Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1988, Page 10
Útlönd
FIMMTUDÁGUR 2. JÚNÍ 1988.
Leiðtogamir skiptast á staðfestum eintökum af samningnum um eyðingu meðaldrægra kjarnorkuvopna.
Símamynd Reuter
Sovéskir gyöingar, sem neitað hefur verið um heimild tii brottflufnings frá Sovétrikjunum, mótmæla fyrir utan
Lenín-bókasafnið í Moskvu. Símamynd Reuter
Fundi leiðtog-
anna lokið
Bandarísku forsetahjónin á fréttamannafundi í Moskvu í gær. Þetta var í
fyrsta sinn á nær átta ára forsetatíð Reagans sem frúin var með honum á
fréttamannafundi. Símamynd Reuter
stöðu á sínum fundi og kom sér hjá
því að svara beinum spurningum um
hvort hann teldi stefnu Gorbatsjovs
ábyrga fyrir því að þúsundum er enn
neitað um heimild til brottflutnings
frá Sovétríkjunum.
Forsetinn endurtók fyrri ummæli
sín um að Sovétríkin gætu ekki leng-
ur talist heimsveldi hins illa og sagði
þá breytingu vera Gorbatsjov mikið
að þakka.
Þrátt fyrir hugmyndir, sem hafa
verið uppi um fimmta leiðtogafund
þeirra Reagans og Gorbatsjovs, síðar
á þessu ári, telja margir að Moskvu-
fundurinn muni. reynast síðasti
fundur þeirra. Leiðtogarnir náðu
einhverjum árangri í viðræðum sín-
um um fækkun langdrægra kjam-
orkuvopna en vafasamt er tahð að
hann hafi verið nægur til að unnt
verði að ljúka gerð slíks samnings
áður en Reagan lætur af-embbætti í
janúarmánuði næstkomandi.
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
og fylgdarlið hans héldu í morgun á
brott frá Moskvu og er þar með lokiö
fjórða leiðtogafundi þeirra Reagans
og Mikhails Gorbatsjov, aðalritara
sovéska kommúnistaflokksins.
Bandaríkjaforseti hélt um sjöleytið
í morgun flugleiðis frá Moskvu og
var það Andrei Gromyko, forseti
Sovétríkjanna, sem kvaddi hann á
flugvehinum.
Reagan hélt áleiðist til London, þar
sem hann mun eiga fundi með Marg-
aret Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, og Noboru Takeshita, for-
sætisráðherra Japans. Mun Reagan
skýra þeim frá gangi og niðurstöðum
leiðtogafundarins áður en hann held-
ur áfram til Washington.
Leiðtogafundurinn í Moskvu, sem
stóð í fimm daga, er talinn hafa verið
gagnlegur þótt hann hafi ekki skilað
af sér neinum sögulegum samning-
um.
Leiðtogarnir gengu endanlega frá
samningi sínum um eyðingu meðal-
drægra kjarnorkuvopna, sem þeir
undirrituðu í Washington í desemb-
ermánuði síðastliðnum, og hefur
samningurinn því tekið gildi.
Þá var gengið frá ýmsum minni-
háttar samningum milli stórveld-
anna.
I lok leiðtogafundarins í Moskvu
kom greinilega í ljós hversu óhk við-
horf leiðtoganna tveggja eru um
margt.
Ronald Reagan hrósaði Mikhail
Gorbatsjov mjög mikið fyrir stjórn-
visku sína, á meðan Gorbatsjov gerði
„áróðursbrögð" Reagans að um-
ræðuefni.
Gorbatsjov ræddi um tækifæri til
samninga og framþróunar sem hefðu
glatast á meðan Reagan talaði um
árangur af fundinum.
Sovéski leiðtoginn rak nokkra
háttsetta sovéska embættismenn úr
sætum sínum á fréttamannafundin-
um svo að bandarískir fréttamenn
gætu setið þar sem auðveldara var
að fylgjast með fundinum. Reagan
heyrði hins vegar illa til fréttamann-
anna og brást hinn versti við þegar
fréttamaður reyndi að koma honum
í skilning um inntak spurninga.
Blaðamannafundir leiðtoganna
voru mjög ólíkir. Gorbatsjov lék á
als oddi á sínum fundi, talaði í nær
tvær klukkustundir, án minnisblaða.
Hann gerði að gamni sínu og var
greinilega viö stjórnvöhnn. Reagan
mun á hinn bóginn hafa talað í að-
eins hðlega hálfa klukkustund, virt-
ist daufur i dálkinn og fréttamenn
urðu að knýja á um svör til að fá þau.
Gorbatsjov var harður í ummælum
sínum um Reagan og gagnrýndi
hann fyrir tilraunir til að dramatís-
era mannréttindamál á leiðtogafund-
inum. Sagði sovéski leiðtoginn að sú
hlið fundarins hefði einkennst af
áróðursbrögðum og alls kyns sýnd-
armennsku sem hann kynni hreint
ekki að meta.
Reagan var á hinn bóginn í varnar-
Sumartími í HAGKAUP
verslanir verða opnar sem hér segir:
mánud.
mánud
mánud.
Skeifan
- fimmtud...
föstud....
laugard....
Kringlan
fimmtud......
föstud......
laugard......
Kjörgarður
fimmtud......
föstud......
laugard......
...9 - 1830
....9 - 21
.....lokað
...10 - 19
...10 - 21
....lokað
...9 - 18
...9 - 19
...lokað
Njarðvík
mánud. - fimmtud..10 - 19
föstud......9 - 19
laugard.....10 - 14
Akureyri
mánud. - miðvikud.....9- 18
fimmtud......9 - 20
föstud......9 - 19
laugard.....lokað
HAGKAUP