engin venjuleg kona. Hún tekur upp
merki látins eiginmanns síns sem var
lögreglustjóri. Hún gefur ekkert eftir og
karlrembusvínin mega gæta sín.
- Þriðjudagar.
ÞÆTTIR 4
Morðgáta A
(Murdershewrote)
Þessir vinsælu þættir sjást nú að nýju. Þegar
Jessica Fletcher er á svæðinu er stutt í
magnaðaspennu.
- Fimmtudagar.
Óttinn Jk
(Fear)
Breskframhaldsmynd, þrungin spennu. Carl
Galton, ungur velklæddur maður en valdamikill
og ruddalegur. Hann ræður yfir strætum
Islingtons í London og vill gjarnan auka veldi
sitt.
- Mánudagar.
Pilsaþytur <é
(Legwork) t1
A nýjum slóðum
(Aron's way)
Nýr vinsæll fjölskylduþáttur. Fylgst er með
Aron og fjölskyldu hans þegar þau segja skilið
við lifnaðarhætti gamla tímans og þurfa að
aðlagast nýjum háttum. Þættirnir eru eftir sömu
höfunda og Húsið á sléttunni.
-Sunnudagar.
Kataog Allí
(Kate and Allie)
Þær eru einstæðar mæður sem hafa nýlega
gengið í gegn um skilnaði. En þær láta ekki að
sér hæða. Taka höndum saman og búa sér
sameiginlegt heimili. Kata vinnur á ferða-
skrifstofu en Allí sér um heimilishaldið og drífur
sig í skóla.
- Miðvikudagar.
Dómarinn^
(Night Court)
Næturvaktin reynist oft erfið hjá dómaranum
Harry Stone, en hann leysir hin ólíklegustu mál
á hinn ólíklegasta hátt.
- Laugardagar.
Áfram hlátur2|
(Carry on Laughing) \
Bráðskemmtilegir þættir. Ýmsir gullmolar úr
gömlu, góðu Áfram myndunum. Allir muna
hina skrautlegu og óforbetranlegu leikara
myndanna.
- Mánudagar.
(Legwork)
Hin unga og fallega Claire er einkaleynilög-
regla. Hún vílar ekki fyrir sér hlutina. En hún er
síblönk og verður að leita ýmissa ráða.
- Miðvikudagar.
Leyndardómar og ráðgátur,
Mögnuð þáttaröð. T ekin eru fyrir mál sem V
vakið hafa athygli almennings og jafnvel óhug.
Óupplýstir glæpir, dularfull mannshvörf,
furðuleg náttúrufyrirbrigði, skrímsli, draugar
o.m.fl. Mjög forvitnilegir þættir.
- Miðvikudagar.
Víetnam W
Framhaldsmyndaflokkur í 10 þáttum byggður
á sannsögulegum atburðum. Þetta er saga
hinnafjölmörgu hermannasem börðust í
Víetnam og guldu jafnvel sumirfyrir mistök
annarra. Raunsannur og mjög vel gerður
þáttur.
-Sunnudagar.
%
OG
FRÆÐSLUÞÆTTIR
Viðskiptaheimurinn
(WallStreetJournal)
Þekktir fjármálasérf ræðingar fjalla um það
helstasem upp kemur í efnahagsmálum
heimsins á hverjum tíma. Þættirnir eru sýnir á
Stöð 2 í sömu viku og þeir eru framleiddir.
Afar athyglisvert efni.
- Fimmtudagar,
endursýndir í hádeginu á laugardögum.
Listamannaskálinn €
(The South Bank Show)
Nýir, breskir þættir um listir og listamenn.
I þessum þáttum er m.a. ævisaga Andy
Warhol, upptökur af söng Maríu Callas, viðtöl
við Eric Clapton, Doris Lessing og fleiri.
- Laugardagar.
Ópera mánaðarins #
Óperuflutningur verður nú mánaðarlega á
dagskrá Stöðvar 2 í þáttunum Menning og
listir. Um er að ræða vandaðan flutning,
heimsþekkta söngvara og stjórnendur. Á
næstunni munum við m.a. sýna Don Giovanni,
II Trovatore, Madame Butterfly.
-Sunnudagar.
Áheimsenda -
(Last Place on Earth)
Nýframhaldsþáttaröð í 7 hlutum. Fjallarum
ferðir Amundsens og Scott sem kepptust um
að komast fyrstir manna á Suðurpólinn. Margir
frægir leikarar koma fram í þessum fróðlegu og
spennandi þáttum.
-Miðvikudagar.
Mannslíkaminn
(Living Body)
Mjög vel gerðir þættir þar sem fjallað er um
mannslíkamann, líffæri hans, líkamshlutaog
starfsemi. Fyrsti þátturinn fjallar um hita- og
' kuldaþol og aðlögun á breytilegu hitastigi.
-Miðvikudagar.
Fjalakötturinn -
Vegna fjölda tilmæla munum við nú endursýna
á síðkvöldum margar af perlum Kvikmynda-
klúbbs Stöðvar 2.
- Mánudagar.